Dagur - Tíminn Reykjavík - 06.05.1997, Blaðsíða 7

Dagur - Tíminn Reykjavík - 06.05.1997, Blaðsíða 7
 Þriðjudagur, (u ,«uu'> MENNING OG LISTSR Leikhús í þágu forvarna Eini leikhópur landsins sem sér- hœfir sig í forvarn- arstarfi, Stopp- leikhópurinn, er á Akureyri þessa dagana. Stopp-leikhópurinn hefur í vetur verið að sýna for- varnarleikritið Skiptistöð- ina eftir Valgeir Skagíjörð í grunnskólum landsins og hefur eftirspurnin verið slík að nú eru um 60 sýningar að baki. Hópur- inn er atvinnuleikhópur og hef- ur töluverða sérstöðu því hann einbeitir sér að nota leiklistina í þágu fræðsluefnis. í fyrra var það umferðin, nú eru það fíkni- efnin. Að sögn Eggerts Kaaber, eins leikaranna, þótti hópnum spennandi að prófa að nota leikhúsið til að miðla fræðslu en þau passi sig á því að predika ekki yfir krökkunum. „Það virk- ar ekki. Það kemur hvergi fram að þetta megi ekki. Það sem við gerum er að draga upp dökka mynd af þessum veruleika sem tengist fikniefnum. Við reynum að velta upp sem flestum spurningum en svörum þeim ekki.“ Eftir sýningar í skólum eru umræður og leikurunum til full- tingis er þá 26 ára gamall óvirkur alkhóhólisti og fyrrver- andi fíkill, sem hefur reynslu til að svara þeim spurningum ung- linganna sem upp koma. En finnst Eggerti sýningarn- ar hafa borið einhvern árang- ur? „Já. Þó nokkuð margir krakkar hafa komið til okkar eftir sýningu þegar við höfum verið á leiðinni út í bíl með leik- myndardótið og við höfum þá fengið spurnir af því að nokkrir hafi tekið ákvörðun um að hætta.“ Leikararnir sem taka þátt auk Eggerts eru þeir Dofri Her- mannsson, Hinrik Ólafssson og Katrín Þorkelsdóttir. Leikstjóri er Þórarinn Eyfjörð. Hópurinn verður með fjórar sýningar á Akureyri, í Gagnfræðaskófa Ak- ureyrar og Gferárskófa. í kvöld kl. 20.30 verður einnig sýning fyrir afmenning í Gferárskóla. lóa Stopp-leikhópurinn sýnir verkið „Skiptistöðin.1 Dýrt persónufornafii Vefarinn mikli frá Kasmír Lrílirrt r-lrir .a*»Hiidri Jíi.L£» H.llfe. Breskir dómarar vísuðu fyrir skömmu máli til Evrópudómstólsins í Lúxemhurg því þeir treystu sér ekki til að úrskurða hvernig túlka hœri orðið „þeim/them“ í enskri útgáfu ESB- laga. Og billjónir punda velta á því hver túlkunin verður... Þýðingar eru afar vanda- samar. Ekki síst þegar þýða á lagagreinar þar sem orðafag þarf að vera hár- nákvæmt svo dómarar geti án mikils vafa úrskurðað á grund- velli þeirra. Orðið sem breski áfrýjunardómstóllinn treysti sér ekki til að túlka stendur í laga- grein sem heimilar einstakling- um að flytja vörur, m.a. ótak- markað magn af sígarettum og áfengi, til eigin nota milli ESB- landa án þess að borga af þeim toUa í landinu sem vörurnar eru fluttar tU. Lagagrein nr. 8/1992 er til á 11 tungumálum eins og vera ber (ekki íslensku) og hljóðar svo á ensku: „As reg- ards products acquired by pri- vate individuals for their own use and transported by them...