Dagur - Tíminn Reykjavík - 06.05.1997, Síða 16

Dagur - Tíminn Reykjavík - 06.05.1997, Síða 16
Úr dagbók lögregluimar í Reykjavík 2. til 5. maí. ®agur-CTtmttttt Þriðjudagur 6. maí 1997 Um helgina var tilkynnt um 7 Hkamsmeiðingar, 10 innbrot, 10 þjófnaði og 19 eignarspjöll. Tilkynnt var um stuld á 5 ökutækjum og í tveimur málum komu fíkniefni við sögu. Afskipti þurfti að hafa af 50 manns vegna ósæmilegrar ölvunarháttsemi á almanna- færi. Þrjátíu og fimm manns reyndist nauðsynlegt að vista í fangageymslunum. Þá þurftu lögreglumenn 18 sinnum að fara á vettvang vegna kvartana yfir hávaða og ónæði í íjöl- eignahúsum. Gasi beitt Á föstudagsmorgun sást til tveggja manna vera að reyna að fara í óleyfi inn í bifreiðir við Skólavörðustíg. Þeir voru hand- teknir á hlaupum skömmu síð- ar. Beita þurfti mace-gasi á annan þeirra til að yfirbuga hann. Mennirnir skildu eftir tvö bílútvarpstæki og tónjafnara. Harður árekstur varð með tveimur bifreiðum á Miklubraut við Snorrabraut á föstudags- kvöld. Bifreiðarnar voru báðar fluttar af vettvangi með krana- bifreið. Yfirbuga þurfti mann með mace-gasi í íbúð í Austurborg- inni aðfararnótt laugardags. Maðurinn hafði gengið þar ber- serksgang. Engin meiðsli hlut- ust af. Hættuleg gryfja Á laugardag var tilkynnt um að barn hefði drukkið hreinsilög. Sjúkraliðsmenn og læknir, sem komu á vettvang, töldu ekki ástæðu til aðgerða. Tilkynnt var um gryiju fulla af vatni við Vesturlandsveg. Reyndist vera mikið vatn í gryfjunni og var hún tabn stórhættuleg börnum, sem sækja á svæðið til leikja. Starfsmenn borgarinnar fór á vettvang og lokuðu gryíjunni. Á laugardag féll 17 ára gam- all piltur af reiðhjóli á Seltjarn- arnesi og rotaðist. Hann var fluttur á slysadeild með sjúkra- bifreið. Um kvöldið var bifreið stobð frá pizzusendb, en hann hafði skibð kveikjuláslykibnn eftir í bifreiðinni í Tryggvagötu. Félagar sendilsins eltu bifreið- ina og stöðvuðu akstur hennar Lögreglan beinir þeim tilmælum til foreldra að fræða börn sín á skaðsemi sinuelda. Brennuvargar hafa allt of oft upp á síðkastið kveikt í jörðinni. Snjópenmgarnir kláruðust í janúar Sumarið ætlar heldur betur að láta bíða eftir sér í Tromso í Noregi. í síð- ustu viku var slegið met þeg- ar snjórinn fór upp í tvo metra og íjörutíu sentimetra. Bergur Ágústs- son, formaður íslendingafélags- ins, segir að í vetur hafi veður- far verið það stöðugt að snjór- inn hafi aldrei náð að þjappast. „Það hefur sjaldan komið hiti þannig að snjórinn hefur bara safnast upp, núna þegar aðeins er að hlýna er því töluverð hætta á ferðum fyrir ýmsar byggðir hérna. Þeir eru byrjaðir að rýma hús o.s.frv., síðan leggst þetta sálarlega á fólk þótt menn reyni að slá á létta strengi. -En það má búast við að flóð skemmi vegi og mann- virki og það er núna unnið í því að gera ráðstafanir sökum þessa.“ Bera íslendingarnir sig betur eða verr en Norðmenn? „Þeir bera sig nokkuð vel enda varla hægt annað en að hlæja bara að þessu. Ég hef aldrei uppbfað önnur eins ósköp, en ég kem að vísu frá Vestmannaeyj- um. Þeir sem koma að norð- an og vestan segjast hafa verið vanir ýmsu en ekki í maí! Bergur segir að peningurinn sem bærinn ætlaði í snjómokst- ur á árinu hafi klárast í kring- um 20. janúar. „Ríkið mun eitt- hvað aðstoða bæjarfélagið vegna þessa feiknarlega snjó- mokstrar sem hér hefur verið.“ Um 100 manns eru í íslend- ingafélaginu í Tromso. -mar "V" Snjóavetur hefur hrellt Tromsobúa í vetur. Þessi mynd er aftur á móti tekin í eðlilegu árferði. Þeir sem koma að norðan og vestan segj- ast hafa verið vanir ýmsu en ekki í maí! á Skothúsvegi. Bílþjófurinn reyndist vera 15 ára gamab. Sinuvargar Aðfararnótt sunnudags gerðu nokkrir pbtar sér það að leik að skjóta með loftbyssu á skilti og vegfarendur. Þeir voru stöðvað- ir í Skipholti skömmu síðar og færðir á lögreglustöð. Lagt var hald á loftbyssuna og þrjá hm'fa. Þá brutu tveir menn vopnaðir hafnaboltakylfum upp dyr í húsi í Austurborginni og réðust að húsráðanda. Menn- irnir hlupu síðan á brott, en húsráðandinn var fluttur á slysadeild. Á sunnudag var bifreið ekið á ljósastaur við Lækjargötu. Ökumaðurinn meiddist í andbti og fékk innvortis áverka. Um helgina var 14 