Dagur - Tíminn Reykjavík - 06.03.1997, Síða 7

Dagur - Tíminn Reykjavík - 06.03.1997, Síða 7
ÍDagur-ÍEmtmn Fimmludagur 6. mars 1997 - 7 ERLENDAR FRÉTTIR Þýskaland Úrgangurinn á leiðarenda 100 manns hlutu meiðsli í átökum við lögreglu út af flutningi með kjarnorkuúrgang. Til átaka kom milli lögregl- unnar og mörg þúsund kjarnorkuandstæðinga í gær meðan verið var að flytja kjarnorkuúrgang lokaáfangann til borgarinnar Gorleben í Þýskalandi, þar sem hann verð- ur settur í geymslu. M.a. særð- ust um 100 manns í átökunum þegar lestin kom á leiðarenda í Gorleben, en þar biðu þúsundir mótmælenda eftir henni og ætl- uðu ekki að hleypa lestinni í gegn. Lögreglan beitti m.a. vatnsþrýstibyssum. Fjöldi mót- mælenda var handtekinn. Viðbúnaður lögreglunnar var sá mesti sem þekkst hefur í Þýskalandi frá lokum seinni heimstyrjaldarinnar. Alls 30 þúsund lögreglumenn sáu um að tryggja að lestin kæmist á leiðarenda þrátt fyrir aðgerðir mótmælenda. Myndaði lögregl- an þétta keðju meðfram braut- arteinunum. Mótmælendur not- uðu m.a. teygjubyssur og eld- sprengjur, og tókst hvað eftir annað að brjótast í gegnum varnir lögreglunnar og leggjast á brautarteinana til að teija fyr- ir lestinni. Á leiðinni höfðu tveir menn steypt sjálfa sig með stein- steypu við brautar- teinana, og þurfti lögreglan að losa þá frá með loftbor. Fjórum mönnum tókst einnig að tefja fyrir um stund á allra síðasta spott- anum með því að sveifla sér í köðlum fram og til baka yfir lestarteinunum. Kjarnorkuúr- gangurinn, sem þarna var verið að flytja til geymslu í Gorleben, kemur upphaflega úr þýsk- um kjarnorkuver- um. Úrgangurinn var á sínum tíma fluttur til Frakk- lands, þar sem hann átti að fara í endurvinnslu, en samkomulag var síðar gert þar sem ákveðið var að hann yrði fluttur aftur til geymslu í Þýskalandi. Svíþjóð Nemendur fái meiri völd Menntamálaráðherrann í Svíþjóð, Ylva Johans- son, lagði í gær fram tillögur um að gerð verði til- raun í sænskum menntaskólum strax næsta haust sem felur það í sér að nemendur taki þátt í stjórn skólanna. Hugmyndin er sú að heimilt verði að setja á laggirnar skólastjórnir í hverjum skóla þar sem fulltrúar nemenda verði í meirihluta. Þetta verði í framkvæmd hlið- stætt svonefndum foreldrastjórn- um sem þegar hefur verið komið í framkvæmd í sænskum grunn- skólum, en þar er heimilt að setja á laggirnar skólastjórn þar sem foreldrar eru í meirihluta. Valdsvið hinna fyrirhuguðu skólastjórna mun ná til íjár- mála skólanna, forgangsröðun verkefna og hvaða nám er í boði, svo nokkuð sé nefnt. Hins vegar skipta þær sér ekkert af sjálfri kennslunni eða starfs- mannastjórn. Þessar tillögur eru all um- deildar í Svíþjóð og samtök kennara eru til að mynda ekki par hrifin af þeim. Sænska þingið á eftir að taka afstöðu til þeirra á næstu vikum. Bretland Vilja einkavæða lífeyriskerfið Breski íhaldsflokkur- inn hefur í hyggju að einkavæða elli- lífeyriskerfi ríkisins. Breski íhaldsflokkurinn ætlar að reyna að hressa upp á ímynd sína og afla sér atkvæða í næstu kosningum með því m.a. að leggja fram róttækar hugmyndir um að einkavæða lífeyriskerf! ríkisins, þannig að hver einstaklingur geti safnað ser lífeyrisréttindum með því að greiða inn á skyldu- reikning. Með því kerfi sem nú er í gildi má búast við því að fjölgun ellilífeyrisþega verði til þess að sliga kerfið, en með þessum áformum er hugmyndin að komast út úr þeim ógöngum. íhaldsflokkurinn segir að með þessum hugmyndum sé enn- fremur stefnt að því að bæta kjör lífeyrisþega, sérstaklega þó þeirra sem eru með tekjur yfir meðallagi, og að þær sýni fram á að flokkurinn sé hreint ekki staðnaður þrátt fyrir langa setu í stjórn, heldur þori hann að end- urhugsa h'feyriskerfið frá grunni - ólíkt Verkamannaflokknum. Ekki er þó víst að almenn- ingur verði hrifinn af tillögun- um, þannig að þær gætu jafnvel orðið til þess að auka enn á for- skot Verkamannaflokksins fyrir kosningarnar, sem að öllum lík- indum fara fram í byrjun maí. íhaldsflokkurinn er með fleiri umdeild einkavæðingar- áform á prjónunum, því nýlega var skýrt frá hugmyndum hans um að einkavæða neðanjarðar- lestakerfið í London. Ný frímerki í dag koma út ný frímerki með málverkum eftir Svavar Guðnason og Þorvald Skúlason Fyrstadagsumslög fást stimpluð á pósthúsum um land allt. Einnig er hægt að panta þau hjá Frímerkjasölunni. FRIMERKJASALAN PÓSTUR OG SÍMI HF Pósthólf 8445, 128 Reykjavík 1 Heimasíða Frímerkjasölunnar er: http://www.simi.is/postphil/ - besti tími dagsins! TILBOÐ Á SMÁAUGLÝSINGUM FYRSTA BIRTING 800 KR. ENDURBIRTING 400 KR. Ofangreind verð miðast við staðgreiðslu eða VISA / EURO Simi auglýsingadeildar er 460 6100 - Fax auglýsingadeildar er 460 6161

x

Dagur - Tíminn Reykjavík

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur - Tíminn Reykjavík
https://timarit.is/publication/253

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.