Dagur - Tíminn Reykjavík - 19.03.1997, Blaðsíða 13

Dagur - Tíminn Reykjavík - 19.03.1997, Blaðsíða 13
íOagur-ÍEIhtthm Miðvikudagur 19. mars 1997 - 25 Húsnæði óskast Reyklaust og reglusamt par meö barn, óskar eftir 3ja herb. íbúö. Uppl. gefur Birgir Finnsson í vinnu- síma 462 3637 og heimasíma 462 3907. Húsnæði til sölu Einbýlishús á Hvammstanga. Til sölu Elnbýlishús á Hvammstanga meö bílskúr og 900 fm. lóö. Hentugt sem sumarbústaður. Innbú fylgir. Verð kr. 2,9 millj., ákv. ca 900 þús. Ýmis skipti koma til greina. Uppl. I síma 852 7194. Atvinna í boði Vanan og áreiöanlegan starfsmann vantar í tímabundna vinnu við af- greiðslustörf. Viðkomandi þarf að geta unnið sjálf- stætt og verið sveigjanlegur meö vinnutíma. Mikil vinna. Skilið inn uppl. um fyrri störf og meö- mæli á afgreiöslu Dags, merkt „S.Á.“ Rafmagnsbilofnar Rafmagnsþilofnar. íslensk framleiðsla. Söluaöilar í Reykjavfk: Reykjafell, sími 588 6000, S. Guðjónsson, sími 554 2433. Söluaðili á Akureyri: Raflagnadeild KEA, sími 463 0417. Framleiöandi: Öryggi sf., Húsavík, sími 464 1600. Hjólbarðar Ódýrir hjólbaröarlll Fyrsta flokks hjólbarðar fyrir traktora, vinnuvélar og búvélar í öllum stærð- um. Sendum hvert á land sem er. Dekkjahöllin, Akureyri. Sími 462 3002, fax 462 4581. Bifreiðar Til sölu Isuzu diesel sendiferöabíll árg. '86. Talsvert yfirfarinn, 2 dekkjagangar á felgum. Uppl. í síma 462 2676. AL -ANON Samtök ættingja og vina alkohólista. Er áfengi vandamál í þinni fjölskyldu? Ef svo er getur þú í gegnum samtökin: - Hitt aðra sem glíma við samskonar vandamál - byggt upp sjálfstraust þitt. - bætt ástandiö innan fjölskyldunnar. - fundið betri líðan Fundarstaður: AA húsið, Strandgötu 21, Akureyri, sími 462 2373. Fundir í Al-Anon deildum eru: Miðvikudaga kl. 21.00 og laugardaga kl. 11.00 (nýliðar boðnir velkomnir kl. 10.30) Fundir Frá Sálarrannsóknafélaginu á Akureyri. ^ Opinn félagsfundur verður fimmtudagskvöldið 20. mars kl. 20.30. Ræðumaður kvöldsins er Bíbí Ólafsdótlir miðill. Allir velkomnir. Stjórnin. Fundur verður hjá Þroskahjálp á Norðurlandi evstra fimmtudaginn 20. mars kl. 20 á sal dvalarheimilisins Hlíðar. Björn Þórleifsson, formaður Bú- setudeildar, kemur á fundinn. Stjórnin. Messur Akureyrarkirkja. Síðasta föstumessa vetrarins verður í Akurcyrarkirkju mið- vikudagskvöldið 19. mars ki. 20.30. Séra Helgi Hróbjartsson, sem var prestur í Hríseyjarprestakalli, predikar. Síðustu 10 árin hefur hann verið við kristniboðsstörf í Senegal og Eþíópíu. Sungið verður úr Passíusálmunum og flutt fögur lítanía. Birgir Snæbjörnsson.______________ Glerárkirkja. f dag miðvikudag verður kyrrðarstund í hádeginu kl. 12.00-13.00. Orgelleikur, helgistund. altarissakramenti, fyrirbænir. Léttur málsverður að stundinni lokinni. Allir velkomnir. Sóknarprestur. Athugið Frá Sálarrannsóknafélaginu á Akureyri. Eftirtaldir miðlar starfa hjá félaginu á næstunni: Inga Magnúsdóttir, tarotlestur, 20.-24. mars. Bíbí Ólafsdóttir, lestur/heilun, 20.-24. mars. Dian Elliott, lestur/áruteiknun, umbreyt- ingafundir fyrir hópa, 2.-5. apríl. Valgarður Einarsson, lestur, 10.