Dagur - Tíminn Reykjavík - 15.03.1997, Blaðsíða 6

Dagur - Tíminn Reykjavík - 15.03.1997, Blaðsíða 6
6 - Laugardagur 15. mars 1997 jOagur-©ínrám F R É T T I R Landsbankinn/VÍS Stærsti bankinn og trygg- ingafélagið í eina sæng Mynd: Hilmar að var prúttað um stórar fjárhæðir, þegar fulltrúar Brunabótar og Lands- banka settust niður á föstudag- inn fyrir viku tU að semja um kaupin. Samningar tókust síðan í fyrrakvöld um sölu Eignar- haldsfélags Brunabótafélags ís- lands hf. á helmings eignarhlut í VÍS, fyrir 3.400 milljónir króna. Sverrir Hermannsson bankastjóri sagði í gær að samningsferlið hefði mátt vera mun styttra. Búast við heitri umræðu Stjórn Landsbankans hafði leit- að víða fyrir sér um kaup á tryggingafyrirtæki. Meðal ann- ars var rætt við eigendur Al- þjóðlega líftryggingafélagsins, umræður voru við erlend trygg- ingafélög og loks LÍFÍS, sem aftur leiddi til kaupa á helmingi stærsta tryggingafélags lands- ins, VÍS. Landsbankastjórar töldu á blaðamannafundi í gær að án efa ætti eftir að verða mikil um- ræða um þessi kaup bankans á stórfyrirtæki. Shkt væri nýlunda hér á landi. En þeir höfðu skýr- ingar á reiðum höndum. Kjartan Gunnarsson, for- maður bankaráðs Landsbanka íslands, sagði að hér væri um að ræða nýja og eðlilega stefnu- breytingu í starfsemi bankans. Samningurinn endurspeglaði örar og umfangsmiklar breyt- ingar í starfsumhverfi íjármála- fyrirtækja. Skörp skil milli hefð- bundinnar bankastarfsemi og annarrar fjármálaþjónustu heyri nú sögunni tíl, hérlendis sem erlendis. Borgað á næstu þrem árum Landsbankinn varð eigandi að eignarhluta gömlu Brunabótar Axel Gíslason for- stjóri fagnar nýjum meðeiganda í fyrir- tækinu. s g fagna því að fá jafn öfl- ugan aðÚa og Landsbanki íslands er til samstarfs," sagði Axel Gíslason, forstjóri Vátryggingafélags íslands, VÍS, í samtali við Dag-Tímann í gær- kvöldi. „Við höfum auðvitað horft mjög á það undanfarin ár á hvern hátt við getum sem best Með 3,4 miiljarða á borðinu. upp úr kl. 16 í gær með miklum undirskriftum samninga í bankaráðssalnum við Austur- stræti. Hér er um að ræða kaup og kauprétt á eignarhluta í VÍS (44,2%) og Líftryggingafélagi ís- lands LÍFÍS (44,4%). Vegna eignarhluta hvors félagsins í hinu er í reynd um að ræða kaup á 50% eignarhlut í hvoru félagi að ræða. Landsbanki íslands snarar ekki allri upphæðinni, 3.400 milljónum, á borðið. Keyptur er strax 12% eignarhlutur í VfS, en síðan verður borgað næstu 3 árin með reglulegu millibili þar til 50% eignarhlut bankans er náð. Brunabót lifir áfram Brunabótafélag íslands er í búið okkur undir vaxandi sam- keppni, ekki síst erlendis frá, og aukið hlutverk í langtíma lífeyr- issparnaði landsmanna. Kaup okkar á hlutabréfum Skandia í Fjárvangi og það að við erum núna eigendur að Fjárvangi sem verðbréfafyrirtæki eru Hð- ur í því að undirbúa okkur und- ir þetta. Samstarfið við Lands- bankann núna gerir það að verkum að saman verða stærsti bankinn og stærsta tryggingafé- lagið mikið betur í stakk búin til að bjóða fjölbreytta og örugga þjónustu á sviði alls konar ijár- mála- og tryggingaþjónustu á hagkvæmari hátt,“ sagði Axel. „Erlend fyrirtæki víða um eigu fjölmargra aðila, meðal annars margra sveitarfélaga, Kópavogur mun vera stærst þeirra. Hilmar Pálsson fram- kvæmdastjóri sagði í gær að fé- lagið héldi áfram starfsemi sinni, alla vega eins lengi og eigendur óska ekki eftir að það verði lagt niður. Verði það lagt niður verður sjóðum þess skipt. Dagur-Tíminn hefur þegar heyrt raddir frá illa stöddum sveitarfélögum sem mundu fagna því að innleysa