Dagur - Tíminn Reykjavík - 15.03.1997, Blaðsíða 3
^DctgtftÆmrflm
-Laugardagur 15. mars 1997 —3
F R É T T I R
Dómsmál
Heimilt að mismima
fólki af sama kyni?
Hæstaréttardómur
segir að karl og kona
í sams konar starfi
skuli fá sömu laun
þrátt fyrir mismun-
andi stéttarfélög og
kjarasamninga.
Mismunandi kjarasamn-
ingar geta ekki einir sér
réttlætt launamismun
kvenna og karla segir Hæsti-
réttur, sem á grundvelli jafn-
réttislaga, dæmdi RÚV-sjónvarp
til að greiða konu 234 þús. kr.
Konan starfaði sem útsending-
arstjóri á vöktum á móti karli.
Hún valdi að taka laun eftir
kjarasamningi Útgarðs, en
hann var í Rafiðnaðarsamband-
inu.
„Sú lagaskylda hvílir á at-
vinmu-ekanda að sjá til þess, að
konur og karlar fái greidd jöfn
laun og njóti sömu kjara fyrir
jafnverðmæt og sambærileg
störf,“ segir Hæstiréttur. Hefði
málið farið á sama veg ef út-
sendingarstjórarnir hefðu verið
tveir karlar, eða tvær konu?.
„Þeir/þær hefðu aldrei getað
farið í mál, af því að þá var úti-
lokað að vísa til þessa kyn-
bundna launamunar," sagði
Gunnar Björnsson form. samn-
inganefndar ríkis-
ins. „Það er þetta
sem bögglast fyrir
brjóstinu á manni.
Manni finnst dóm-
urinn ekki byggja á
að þessi launa-
munur sé kyn-
bundinn.“
Gunnar segir
verkalýðsforystuna
lfka spyrja sem
svo: Þýðir þetta að
stéttarfélögin séu ekki lengur
samningsaðilar. „Hæstiréttur
byggir dóm sinn á að ráðning-
arsamningarnir séu mismun-
andi, þannig að kjarasamning-
urinn er ekki lengur grunn-
gagnið. Það þýddi þá að áhrif
stéttarfélaga í kjarasamninga-
gerð verða ósköp takmörkuð.“
Gunnar bendir á umhugsun-
arvert dæmi: BSRB og BHM;
nákvæmlega sömu störf og ná-
kvæmlega eins uppbygging á
launatöflu. En BHM hafi undan-
farin ár valið að taka launa-
hækkamr í prósentum en BSRB
hins vegar í krónutöluhækkun-
um, sem þýði vaxandi mun í
krónum talið eftir því sem ofar
kemur í launatöflurnar. „Þýðir
það þá, að BSRB-karl, sem er í
sama starfi BHM-kona, geti nú
kært og heimtað sama kaup og
konan, af því krónutalan er
hærri, ofarlega í BHM töfl-
unni?“
Dóm Hæstaréttar segir
Gunnar mynda alveg nýjan flöt
á málinu, nýja túlkun sem nú
taki gildi. „Jú, þetta mun hafa
áhrif í alls konar áttir. Og þau
eru heldur ekkert bundin við
ríkið.“
Hæstaréttardómurinn hafi
ekki snúið niðurstöðum Héraðs-
dóms á haus heldm- einnig
tveim fyrri Hæstaréttardómum
um sambærileg mál. í þeim
báðum hafi niðurstaðan orðið
þessi: Það er ekki hægt að taka
svona eitt atriði út úr, það verði
að líta á málið heildstætt. Hér-
aðsdómur hafi litið svo á að um
tvo mismunandi kjarasamninga
væri að ræða, byggða á tveim
mismunandi forsendum og þar
af leiðandi - þar sem stefnandi
átti val um það hvaða kjara-
samning hún tæki - væri ekki
sýnt fram á að henni hefði verið
mismunað vegna kynferðis.
- HEI
Mjólkursamsaian
Mjólk ekki
hellt niður
Svo virðist sem verkfall Dags-
brúnarmanna í Mjólkm’sam-
sölunni hafi ekki enn haft þau
miklu áhrif á bændur eins og
óttast var í upphafi. Mjólkur-
bændur í Kjós, Borgarfirði og á
sunnanverðu Snæfellsnesi hafa
t.d. ekki enn þurft að hella nið-
ur mjólk vegna þess að hún fer
til vinnslu í Búðardal og á Sel-
fossi. Á þessum stöðum er
mjólkin m.a. unnin í osta, smjör
og aðrar geymsluþolnar mjólk-
urvörur. Hinsvegar hefur verk-
fallið skapað neytendum ákveð-
inn óþægindi.
„Það segir sig sjálft að fólk
hættir ekki að drekka einhverja
drykki þó mjólkin hverfi," segir
Guðlaugur Björgvinsson, for-
stjóri MS, sem óttast að það tapi
markaðshlutdeild sinni í drykkj-
arvörum til appelsínudrykkja og
annarra álíkra. Þá getur það
orðið erfitt fyrir MS að ná fyrri
fótfestu á markaðnum eftir því
hvað verkfallið varir lengi.
Forstjóri MS segir að fyrir-
tækið sé að tapa miklum pen-
ingum vegna verkfallsins og
einnig bændur á þessum svæð-
um sem eru eigendur að MS.
