Dagur - Tíminn Reykjavík - 23.05.1997, Page 1
Jarðhræringar
Fréttir og þjóðmál
Akureyri
„Suðurlands-
skjáJfti“ á
Norðurlandi
Nánast
sömu líkur
eru á stórum
Norðurlands-
jarðskjálfta og
Suðurlands-
skjálfta á
næstu árum.
Petta kemur
fram í fréttaviðtali við Ragnar
Stefánsson jarðskjálftafræðing í
Degi-Tímanum í dag. „Það eru
nánast sömu líkur á að stór
skjálfti komi við norðurströnd-
ina og á Suðurlandsundirlend-
inu. Tölfræðilega er eilítill mun-
ur á en hann er innan skekkju-
marka,“ segir Ragnar.
Hann segir jarðskjálftafræð-
inga hafa í þessu sambandi
mestar áhyggjur af Húsavíkur-
svæðinu, þ.e.a.s. svæðinu í
kringum Skjálfanda. Þar sé virk
sprunga og hafi síðast komið
þar stór skjálfti árið 1872, vafa-
laust ekki minni en 6,5 á Richt-
er. Nú er verið að setja upp net
jarðskjálftamæla undan Norð-
urlandi, í þeim tilgangi að bæta
jarðskjálftaspár. BÞ
- Sjá bls. 2.
Akureyringar urðu felmtri slegnir í gær þegar mikinn reyk lagði frá flugvellinum. Eflaust hefur þeim lótt þegar í Ijós kom að Skódabifreið í flugvélarlíki
hafði orðið fyrir barðinu á slökkviliðsmönnum sem voru að sviðsetja bruna. Engum sögum fer af því hvernig æfingin heppnaðist. Mynar.Gs
Sakamál
Ekki skilyrði til endurupp-
töku Geirfínnsmálsins
Ragnar Hall, settur ríkis-
saksóknari vegna hugs-
anlegrar endurupptöku
svokallaðs Geirfinns- og Guð-
mundarmáls, skilaði áliti sínu
í gær og kemst þar að þeirri
niðurstöðu að ekki séu skil-
yrði til að endurupptaka mál-
ið. Rökstuðningurinn fer til
Hæstaréttar og sagði Ragnar
hann ekki til umfjöllunar af
sinni hálfu fyrir fjölmiðlum á
meðan málið væri í gangi í
Hæstarétti.
Ragnar Aðalsteinsson, lög-
maður og réttargæslumaður
Sævars Ciesielskis, útbjó ítar-
lega greinargerð eftir gagna-
söfnun Sævars og komst að
þeirri niðurstöðu að ótvíræð
skilyrði væru til endurupptöku
málsins. Skilaði hann greinar-
gerðinni til
Ragnars Hall í
febrúar og ligg-
ur mikil vinna
að baki áliti
Ragnars Hall,
að hans sögn.
Hann sagðist
hafa unnið
sjálfstætt að
álitinu, aðrir
hefðu ekki komið þar að.
Eftir heimildamynd Sigur-
steins Mássonar, sem nýverið
var sýnd í Sjónvarpinu um Geir-
iinns- og Guðmundarmálið, hef-
ur þrýstingur vaxið í þjóðfélag-
inu um að ástæða væri til að
taka málið upp fyrir dómstólum
upp á nýtt.
Ragnar Hall
vildi ekkert um
það segja.
Spurður hvort
ákvörðunin nú
hafl verið
vandasöm,
sagði Ragnar:
„Allar svona
ákvarðanir eru
byggðar á þeim gögnum sem
Hggja fyrir. Þetta mál var flókið
og yfirgripsmikið."
Greinargerð Ragnars Aðal-
Ragnar Hall, settur saksóknari í
Geirfinnsmálinu.
steinssonar var um 190 blaðsíð-
ur en Ragnar Hall vildi ekki
svara því beinlínis hvort hann
teldi eitthvað nýtt hafa komið
fram. „í greinargerðinni er
margvíslegur rökstuðningur en
ég tel hann þó ekki þess efnis
að hann leiði til endurupptöku
málsins." Hann sagði einnig að
þrátt fyrir ofangreinda niður-
stöðu væri hann ekki að leggja
blessun sína yfir málsmeðferð-
ina sem Sævar og ijölmargir að-
ilar málsins hlutu. „Það þarf í
sjálfu sér ekki að vera neitt
samasemmerlsi þar á milli. Það
var búið að dæma um málsmeð-
ferðina á sínum tíma.“
BÞ
„Margvíslegur rök-
stuðningur í greinar-
gerð Ragnars Aðal-
steinssonar. Ég tel
hann þó ekki leiða til
endurupptöku.“
BUCK&DECKER
Handverkfæri
SINDRI í
-sterkur í verki “ £
BOSGARTUNt 31 * SIMI S6Í, '25Í * BBgTAStMI SSÍ 5CÍ4