Dagur - Tíminn Reykjavík - 10.05.1997, Side 4
4 - Laugardagur 10. maí 1997
4Dítgur-®tmrtm
Grunnskólar
Hafnarfjarðar
Námsráðgjafar
Umsóknarfrestur um áður auglýstar stöður námsráð-
gjafa við grunnskóla Hafnarfjarðar framlengist til 20.
maí nk.
Um er að ræða 1 'Á stöðugildi við eftirtalda skóla:
Lækjarskóla 430 nemendur í 1.-10. bekk
Víðistaðaskóla 560 nemendur í 1 .-10. bekk
Setbergsskóla 650 nemendur í 1.-10. bekk
Hvaleyrarskóla 530 nemendur í 1.-10. bekk
Æskilegt er að viðkomandi hafi reynslu af kennslu og
sé með viðbótarnám í námsráðgjöf.
Nánari upplýsingar veita skólastjórar viðkomandi skóla
og deildarstjóri þjónustudeildar Skólaskrifstofu Hafnar-
fjarðar í síma 555 2340.
Umsóknir, ásamt upplýsingum um menntun og fyrri
störf, berist undirrituðum að Strandgötu 31, 220 Hafn-
arfjörður.
Skólafulltrúinn í Hafnarfirði.
Skólaskrifstofa
Hafnarfjarðar
Talkermari
Umsóknarfrestur um áður auglýsta stöðu talkennara
við Skólaskrifstofu Hafnarfjarðar framlengist til 20. maí
nk.
Æskilegt er að viðkomandi hafi reynslu af starfi í leik-
og/eða grunnskóla.
Um kaup og kjör fer skv. samningum við STH.
Næsti yfirmaður talkennara er Guðjón Ólafsson, deild-
arstjóri þjónustudeildar, og gefur hann jafnframt nánari
upplýsingar um starfið í síma 555 2340.
Umsóknir, ásamt upplýsingum um menntun og fyrri
störf, berist undirrituðum að Strandgötu 31, 220 Hafn-
arfjörður.
Skólafulltrúinn í Hafnarfirði.
-0-
Olíudreifing
Dreifingarstjóri
Olíudreifing ehf. óskar að ráða dreifingarstjóra fyrir
starfsemi sína á Akureyri og nágrenni. Starfið felur
m.a. í sér skipulagningu, eftirlit og umsjón með dreif-
ingu eldsneytis.
Leitað er að manni sem getur unnið sjálfstætt og hefur
reynslu af stjórnunarstörfum.
Nánari upplýsingar veita Knútur G. Hauksson og Hörð-
ur Gunnarsson í síma 550 9900. Umsóknum skal skil-
að til Olíudreifingar ehf., pósthólf 4230, 124 Reykjavík,
merkt „Dreifingarstjóri", eigi síðar en 21. maí nk.
Olíudreifing efh. sér um dreifingu á fljótandi eldsneyti
fyrir Olíufélagið hf. og Olíuverzlun íslands hf.
Félagið hefur starfað síðan 1. janúar 1996.
F R E T T I R
Akureyri
Hestamenn undir-
búa stjómsýslukæru
Ekki rétta aðferðin
segir sveitarstjóri
Eyjafjarðarsveitar.
Sameiginlegur fundin-
hestamannafélaganna
Léttis og Funa um reið-
vegamál í Eyjafjarðarsveit skor-
ar á sveitarstjórn Eyjafjarðar-
sveitar og umhverfisráðuneytið
að breyta aðalskipulagi Eyja-
fjarðarsveitar varðandi reið-
vegi. Fundurinn vill að aðal-
reiðleið milli Akureyrar og Mel-
gerðismela verði áfram um
gamla veginn að vestanverðu
fram að Hrafnagili og reiðvegur
verði lagður frá Hrafnagili fram
að Melgerðismelum. Jafnframt
verður stuðlað að öðrum reið-
leiðum svo sem að austanverðu
og víðar.