Hann segir erfitt að meta þann
skaða sem fyrirtækið hefur þeg-
ar orðið fyrir, bæði fjárhags- og
markaðslega. -grh
Gunnar Björnsson
form. samninganefndar rikisins
„Manni finnst dómurinn
ekki byggjast á að
þessi launamunur sé
kynbundinn. “
Hafnarfjörður
Sækja um styrk
til málsvamar
Hafnarfj ar ð arkr at arnir
Sverrir Ólafsson mynd-
listarmaður og Magnús Haf-
steinsson hafa óskað eftir
styrk úr bæjarsjóði Hafnar-
íjarðar að íjárhæð 200 þús-
und krónur hvor til greiðslu
málsvarnar í meiðyrðamáli
sem Jóhann G. Bergþórsson,
bæjarfulltrúi og fyrrverandi
forstjóri Hagvirkis-Kletts,
höfðaði á hendur þeim fyrir
ummæli í sinn garð í fjöl-
miðlum.
í skrifum til bæjarráðs
Hafnarijarðar segja tví-
menningarnir að þeir sæki
um styrk til að verja stjórn-
arskrárbundinn rétt borgar-
anna til málfrelsis og rit-
frelsis. Einnig til þess að
verja rétt til réttmætrar og
eðlilegrar gagnrýni á störf
kjörinna bæjarfulltrúa.
í samtali Dags-Tímans
við Sverri Ólafsson kom
fram að honum þætti lýð-
ræðið í landinu skringilegt
þegar kjörnir fulltrúar lög-
sæktu fólk fyrir að segja
skoðanir sínar og menn
þurfi að sækja um aðstoð
hjá bæjaryfirvöldum til að
veija sig fyrir árásum kjör-
inna bæjarfulltrúa.
„Við teljum að þarna sé
verið að brjóta á okkur
mannréttindi og það sé hik-
laust hlutverk bæjarins að
vernda mannréttindi borg-
aranna," segir hann og er
ekki sammála því að bærinn
þurfi líka að styrkja Jóhann
ef tvímenningarnir fái styrk.
Bæjarlögmaður hefur er-
indið til umsagnar. -GHS
Sigtufjörður
Þormóður rammi með
178 milljóna hagnað
Utgerðar- og fiskverkun-
arfyrirtækið Þormóður
rammi hf. skilaði 178,5
milljón króna hagnaði á sl.
ári og nam hagnaðurinn
9,3% af veltu. Á árinu 1995
var hagnaðurinn 206,1
milljón króna. Heildarvelta
fyrirtækisins varð 1.922
milljónir króna á móti 1.971
milljón króna árið 1995. Að-
alfundurinn verður haldinn
25. apríl nk.
Þormóður rammi hf. tók
á móti 6.500 tonnum af
rækju á árinu; 2.220 tonn-
um af bolfiski og 216 tonn-
um af laxi. Um 80% af tekj-
um fyrirtækisins myndast
vegna rækjuafurða. Minni
hagnaður á síðasta ári en á
árinu 1995 skýrist fyrst ogt
fremst af verðlækkun á
rækjuafurðum á síðasta ári.
GG
Hvalfjarðargangavegur
Gerð vegtenginga við Hvalfjarðargöng er á undan áætlun þrátt fyrir allan þennan snjó. Mynd. ohr
Illska en góður gangur
Þrátt fyrir illviðri og
snjóalög er gerð
vegtenginga fyrir
Hvalfjarðargöng á
undan áætlun.
etta tefur okkur," segir
Hörður Blöndal hjá Rækt-
unarsambandi Flóa og
Skeiða um tíðarfarið, en fyrir-
tækið sér um gerð vegtenginga
fyrir Hvalíjarðargöng.
„Við þurfum alltaf að hreinsa
snjóinn undan vegstæðunum og
upp úr skurðum og öðru. Það
getur stundum verið hálfgerð
kleppsvinna.
Það er búinn að vera núna
mánaðartími mjög rysjóttur og
á undan þessum þremur dögum
höfum við verið í hálfgerðri
illsku. Við höfum tvívegis hætt
vegna veðurs, það sá ekki út úr
augum vegna skafrennings og
éljagangs.“
Þrátt fyrir þetta er vegagerð-
in á undan áætlun. „Það gengur
mjög vel, það má segja að við
séum búnir að koma fyllingum
á 15 km. af 20, undirlagi og
hluta af burðarlagi.“
Verkið fór af stað af krafti
undir mánaðamótin október-
nóvember en verklok eru áætl-
að vakti athygli ýmissa
viðskiptavina ÁTVR í
Reykjavík í gær að ekki
var hægt að fá allar tegundir af
uð á miðju næsta ári. „Það voru
ákvæði um að gengi gangagerð-
in vel yrðum við að skfia fyrr.
Við reiknum með að setja bund-
ið slitlag á einn þriðja af vegin-
um næsta haust."
Meðal annars er notast við
efni sem kemur upp úr Hval-
Qarðargöngum, en það er farið
með í átt að Akranesi. Auk þess
er sótt efni í tvær stórar námur.
-ohr
erlendum bjór á útsölustöðum.
Þær skýringar voru gefnar að
gámur með bjór hafi verið í
Vikartindi.
Reykjavík
Ber á bjórskorti