Dagur - Tíminn Reykjavík - 21.03.1997, Qupperneq 10

Dagur - Tíminn Reykjavík - 21.03.1997, Qupperneq 10
Sýningu Kristjáns Guðmundsssonar að Ijúka Síðustu sýningardagar á sýn- ingu Kristjáns Guðmundssonar í Gallerí Ingólfsstræti 8. Kristján Guðmundsson er einn af okkar allra fremstu samtímalistamönnum og er verk hans að finna á söfnum víða um heim. Á þessari sýn- ingu eru íjögur ný verk og eru listunnendur dagsins í dag hvattir til að láta ekki þessa sýningu fram hjá sér fara, en henni lýkur sunnudaginn 23. mars. Sýningar í Norræna húsinu Laugardaginn 22. mars kl. 16 opnar Sigurður Þórir sýningu á málverkum í sýningarsal Nor- ræna hússins. Sýningunni lýkur 6. apríl. í anddyri Norræna hússins stendur yfir sýningin Tákn dag- renningar, sem norski arkitekt- inn, píramídafræðingurinn og rithöfundurinn Bodvar Schjel- derup hefur sett saman. Sýn- ingunni lýkur 9. apríl. Myndlist í Tehúsinu Laugardaginn 22. mars kl. 16 opnar Ragnhildur Stefánsdóttir myndhöggvari sýningu á skúlp- túr í Tehúsinu í Hlaðvarpanum, Vesturgötu 3. Tehúsið stendur í garði Hlaðvarpans og er minnsta myndlistarhús Iands- ins. Verkið nefnist Einvera og er unnið í gips og gúmmí á þessu ári. Sýningin stendur til 20. apríl og er opin einu sinni í viku, á laugardögum milli kl. 14 og 17. Þess á milli er unnt að skoða sýninguna allan sólarhringinn, inn um glugga Tehússins. Dönsk hönnun Sýning danska hönnuðarins Nönnu Ditzel á húsgögnum, vefnaði og skartgripum stendur yfir í Ráðhúsi Reykjavíkur. Henni lýkur á sunnudaginn, 23. mars. Að sögn Nönnu er þetta ein besta sýning hennar og salur- inn vel til fallinn að sýna hluti hennar. Gallerí Fold Sunnudaginn 23. mars lýkur sýningu á málverkum Soffi'u Sæmundsdóttur í baksal Galler- ís Foldar við Rauðarárstígs. Á sama tíma lýkur kynningu á tréristum Drafnar Friðfinns- dóttur í kynningarhorni galler- ísins. Málþing um stefnu- mótun í kennslu raun- greina Laugardaginn 22. mars, milli kl. 9 og 16, efna Félag raun- greinakennara og Samlíf, félag líffræðikennara til opins mál- þings um stefnumótun í kennslu raungreina. Málþingið er liður í vinnu félaganna við nýja aðalnámskrá fyrir grunn- og framhaldsskóla sem taka mun gildi haustið 1998. Málþingið verður haldið í húsakynnum MH, stofu 29. Allir velkomnir Málþing um stöðu samfélagsgreina Málþing um stefnumótun í kennslu samfélagsgreina vegna fyrirhugaðrar endurskoðunar námskrár verður haldið laugar- daginn 22. mars kl. 10-15 í stofu 201 í Odda. Flutt verða stutt erindi um málefni tengd samfélagsgreinum. Umræður í hópum og niðurstöður kynntar. Þeir sem vilja hafa áhrif á mótun nýrrar námskrár eru hvattir til að mæta. Fræðslufundur Nátt- úrufræðafélagsins Mánudaginn 24. mars kl. 20.30 verður haldinn næsti fræðslu- fundur Hins íslenska náttúru- fræðifélags á þessum vetri. Á fundinum flytur Ólafur Einars- son, fuglafræðingur á Náttúru- fræðistofnun íslands, erindi sem hann nefnir: Álftir, heima og að heiman. í fyrirlestrinum greinir hann frá rannsóknum sem staðið hafa frá 1994 til árs- loka 1996, þar sem fylgst hefur verið með farfiugi álftanna. Fundurinn verður haldinn í stofu 101 í Lögbergi, lagadeild- arhúsi Háskólans (ath. ekki Odda). Fræðslufundir félagsins eru öllum opnir og aðgangur er ókeypis. Þrek og tár Nú á sunnudag, 23. mars, er síðasta sýning á hinu geysi- vinsœla leikriti Ólafs Hauks Símonarsonar, Þreki og tár- um, sem gengið hefur fyrir fullu húsi í Þjóðleikhúsinu síðan í september 1995. Sýn- ingar eru nú