Mikið stendur til næsta ár
þegar Landsmót hestamanna
fer fram á Melunum og er búist
við allt að 15.000 manns á mót-
ið eins og frarn hefur komið í
Degi-Tímanum. Telja hesta-
áhugamenn á Akureyri brýnt
að ná úrbótum fyrir þetta mót.
Þeir hafa samþykkt að fela lög-
fræðingi að fá úr því skorið
hver réttur hestamanna sé
gagnvart leiðinni sem liggur frá
Akureyri og að Hrafnagili sem
lokað hefur verið af ábúanda
Ytra-Gils. Þá mun lögmaðurinn
leggja fram stjórnsýslukæru til
skipulagsstjóra ríkisins vegna
nýsamþykkts aðalskipulags
Eyjaíjaröar.
Oddviti Eyjaijarðarsveitar,
Pétur Þór Jónasson, segist
undrast þessi vinnubrögð. „Mér
koma þessar ályktanir afskap-
lega á óvart miðað við þá fundi
sem ég hef átt með formönnum
hestamannafélaganna að und-
anförnu. Það er afar erfitt að
fara fram á samvinnu og gott
samstarf en hóta síðan í hinu
orðinu kærum.“
Pétur Þór segir að búið sé að
skýra sjónarmið deiluaðila og
hingað til hafi verið lögð
áhersla á að leysa málið með
friði. Þessi viðbrögð ýti ekki
undir farsæla lausn. „Ég kann
ekki að meta svona vinnu-
brögð," sagði sveitarstjórinn í
Eyjaíjarðarsveit en vildi efnis-
lega ekki tjá sig um atriði máls-
ins að öðru leyti. BÞ
Arnessýsla
Smáþjóð á hrmgvegmiim
Smáþjóðaleikarnir svo-
nefndu verða haldnir hér á
landi nú í júní. í tilefni
þess og Landsmóts UMFÍ í júlí
nk. fer nú fram kyndilhlaup á
hringveginum og á Vestfjörðum
og víðar en þátt f því taka ýmis
félagasamtök víða af landinu.
Hlaupið hófst í Reykjavík þaðan
sem hlaupið var austur fyrir
Fjall og í Flóanum brá hin sí-
unga kempa Stefán Jasonarson
í Vorsabæ undir sig betri fætin-
um og tók léttan sprett eins og
hans er von og vísa, „enda
ávallt viðbúinn og alltaf í stuði“,
unglingur á níræðisaldri. Við
Skeiðavegamót tóku tveir félag-
ar í Hestamannafélaginu Loga í
Biskupstungum, þeir Böðvar
Stefánsson og Sigurjón Sæland
við kyndlinum og riðu með
hann að Þjórsá. Ekki er að
spyrja að greind fákanna því
vel þurftu þeir að hugsa sig um
áður en þeir létu til leiðast að
bera knapa sína og kyndil yfir
Þjórsárbrúna, einbreiða boga-
brúna. Er næsta víst (!) að þing-
mönnum kjördæmisins yrði af
þeim góður styrkur í baráttu
fyrir betri brú, hefðu þeir at-
kvæðisrétt. Þar með lauk þætti
Árnesinga í smáþjóðahlaupinu.
-SB/Árnessýslu
Hólar
Stóðhestur
stoppaður upp
Stóðhesturinn Hrafn frá
Holtsmúla, sem felldur var
28 vetra á Hólum, verður
stoppaður upp og hafður til
sýnis einhvers staðar á Hólum í
Hjaltadal. Skólastjóri, Jón
Bjarnason, segir nokkur dæmi
um að hestar hafi verið stopp-
aðir upp, m.a. hafi hestur Gust-
avs Adolfs, sem frægur varð eft-
ir stríðið í Póllandi fengið þá
viðhafnarmeðferð. Fá dæmi
munu þó um þetta hérlendis en
þó má nefna Skjónu Björns á
Löngumýri í Skagafirði.
Ekki hefur verið ákveðið
hver vinnur verkið eða hvenær
en Jón segir engin vandkvæði
að fá menn til starfans. Hrafn
var tvímælalaust í hópi þekkt-
ustu stóðhesta landsins og á
marga snjalla afkomendur. BÞ