Dagur - Tíminn Reykjavík - 15.03.1997, Blaðsíða 11

Dagur - Tíminn Reykjavík - 15.03.1997, Blaðsíða 11
,3)agiir-®ttriffbt PJÓÐMÁL Taugárd&gtir TST Mafg 1997 -11 Veiðileyfagjaldið og útfærsla þess Sighvatur Björgvinsson skrifar S Ileiðara Dags Tímans (hví ekki DT?) sl. föstudag var m.a. rætt um veiðileyfa- gjald. Það segir ritstjórinn að sé enn óútfært. Það er misskiln- ingur. Veiðileyfagjald er hægt að útfæra á marga vegu, og hefur þegar verið gert. í þings- ályktunartillögu um veiðileyfa- gjald, sem þingmenn jafnaðar- manna lögðu fram í haust (3ja mál 121. þings), eru sýnd nokk- ur dæmi um útfærslu veiðileyfa- gjalds. í frv. til laga um breyt- ingu á lögum um stjórn fisk- veiða utan fiskveiðilögsögunnar, sem ég og þrír aðrir þingmenn jafnaðarmanna lögðu fram á Alþingi í sl. viku, er valin sú útfærsla hvað varðar veiðar úr norsk-íslenska sfldarstofninum, að veiðiheimildirnar verði boðnar út á frjálsum markaði og því nákvæmlega lýst, hvern- ig að útboðinu skuli staðið. Sú tillaga um útfærslu er mjög í anda þess, sem Halldór Ás- grímsson, formaður Framsókn- arflokksins, gat um í ræðu sinni við setningu landsfundar Fram- sóknarflokksins á liðnu hausti. Hugmyndir um útfærslu veiðileyfagjalds hafa því þegar verið lagðar fram. Áður en val- ið er á milli þeirra aðferða, sem til greina koma, þyrfti hins veg- ar að fara fram rækileg úttekt og skoðun á hinum ólíku að- ferðum. M.a. í því skyni að reyna að spá fyrir um hvaða af- leiðingar hinar mismunandi að- ferðir kynnu að hafa í félags- legu og hagrænu tilliti. Svo það sé hægt þurfa ýmsar opinberar sérfræðistofnanir þjóðarinnar að koma að málinu. Æðstu yfir- menn þeirra, þ.e. ráðherrar í ríkisstjórn íslands, hafa hins vegar verið andvígir því að fela stofnunum þau verkefni - alveg eins og þeir létu stöðva þá at- hugun á kostum og löstum hugsanlegrar aðildar Islands að ESB, sem hafin var að tilhlutan ráðherra Alþýðuflokksins. Skoðun og samanburður á ein- stökum útfærslum á veiðileyfa- gjaldi hefur því ekki farið fram. Það torveldar mönnum auðvit- að að velja skynsömustu og hagfelldustu aðferðina. Einföld spurning Tillögur og hugmyndir um út- færslu veiðileyfagjalds eru mis- munandi. Veiðileyfagjald er t.d. hægt að leggja á sem fast gjald fyrir hvert tonn í úthlutuðum aflaheimildum, sem ákveðið yrði í upphafi fiskveiðiárs, eða með því að bjóða aflaheimildir út á frjálsum markaði. Fyrri að- ferðin, um fast aflagjald, hefur rneira svipmót auðlindaskatts og ef ætti að nota hana til sveiflujöfnunar í sjávarútvegi yrði gjaldið að ákvarðast mis- hátt frá ári til árs eftir aðstæð- um. Síðari aðferðin, að láta verð veiðiheimilda ákvarðast á markaði, hefur hins vegar inn- byggð sveiflujöfnunaráhrif því lfklegt má telja, að markaðs- verð aflaheimilda myndi hækka samfara góðri afkomu sjávarút- vegsfyrirtækja, en lækka við versnandi hag. Þá má einnig velja um, hversu víðtækt veiði- leyfagjald ætti að vera. Á að láta það taka til allra aflaheim- ilda, t.d. í áföngum á tilteknu árabili, eða aðeins til viðbótar- aflaheimilda, sem úthlutað kynni að verða umfram tiltek- inn grunnkvóta, sem útgerðar- fyrirtæki fengju áfram ókeypis. Engin þessara aðferða er af sjálfu sér „sú eina rétta" - hinn „stóri sannleikur". Einmitt þess vegna er nauðsynlegt að sér- fræðistofnanir í samvinnu við hagsmunaaðila skoði og leggi mat á þær aðferðir, sem lýst hefur verið. Sjálf spurningin um hvort leggja skuli á veiðileyfagjald eða halda áfram ókeypis úthlut- unum á aðgangi að sameigin- legri auðlind til fárra einstak- linga og fyrirtækja er hins veg- ar ekkert flókin. Hún er þvert á móti mjög einföld. Spurningin IRU Framsóknarflokkurinn Borgarstjórnarkosningar Fundur í Fulltrúaráði framsóknarfélaganna í Reykjavíkur verður haldinn laugardaginn 22. mars 1997 kl. 13.00 í Ársal Hótel Sögu. Dagskrá: 1. Borgarfulltrúamir Sigrún Magnúsdóttir og Alfreð Þorsteinsson flytja stutt ávarp. 