“ (Að því er viðkemur vörum sem einstaklingar hafa eignast til eigin nota og eru fluttar af þeim...) Það kemur nefnilega ekki fram í ensku lagagreininni að Tóbaksframleiðandinn segist eingöngu vera umboðsmaður fyrir kaupand- ann. Líkt og ef reyklaus eiginkona kæmi heim til Bretlands með tóbakið sem eiginmaðurinn keypti sér í sameiginlegu fríi þeirra hjóna í Frakklandi en hann náði ekki að kippa með sér þegar hann var skyndilega kallaður heim til London. einstaklíngurinn sem á vöruna þurfi beinlínis að flytja hana sjálfur, í eigin persónu, á milli landa. Þetta þætti kannski ekki ýkja mikið vandamál ef billjónir punda héngu ekki á spýtunni. Tollgæsla hennar hátignar í Bretlandi höfðaði nefnilega dómsmál gegn tóbaksframleið- andanum The Man in Black Ltd. sem hún álítur að skuldi billjónir punda í ógreiddum tollum. Tóbaksframleiðendurn- ir höfðu, með hjálp kunns skattaráðgjafa í Bretlandi, fundið fyrirtaksleið til að selja „Death“ sígarettur sínar í Bret- landi tollfrjálst. Fyrirtækið dró dæmið þannig upp að fólk keypti sígaretturnar í Lúxem- burg, gegnum póstkröfu, og fyr- irtækið sendi svo sígaretturnar til Bretlands. Framleiðendur rökstyðja mál sitt svo að fyrir- tækið selji tóbakið ekki í Bret- landi heldur gegni einungis hlutverki umboðsmanns kaup- andans fyrir kaupandann. Gríðarlegir fjármunir eru í húfi og hafa höfundar reglu- gerðarinnar áreiðanlega ekki órað fyrir því hve eldfim orð þeir væru með í höndunum. Nú þegar eru þóknanir lögfræðinga fyrir að túlka orðin „by them“ komnar upp í milljónir punda - og málið er enn ekki leyst. Mál- ið var tekið fyrir hjá Evrópu- dómstólnum fyrir skömmu og þar sitja nú líklega dómarar af ólíkum þjóðernum og rökræða af mikilli alvöru um hvernig þeir myndu túlka persónufor- nafnið „them“ í sínu móður- máli. (Endursagt úr The Spectator) I.KIKTIXAC AKl llKVH\H Sýningar: Föstudaginn 9. maí kl. 20.30. Laugardaginn 10. maí kl. 20.30. Síbustu sýningar Það ætla allir að sjó Vefarann! Leikstjórn: Halldór E. Laxness Sýningin er ekki vió hæfi barna Ekki er hægt a& hleypa gestum inn í salinn eftir a& sýningin hefst. Sýnt er ó Renniverk- stæ&inu, Strandgötu 49. Miðasalan er opin alla virka daga nema mánudaga frá kl. 13-17. Sími í miðasölu er 462 1400. JDagur-'Stmtmt - besti tími dagsins! i % ÞJÓDLEIKHÚSIÐ Stóra sviðið kl. 20.00 KÖTTUR Á HEITU BLIKKÞAKI eftir Tennessee Wiliams 13. sýn. miðvikd. 7. maí. 14. sýn. sunnud. 11. maí. 15. sýn. fimmtud. 15. maí. FIÐLARINN A ÞAKINU eftir Boch/Stein/Harnick 8. sýn. fimmtud. 8. maí. Uppselt. 9. sýn. laugard. 10. maí. Uppselt. 10. sýn. föstud. 16. maí. Uppselt. 11. sýn. mánud. 19. maí. (annar í hvítasunnu) Uppselt. 12. sýn. föstud. 30. maí. Uppselt. VILLIONDIN eftir Henrik Ibsen Föstud. 9. maí Næstsíðasta sýning Miðvikud. 14. maí Síðasta sýning LITLI KLAUS OG STÓRI KLÁUS eftir H.C. Andersen Sunnud. 11.mafkl. 14.00. Siðasta sýning Tungskinseyjuhópurinn í samvinnu við Þjóðleikhúsið Óperan TUNGLSKINSEYJAN eftirAtla Heimir Sveinsson Frumsýning mið. 21. mai 2. sýn. föstud. 23. maí 3. sýn. laugard. 24. maí Litla sviðið kl. 20.30 LISTAVERKIÐ eftir Yazmlna Reza Föstud. 9 maí. Uppselt. Laugard. 10. maí. Uppselt Föstud. 16. maí. Uppselt. Mánud. 19. maí. Uppselt Sunnud. 25. mai. Uppselt Föstud. 30. maí. Laugard. 31.maí. Miðasalan er opin mánudaga og þriðjudaga kl. 13-18, frá miðvikudegi til sunnudags kl. 13-20 og til 20.30 þegar sýningar eru á þeim tíma. Einnig er tekið á móti símapöntunum frá kl. 10 virka daga.

x

Dagur - Tíminn Reykjavík

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur - Tíminn Reykjavík
https://timarit.is/publication/253

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.