Dagur - Tíminn Reykjavík - 15.03.1997, Blaðsíða 7

Dagur - Tíminn Reykjavík - 15.03.1997, Blaðsíða 7
íD;tgur-®mmtn ERLENDAR FRÉTTIR Úrslitaslagur um Kisangani Uppreisnarhermaður hrósar sigri: Mæta harðnandi mótspyrnu. Baksvið Dagur Þorleifsson egar þetta er ritað segja íjölmiðlar að Kisangani (áður Stanleyville), mikil- vægust borga í norðurhluta Sa- írs (sem áður var belgíska Kon- gó) og þriðja stærsta borg þess, geti fallið uppreisnarmönnum, sem hafa austurhluta landsins á sínu valdi, í hendur þá og þegar. Fréttir af þeim vígstöðv- um eru að vísu óljósar, vegna þess að Saírstjórn hefur rekið þaðan alla erlenda fréttamenn. Fréttaskýrendur telja að stjórn Mobutus Saírforseta muni ekki standa lengi eftir fall Kisangani, vegna þess að sú borg sé mikilvægasta sam- göngumiðstöð landsins. Harði kjarninn Tútsar Frá Kinshasa (áður Leopold- ville), höfuðborginni sem er í vesturhluta landsins, eru engir færir vegir lengur á landi, svo að heitið geti, og samgöngur milli höfuðborgarinnar og landsins að öðru leyti eru loft- leiðis og upp eftir Saírfljóti til Kisangani. Þaðan eru færar leiðir til austurhluta landsins, sem er góður til ræktunar, og suðurhlutans, þar sem námu- auður er mikill. Uppreisnarmenn eru frekar lauslegt bandalag ýmissa flokka og þjóðflokka, en harði kjarn- inn í herliði þeirra eru Saír- Tútsar. Þeir fá að öllum líkind- um hjálp nokkra frá Úganda, Rúanda og Búrúndi. En ekki hefur nema takmarkað reynt á her þennan ennþá. Saírski stjórnarherinn, hug- og aga- laus, hefur ekki veitt mikla vörn, en haft fyrir reglu að ræna að skilnaði borgir og bæi, sem hann hefur hörfað frá. En svo er að heyra að upp- reisnarherinn mæti harðnandi mótspyrnu, er hann nálgast Kisangani, eins og vænti mátti með hliðsjón af mikilvægi borg- ar þessarar. Andstæðingar þeir, sem uppreisnarmenn hafa einkum ástæðu til að óttast, eru annars vegar evrópskir mála- liðar í þjónustu Mobutus og hins vegar hútúska herliðið Int- Sýslumaðurinn á Húsavík Útgarði 1,640 Húsavík, sími 464 1300. Uppboð Framhald uppboðs á eftirfarandi eignum verður háö á þeim sjálfum sem hér segir: Pálmholt 10, Þórshöfn, þingl. eig. Þórshafnarhreppur, gerðarbeiðandi Byggingarsjóður verkamanna, mið- vikudaginn 26. mars 1997 kl. 13. Skútahraun 2a, Reykjahlíð, þingl. eig. Sæþór Kristjánsson, gerðar- beiðendur Byggingarsjóður ríkisins, Sameinaði lífeyrissjóðurinn og Sýslumaðurinn á Húsavík, þriðju- daginn 25. mars 1997 kl. 11.30. Sýslumaðurinn á Húsavík, 14. mars 1997 Halla Bergþóra Björnsdóttir, fulltr. erahamwe, sem var mikil- virkt í íjölda- morðunum á Tútsum í Rú- anda 1994. Vanir menn Evrópsku málaliðarnir - Pólverjar, Króatar, Serb- ar, Úkraínu- menn, Hvít- Rússar og Frakkar - eru að vísu ekki nema um 300 talsins, en vel herþjálfaðir og stríðs- reyndir marg- ir úr herjum fyrrverandi Sovétríkja og fyrrverandi Júgó- slavíu, auk stríða á þeim svæð- um eftir að tvö nefnd ríki leyst- ust upp. Foringi þeirra er Belgi að nafni Christian Tavermer, sem starfaði sem málaliði í sama landi á 7. áratugnum. (Laurent Kabila, leiðtogi upp- reisnarmanna, er einnig stríðs- reyndur frá þeirri tíð.) En óreiðan er slík hjá Saírstjórn