Dagur - Tíminn Reykjavík - 06.05.1997, Blaðsíða 8
20 - Þriðjudagur 6. maí 1997
IOagur-®hmnn
FOLK
Glœsilegt mót Hœngsmanna
Hœngsmótið, opið mót fyrir fatlaða einstaklinga, var
haldið ífimmtánda sinn á Akureyri dagana 1. -3. maí.
Það er Lionsklúbburinn Hœngur sem sér um að halda
mótið og voru 35 starfsmenn sem sáu um að allt færi
fram eftir settum reglum. Mótið þótti takast með af-
brigðum vel og voru 231 þátttakendur mœttir á staðinn
til að takast á í keppni og ekki síst til að njóta samver-
unnar. Keppendur kom víðsvegar af landinu og öttu
keppni í boccia, borðtennis, bogjimi og lyftingum. í lokin
var efnt til heljarinnar samkomu í Iþróttahöllinni og
voru þar saman komnir 350 glaðir og sáttir keppnis-
menn og aðrir aðstendendur sem borðuðu, sungu og
dönsuðu undir stórskemmtilegri veislustjórn séra Péturs
Þórarinssonar.
* »
Boccia er vinsæl íþrótt hjá fötluðum og krefst hún nákvæmni og mikillar einbeitingar.
Myndir: JHF
Einbeitingin í lagi með bogann spenntan.
Hvar ætli þessi bolti hafi lent.