Dagur - Tíminn Reykjavík - 22.04.1997, Side 8
20 - Þriðjudagur 22. apríl 1997
iDagur-ÍEímmn
Líst vel á
sumarið
1907
Það verður nóg um að vera í
Borganesi í sumar. Landsmót
UMFÍ verður haldið þar fyrstu
helgina í júlí og knattspyrnulið
Skallagríms leikur í fyrsta sinn
í Sjóvá-Almennra deildinni.
Ólafs Jóhannessonar, þjálfara
Skallagríms, bíður
skemmtilegt og spennandi
sumar en hvemig lýst honum
á þann mannskap sem hann
hefur í höndunum?
„Mér líst bara mjög vel á
þann mannskap sem ég hef.
Við héldum öllum frá því í fyrra
og svo hafa komið íjórir, fimm
nýjir leikmenn sem koma til
með að gefa okkur meiri breidd
og styrkja hópinn.“
Hvar sérðu liðið fyrir þér í
deildinni í sumar?
„Við förum bara af stað fullir
bjartsýni og við höfum engu að
tapa. Við vitum að fyrsta árið í
Sjóvá-Almennra deildinni
verður erfitt en ég er ekkert
hræddur um að liðið eigi ekki
eftir að standa sig.“
Heldur þú að deildin verði
jöfn og spennandi í sumar eða
koma lið eins og KR og
Skaginn til með að stinga af?
„Ég held að það verði
kannski KR, ÍA, Leiftur og ÍBV
sem komi til með að verða í
toppbarátunni en hin liðin
verða öll mjög jöfn. Þessi
fjögur lið virðast eiga lang mest
af peningum og það er erfitt
fyrir hin liðin sem hafa minna
Qármagn að keppa við þau. Ég
held samt að deildin eigi eftir
að verða jafnari en oft áður.“
Hvernig hefur ykkur gengið
á undirbúningstímabilinu?
vel.“
„Okkur hefur gengið mjög
Umsjón
Jóhann Ingi
Árnason
s: 568-2929
UNGMENNAFELAG ISLANDS
Olafur Jóhannesson hefur verið að gera góða hluti með lið Skallagríms
en liðið leikur í sumar meðal þeirra bestu í Sjóvá-Almennra deildinni.
Engar breytingar hjá UMSE
Engar breytingar urðu á stjórn UMSE á ársþingi sambandsins
sem haldið var fyrir stuttu. Á þinginu var íþróttamaður UMSE
valinn og að þessu sinni hlaut Aðalsteinn Bernharðsson
nafnbótina. Iþróttamenn einstakra greina voru einnig valdir og
svo vinnuþjarkur ársins sem að þessu sinni var Vilhjálmur
Björnsson.
Þing USVS og ULA voru haldin um síðustu helgi en þar voru þeir
Árni Böðvarsson, USVS, og Einar Már Sigurðarson, UÍA,
endurkjörnir formenn.
Hildur Aðalsteinsdóttir er
framkvæmdastjóri UMSE og
verður svo áfram. Jósavin Arason
var endurkjörinn formaður UMSE
en engar mannabreytingar urðu á
stjórn sambandsins.
íþróttamenn einstakra
greina hjá UMSE voru:
Hestaíþróttir
Stefán R. Friðgeirsson
Bridds
Jóhann I.V. Magnússon
Skák
Guðmundur F. Hansson
Skíði
Björgvin Björgvinsson
Golf
Andri Geir Viðarsson
Knattspyrna
Jón Örvar Eirfksson
Knattspyrauvertíðin hafin
Ungmennafélögin búa sig nú undir knattspyrnuvertíðina sem
hefst að fullu þann 19. maí næstkomandi. Leiftur á Ólafsfirði
kemur sterkt til leiks í vetur og ekki ólíklegt að þetta „litla" lið
komi til með að veita risunum KR og Akranes harða keppni um
íslandsmeistaratitilinn. Landsliðsmaðurinn Arnar Grétarsson er
að ieika í fyrsta sinn fyrir annað lið en Breiðablik og það verður
fróðlegt að sjá hvort hann kemst í sitt besta form í sumar.
Hvað finnst ungmennafélaganum?
Hvað hefur Skinfaxi, tímarit Ungmennafélag íslands,
komið út lengi? (Rétt svar: 88 ár)
Páll
Pétursson
stjómarmaður
UMFÍ
Skinfaxi er eitthvað
nálægt því að vera 80
ára gamall.
Einar Ole
Pedersen
formaður
UMSB
Síðasta blaðið kom
út fyrir hálfum
mánuði. Er það ekki
það sem þú áttir við?
Ef ég tala að alvöru
þá held ég að hann
sé eitthvað um 80
ára gamall.
Kristján
Yngvason
stjómarmaður
UMFÍ
Skinfaxi er rúmlega
80 ára gamall.
Fréttir
Austri - ULA fréttir
Tekist hefur samstarf
milli vikublaðsins Austra og
Ungmenna- og íþrótta-
sambands Austurlands um
að einu sinni í mánuði verði
birtar fréttir af vettvangi
UÍA. Stjórn UÍÁ fagnar
þessu samstarfi og vonar að
það verði til að eíla
fréttaflutning af íþrótta- og
ungmennafélagsstarfsemi á
Austurlandi. Áformað er að
Austri - UÍA fréttir komi út í
kringum hver mánaðarmót
og að blaðinu verði dreift á
hvert heimili á svæði UÍA.
(Austri)
120 þátttakendur
Alls kepptu 120 glímu-
menn af báðum kynjum á
fimmtíu ára afmælismóti
Landsflokkaglímunnar sem
haldið var fyrir stuttu. Það
er greinilegt að uppsveifla
er í glímunni á íslandi og
gaman að sjá svo marga
unga og efnilega ghmu-
menn eigast við en alls voru
fimmtán íslandsmeistarar
krýndir í öllum aldurs- og
þyngdarflokkum.
Stjarnan í úrslitum
Ungmennafélagið
Stjarnan úr Garðabæ þarf
ekki að kvíða framtíðinni
hjá blakliði fólagsins.
Strákarnir kepptu til úrslita
um íslandsmeistaratitilinn
við Þrótt Reykjavík um
síðustu helgi og þrátt fyrir
að hafa tapað leiknum 3-0
er ljóst að þarna er á
ferðinni mjög ungt og
efnilegt lið.
Einar Gunnar og félagar hjá
Aftureldingu fá nýjan þjálfara
fyrir næstu leiktíð.
Einar hættir
Ungmennafélagið Aftur-
elding náðu besta árangri í
sögu félagsins í hand-
boltanum í vetur. Liðið
tryggði sér deildarmeistara-
titilinn eftir harða rimmu
við Hauka en voru svo
slegnir út af laginu í úrslita-
leikjunum gegn KA þar sem
Akureyrirliðið sigraði 3-1.
Einar Þorvarðarson stjórn-
aði liðinu í vetur en nú er
orðið ljóst að hann verður
ekki með liðið næsta vetur.
Einhverjar ósættir komu
upp milli stjórnarinnar og
Einars sem enduðu með því
að Einar sagðist ekki
framlengja samningnum við
félagið.