Dagur - Tíminn Reykjavík - 22.03.1997, Side 4
16 - Laugardagur 22. mars
Hamar
félagsheimili Þórs:
Salir til leigu
Tilvaldir til hvers
konar íþrótta- og tóm-
stundaiðkana.
Gufa - Pottur -
Búningsaðstaða
Hamar
sími 461 2080
LEIKFÉLAGIÐ
BÚKOLLA
SÝNIR í UÓSVETNINGABÚÐ
GAMANLEIKINN
©
eftir Rick Abbot í þýðinau Guðjóns Ólafssonar
Leikstjóri: SKULI CAUTASON
Föstud. 21. mars kl. 20.30
Sunnud. 23. mars kl. 14.00
Allra síðustu sýningar
©
MIÐAPANTANIR I SÍMÁ 464 3550
I UÓSVETNINGAB. FYRIR SÝN. S: 464 3617
Freyvangs-
leikhúsið
Sýnum firna
fyndinn gamanleik:
„Meb vífib
í lúkunum"
eftir Ray Cooney
Leikstjóri: Hákon Waage
11. sýning laugard.
22. mars kl. 20.30
12. sýning laugard.
22. mars kl. 23.30
Miðnætursýning
13. sýning miðvikud.
26. mars kl. 20.30
14. sýning fimmtud.
27. mars kl. 20.30
15. sýning laugard.
29. mars kl. 20.30
16. sýning mánud.
31. mars kl. 20.30
Mibapantanir í síma
463 1195 millikl. 18 og 20.
Á öbrum tímum er hægt aö
panta í gegnum símsvara.
1997
MENNING O G
IDitgur-'(!Ihmntt
LISTIR
Aðalleikkonurnar þrjár: Pheobe McEnery Beacham (t.v.), Mali Harries og Belinda Kelly.
VertíðarlíTið með augum Breta
Þrjár breskar stúlkur á vertíð á Suðureyri
við Súgandajjörð eru aðalpersónur í leikriti
sem leikhópur Jrá breska leiklistarskólanum
Bristol Old Vic œtlar að sýna hér á landi um
miðjan apríl. Leikstjórinn er íslendingur,
sem er við leikstjóranám við skólann, en
uppsetningin er útskriflarverkefni hans sem
hefur undið upp á sig.
Eitt af því sem ég þarf að
gera til að útskrifast er að
leikstýra klukkutíma leik-
riti. Ég mundi eftir leikriti sem
var sýnt heima á íslandi fyrir
nokkrum árum undir nafninu
„ísaðar gellur“, hafði samband
við höfundinn og hann gaf mér
leyfi til að nota það. Þar sem
leikritið gerist á íslandi kom
upp sú hugmynd að fara þang-
að með allan hópinn og sýna
verkið í fullri lengd,“ segir leik-
stjórinn, Gunnar Sigurðsson.
Þegar hugmyndin um íslands-
för kom upp kannaði Gunnar
möguleika á styrkjum frá ís-
lenskum fyrirtækjum og við-
brögðin urðu framar öllum von-
um. Meðal þeirra fyrirtækja
sem styrkja ferðina eru t.d. Lík-
amsræktarstöðin World Class,
Sælgætisgerðin Góa-Linda og
Bflasalan Skeifan.
Afleiðing þorska-
stríðsins
Leikritið heitir á ensku „Nort-
hern Lights" eða „Norðurljós"
en höfundurinn er Frederick
Harrison. Hann samdi verkið
upphaílega fyrir leikhús í hafn-
arborginni Huil. En hvað í
ósköpunum fær breskt leikrita-
skáld til að skrifa um vertíðar-
iífið á íslandi?
„Þegar þorskastríðið var í al-
gleymingi og íslendingar færðu
landhelgina út í 200 mflur
skapaðist mikið atvinnuleysi í
Hull. Þá fóru margar ungar
stúlkur til íslands til að vinna í
fiski og Harrison var fenginn til
að skrifa leikrit sem átti að
fjalla um það ástand sem skap-
aðist í Hull á þessum tíma.