2. Næstu borgarstjómarkosningar 3. Önnur mál Stjórnin er einfaldlega þessi: „Er sann- gjarnt að þjóðin fái greitt fyrir, þegar tilteknum hópi manna er heimilað að nýta sameiginlega auðlind í ábataskyni?" 75% þjóðarinnar svara þessari spurningu jákvætt þegar spurt er í skoðanakönnunum. Það er rökleysa að hafna þeim þjóðar- vilja á þeim grundvelli, að fleiri en ein aðferð komi til greina við framkvæmdina. Til umhugsunar Veiðileyfagjald er ekki skattur. Til þess að skýra enn betur hvað átt er við þegar sagt er að tillagan um gjald fyrir takmörk- uð afnot af sameiginlegri auð- lind standi sjálfstætt og fyrir sínu þó framkvæmdin geti verið með mismunandi hætti getum við hins vegar tekið dæmi af skattgreiðslum til hins opin- bera. Flestir íslendingar eru t.d. sammála um, að greiða beri í sameiginlegan sjóð lands- manna eftir efnum og ástæðum hvers og eins. Hins vegar er mikill ágreiningur um, hvernig það skuli gert. Eiga skattleysis- mörkin að vera hærri eða lægri? Eiga skattþrepin að vera eitt eða fleiri? Á að lækka jað- arskattana eða skattlagninga- prósentuna sjálfa? Hefðu menn beðið eftir því að innleiða tekju og eignaskatta þar til allir hefðu orðið sammála um að- ferðina eða fundið „þá einu réttu“, þá hefði það enn ekki verið gert. Hins vegar reyna menn að nálgast réttlætið og sanngirnina með viðamikilli umíjöllun og athugunum sér- fróðra aðila í samráði við hags- munasamtök - alveg eins og gera þarf við val á aðferðum til þess að framkvæma veiðileyfa- gjald. Sama máli gegnir auðvitað um greiðslur fyrir afnot af tak- mörkuðum réttindum í eigu þjóðarinnar, sem eiga meira skylt við veiðileyfagjald en skattarnir. T.d. um greiðslur fyrir nýtingu námuréttinda í eigu opinberra aðila, eða greiðslu á leigu fyrir húsnæði eða jarðnæði í eigu þjóðarinnar. Menn eru ekki endilega sam- AKUREYRARBÆR Búsetu- og öldrunardeild Dvalarheimilið Skjaldarvfk Sjúkraliðar Laus eru til umsóknar störf sjúkraliða. Um er að ræða 100% og 70% starf. Einnig vantar sjúkraliða í sumarafleysingar og starfsfóik í eldhús. Laun samkvæmt kjarasamningi STAK/Sjúkraliðafé- lags íslands og Launanefndar sveitarfélaga eða Ak- ureyrarbæjar og Verkalýðsfélagsins Einingar. Upplýsingar gefur forstöðumaður í síma 462 1640. Upplýsingar um kaup og kjör eru gefnar í starfs- mannadeild Akureyrarbæjar í síma 462 1000. Umsóknarfrestur er til 26. mars nk. Umsóknareyðublöð fást í starfsmannadeild Akureyr- arbæjar, Geislagötu 9. Starfsmannastjóri. J mála um, hvernig þessar greiðslur eru ákveðnar, en flestir eru sammála um, að þær skuli inntar af hendi. Annað þykir fólki óeðlilegt. Sama máli á auðvitað að gegna um greiðsl- ur fyrir afnot fárra af sameigin- legri eign íjöldans, sem eru ís- lensku fiskimiðin. Fjölmargt annað er þörf á að ræða er varðar veiðileyfagjald, en það, sem hér hefur verið gert að umtalsefni. í umræð- unni ber t.d. talsvert á mis- skilningi, sem nauðsynlegt er að leiðrétta. En rýmisins vegna verður það að bíða betri tíma. Höfundur er formaður Alþýðuflokks- ins, Jafnaðarmannaflokks íslands Allt fyrir gluggann Gluggakappar Klappstangir Þrýstistangir Ömmustangir Hvítar - glittar - Viðarlitaðar KAUPLAND KAUPANGI Sími 462 3565 • Fax 461 1829 Hamar félagsheimili Þórs: Salir til leigu Tilvaldir til hvers konar íþrótta- og tóm- stundaiðkana. Gufa - Pottur - Búningsaðstaða Hamar sími 461 2080

x

Dagur - Tíminn Reykjavík

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur - Tíminn Reykjavík
https://timarit.is/publication/253

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.