Dagur - Tíminn Reykjavík - 30.04.1997, Blaðsíða 2

Dagur - Tíminn Reykjavík - 30.04.1997, Blaðsíða 2
14- Miðvikudagur 30. apríl 1997 |Dagur-®mrinn Fífiidalsskrímslið Ormurinn á djúpinu. ísli hét maður í Arnarfirði vestra. Hann var skytta góð og lá oft fyrir tófu á haustum niður af svokölluðum Fífudal. Einu sinni sem oftar fór Gísli út í Fífudal í byrgi sitt, var þar fram eftir nóttu og veiddi vel. Veð- ur var allgott, en eigi heiðskírt. Næsta kvöld fór hann aftur og hugði gott til veiða, því að nú var veður enn betra. Gísli kom í byrgið um hálfri stundu fyrir nátt- mál. Beið hann til mið- nættis, en varð einskis var. Fór honum að leið- ast og verða kalt, en hugsaði með sér að hann skyldi bíða stundarkorn. Loks þótti honum sem til einskis myndi vera að bíða lengur. Stóð á fætur, rétti úr sér og bjóst til að fara úr byrginu. „Ferlíkið fór að hreyfast“ Þann sið hafði Gísh að gá í kringum sig áður en hann fór út. Svo gerði hann í þetta sinn. En um leið og hann lauk upp hurð- inni kom hann auga á ferlíki í grennd. Honum sýndist það líkjast litlu húsi eða stórum báti á hvolfi, en gerr fékk hann ekki greint það álengdar. Átti hann ekki von á neinu siíku á þessum slóðum og fór að velta fyrir sér hvað þetta gæti verið. En hann þurfti ekki lengi að bíða því brátt fór ferlíkið að hreyfast. Aðra eins ferð hafði Gísli ekki séð á nokkurri skepnu, stórri eða smárri, og var helst að sjá sem það kæmi ekki við jörðina. Hljóp það í sjóbrúninni út eftir sandinum í átt- ina til hans. Haus og kjaftur hræðilegastur Gísli skellti aftur byrginu og horfði út um „Skepnan var svo stór að nam tveim hestlengdum - og hceðin var að sama skapi. Taldi Gísli að stcerstu hestar gcetu gengið undir kviðinn, dn þess að snerta. “ hurðarboruna. Hann sá að ferlíkið hélt sprettinum þangað til það kom á móts við byrgið. Þar stansar það og stóð eins og neglt væri niður. Snýr sér upp að byrginu og fer að hnusa. Þarna stendur það litla stund, uns það lallar af stað og stansar ekki fyrr en það er komið alveg að byrginu. Snuðrar í kring og hnusar af öllu. Það þóttist Gísli vita að þessi ferlega ófreskja myndi sjóskrímsli vera. Varð hann svo skelkaður að hann hreyfði hvorki legg né lið, en gat ekki annað en einblínt á þetta. Stærð skepnunnar var svo nam tveim hestlengd- um - og hæðin að sama skapi. Taidi Gísli að stærstu hestar gætu gengið undir kviðinn, án þess að snerta. - En þó stærð dýrsins væri ægileg var haus þess og kjaftur hræðilegastur. Auðsætt var að þar inn gat full- orðinn maður horfið í heilu líki. Verstur var þó ódauninn sem lagði af sjókindinni og var nærri því liðið yfir Gísla af hryllingi og viðbjóði. Kringlótt för og sex tær Gísia virtist sem skrímslið þyrfti ekki annað en leggja hausinn ofan á byrgið til að mola það sundur. Ekki vissi Gísli hvað tímanum leið meðan skrímslið var að snuðra í kringum byrgið. En loks sneri það til sjávar. Þegar Gísli hafði jafnað sig nokkuð eftir þetta bjóst hann til heimferðar. En hann var svo miður sín að hann treysti sér ekki að fara með sjónum, heldur fór hann efst í brekkur, inn eftir og heim. Heima sagði Gísli frá því sem fyrir sig hafði komið. En hann fann að menn ef- uðu frásögn hans. Því fékk hann tvo bændur úr nágrenninu með sér út á sand. Sáu þeir allir greinilega förin upp frá sjónum og traðkið í kringum byrgið. Förin voru gríðarstór, kringlótt að lögun og mótaði fyrir sex tám eða klóm.

x

Dagur - Tíminn Reykjavík

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur - Tíminn Reykjavík
https://timarit.is/publication/253

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.