sinn hlut í félaginu. VÍS mun hins vegar áfram starfa sem sjálfstætt vátrygg- ingafyrirtæki með nýja „makk- era“ um borð. Það er ljóst að bankaafgreiðslur Landsbank- ans munu í framtíðinni þjóna sem sölukontórar fyrir VÍS og Evrópu eru að huga að við- skiptatækifærum með opnun landamæranna. Vátrygginga- markaðurinn er galopinn. Við sjáum fyrir okkur að aukinni þörf landsmanna fyrir lífeyris- sparnað verður að mæta með innlendum eða erlendum félög- um, hugsanlega hvoru tveggja. Það skiptir miklu máli að öflug innlend fyrirtæki geti annast áframhaldandi h'feyrissparnað- arþjónustu með ýmsu formi og geti þannig orðið öflugur styrk- ur íslensku atvinnulífi, í staðinn fyrir að horfa upp á að erlendir aðilar selji lífeyristryggingar í stórum stíl með það að megin- markmiði að peningarnir hverfi viðskiptavinum bent á viðskipti við tryggingafélag bankans. Landsbankinn hefur verið aðal viðskiptabanki VÍS. BlS-reglan ekki í hættu Það var riijað upp á blaða- mannafundi í gær að ekki er ýkja langt síðan að Landsbank- inn mátti sækja til Alþingis um aðstoð til að uppfylla reglur um eigið fé banka, svonefndar BIS- reglur. Bankastjórar bentu á að bankanum hefði verið nauðug- ur einn kostur að sækja til eig- enda sinna, þjóðarinnar, til að aíla íjár vegna kerfisbreytinga í bankamálum. Honum hefðu verið allar bjargir bannaðar og átti lögum samkvæmt ekki í önnur hús að venda. inn í þeirra Ijármálakerfi, fé sem verður bundið áratugum saman erlendis áður en það kemur heim aftur,“ sagði Axel Gíslason. Hann sagði að vissulega kæmi til greina að VÍS fari á al- mennan markað með hlutabréf. Það væri hins vegar ákvörðun eigendanna. Axel kvaðst bjóða Lands- bankann velkominn til sam- starfs og þakkaði um leið Brunabótafélaginu ágæta sam- vinnu og samstarf um árabil. -JBP Bankastjórar töldu að núna, 5 árum eftir aðstoð Alþingis, sé bankinn í stakk búinn að kaupa VÍS og taki það fé úr eigin sjóð- um. Formaður bankaráðs sagði að BIS- reglunum væri með þessu á engan hátt ógnað. Staða bankans væri öll önnur nú en árið 1992. Kjartan Gunnarsson neitaði því einnig að svo stór innkaup bankans í öðru fyrirtæki mundi hafa nokkur áhrif á vaxtamun í bankanum, sem flestum óar reyndar við. Hann sagði að vaxtamunur hjá Landsbankan- um væri sífellt að minnka, - og að hann mundi minnka áfram að óbreyttu. Með þessum kaupum íjölg- aði eggjunum í körfunni og íjöl- breytni þjónustunar væri aukin, sagði Kjartan. Áhugi á lífeyri fólksins „Bankinn hefur mikinn áhuga á að verða öflugur þátttakandi í lífeyristryggingum og öllu því sem það snertir. Þar er náttúru- lega uppspretta Iangtímasparn- aðar í þessu þjóðfélagi eins og annars staðar. Það er bönkum nauðsynlegt að eiga hlutdeild í þeim sparnaði og þar sjátun við fyrir okkur marga samstarfs- möguleika," sagði Kjartan Gunnarsson. Hann sagði kaupin fari fram í góðri sátt við með- eigendurna sem ættaðir eru úr samvinnuhreyfingunni: Eignar- haldsfélag Samvinnutrygginga, Ob'ufélagið, Samvinnulífeyris- sjóðinn og Samvinnusjóðinn. „Tryggingar og bankar eru ákaflega tengd starfsemi, en vissulega eru störfin þar sitt hvað. Við gerum ekki ráð fyrir öðru en að þessi fyrirtæki verði rekin sjálfstætt, en samstarfs- möguleikarnir þeirra í milli eru miklir," sagði Kjartan Gunnars- son, formaður bankaráðs Landsbanka íslands. -JBP vís Kemur til greina að VÍS fari á hlutabréfamarkað

x

Dagur - Tíminn Reykjavík

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur - Tíminn Reykjavík
https://timarit.is/publication/253

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.