Dagur - Tíminn Reykjavík - 22.03.1997, Page 19
Ilixg^tr-ÍEmiírat
Laugardagur 22. mars 1997-
31
Umsjónarmaður
Magnús Geir Guðmundsson
Einn á báti
Jon Bon Jovi fer nú alfarið eigin leið í tónlistinni, eins
og hann hefur gert í kvikmyndunum að undanförnu.
Síðustu
tvö árin
eða svo
hefur nokkur
óvissa ríkt um
framtíð ofur-
popprokk-
sveitarinnar
Bon Jovi, eða
frá því síðasta
platan, These
days, kom út
1995. Sú plata
seldist reynd-
ar eins og
alltaf vel í
Bretlandi og
víðar í Evr-
ópu, en í
heimalandinu
Bandaríkjun-
um varð salan
hins vegar
lakari en von-
ir voru
bundnar við.
Alls kyns önn-
ur verkefni á
Bush engin bála
að vakti heldur betur at-
hygli árið 1995 þegar
breska rokkijóreykið Bush
frá London sló svo um munaði í
gegn í Bandaríkjxmum með
fyrstu plötunni sinni, Sixteen
stone. Raunar kom það svo
löndum Bush á óvart, að þeir
höfðu flestir ekki hugmynd um
hverjir þessir fjórir drengir
væru þegar þeir voru komnir á
allra varir í bandaríska rokk-
heiminum. Má með nokkrum
rökum segja að ásamt reyndar
öðrum hafi Bush fyllt upp í það
tómarúm sem Nirvana skildi
eftir sig við dauða Kurts Cobain
1994. Seldist platan í mörgum
milljónum eintaka í Bandaríkj-
unum einum og fór sveitin í
kjölfarið í mikla sigurtónleika-
för um landið. Hvort sem það
var út af einhverju „svekkelsi"
eða til að sanna að máltækið
góða um að „Enginn er spá-
maður í sínu föðurlandi" sé x'
fullu gildi, þá tóku Bretar hins
vegar lítt við sér og má næstum
segja að Bush hafi verið jafn
ófarsæl þar eins og sveitin var
farsæl í Ameríku. í nóvember
kom önnur plata Bush, Gavin
Rossdale söngvara og félaga
hans út og til að byrja með að-
eins í Bandaríkjunum. Hafa
margir spekingar í rokkinu í
seinni tx'ð verið að boða endalok
rymrokksins/Grungesins, sem
vissu lega hefur látið á sjá upp
á síðkastið. Töldu þeir því
margir þ.a.l. að ævintýrið með
Bush næði ekki lengra. Það hef-
ur hins vegar aldeilis reynst
rangt, því ekki aðeins fór nýja
platan, Razorblade suitcase
beint á toppinn í Bandaríkjun-
um, heldur var henni svo líka
vel tekið í Bretlandi nú þegar
hún kom út þar í byrjun febrú-
ar. Stökk platan beint í fjórða
sæti breska sölulistans og hefur
síðan haldist vel inn á topp 40
listanum. Er því greixúlegt að
Bush er engin bóla sem spring-
ur nær jafnharðan og hún hefur
blásið út.
Bush, halda áfram sínu striki og eru nú líka viðurkenndir í heimalandinu.
eigin vegum, t.d. tíður kvik-
myndaleikur söngvarans, Jon
Bon Bovi, vinna gítarleikarans
Richie Sambora að annarri ein-
herjaplötu sinni o.fl. hefur svo
líka gert það að verkum að
framtíð Bon Jovi sveitarinnar er
á huldu. Það dregur svo ekki úr
þessari óvissu, að nú berast tíð-
indi um að fyrstu eiginlegu
plötu Jon bon Jovi er að vænta í
sumar, sem hann ætlar svo að
fylgja vel og rækilega eftir með
tónleikaferð. Nafn plötunnar er
ekki komið fram, en fyrsta smá-
skífan af plötunni hefur aftur á
móti verið ákveðin. Mun lagið á
henni nefnast Midnight in
Chelsea og kemur út snemma í
maí. Samdi JBJ það með ekki
ófrægari kappa en Bruce Willis.
Sá er auðvitað flestum betur
þekktur sem hasarmyndaleikari
(Die Hard, Last man standing
o.s.frv.) en er þó ekki ókunnur
tónlistarheiminum. Hefur hann
a.m.k. sent frá sér tvær fínar
blúsplötur þar sem hann hefur
farið á kostum við söng og
munnhörpuspil. Er lagið að
söng Bon Jovi sjálfs ekkert líkt
Bon Jovi og hljómi „evrópskt". í
samræmi við það koma breskir
fagmenn mikið við sögu á
plötunni, þ.e. við upptöku henn-
ar. Sá frægi bolti Dave Stewart
fyrrum Eurythmicsmeðlimur
ásamt söngkonunni Annie
Lennox kemur þar við sögu og
einnig Steve Lironi, sem unnið
hefur með Shaun Ryder og fé-
lögum í Britpoppsveitinni Black
Grape. Sem fyrr sagði verður
þessi plata fyrsta eiginlega plata
Jon Bon Jovi undir eigin nafni.
Hann gerði reyndar plötuna
Blaze of Glory, kvikmyndatónlist
fyrir myndina Young Guns 2, en
það þykir ekki alveg sambæri-
legt. Um framtíð Bon Jovi sveit-
arinnar segir kappinn að hún sé
enn fyrir hendi, en nýrrar plötu
sé vart að vænta fyrr en í fyrsta
lagi 1999.
