Dagur - Tíminn Reykjavík - 22.04.1997, Side 2
14 - Þriðjudagur 22. apríl 1997
|Diigur-'3Rnróm
LÍFIÐ í LANDINU
Úr dagbók lögregluimar á Akureyri
Segja má að þessa viku hafi óvenju fá
verkefni komið til bókunar hjá lögreglu
en þau voru talin 235. Það vita nú orðið
flestir sem þessa pistla lesa að flest
verkefnin koma úr umferðinni. Frá þeim
málaflokki er helst að segja að 25 öku-
menn voru kærðir fyrir of hraðan akstur,
11 fyrir að hafa ekki ökuskírteini sín
meðferðis, 5 fyrir að nota ekki öryggis-
belti, 5 fyrir að nota ekki ökuljós, 4 fyrir
að aka undir áhrifum áfengis, 3 fyrir að
virða ekki stöðvunarskyldu, 2 fyrir að
aka réttindalausir eftir að hafa áður ver-
ið sviptir ökuréttindum, 1 fyrir akstur
mót rauðu ljósi, og 1 fyrir að aka
númerslausri bifreið.
Bifhjólaslys
Skráningarnúmer voru tekin
af einni bifreið þar sem van-
rækt hafði verið að færa
hana til aðalskoðunar 1997
og af annarri sem vanrækt
hafði verið að færa til end-
urskoðunar á réttmn txma. Nú
mega eigendur ökutækja sem
hafa tölustafinn 1 í enda skráningar-
númers fara að huga að ökutækjum sín-
um en þeir höfðu marsmánuð sem síð-
asta mánuð til að færa ökutækin til að-
alskoðunar 1997.
Þrátt fyrir mikinn hraðakstur í vik-
unni voru aðeins 3 umferðaróhöpp
tilkynnt til lögreglunnar. Þar af varð eitt
slys laugardaginn 19. apríl sl., kl. 17:52,
á Gránufélagsgötu við Hólabraut. Þar
virðist ökumaður bifhjóls hafa misst vald
á því, lent á gangstéttarbrún og ljósa-
staur. Bifhjólið mun síðan hafa kastast
nokkra vegalengd og hafnað iim í nær-
liggjandi húsagarði. Ökumaður bifhjóls-
ins, sem talinn var mikið slasaður, var
fluttur á slysadeild FSA með sjúkrabif-
reið.
Puttalangir seilast í reiðhjól
Af öðrum málaflokkum er það að segja
að í 10 tilfellum var tilkynnt um minrn-
háttar eignaspjöll, 7 þjófii-
aðir voru kærðir og virð-
ist
sælast
að stela reiðhjólum. Eigendur slíkra
fáka ættu því að huga vel að þeim og
muna að læsa þeim. Tilkynningar bár-
ust tvisvar til lögreglunnar um grunsam-
legar mannaferðir, einu sinni um af-
brigðilega hegðun einstaklings á al-
mannafæri og í einu tilfelli um að-
finnsluvert háttalag einstaklings.
Ah! læsti lyklana inni
Skráðar eru 4 leitir og eftirgrennslanir á
fólki og 2 af ökutækjum. Tilkynnt var
tvisvar
um lausagöngu dýra en oft vill
það bregða við að kvartað er undan
lausum hundum og köttum. Ef lögregla
nær að handsama slík dýr þá er þeim
komið fyrir í geymslu Umhverfisdeildar
Akureyrarbæjar.
Ovenju margir ökumenn læstu
kveikjuláslykla sína inni í bifreiðum sín-
um. Þannig voru 13 læstar bifreiðar
opnaðar og 2 íhúðir.
Fjósbruni
Slökkvilið Akureyrar var aðstoðað 6
sinnum og var þar um
að ræða bráðaútköll
vegna hjartatilfella eða
einhverskonar veikinda.
Tilkynnt var um tvo minni-
háttar bruna og einn stór-
bruna. Sá bruni átti sér
stað fram í Leyningi,
Eyjaljarðarsveit, þriðju
daginn 15. apríl sl. Til-
kynning barst um elds-
voðann kl. 04:11 og fór
Slökkvilið Akureyrar á
staðinn ásamt Slökkviliði
Eyjaíjarðar. Þarna var laus eldur í íjósi
sem er áfast fjárhúsi og hlöðu. Slökkvi-
starfi lauk um kl. 05:40 og virðast
skemmdir aðalega hafa orðið á fjósi en í
því drápust 23 mjólkandi kýr, 5 geld-
neyti og 6 smákálfar.
Fullur á stolnum bíl
í vikunni voru höfð afskipti að þremur
einstaklingum sem vegna ölvunar-
ástands og annarra leiðinda þurftu að
gista fangageymslur lögreglunnar.
Tvisvar þurfti að stilla til friðar í heima-
húsum vegna ófriðar og í einu tilfelh
þurfti að biðja húsráðanda að lækka í
hljómflutningstækjum sínum svo grann-
ar hans gætu sofið í friði.
Helgin gekk vel fyrir sig og bar fátt til
tíðinda. Þó má nefna að sunnudags-
morguninn 20. apríl, kl. 05:46 var ölvað-
ur ökumaður á stolinni bifreið handtek-
inn. í ljós kom að bifreiðin hafði verið
tekin ófrjálsri hendi í Varmahlíð, Skaga-
firði, sl. föstudag. Þá hafði ökumaður
lent í árekstri á henni og reyndist ekki
hafa réttindi til aksturs bifreiða. Öku-
maður var handtekinn og fékk að gista
fangageymslu lögregl-
unnar. Hann var
íTT síðan yfirheyrður
um málið hjá rann-
sóknardeild lög-
reglunnar.
