Dagur - Tíminn Reykjavík - 06.03.1997, Blaðsíða 10
10 - Fimmtudagur 6. mars 1997
íDcigur-tExmmrt
HANDBOLTI • 2. deild
Þór sigraði
Fylkismenn
Við vorum stressaðir í byrjxm
og ég held að margir leik-
manna hafi verið með hugann
við lokaleikinn við Breiðablik.
Þetta varð því þungur róður
framan af, en baráttan skilaði
sér í síðari hálfleik," sagði Atli
Þór Samúelsson, leikmaður
Þórs, eftir sigurinn á Fylki 29:23
í íþróttahöllinni á Akureyri í
gærkvöld. Jafnt var í leikhléi,
12:12.
Með sigrinum komst Þór upp
að hlið Breiðabliks, en það er
nokkuð ljóst að innbyrðisleikur
liðanna á Akureyri, ræður úr-
slitum um það hvort liðið fylgir
Víkingi í 1. deild.
Atli Már Rúnarsson var at-
kvæðamestur hjá Þór með sjö
mörk og næstur kom Atli Þór
með sex mörk. Ágúst Guð-
mundsson skoraði m'u mörk fyr-
ir Fylki og þá átti þjálfari Ár-
bæjarliðsins, Magnús Ingi Stef-
ánsson, góðan ieik í markinu.
ÍSHOKKÍ
Tap gegn
ísrael 5:9
✓
Islenska unglingalandsliðið,
skipað leikmönnum átján
ára og yngri, tapaði öðrum
leik sínum í D-riðli Evrópu-
mótsins í Belgrad. íslenska liðið
lék gegn ísrael í gær og mátti
þola sitt annað tap í keppninni,
5:9. Eins og í leiknum gegn
Spáni í fyrradag, gekk íslensku
piltunum illa til að byrja með.
ísrael sigraði í fyrstu lotunni
4:1, annarri lotu lyktaði einnig
með sigri ísrael, 2:1, en jafnt
varð í þeirri þriðju, 3:3.
Ingólfur Ólsen úr Birninum
og Ingvar Jónsson úr SA skor-
uðu báðir tvö mörk fyrir fsland
og áttu að auki báðir stoðsend-
ingu. Ágúst Torfason úr Birnin-
um skoraði eitt mark og átti
tvær stoðsendingar og Eggert
Hannesson, SA átti eina stoð-
sendingu.
íslenska Iiðið á eftir þrjá leiki
í riðlinum, gegn Júgóslövum,
Búlgörum og Tyrkjum.
Leiðrétting
Björn Már Jakobsson, liðs-
maður unglingalandsliðsins
í íshokkí, leikur með Skautafé-
lagi Akureyrar, ekki með Birn-
inum, eins og sagt var í texta
undir mynd af liðinu í gær.
Hamar
félagsheimili Þórs:
Salir til leigu
Tilvaldir til hvers
konar íþrótta- og tóm-
stundaiðkana.
Gufa - Pottur -
Búningsaðstaða
Hamar
sími 461 2080
Júrí Sadovski, rússneska skyttan í Gróttuliðinu stígur dans við þrjá varnarmenn Vals.
UMFA styrtdi stöðu sína
Fátt virðist benda til þess
að Afturelding muni slaka
á í baráttunni um deildar-
meistaratitilinn. Mosfellsbæjar-
liðið gerði nánast út um leik
sinn við ÍR í fyrri hálfleiknum
og hefur nú fjögurra stiga for-
skot á toppi deildinnar.
Stjarnan-KA 24:23
Stjarnan hafði yfirhöndina allan
tímann, í leikhléi var staðan
13:9 og Stjörnumenn höfðu oft-
ast 4-5 marka forskot í síðari
hálíleiknum. Munurinn var þrjú
mörk þegar tvær mínútur voru
til leiksloka, en litlu munaði að
þær dygðu norðanmönnum til
að ná öðru sætinu. Ingvar
Ragnarsson varði skot Róberts
Julian Duranona á lokasekúnd-
unum. Konráð Olavson skoraði
9 mörk fyrir Stjörnuna og Hilm-
ar Þórlindsson 6. Sergei Ziza
skoraði átta mörk fyrir KA og
Björgvin Björgvinsson 6.
UMFA-ÍR 25:19
ÍR-ingar voru toppliði deildar-
innar engin fyrirstaða. Mos-
fellsbæingar náðu átta marka
forskoti í leikhléi, 14:6. Bjarki
Sigurðsson skoraði tíu af mörk-
um UMFA en Ragnar Óskarsson
var með níu mörk fyrir ÍR.
Selfoss-HK 24:24
Selfoss hafði lengst af yfirhönd-
ina í botnslagnum. Komst í
16:13 og síðar í 22:17, en missti
flugið á lokakaflanum. HK skor-
aði þrjú síðustu mörkin, komst í
16:13 og 22:17.
Valur-Grótta 22:23
Gróttumenn voru fljótir að ná
sér eftir útreiðina gegn Aftur-
eldingu. Seltirningar voru oftar
með yfirhöndina gegn íslands-
meisturunum, en leikur liðanna
var spennandi fram á lokasek-
úndurnar. Jón Kristjánsson og
Davíð Ólafsson skoruðu sjö af
mörkum Vals, en hjá Gróttu
skoraði Róbert Rafnsson sex
mörk.
FH-Fram 24:23
Framarar flengdu FH-inga í
fyrri umferð mótsins, sigruðu
þá með nítján marka mun, svo
eflaust hefur sigur FH verið
sætur. Framarar leiddu framan
af leiknum, en í síðari hálfleikn-
um voru FH-ingar yfirleitt fyrri
til að skora. Guðmundur Peter-
sen skoraði sjö af mörkum FH,
en Magnús Arngrímsson var
með fimm fyrir Framara.