orðnar 85 tals- ins og hefur ekkert annað ís- lenskt leikrit verið sýnt jafn oft í einni lotu á Stóra svið- inu. Þrek og tár verður að víkja vegna plássleysis, því rýma þarf fyrir nœstu frum- sýningu á Stóra sviðinu sem er Fiðlarinn á þakinu. Með nokkur helstu hlutverk fara Hilmir Snœr Guðnason, Edda Heiðrún Backman, Jó- hann Sigurðarson, Edda Arnljótsdóttir, Gunnar Eyj- ólfsson, Steinunn Ólína Þor- steinsdóttir, Stefán Jónsson og Anna Kristín Arngríms- dóttir. Tamlasveitin leikur og syngur. Lífog^c^ Kvöldnámskeið um lestur Biblíunnar í Dymbilvikunni, þriðjudags- kvöldið 26. mars, hefst nám- skeið á vegum Endurmenntun- arstofnunar Háskólans um Biblíuna, sögu hennar, tilurð, áreiðanleika og áhrif. Nám- skeiðið er haldið fimm kvöld alls og lýkur því 23. apríl nk. Kennari verður Sigurður Pálsson guðfræðingur, fram- kvæmdastjóri Hins íslenska Biblíufélags. Skráning og upplýsingar eru veittar á skrifstofu Endur- menntunarstofnunar Háskólans í síma 525 4923-24. Myndlistin og verald- arvefurinn Föstudaginn 21. mars kl. 14 heldur Douglas Davis fyrirlest- ur á Kjarvalsstöðum um verald- arvefinn og myndlistina. Douglas Davis er heimskunn- ur gagnrýnandi, fræðimaður og myndlistarmaður sem hefur sérhæft sig í gerð myndlistar- verka á veraldarvefnum. Hann mun Qalla um listræna mögu- leika veraldarvefsins og þau áhrif sem hann getur haft á eðli listaverka og hugmyndir manna um list- og höfundarhugtakið. Aðgangur ókeypis á meðan húsrúm leyfir. Laugardagsgangan Vikuleg laugardagsganga Hana nú í Kópavogi verður á morgun. Lagt af stað frá Gjábakka, Fannborg 8, kl. 10. Nýlagað molakaffi. Félag eldri borgara í Reykjavík og nágrenni Félagsvist í Risinu kl. 14 í dag, föstudag, Guðmundur stjórnar. Göngu-Hrólfar fara í létta göngu um bæinn kl. 10 laugar- dag frá Risinu, Hverfisgötu 105. Kaffi á könnunni. Næst síðasta sýning á leikrit- inu Ástandið verður í Risinu kl. 16 á laugardag, síðasta sýning sunnudag kl. 16. Félag eldri borgara í Kópavogi Spiluð verður félagsvist að Fannborg 8 (Gjábakka) í kvöld kl. 20.30. Ilúsið öllum opið. Opinn miðilsfundur Með ÞórhalU Guðmundssyni, miðli, verður haldinn í íþrótta- húsi Breiðabliks, Dalsmára 5, Kópavogi, 25. mars nk. kl. 20.30. Húsið verður opnað kl. 19.30. Aðgangseyrir er 1.000 krón- ur. Forsala er hafin í afgreiðslu íþróttahússins (s. 564 1990) Módelkvöld Kaffi Reykjavík býður öllum „módelum" sem hafa starfað við módelstörf meira eða minna sl. 30 ár á Kaffi Reykjavík næst- komandi laugardagskvöld kl. 20. Allir þeir sem hafa áhuga á að sýna sig og sjá aðra og riija upp gamlar og skemmtilegar minningar frá liðnum árum eru velkomnir. Félag fráskilinna Fundur verður í kaffihúsinu Tíu dropum, Laugavegi 27, föstu- daginn 21. mars kl. 20. 30. Fé- lagsfólk fjölmennið og takið með ykkur gesti. Kaffiveitingar. Nýir félagar velkomnir. Örkuml í Hinu húsinu Hljómsveitirnar Örkuml og Gaur spila á síðdegistónleikum föstudaginn 21. mars í Hinu húsinu kl. 17. Örkuml er án ef fremsta pönkhljómsveit bæjar- ins, en hún hefur nýlokið upp- tökum á breiðskífu sem væntanleg er innan skamms. Hljómsveitin Gaur er ung og efnileg hljómsveit úr Garðabæ skipuð þremur ungum mönnum og tóku þeir þátt í músíktil- raunum 1997. Tónleikarnir heíjast stund- víslega klukkan 17. Todmobile á Húsavík og Borgarnesi Hljómsveitin Todmobile leikur á Hótel Húsavík á föstudags- kvöldið og er aldurstakmark 16 ár. Þetta er fyrsti dansleikur Todmobile á Húsavík frá upp- hafi, en sveitin hefur áður hald- ið tvenna tónleika þar. Laugardagskvöldið 22. mars verður Todmobile svo með dansleik í Hótel Borgarnes og er það fyrsti dansleikur Todmo- bile á Vesturlandi í næstum fjögur ár. Úrslitakvöld Músiktil- rauna Úrslitakvöld Músiktilrauna Tónabæjar verður í kvöld, föstudaginn 21. mars, og hefst klukkan 20. Þær hljómsveitir sem þegar hafa komist áfram á tilrauna- kvöldunum eru Spitsign, Ebe- neser, The Outrage, Andhéri, Drákon, Woofer, Flasa og Tríó Óla Skans. 