Dagur - Tíminn Reykjavík - 30.04.1997, Blaðsíða 3
JDagur-®tmttm
Þriðjudagur 30. apríl 1997 -15
LIFIÐ I LANDINU
Herbergjaskipan verður breytt í húsinu og veggir hverfa. Ríkisstjórnarherbergið flyst til og verður Lækjartorgs-
megin í húsinu. Skrifstofur forsætisráðherra verða þar sem forsetinn var áður með sína skrifstofu.
Stigi upp á efri hæð hússins hefur verið við útidyrnar þannig að erfitt hef-
ur verið að koma við vörslu í húsinu. Stiginn verður baka til í húsinu þann-
ig að hægt verður að koma við eðlilegri vörslu.
Gríðarlegar framkvæmdir
eru hafnar í Stjórnar-
ráðshúsinu við Lækjar-
götu og verður húsinu gjör-
breytt á neðri hæð og lítillega á
efri hæð í takt við breytta tíma.
Skrifstofur hafa verið tæmdar
og flestar þeirra fluttar í hús-
næði menntamálaráðuneytisins
við Sölvhólsgötu. Forsætisráð-
herra verður þó með skrifstofu
sína í ráðherrabústaðnum við
Tjarnargötu þar til fram-
kvæmdunum lýkur í endaðan
maí.
Mold í gólfum
Búið er að berstrípa húsið að
innan og hefur þar ýmislegt
komið í ljós frá því húsið var
reist sem fangelsi fyrir um 200
árum. Þannig má til dæmis sjá
á upphaflegum hurðarkarmi að
gólfhæð hefur verið mun hærri í
húsinu fram til 1820 að gólf-
hæðin var lækkuð í núverandi
hæð. Einnig eru minjar um
kakelofn sem hefur verið brot-
inn niður að hluta og sett upp
hurð í honum miðjum. Mold er í
gólfum „eins og í gömium íjár-
húsum,“ eins og Guðmundur
Árnason skrifstofustjóri orðar
það, gamlir þröskuldar hafa
fundist og þannig mætti áfram
telja.
„Stigi upp á efri hæð hússins
hefur nánast verið við útidyrn-
ar í húsinu þannig að það hefur
verið mjög erfitt að koma við
nokkurri vörslu í húsinu þannig
að öll aðstaða til vöktunar og
vörslu hefur verið mjög slæm.
Með þessu á að vera hægt að
koma við eðlilegu öryggiseftir-
liti. Stiginn verður baka til í
húsinu," segir Guðmundur.
Fundist hefur kakelofn sem hefur verið brotinn niður að hluta og hurð sett
upp í honum. Myndir: Hilmar Þór
Ráðherra
verður forseta megin
Herbergjaskipan verður breytt í
húsinu og veggir hverfa. Ríkis-
stjórnarherbergið flyst til og
verður Lækjartorgsmegin í hús-
inu. Skrifstofur forsætisráð-
herra flytjast í norðurenda
hússins þar sem forsetinn var
áður með sína skrifstofu.
í Stjórnarráðshúsinu
hefur fundist
hurðarkarmur sem sýnir
hver gólfhæðin hefur
verið í húsinu í byrjun
síðustu aldar. Um 1820
var gólfhæðin lækkuð í
núverandi hæð.
Gert er ráð fyrir að fram-
kvæmdirnar kosti um 60 millj-
ónir króna og eru ijórir menn
við vinnu í húsinu undir yfir-
stjórn Þorsteins Gunnarssonar,
arkitekts og leikara. Kostnaðar-
samasta framkvæmdin er að
flytja til stigann. -GHS
Skrifstofur hafa verið tæmdar og húsið hefur verið berstrípað að innan.
Griðarlegar framkvæmdir eiga sér stað í Stjórnarráðinu þessa dagana.
Kostnaðurinn er talinn verða 60 milljónir króna.
Minjar hafa fundist
í Stjórnarráðinu