Leik ÍBV-Haukar var frestað
vegna þess að ekki var flugfært.
Staðan er nú þessi:
UMFA 20 16 0 4 520:467 32
Haukar 19 13 2 4 484:451 28
KA 20 13 1 6 534:511 27
Fram 20 9 4 7 473:441 22
ÍBV 19 10 2 7 469:441 22
Stjarnan 20 9 3 8 520:503 21
Valur 20 8 3 9 454:461 19
FH 20 8 1 11 513:533 17
Grótta 20 6 2 12 465:510 14
ÍR 20 6 1 13 488:495 13
HK 20 5 2 13 453:492 12
Selfoss 20 4 3 13 488:545 11
HANDBOLTI •
1. deild kvenna
Heimasigrar
í Hafnarllrði
FH sigraði KR með eins marks
mun, 19:18, í fyrsta leik hð-
anna í 8-liða úrslitakeppninni í
Kaplakrika í gær. Hitt Hafnar-
íjarðarliðið byrjar einnig vel í
keppninni, liðið lagði Valsstúlkur
af velh, 26:21. Þau hð sem fyrr
eru til að vinna tvær viðureignir
komast áfram í undanúrslitin.
ÞÝSKALAND
íslendinga-
liðin töpuðu
Fimm leikir fóru fram í þýsku
1. deildinni í gærkvöld. Staða
íslendingahðanna Fredenbeck og
Shuttervald versnaði í fallbarátt-
unni, en topphðin héldu sínu
striki. Úrsht leikja urðu þessi í
gærkvöld.
Lemgo-Gummersbach 23:17
Magdeburg-Fredenbeck 23:20
Flensburg-Schuttervald 25:24
Nettelstedt-Kiel 28:25
Efstu lið deildarinnar:
TBV Lemgo 23 644:530 42
Flensborg. 24 582:516 33
Niederwurzbach 23 577:524 28
Wallau Massenh. 23 561:557 28
THW Kiel 23 606:545 26
Tusem Essen 23 558:560 25
KNATTSPYRNA
Stórsigur í
Manchester
Manchester United er komið
með annan fótinn í 4-liða
úrslitin í Meistarakeppni Evrópu,
eftir 4:0 sigur á Porto í fyrri leik
liðanna í Manchester. Staðan í
leikhléi var 2:0. David May, Eric
Cantona, Ryan Gigss og Andy
Cole gerðu mörk Manchester.
Úrsht urðu þessi í gærkvöld:
Ajax-Atletico Madrid 1:1
Bor. Dortmund-Auxerre 3:1
Man. Utd.-Porto 4:0
Rosenhorg-Juventus 1:1
HANDBOLTI • Dómarar á HM
Kröfumar eru
alltafað aukast
Stefán Arnaldsson og Rögnvald Erlingsson, þurfa að gangast undir erfið
þrekpróf, eins og aðrir dómarar á HM í Japan.
að má vera eftirsóknar-
vert fyrir handknattleiks-
dómara að fá að dæma í
úrslitum HM í Kumamoto í Jap-
an í vor en í þeim efnum verður
enginn óbarinn biskup. Dóm-
aranefnd IHF, (Alþjóða Hand-
knattleikssambandsins) þar
sem Kjartan Steinbach er for-
maður, hefur nú valið þau 16
dómarapör sem sjá munu til
þess að allt fari að settum regl-
um innan vallar. Meðal þeirra
er íslenska dómaraparið Stefán
Arnaldsson og Rögnvald Er-
lingsson.
Dómaranefndin hefur nú
gert öllum landssamböndum,
sem koma til með að eiga dóm-
ara á IJM, grein fyrir því til
hvers er ætlast af dómurunum.
Aldrei hafa verið gerðar meiri
kröfur um líkamlegt atgervi
dómara. Það er ekki nóg að
standast þrekprófið einu sinni,
því allir verða þeir prófaðir,
bæði í sínu heimalandi og síðan
aftur við komuna til Japan.
Komi í ljós að eitthvert lands-
sambandanna sendi dómara,
sem ekki er í því formi sem til
er ætlast, verða viðkomandi
sendir heim á kostnað síns
sambands sem einnig verður að
bera kostnað af varadómurum
sem fengnir verða fyrir þeirra
menn. Nú verður ekki hægt að
svindla.
Dagur-Tíminn hafði sam-
band við Rögnvald Erlingsson
til að forvitnast um til hvers
væri ætlast af dómurunum og
hvernig undirbúningi hjá þeim
félögum gengi. Rögnvald sagði
' að kröfurnar væru alltaf að
aukast um að dómarar væru í
góðu líkamlegu formi ekki síður
en leikmenn. Það segði sig al-
veg sjálft að dómarar yrðu að
hafa úthald í heilan leik. Varð-
andi kröfurnar sem gerðar eru
fyrir HM í Japan sagði Rögn-
vald að þeir þyrftu að æfa
reglulega þrisvar í viku þar sem
hlaupnir væru 10.5 km á fimm-
tíu mínútum. Þá væru tekin
Qögur mjólkursýrupróf á undir-
búningstímabilinu sem þeir
yrðu að standast. Sjálfur sagð-
ist Rögnvald alltaf hlaupa úti 35
mínútur á dag fimm daga vik-
unnar en nú væri komið að því
að bæta við æfingarnar fyrir
HM. Þá væri farið í Mátt og æft
þar eftir þörfum þar til öllum
markmiðum væri náð. -gþö