2-3 hljómsveitir bæt- ast við í kvöld á sjálft úrslita- kvöldið. Gestahljómsveit er Botnleðja. Múller. Löngum hafa menn litið svo á að í þessum 24 löginn rísi sköpunargáfa Schuberts hæst. Forsala aðgöngumiða er í Bókabúð Máls og menningar, Laugavegi 18, en miðasala er opin í Kirkjuhvoli við Vídalíns- kirkju í Garðabæ milli 15 og 17 tónleikadaginn. Miðaverð er 1.400 krónur. Trúðaskólinn Síðasta sýning á leikritinu Trúðaskólanum eftir Karl Waechter verður sunnudaginn 23. mars. Trúðaskólinn var frumsýndur á Stóra sviði Borg- arleikhússins í byrjun nóvem- ber og hefur leikritið verið sýnt allar helgar síðan og aðsókn verið með ágætum. Trúðaskólinn telst til sígildra barnaleikrita og hefur verið sýnt um allan heim við einstak- ar vinsældir. Að sumra áliti eitt fyndnasta barnaleikrit sem skrifað hefur verið. Heimur Guðríðar í Kópavogskirkju Á pálmasunnudag verður Ieik- ritið Ileimur Guðríðar: Síðasta heimsókn Guðríðar Símonar- dóttur í kirkju Hallgríms, eftir Steinunni Jóhannesdóttur sýnt í Kópavogskirkju. Sýningin hefst kl. 17. í leikritinu er á áhrifamikinn hátt rakin ævi- og píslarsaga Guðríðar Símonardóttur. Hún var í hópi tæplega 400 íslend- inga sem rænt var í Tyrkjarán- inu 1627, og ein fárra úr þeim hópi sem náðu aftur heim til ís- lands. Á heimleið kynntist hún í Kaupmannahöfn Hallgrími Pét- urssyni, en sambúð þeirra stóð til æviloka og hefur löngum vakið þjóðinni forvitni og jafn- vel hneykslun. 100. sýning á Bar pari Leikritið Bar par eftir Jim Cartwright hefur verið sýnt við miklar vinsœldir síðan haustið 1995. Sýningin er á Leyni- barnum í Borgarleikhúsinu og sitja leikhúsgestir við borð og geta notið veitinga meðan á sýningu stendur. 100. sýningin verður laugardaginn 22. mars kl. 20.30 og virðist ekkert lát á aðsókn. Til stóð að þetta yrði jafnframt síðasta sýning en vegna mikillar aðsóknar er í athugun að hafa örfáar sýningar eftir páska. Saga Jónsdóttir og Guðmundur Ólafsson leika öll hlutverkin sem eru bœði margvíslegir persónuleikar og á ýmsum aldri. Vetrarferð Schuberts Fimmtu tónleikar Schubert há- tíðarinnar í Garðabæ verða haldnir laugardaginn 22. mars kl. 17. Þar mun hollenski bar- ítónsöngvarinn Hans Zomer flytja ljóðaflokkinn Vetrarferð eftir Franz Schubert. Við hljóð- færið er Gerrit Schuil. Tónleik- arnir eru haldnir í Kirkjuhvoli við Vídalínskirkju í Garðabæ. Schubert samdi Vetrarferð- ina árið 1827, rúmu ári áður en hann dó, við ljóð eftir Wilhelm Fagra veröld Síðasta sýning á leikritinu Fögru veröld eftir Karl Ágúst Úlfsson og Gunnar Reyni Sveinsson verður í dag, föstu- dag, kl. 20. Fagra veröld er af- mælissýning Leikfélags Reykja- víkur og var frumsýnd á 100 ára afmæli þess þ. 12. janúar sl. Sýningin er byggð á ljóðum Tómasar Guðmundsssonar. Tónlistin er eftir Gunnar Reyni Sveinsson.

x

Dagur - Tíminn Reykjavík

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur - Tíminn Reykjavík
https://timarit.is/publication/253

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.