að hún hefur trassað að greiða þessu aðkeypta varnarliði mál- ann og það því hótað að segja upp. Interahamwe hefur um 15- 20.000 manna Uð við Kisang- ani. Með hliðsjón af fortíð sinni í Rúanda búast stríðsmenn þessir ekki við neinu góðu af uppreisnarmönnum og er þeim því trúandi til þess að reyna af einhverri alvöru að verja Kis- angani og Mobutu falli. Léttlynt þing og horfið flóttafólk Um ástand stjórnar og stofnana ríkisins Saírs er það að segja m.a. að Mobutu forseti dvelst í Frakklandi, veikur af krabba- meini, og stjórnin, þingið og aðrar stofnanir á vegum ríkis- ins eru naumast í teljandi sam- bandi við landið lengur, varla einu sinni almenning í höfuð- borginni. Síðan 1990-91 hefur 784 þingmanna þjóðþing haft möguleika nokkra á að draga úr einveldi Mobutus. En um- ræðurnar á því þingi snúast að- allega um knattspyrnu, við- skipti milli þingmanna og gæð- inga þeirra og kvennafar þeirra. Þau mál, sem Saírþing hefur reynst duglegast við að afgreiða, eru frumvörp um launahækkanir og aukin fríð- indi fyrir þingmenn, sem yfir- leitt munu vera samþykkt. Stríð þetta hefur leitt af sér aukna þykkju milli Bandaríkj- anna og Frakklands. Bandarík- in eru ekki með öllu andhverf uppreisnarmönnum og Frakk- ar, sem styðja Mobutu eindreg- ið, gruna þau um að reyna að hagnýta ófriðinn til þess að efla áhrif sín í Afríku, og þá sérstak- lega Saír, á kostnað Frakk- lands. Á ófriðarsvæðinu - sem er í þykkasta frumskógi jarðar - og báðum megin við það eru á kreiki flóttamenn, Hútúar og aðrir, í hundruðþúsunda tali. Eftir talsmanni Flóttamanna- stofnunar Sameinuðu þjóðanna er haft að um 200.000 hútúskir flóttamenn hafi horfið þar fyrir um fjórum mánuðum. Er gefið í skyn að Tútsar kunni að hafa drepið þá til hefnda fyrir ijölda- morðin í Rúanda 1994. INNKAUPASTOFNUN REYKJAVÍKURBORGAR Fríkirkjuvegi 3-101 Reykjavík Sími 552 5800 - Bréfsími 562 2616 Utboð F.h. Gatnamálastjórans í Reykjavík er óskað eftir tilboðum í eftirfarandi verk: „Staðahverfi, Korpúlfsstaðavegur - Bakkastaðir. Gatnagerð og lagnir." Helstu magntölur eru: 7.5 m götur 226 m 7,0 m götur 413 m 6.5 m götur 200 m 6,0 m götur 567 m Holræsi 2120 m Brunnar 53 stk. Púkk 4930 fm. Mulinn ofaníburður 5250 fm. Steinlögn 120 fm. Verkinu skal lokið fyrir 20. júlí 1998. Útboðsgögn verða afhent á skrifstofu vorri frá þriðjudegin- um 18. mars nk. gegn 10.000 kr. skilatryggingu. Opnun tilboða: þriðjud. 1. apríl 1997 kl. 11 á sama stað. Laugardagur 15. mars 1997 - 7 INNKAUPASTOFNUN REYKJAVÍKURBORGAR Fríkirkjuvegi 3-101 Reykjavík Simi 552 5800 - Bréfsími 562 2616 Utboð F.h. Hitaveitu Reykjavíkur er óskað eftir tilboðum í verkið: „Suðurlandsbrautaræð - Endurnýjun 1997“. Endurnýja skal hlutann frá Sæbraut að festu austan við Mörkina nr. 8. Helstu magntölur eru: DN450/DN630 pípur í plastkápu: 650 m Stokklok og pípur fjarlægðar: 535 m Yfirborðsfrágangur: 2.000 fm. Útboðsgögn fást á skrifstofu vorri gegn kr. 15.000 skilatr. Opnun tilboða: þriðjud. 