-14. apríl. Sigríður Guðbergsdóttir, heilun, 14.-17. aprfl. Mallory Stendall, lestur/flöskur, 12.-24. aprfl. Einnig verður Mallory Stendall með námskeið í næmni ef næg þátttaka fæst. Skráning er hafin. Tímapantanir og nánari upplýsingar eru í símum félagsins, 462 7677 og 461 2147, milli kl. 13.30 og 16. Munið fyrirbænastundina síðasta laugar- dag hvers mánaðar kl. 15.30. Heilun alla laugardaga frá kl. 13- 15.30. Stjórnin. Takið eftir Stígamót, samtök kvenna gegn kynferð- islegu ofbeldi. Sfmatfmi til kl. 19.00 í síma 5626868.______________________ Minningarkort Akureyrarkirkju fást í Safnaðarheimili Akureyrarkirkju, Blóma- búðinni Akri og Bókvali.___________ Minningarkort Gigtarfélags íslands fást í Bókabúð Jónasar. „...enef þú leggur aldur okkar allra saman hljótum við að vera nógu gömul til að mega horfa á myndina." Takið eftir Samúðar- og heiliaóskakort /jP Gideonfélagsins. Jy Samúðar- og heillaóskakort Gideonfélagsins liggja frammi í flestum kirkjum landsins, einnig hjá öðrum kristnum söfnuðum. Agóðinn rennur til kaupa á Biblíum og nýjatestamentum til dreifingar hérlendis og erlendis. Utbreiðum Guðs heilaga orð. Minningarkort Gierárkirkju fást á eft- irtöldum stöðum: I Glerárkirkju, hjá Ás- rúnu Pálsdóltur Skarðshlíð 16a, Guðrúnu Sigurðardóttur Langholti 13 (Ramrna- gerðinni), í Möppudýrinu Sunnuhlíð og versluninni Bókval. Frá Náttúrulækningafélagi Akureyrar. Félagar og aðrir velunnarar eru vinsam- lega minntir á minningakort félagsins sem fást í Blómabúðinni Akri, Amaro og Bókvali. íþróttaféiagið Akur vill minna á minn- ingarkort félagsins. Þau fást á eftirtöldum stöðum: Bjargi Bugðusíðu 1 Akureyri og versluninni Bókval við Skipagötu Akur- eyri. Minningar- og tækifæriskort Styrktar- félags krabbameinssjúkra barna fást hjá félaginu í síma 588 7555. Enn fremur hjá Garðsapóteki, sími 568 0990 og víðar um land. Minningarkort llmhyggju, félags til stuðnings sjúkum börnum, fást í síma 553 2288 og hjá Body Shop, sími 588 7299 (Kringlan)/561 7299 (Laugavegur 51).__________ Miðstöð fyrir fólk í atvinnuleit. Opið hús í Punktinum alla miðviku- daga frá kl. 15-17. Kaffiveitingar í boði, dagblöð liggja frammi og prestur mætir á staðinn til skrafs og ráðagerða. Sérstök dagskrá auglýst ef svo ber undir. Akureyrarkirkja. Já... en ég nota yfirleitt beltið! |U^FERÐAR Akureyri Síðasta sýning á Kossum og kúlissum Nú eru allra síðustu forvöð að sjá sýningu Leikfélags Akureyr- ar og Kórs Leikfélagsins á Kossum og kúlissum sem frum- sýnt var í lok janúar. Lokasýn- ingin er á laugardaginn. Skátafélag Akureyrar Bikarmótið 1996 (var frestað) hefst fimmtudaginn 20. mars kl. 20 í Skákheimilinu. Tefldar verða atskákir og eru menn úr leik eftir að hafa misst niður 3 vinninga. Allir velkomnir. Tónleikar á Kaffi Ólsen Á morgun mun hin nýstofnaða jasshljómsveit „Na Nú Na“ halda tónleika á Kaffi Ólsen við Ráðhústorg og er aðgangur ókeypis. Landið Skáld-Rósa verður sýnd í síðasta sinn hjá leikflokki Hvammstanga á fimmtudaginn. Sýningin hefst kl. 21 og er í félagsheimili Hvammstanga. Söngtónleikar á Hvolsvelli