Hann fór til íslands og dvaldi á
Suðureyri við Súgandaíjörð í
þrjár vikur. Tók viðtöl við stelp-
urnar sem þar voru að vinna og
spurði af hverju þær væru
þarna, hvað þær væru að gera
o.s.frv. Síðan bjó hann til þrjár
persónur úr þessum viðtölum,"
segir Gunnar.
Bubbi syngur með
Leikritið íjallar sem sagt um
þrjár breskar farandverkakon-
ur í vestfirsku sjávarplássi og af
því tilefni fannst Gunnari við
hæfi að fá ekki ómerkari tón-
listarmann en Bubba Morteins
til liðs við sig. „Bubbi hefur
samið marga góða texta einmitt
um farandverkafólk og hann
passar því mjög vel inn í sýn-
inguna. Hann syngur öll sín lög
á íslensku en við tölum á ensku.
Bubbi mun syngja lög eins og
Aldrei fór ég suður, Stál og
hnífur, ísbjarnarblús og fleiri
góð lög. Annars er það mikið
undir honum komið hvaða lög
hann vill setja inn,“ segir Gunn-
ar.
Sýningarnar á íslandi verða í
Þjóðleikhúskjallaranum og þar
verður Bubbi uppi á sviði. f vor,
þegar verkið verður sýnt í
Bristol Old Vic leiklistarskólan-
um, verður leikhópurinn hins-
vegar að láta geisladiska nægja
eins og á æfingunum. „Bubbi er
búinn að hljóma mikið hér und-
anfarnar vikur,“ segir Gunnar.
Vakið athygli í Bristol
Þetta verkefni leikhópsins hefur
vakið töluverða athygli í Bristol,
ekki síst fyrir þær sakir að förin
til íslands er algjörlega styrkt af
íslenskum fyrirtækjum. „ísland
hefur líka verið mikið í fréttum
hér undanfarið," bætir Gunnar
við og nefnir ferðaþætti í sjón-
varpi, þátt um íslenska jeppa-
menn, umfjöllun um eldgosið í
Vatnajökli og Björk. „Nú á lflca
að fara að selja dagsferðir til ís-
lands frá Bristol þannig að
landið er mikið í umræðunni."
Önnrn- ástæða fyrir þeirri at-
hygli sem leikhópurinn hefur
notið er sú að ein aðalleikkon-
an, Pheobe McEnery Beacham,
er dóttir tveggja þekktra leik-
ara. Móðir hennar er Stephanie
Beacham, sem m.a. lék á sínum
tíma í bandaríska sjónvarps-
þættinum Dynasti. Faðir henn-
ar, Johne McEnery, er einkum
þekktur sem Sheakspere leikari
í London en hefur einnig leikið í
kvikmyndum og verið tilnefnd-
ur til óskarsverðlauna. Nýleg
mynd sem hann lék í er t.d.
mynd Sean Penn „When Satur-
day Comes“.
Leikhópurinn kemur til
landsins í dag en heldur brátt
til Tálknafjarðar í tveggja vikna
æfingabúðir. Auk Gunnars og
aðalleikvennanna þriggja eru í
hópnum tveir karlleikarar,
hönnuður, sýningastjóri og að-
stoðarsýningastjóri. Sú síðast-
nefnda, Anna Pála Kristjáns-
dóttir, er reyndar einnig íslensk
og stundar nám í sýningastjórn
við sama skóla og Gunnar. Sýn-
ingar á leikritinu verða í Þjóð-
leikhúskjallaranum 10.-13. apr-
fl. AI
Aftari röð frá vinstri: Barry Satchwell Smith, leikari, Gunnar Sigurðsson,
leikstjóri, Anna Pála Kristjánsdóttir, aðstoðarsýningastjóri, og aðalieik-
konurnar þrjár Belina, Mali og Pheobe.
Fremri röð frá vinstri: Brad Fitt, sýningastjóri, Corrine Clark, hönnuður og
Oded Feher, leikari.