Endurkoma eftir
allt: saman
Fyrr í þessari viku bárust
tíðindi sem án efa þykja
mjög svo merkileg í aug-
um rokkaðdáenda og jafnvel
margra fleiri. Þau eru á þá leið
að eftir margar misheppnaðar
tilraunir hefur nú náðst sam-
komulag um að ein frægasta og
áhrifamesta þungarokkssveit
sögunnar, Black Sabbath komi
fram að nýju svo afgerandi sé
með upprunalega söngvaranum
Ozzy Osbourne. Nánar tiltekið
verður um að ræða tónleika-
hald sem hefst í vor undir nafn-
inu Ox fest, en ferð með því
nafni með Ozzy karlinn í farar-
broddi var fyrst farin í fyrra
með mjög góðum árangri. Auk
Ozzy verða í þessari endur-
reistu Black Sabbath, tveir aðr-
ir af upprunalegu meðlimun-
um, Tony Iommi gítarleikari og
Geezer Butler bassaleikari, en
því miður er fjórði hlekkurinn T'
frumkeðjunni, trommuleikarinn
Bill Ward ekki með í þessari
endurkomu hljómsveitarinnar í
Black Sabbath í sinni upprunalegu
og klassísku mynd.
upprunalegri mynd. Þykir sjálf-
sagt einhverjum það miður, en
bágt heilsufar Wards um langt
árabil er vafalítið það sem veld-
ur. í stað hans kemur trommu-
leikari fönkrokksveitarinnar
Faith no more. Aðrir sem svo
koma fram á Oz fest verða
Panter, Type 0 negative (sem
skartar söngvaranum og kyn-
tröllinu Peter Steele, en hann
mun vera fæddur hér á íslandi
og gott ef ekki er íslendingur að
hálfu) og Marlyn Manson. Sú
síðasttalda með samnefndan
söngvara í broddi fylkingar
þykir vera ein vafasamasta
hljómsveit sem fram hefur
komið í rokkinu í mörg ár og
hefur verið dugleg við að hrella
siðapostula heimsins að undan-
förnu.
JÚkíkúkliiULá Ááú L IJ k i LLítiká .iÁbiiiÁiá á im lla i iíáÁAÍAMi á , LUtl , íá.i íLa i
» » r 'V * p o r p i i ilti i . ik A ;t . i .Éki. i.t. A A i k. .1 t t i * 1 ! iií L ki á ; rrf T! . 1 i •• H áíi. ál í . . . i , ÍÁl 1 , i i 1 f ’ t.LÁ
• Mörgum rokkáhugamann-
inum til mikillar gremju, hef-
ur nú einum framsæknasta
liðnum og rokkaðasta, Head-
bangers ball, verið hætt á
MTV tónlistarsjón-
varpsrásinni evrópsku. Var
þessum þætti sem innihélt
umfjöllun unx framsækið og
þungt rokk, fórnað ásamt
fleiru í meiri háttar upp-
stokkun sem átt hefur sér
stað að undanförnu á efni
stöðvarinnar. Ekki mun úti-
lokað að svipaður þáttur und-
ir nýju nafxú komi í staðinn x'
framtíðinni, en ákvörðun um
það liggur ekki ennþá fyrir.
• Það hefur eflaust kætt
marga að Sjónvarpið hóf á
mánudaginn var að nýju sýn-
ingar á Krókudílaskónum
með leikaranum góðlátlega
og tónlistarmanninum Jimmy
Nail í aðalhlutverki. Fyrri
þættirnir og platan sem kom
út í tengslum við þá nutu
mikilla vinsælda og virðist
svo vera einnig nú. Plata
númer tvö kom út í byrjun
febrúar í Bretlandi og liefur
selst ágætlega.
• Öllum á óvart ákvað
trommari rokksveitarinnar
Foo Fighters með fyrrum Nir-
vanameðliminn Dave Grohl í
fararbroddi, William Gold-
smith, að segja skilið við
hana nú fyrir skömmu. Koma
þessi tíðindi á sama tíma og
nýrrar plötu frá Foo Fighters,
þeirri annarri í röðinni, er að
vænta. Mun hún bera nafnið
The colour and the shape og
kemur hún út 12. maí. Nýr
trommuleikari hefur ekki
verið ráðinn, en búist er við
að allavega til að byrja með
verði notast við óþekktan
mann.
• Nú þegar rúm tvö ár eru
liðin frá því að Richey James
Edwards gítarleikari sveitar-
innar vinsælu frá Wales,
Manic street preachers,
hvarf, eru enn að berast tíð-
indi um að hann sé hugsan-
lega enn lífs. Breskur kenn-
ari, Vic Morris, hefur nú
skýrt frá því fyrir stuttu, að
hann telji sig hafa séð Ed-
wards, í Goa á Indlandi. Seg-
ist Morris, sem sá Maiúcs
m.a. á tónleikum í Wales árið
1993, hafa talið sig bera
kennsl á Edwards þar sem
hann var að fara upp í lang-
ferðabifreið. Hvort þetta
kunni að vera rétt hefur botn
ekki fengist í, en félagar gít-
arleikarans horfna hafa opin-
berlega a.m.k. haldið í' þá von
að hann væri enn á lífi. Það
er hins vegar kaldhæðni ör-
laganna, að eftir hvarf hans
hefur þeim þremur sem eftir
stóðu gengið allt í haginn.
Hefur platan þeirra, Every-
thing must go, frá síðasta ári
selst í
750.000
eintök-
Richey James
Edwards. Enn á
lífi?