1. apríl 1997 kl. 14 á sama stað. F.h. Hitaveitu Reykjavíkur er óskað eftir tilboðum í verkið: „Safnæðar í Helgadal - Endurnýjun 1997“. Safnæðarnar eru í Helgadal sem gengur suður úr Mosfellsdal, vestan við Laxnes. Helstu magntölur eru: DN 250/400, DN 400/560 og DN 500/700 stálpípur alls: 625 m Pípur, 20-40 mm í þvermál, alls: 625 m Fjarlægja skal DN 250 - DN 500 pípur alls: 640 m Fjarlægja pípur, 20-40 mm í þvermál, alls: 300 m Yfirborðsfrágangur: 3.800 fm. Útboðsgögn fást á skrifstofu vorri frá þriðjud. 18. mars nk. gegn kr. 15.000 skilatr. Opnun tilboða: miðvikud. 9. apríl 1997, kl. 11 á sama stað. F.h. Hitaveitu Reykjavíkur, er óskað eftir tilboði í verkið: „Endurnýjun veitukerfis - 1. áfangi 1997, Vesturberg o.fl.“ Endurnýja skal dreifikerfi hitaveitu í Vesturbergi í Breið- holti, í Hegranesi og í Tjaldanesi í Garðabæ. Helstu magntölur: Lengd hitaveitulagna í plastkápu alls: 4.600 m Malbikun: 1.150 fm. Þökulögn: 650 fm. Útboðsgögn fást á skrifstofu vorri frá miðvikud. 19. mars nk. gegn 15.000 kr. skilatryggingu. Opnun tilboða: miðvikudaginn 2. apríl 1997 kl. 11 á sama stað. F.h. Byggingadeildar borgarverkfræðings er óskað eftir til- boðum í efni og vinnu við slípun og lökkun á parketi í ýmsum fasteignum Reykjavíkurborgar. Útboðsform kveður á um að bjóða skuli í hverja fasteign fyrir sig. Útboðsgögn verða seld á kr. 1.000 á skrifstofu vorri. Opnun tilboða: fimmtud. 3. aprfl 1997 kl. 14. F.h. Byggingadeildar borgarverkfræðings er óskað eftir til- boðum í viðgerðir og málun utanhúss á Breiðholtslaug við Austurberg. Um er að ræða steypuviðgerðir og málun á út- veggjum. Helstu verkþættir eru: múrviðgerðir, háþrýstiþvottur, sílan- böðun og málun. Útboðsgögn fást á skrifstofu vorri gegn kr. 10.000 skilatrygg- ingu. Opnun tilboða: þriðjud. 8. apríl 1997 kl. 14. F.h. Gatnamálastjórans í Reykjavík er óskað eftir tilboðum í verkið: „Gatnamerkingar 1997-1998“. Helstu magntölur eru: Málun: 12.000 fm. Mössun: 22.000 fm. Sprautumössun: 7.000 fm. Fræsing: 600 fm. Verkinu skal að fullu lokið 1. október 1998. Útboðsgögn fást á skrifstofu vorri frá þriðjud. 18. mars nk. gegn kr. 5.000 skilatryggingu. Opnun tilboða: fimmtud. 3. apríl 1997 kl. 11. F.h. Reykjavfkurhafnar er óskað eftir tilboðum í útvegun grjóts og byggingu brimvarnargarðs við Eyjargarð í Örfirisey, og nefnist verkið: „Lenging Eyjargarðs - Bygging brim- varnargarðs". Helstu magntölur eru: Útvegun, flutningur og röðun stórgrýtis í brimvörn: 50.000 rúmm. Útvegun, flutningur og frágangur grjóts í kjarna garðs: 60.000 rúmm. Útboðsgögn fást á skrifstofu vorri frá þriðjud. 18. mars nk. gegn kr. 10.000 skilatryggingu. Opnun tilboða: miðvikud. 23. aprfl 1997 kl. 14. F.h. Reykjavíkurhafnar er óskað eftir tilboðum í útvegun á timbri til bryggjugerðar og nefnist útboðið: „Hardwood and softwood for Ingólfsgarður Quay“. í útboðinu er gert ráð fyrir að seljandi skaffi eftirfarandi: Bryggjustaurar (Basralocus) 30 stk. Harðviður (Azotié) 100 rúmm. Annar viður (Fura) 30 rúmm. Útboðsgögn eru á ensku og fást á skrifstofu vorri frá þriðjud. 18. mars nk. gegn kr. 1.000 skilatryggingu. Opnun tilboða: fimmtud. 3. apríl 1997 kl. 15.

x

Dagur - Tíminn Reykjavík

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur - Tíminn Reykjavík
https://timarit.is/publication/253

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.