Dagur - Tíminn Reykjavík - 19.03.1997, Side 11

Dagur - Tíminn Reykjavík - 19.03.1997, Side 11
|Dagrar-®mrám Miðvikudagur 19. janúar 1997 - 23 FÍNA FRÆGA FÓLICIÐ sœÓNiMJSt CLatcv&ífið Teitur Þorkelsson skrifar Salka Valka Ekki eru allir samfundir kynjanna undurþýðir, Salka Valka Halldórs Lax- ness urrar á vonbiðil sinni: taktu mig þá ef þú þorir. Síðan fljúgast þau á: Líkamir þeirra þrýstust hat- ramlega hvor upp að öðrum í tryltum lostþrúngnum átökum, líkt og þeir sæktust eftir að knosa hvor annan í mél, áþekk- ast tveim kvikindum sem ætla að hafa hvort annað sér til mat- ar, hver vöðvi spentur, brjóst við brjóst, kviður við kvið, ... Þau keyrðu hvort annað þvertyfir gólfið frá vegg til veggjar, brutust fyrst yfir leir- tauið, síðan stólana, prímusn- um hvolfdi, loks hrapaði vegg- myndin af hinum rólega út- lenda skógi, það hrikti í hverju tré, gólfið gekk í öldum. Að lok- um króaði hann hana í einu horninu. Og hann lagði munn sinn á varir henni einsog þegar svángt villidýr leggur trýni sitt við sár og smakkar blóðið með dýpstu og innilegustu velþókn- um lífsins. Nú fyrst staðreyndi hún þýðingu þessarar glímu, vaknaði til vitundar um hvað var að gerast. Það fór á hana berserksgángur. Hún greip í axlir honum og keyrði hann í einu vetfángi þvertyfir eldhús- gólfið og afturábak útum dyrn- ar, sleit sig af honum og spark- aði í kviðinn á honum svo hann vaknaði með dýrslegu óhljóði af þeim bríma sem grunurinn um blóð hennar hafði valdið í vitum hans. I fgerðir 1 útvarpsvekjara í 18 gerðir heyrnatóla Munið gjafakortin e rt RdDlSÍl Geislagata 14 • Sími 462 1300 John Waters í fimmtugsspjalli Hinn meinleysislegi leikstjóri, John Waters með strikaskeggið, sem gerðijaðarmyndir á borð við Pink Flamingos (ogFemale Trouble, Polyester, Hairspray, Cry-Baby o.Jl) er nú orðinn fimmtugur og því er aldarjjórðungur síðan Pink Flamingos sem gerði hann frœgan kom út. Og hún verður endurútgefin í tilefni af því... - Hvað finnst þér um það hve fólk er upptekið af dragdrottn- ingum um þessar mundir? „Dragdrottningar voru frem- ur forpokaðar þegar við gerð- um Pink Flamingos. Drag- drottningar hötuðu Divine, hún gerði grín að þeim en þær dreymdi um að verða Ungfrú Ameríka. Þær vildu hús í út- hverfi og minkapels. Ég er á móti disneyseringunni á drag- drottningum. Mér finnst að íjöl- skyldur ættu að hlaupa í burtu af skelfingu þegar þær sjá drag- drottningu en ekki kúra sig saman í sófanum þegar þær sjást í vídeóinu.“ - Þú hefur sagt að Pink Flamingos sé barnamynd... „Ég gæti örugglega verið settur inn fyrir það en ég hef sýnt myndina í afmælisveislum hjá börnum góðra vina minna og þau voru ekki nærri því eins hneyksluð og fullorðna fólkið. Fyrir þeim var Divine trúður. Ég sýndi líka hópi morðingja í fangelsi myndina og þeir sögðu: Vá maður, þú ert virkilega sjúk- ur. Það er eitthvað meiriháttar að hjá þér.“ - Hvað fannst foreldrum þín- um um hana? „Þeir hafa aldrei séð Pink Flamingos og pabbi íjármagn- aði hana. En ég borgaði honum hvert penní til baka og með vöxtum. Ég held þau hafi verið hrædd. Hvaða foreldri myndi gleðjast yfir því að sonur þeirra væri með einhverjum í dragi að borða hundaskít? Það er ekkert foreldri svo frjálslynt." Hvernig verður leg- steinninn þinn? „Bara R.I.P. (H.Í.F.) John Waters. Ég vil eins einfaldan og hefðbundin stein og hægt er. Ég þoli ekki dúllulega legsteina. Fólk skilur kjóla, kassa með kleinuhringjum og farða eftir á gröfinni hennar Divine. Ein- hverjir settu m.a.s. rafhlöðu- knúið lýsandi jólatré þar ein- hver jólin." - Hvað er það viðbjóðsleg- asta sem þú hefur gert? „Ég veit betur en svo að segja blaðamanni frá því. En ég hef samviskubit út af einu Þegar ég var brjálaður og vitlaus unglingur í Balti- more keyrði ég um ásamt vinum mínum og við brut- ust inn í bíla, stálum jóla- gjöfum fólks, opnuðum þær, skiluðum innihaldinu og fengum peningana til baka. Ég er enn með samviskubit út af þessu. Þetta var ekki mín hugmynd, en ég keyrði. Þannig ég ber þessu fulla ábyrgð.“ f mJr gerðir hljómfiutningstækja

x

Dagur - Tíminn Reykjavík

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur - Tíminn Reykjavík
https://timarit.is/publication/253

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.