M.A.
Úr dagbók lögreglunnar í Reykjavík
Helgin var tiltölulega róleg ef und-
an er skilin ölvun fólks og ölvun-
artengd mál. Lögreglumenn
þurftu að hafa afskipti af 47 einstakling-
um vegna ölvunar á almannafæri og þeir
þurftu 22 sinnum að fara á vettvang eft-
ir að kvartað var um hávaða og ónæði
að kvöld- og næturlagi. í langflestum til-
vikum reyndist vera um ölvað fólk að
ræða er ekki kunni að taka tillit til ann-
arra. Níu ökumenn, sem stöðvaðir voru í
akstri, eru grunaðir um að hafa verið
undir áhrifum áfengis. Tilkynnt var um
7 líkamsmeiðingar til lögreglu og 17
eignarspjöll. í flestum tilvikum var um
rúðubrot að ræða. Auk þessa var
tilkynnt var um 7 innbrot,
11 þjófnaði, 5 nytja-
stuldi og eitt rán.
Vista þurfti 38
manns í fanga-
geymslunum um
helgina.
Nagla-
dekkin
burt
Lögreglumenn
þurftu að kæra
29 ökumenn
fyrir að nota
ekki bílbelti og
12 aðra fyrir
of hraðan
akstur. Skrán-
ingarnúmer
voru tekin af
nokkrum öku-
tækjum vegna
vanrækslu á að
færa þau til að-
alskoðunar. Þá eru
lögreglumenn farnir að
huga að ákvæði reglna um
notkun nagladekkja, en skv. þeim má
ekki aka um á slíkum búnaði eftir 15.
apríl nema aðstæður geri það nauðsyn-
legt. Sektir fyrir að aka um á negldum
hjólbörðum eftir þann tíma eru kr. 2500
fyrir hvern slíkan.
Loftriffill
Á föstudag losnaði hjól undan bifreið,
sem ekið var um Höfðatún með þeim af-
leiðingum að það fór yfir umferðareyju
og hafnaði á mannlausri bifreið á bif-
reiðastæði handan götunnar. Nokkrar
skemmdir hlutust af. Síðar um daginn
þurftu tveir aðilar að leita á slysadeild
eftir árekstur tveggja bifreiða á gatna-
mótum Furumels og Hringbrautar. Alls
var tilkynnt um 24 umferðaróhöpp til
lögreglunnar í Reykjavik um helg-
ina. Um kvöldið var hald lagt á
loftriffil í Vesturbænum,
sem tveir piltar höfðu
notað til að skjóta með
á rúður í nálægu húsi.
Lána óláns-
mönnum bíla
Á laugardag stöðv-
uðu lögreglumenn
bifreið, sem lýst
hafði verið eftir
sem stolinni.
Mennirnir höfðu
fengið bifreiðina
lánaða á bílasölu
og voru að sögn á
leið til Keflavflcur til
að kaupa fíkniefni.
Mennirnir voru færð-
ir á næstu lögreglu-
stöð. í tveimur tilvik-
um af fimm höfðu bif-
reiðar verið fengnar að
láni á bflasölum, en ekki
verið skilað aftur. Slík tilvik
koma ítrekað upp, en svo virðist sem
bflasalar hafi of lítið eftirlit með þeim,
sem fá bfla að láni.
Aðfararnótt
sunnudags var
ráðist á mann á
veitingahúsi við
Bergstaðastræti
og honum veittur
áverki á hálsi
með glasi eða
flösku. Flytja varð
manninn á slysa-
deild, en hann
var ekki talinn í
lffshættu. Árásar-
aðihnn fór af vett-
vangi, en vitað er
hver hann er.
Migu á
mann
Fjórir unghngar
voru staðnir að
því að sniffa af
gasi í húsi við
Fffusel aðfaranótt
sunnudags. Þrír
þeirra hlupu á
brott áður en að
var komið, en 14
ára drengur var
handtekinn og
færður í Breiðholtsstöð þangað sem
hann var sóttur af foreldri sínu.
Um fimmleytið á sunnudagsmorgun
komu lögreglumenn að tveimur ungum
mönnum í Austurstræti þar sem þeir
stóðu og migu yfir þann þriðja, sem lá
víndauður fyrir fótum þeirra. Hjá stóðu
tvær ungar stúlkur og virtust hafa gam-
an af.
Lítil tengsl við börnin
Skv. rannsókn eru einungis u.þ.b. 26%
feðra hér á landi í eðlilegum eða góðum
tengslum við börn sín, tilfinningaleg
tengsl mæðra og barna eru bæld, nær
50% hjónabanda endar með skifnaði,
samskipti kynjanna virðast verulega
ábótavant í samfélagi þar sem allt er til
sölu og varla nokkur maður hefur áhuga
á því sem ekki kostar eitthvað. Grunn-
gildin, er undirbúningur fífsins og sam-
skipti fólks byggist síðan á, virðast hafa
gleymst. Þessar upplýsingar, auk margra
fleiri athyglisverðari, komu fram á mál-
þingi um samfélagsmyndina, sem haldið
var í Skálholti nýlega. Ó.