sinnum tilkynnt um sinubruna í um- dæmi lögreglunnar í Reykjavík. Að marggefnu tbefni er fólki bent á að í lögum um sinu- brennm- og meðferð elds á víðavangi segir að bannað sé að kveikja í sinu og brenna sinu innan kaupstaða eða kauptúna eða í þéttbýb er jafna má til kauptúna. Brot á lögunum varða sektum. Dyraverðir í síðustu viku leiðbeindu lög- reglumenn á námskeiði fyrir dyraverði sem Félag starfsfólk í veitingahúsum gekkst fyrir. Þátttakendum voru m.a. kynnt ákvæði laga og reglna um skyldur og ábyrgð dyravarða, almennar reglur um veitinga- húsastarfsemi og þeir fræddir um áhrif, einkenni og afleiðing- ar fíkniefnaneyslu. Þá voru rædd samskipti lögreglu og dyravarða og nauðsyn þess að þessir hópar ynnu saman að því hlutirnir mættu ganga sem best fyrir sig. Ó. Úr dagbók lögreglunnar á Akureyri 28. apríi til 5. maí Eins og svo oft áður standa atriði úr umferðinni upp úr í bókunum lögregl- unnar í síðustu viku. Bókanir voru 278, þar af eru 82 bókanir vegna atriða úr umferðinni. Þar má helst nefna að þrír öku- menn voru teknir fyrir grun um ölvun við akstur og eitt 16 ára ungmenni var tekið fyrir það að vera ölvað á stolnu reiðhjób með farþega. Þá voru 24 ökumenn kærðir fyrir að aka of hratt þó ekki væri um neinn ofsaakstur að ræða. Skráningarnúmer voru tekin af 21 bifreið sem ekki hafði verið færð til aðal- eða end- urskoðunar. Eigendur bifreiða eru hvattir tb þess að láta skoða bifreiðar sínar og koma þannig í veg fyrir þau óþægindi sem því getur fylgt að númer séu tekin af. Ekki komist í verk Umferðaróhöpp urðu 8 og er þar helst að nefna óhapp sem varð á Höfðahlíð skammt aust- an við gatnamót Háuhh'ðar og Lönguhlíðar. Voru tveir fluttir á slysadeild til aðhlynningar. Bif- reiðin fór út af veginum og hafnaði á ljósastaur. Ökumað- ur sagði að hemlar bifreiðar- innar hafi ekki virkað strax þegar á þeim þurfi að halda og því hafi bifreiðin farið út af veg- inum og hafnað á ljósastaur. Að sögn ökumanns var vitað af því að hemlanir væru búnir að vera eitthvað lélegir en ekki komist í verk að láta lagfæra þá. Einn ökumaður var kærður fyrir aka að bifreið án þess að hafa til þess tilskihn réttindi en sá hafði verið sviptur ökurétt- indum. Þrír ökumenn virtu ekki stöðvunarskyldu og eiga von á að fá sekt fyrir það. Þá er alltaf eitthvað um það að ökumenn aki í burtu eftir að hafa ekið á kyrrstæða og mannlausa bifreið og skemmt hana og oftar en ekki situr svo eigandi þeirrar bifreiðar sem ekið var á uppi með tjónið. Þrjú sbk tbfebi áttu sér stað í bðinni viku. Sparkaði í bílstjórann Margur bæjarbúinn má taka sig á í þeim leiða sið og óthlitsemi að leggja bifreið sinni upp á gangstétt svo að gangandi fólk þuríi út á götuna til þess að komast leiðar sinnar. Nokkuð var um það að af- skipti þyrfti að hafa af fólki vegna ölvunar. Að kvöldi föstu- dags og aðfaranótt laugardags var nokkur erbl en þá komu til bókunar þrjár líkamsárásir. í tveimur tilfellum var um sama manninn að ræða. í öðru tilfeh- inu olli árás mannsins árekstri þar sem hann réðist á öku- mann bifreiðar sem ekið var hægt í bflaröð í miðbænum. Maðurinn byrjaði á því að berja bifreiðina að utan en opn- aði síðan hurðina hjá öku- manni og sparkaði tb hans. Ökumaðurinn kom sér undan sparkinu sem fór í mælaborð bifreiðarinnar og skemmdi það. Við þessa truflun ók ökumað- urinn aftan á bifreiðina sem á undan honum var. Þá réðist sami maður að öðrum og sparkaði í hann og fór sá á slysadeild til aðhlynningar. Árásarmaðurinn náðist seinna um nóttina og gisti hann fanga- geymslur lögreglunnar. Hvað er fólk að hugsa? Þriðja árásin átti sér stað á bak við hús í miðbænum. Tveir 16 ára drengir réðust á 33ja ára gamlan mann. Hann var fluttur á slysadeild og síðan lagður inn. Ekki liggur fyrir hversu al- varleg meiðsbn urðu. Erfitt er að gera sér grein fyrir því hvað það fullorðna fólk er að hugsa sem situr spennt í öryggisbelti í framsæti með barn laust í aftursæti eða standandi á milb sætanna. Er þeim ekki annt um börnin sín ? GV

x

Dagur - Tíminn Reykjavík

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur - Tíminn Reykjavík
https://timarit.is/publication/253

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.