Á fimmtudaginn munu þær Steinunn Ósk Kolbeinsdóttir mezzosópran og Agnes Löve pí- anóleikari halda tónleika í sal Tónlistarskóla Rangæinga á Hvolsvelli og heíjast þeir kl. 21. FELAG JARNIÐNAÐARMANNA Frestun á atkvæðagreiðslu Atkvæðagreiðslu um boðun vinnustöðvunar sem fara átti fram dagana 19., 20., 21. og 22. mars 1997 hefur verið frestað um óákveðinn tíma. Kjörstjórn Félags járniðnaðarmanna. Ástkær bróðir okkar, AÐALSTEINN JÓNASSON, bóndi, Hrauni í Öxnadal, andaðist á Fjórðungssjúkrahúsinu á Akureyri mánudaginn 17. mars síðastliðinn. Jarðarförin auglýst síðar. Systkini og aðrir vandamenn hins látna. Ástkær eiginmaður minn, JÓN EYJÓLFUR GUÐMUNDSSON, bóndi, Porfinnsstöðum, Þverárhreppi, V-Hún., lést á Sjúkrahúsinu á Hvammstanga sunnudaginn 16. mars. Jarðarförin auglýst síðar. Alma Á. Levý og fjölskylda. Höfuðborgarsvæðið Styrktarfélag vangef- inna Aðalfundur félagsins verður haldinn í Kiwanishúsinu, Engjateigi 11, mánudaginn 24. mars nk. kl. 20. Venjuleg aðalfundarstörf, lagabreytingar, kafiiveitingar. Fyrirlestur um mis- þroska Stefán Hreiðarsson barnalækn- ir íjallar í fyrirlestri á félags- fundi Foreldrafélags misþroska barna um misþroskavandamál og ýmislegt þeim tengt. Fyrir- lesturinn verður miðvikudaginn 19. mars í Æfingaskóla Kenn- araháskóla íslands og hefst kl. 20.30. Fyrirlesturinn er einkum ætlaður foreldrum þeirra barna sem nýlega hafa fengið grein- ingu en aðgangur er ókeypis og öllum heimill. Féla eldri borgara í Reykjavík og nágrenni Þórður Helgason cand. mag. kynnir ritverk Guðmundar Friðjónssonar frá Sandi í Risinu kl. 15 í dag. Lesarar auk hans eru Raldvin Halldórsson, Björg Þorleifsdóttir og Jóhannes Ára- son. Leiksýning, Ástandið, í Ris- inu kl. 16 á morgun, laugardag og sunnudag. Síðustu sýningar. Gönguferðir um vor- jafndægur í fornu tímatali virðist vetri sól- ársins ijúka á vorjafndægri og vorið taka við. Á þetta minnir Hafnagönguhópurinn í síðustu kvöldgöngu fornvetrarins (ekki vetrarmisserisins sem verður 23. april) í kvöld, miðvikudag- inn 19. mars. Farið verður í ljósaskiptunum frá Hafnarhús- inu kl. 20 upp Grófina og vestur Framnesið um Valhúsahæð og útundir Gróttutanga. Þaðan til baka austur með strönd Kolla- fjarðar niður á Miðbakka í Reykajvíkurhöfn og að Hafnar- húsinu. Hægt verður að stytta gönguleiðina með því að hefja gönguna á Valhúsahæð kl. 21 eða nýta SVR. Á Snoppu við Gróttu verður boðið upp á harðfiskbita með smjöri. Á morgun fimmtudaginn 20. mars, verður vorjafndægri fagnað í gönguferð sem farin verður frá Hafnarhúsinu kl. 13 og vorjafndægursmínútunnar minnst Ú. 13.55 með því að skála fyrir því í sýrudrykk, að dagsbirtan hefur náð yfirhönd- inni í náttúrunni. Þetta verður kynnt nánar síðar. Allir eru vel- komnir í ferð með Hafnagöngu- hópnum. Félag kennara á eftir- launum Skákæfing í dag, þriðjudaginn 18. mars kl. 15 í Kennarahús- inu við Laufásveg.

x

Dagur - Tíminn Reykjavík

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur - Tíminn Reykjavík
https://timarit.is/publication/253

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.