Dagur - Tíminn Reykjavík - 06.05.1997, Qupperneq 3

Dagur - Tíminn Reykjavík - 06.05.1997, Qupperneq 3
JbtgurJ®ínmm Þriðjudagur 6. maí 1997 - 15 LIFIÐ I LANDINU Forsetinn ásamt þingeyskum ungmennum sem hlutu Hvatningarverðlaun forseta íslands. F.v. Jóhanna Gunnarsdóttir, Inga Gerður Pétursdóttir, Kristján Þór Magnússon, Þórey Kristín Aðalsteinsdóttir og Lára Sóley Jó- hannsdóttir. og fleira, fylgdi forsetahjónum jafnan ásamt forsetaritara og heilsaði framámönnum á hverjum stað. Sjálfsagt þekkist það óvíða í veröld þegar þjóðh- höfðingjar koma í heimsókn að hárgreiðslukonur gangi fram fyrir lókal tignarmenn og hristi á þeim spaðana sem konung- borin eða þjóðkjörin væri. Kjarvalsmálverk úr áfengisbrotasjóði Ymislegt skemmtilegt gerðist í hinni opinberu og virðulegu heimsókn eins og vera ber þeg- ar glaðsinna fólk er á ferð. Guð- rún Katrín hafði sérstaklega Aðalbjörg upplýsti að Jónas frá Hriflu hefði keypt þetta málverk og notað til þess fé úr Áfengis- brotasjóði, sem brúkaður var m.a. til kaupa á listaverkum. Forsetahjónum þótti þetta at- hyglisverð hugmynd, að sekta menn fyrir brot á áfengislög- gjöfinni og nota féð til lista- verkakaupa. „Já, og áfengis- brotin hefðu gjarnan mátt vera fleiri á þessum tíma,“ sagði þá Aðalbjörg sem er mikill Iistunn- andi. Pizzur á Bessastaði Forsetahjón heimsóttu marga skóla í sýslunni, svo sem Borg- þau lent í smá vandræðum með að útvega sér pizzur skömmu eftir að þau fluttu til Bessa- staða. Eitt kvöldið langaði sem sé forsaetaíjölskylduna mjög í pizzur og hringt var í pizzustað í Hafnarfirði og beðið um að senda pizzur heim. Fjölskyldan beið svo hinn lögboðna biðtíma pizza á íslandi, þ.e. hálftíma og síðan annan til, en ekkert ból- aði á pizzunum. Þá hringdu þau aftur í pizzustaðinn og ítrekuðu pöntunina. Og þá kom auðvitað í ljós að pizzumenn töldu að þarna væri um eitthvert gabb að ræða, enda sjálfsagt ekki á hverjum degi sem hringt er í pizzustaði og beðið um að senda nokkrar pizzur til Bessa- staða með hraði! Forsetahjónin í fjósinu Á öðrum degi opinberrar heim- sóknar komu forsetahjónin í Fremstafell í Ljósvatnhreppi og skoðu tölvuvætt hátæknifjós sem bændurnir Þorgeir Jónsson og Árni Jónsson eiga og reka. Og þar tók einnig á móti þeim Hildur Tryggvadóttir, bóndi og sópransöngkona, eiginkona Árna, sem nokkru áður hafði sungið Ave María með miklum glæsibrag fyrir forsetahjónin að Laugum. Guðrún Katrín ræðir við framtíðar netagerðarmann í Netagerð FH. Qósalykt í Qósi eins og þarna og hún gekk um ijósið og klappaði kúm. Og spurði hvort skepnun- ar yrðu ekki órólegar þegar fjósið fylltist af ókunnugu fólki þegar mjaltir stæðu yfir. Bænd- ur töldu það oft vera svo, en í þessu tilfelli væru kýrnar óvenju rólegar og hafa ugglaust skynjað að þarna voru jákvæðir gestir á ferð. Forseti forvitnað- ist mjög um tölvunotkun í mjólkurframleiðslu og varð margs vísari. Vonir voru bundnar við að kálfur kæmi í heiminn á meðan gestir stöldruðu við, því ein kýr- in var alveg komin að burði. En það hafði sinn gang eins og annað og ekki kom kálfurinn. Reyndar kvaðst Árni hafa verið að velta því fyrir sér að skutla smá Campari-lögg í kúna til að koma henni af stað, en horfið frá því ráði! Hið nýja og arfleifðin Opinberri heimsókn forseta ís- lands herra Ólafs Ragnars Grímssonar og eiginkonu hans frú Guðrúnar Katrínar Þor- bergsdóttur í Suður-Þingeyjar- sýslu, lauk s.l. sunnudag. Þá fóru þau hjón um Bárðardal og Hálshrepp og heimsóttu m.a. Handverkskonur milli heiða við Goðafoss. Þingeyingar kvöddu forsetahjónin með virktum og forsetahjónin héldu heim eftir stranga en eftirminnilega daga með góðar gjafir og vonandi góðar minningar einnig í far- teskinu. Og þau skildu svo sannarlega eftir sig góðar gjafir og minningar, um það voru flestir Þingeyingar sem undir- ritaður ræddi við sammála. Ólafur Ragnar sagði í einni ræðu sinni í ferðinni að sér væri ofarlega í huga eftir þessa ferð sá kraftur sem hefði birst sér á sviði atvinnulífs, skólastarfs, menningarstarfsemi og minja- vörslu x Suður-Þingeyjarsýslu, þar sem hið nýja væri tengt traustri arfleifð. Um opinberar heimsóknir forseta íslands til byggðarlag- anna sagði hann: „Heimsókn forseta íslands er ekki aðeins tilefni til hátíðarhalda. Heldur er hún ekki síður staðfesting á þeirri framþróun sem býr í byggðarlögunum allt í kringum landið. Heimsóknin varpar kastljósi á gerjun og breytingar, á ávinninga og afrek, en einnig á vandamál sem bíða úrlausnar og brenna á fólki." js Þingeyingar sýndu forsetahjónunum glímu að Laugum, þrautreyndir piltar sem hafa unnið til margra verðlauna og ungar stúlkur sem eiga framtíðina fyrir sér í þessari þjóðlegu íþrótt. Harmonikan var þanin í Netagerðinni af þeim Sigurði Hallmarssyni og Aðalsteini ísfjörð. Hér eru þeir félagar ásamt forsetahjónunum og Kára Jónassyni, netagerðarmeistara. Börnin í Borgarhólsskóia syngja fyrir forsetahjónin. Line Werner leikur á gítar. óskað eftir því að fá að skoða gamla Húsmæðraskólann á Laugum sem nú er í eigu Kven- félagsambands Suður-Þingey- inga, en þar er margt glæsi- legra muna og hannyrða. Aðal- björg Pálsdóttir sýndi gestum húsið og varð forseta starsýnt á Kjarvalsmálverk á veggnum. arhólsskóla á Húsavík. Þar var m.a. farið í eldhúsið hvar nem- endur iðkuðu pizzugerðarlist og tjáðu forseta að þessar ítölsku flatbökur væru þeirra uppá- haldsmatur. Ólafur Ragnar sagði að dætur þeirra hjóna hefðu komið þeim upp á að borða pizzur. Hinsvegar hefðu Fyrirmenn undu sér vel í íjósinu og Guðrún Katrín kvaðst aldrei hafa fundið svo litla

x

Dagur - Tíminn Reykjavík

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur - Tíminn Reykjavík
https://timarit.is/publication/253

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.