Dagur - Tíminn Reykjavík - 27.05.1997, Blaðsíða 7

Dagur - Tíminn Reykjavík - 27.05.1997, Blaðsíða 7
JDagur-®mttmt Þriðjudagur 27. maí 1997 - 7 ERLENDAR FRETTIR Frakkland Kjósendur sýna Chirac gula spjaldið Mikið fylgi vinstri flokkanna í frönsku kosningunum kemur veruiega á óvart. Frakkar gáfu Jacques Chir- ac langt nef í fyrri umferð þingkosninga, sem fram fóru á sunnudag. Um 68% kosningabærra manna tóku þátt í þessum kosningum, held- ur fleiri en skoðanakannanir höfðu sýnt fram á að myndu kjósa. Chirac, sem nú er 65 ára, á eftir 5 ára setu sem forseti og hvernig sem úrslit verða í kosn- ingunum, getur hann setið út kjörtímabil sitt. Hann er tals- maður niðurskurðar, skatta- lækkana og vill minnka umsvif ríkisins á sem flestum sviðum, en úrslitin sýna svo ekki er um villst að kjósendur eru þessu ekki sammála og vilja alls ekki minnka félagsmálapakkann, en í Frakklandi er nú um 12.8% atvinnuleysi, eitt mesta at- vinnuleysi í Evrópu. Úrslit þingkosninganna í Frakk- landi urðu Jacques Chirac, for- seta, mikil vonbrigði. Jean Marie Le Pen, leiðtogi Pjóðarflokksins, segir þessi úrsht vera persónulegan ósigur Chir- acs og hvetur hann til afsagnar. „Hann hefur verið sigraður og á að fara frá,“ segir Le Pen. Kannanir höfðu sýnt að stjórnin héldi naumlega meiri- hluta, en þó fór svo að vinstri menn fengu um 40% en hægri/miðjumenn fengu aðeins 36%. Þjóðarflokkurinn fékk um 15% atkvæða en hefur þrátt fyrir það Utla sem enga von um stjórnarsæti. Búist er við því að flest þau atkvæði sem farið hefðu til Þjóðarflokksins, fari til mið/hægri flokka og að það muni gefa stjórnarliðum mun betri vinningsmöguleika en þessi fyrsta umferð kosning- anna sýxúr. Jacques Touboun, dóms- málaráðherra, segir að úrsUtin séu viðvörun, fólk sé óánægt og vilji refsa stjórninini, en Alain Juppe, hinn óvinsæli forsætis- ráðherra, segir að Frakkar vilji róttækar breytingar og að stjómin verði að hlusta á skila- boð almennings. Með þeim tölum sem komnar eru segir Sofre, að sósíaUstar og kommúnistar fái 263-302 sæti en hægri menn aðeins 255- 287 sæti. Ef sósíalistar fá um 289 sæti mun stjórnin í Frakk- landi vera samsett úr tveimur eða fleiri flokkum, í þriðja sinn síðan 1983. Wisconsin Nýjar hugmyndir um félagsmálahj álp IWisconsin hefur verið unn- ið að því á undanförnum árum að þeir sem vinna hjá einkafyrirtækjum hafi betri laun en þeir sem vinna hjá rík- inu. Þeir sem ekki fá vinnu í einkageiranum eiga að geta fengið einhverja vinnu hjá rík- inu, en launin eru höfð nógu lág tU að hvetja menn til að leita að annarri vinnu. Nú hefur sú staða komið upp að ríkinu er skylt að greiða lág- markslaun, það sé ólöglegt og ósanngjarnt að skylda þá sem fá bætur að vinna fyrir þeim á lægri launum en það. En jafn- framt fullyrðir stjórnin það að eigi að greiða 4.75$ á tímann, þurfi meira fé til þessara mála- flokka og jafnframt er óttast að séu sömu laun greidd tU shkrar Ríkinu er skylt að greiða lágmarkslaun, það er ólöglegt og ósanngjarnt að skylda þá sem fá bætur að vinna fyrir þeim á lægri launum en það. atvinnubótavinnu muni það letja fólk í leit að vinnu annars staðar. Verkefni því sem kallað hef- ur verið Wisconsin áætlunin er ætlað að fá fólk til að vinna fyr- ir bótum. Helstu hugmyndir um atvinnu eru: Að fatlaðir geti fengið vinnu við hæfi á vernduðum vinnu- stöðum, laun séu um 628$ á mánuði. Samfélagsþjónusta, s.s. þrifnaður á lóðum ríkisins, laun séu um 673$ á mánuði. Reynsluverkefni, þar sem ríkið greiðir atvinnurekendum 300$ á mánuði fyrir að ráða at- vinnulausa, það sé tímabundin lausn, helst ekki meira en 3 mán. þó megi lengja tímabilið í 2 ár. Launin séu lágmarkslaun og fólk fái skattaívilnanir eftir því sem telst eðlilegt í einka- geiranum. Og svo störf í einkafyrirtækj- um, en í Wisconsin, sem er nokkuð vel á vegi statt, eru tímalaun í einkageiranum um 6$ á tímann. - besti tími dagsins! jp' TILBOÐ A SMÁAUGLÝSINGUM FYRSTA BIRTING 800 KR. ENDURBIRTING 400 KR. Ofangrelnd verð miöast viö staögrelöslu oöa VISA / EURO Sfmi auglýsingadeildar er 460 6100 Fax nuglysingadeildar er 460 6161 gS Vinningar Fjöldi vinninga Vinnings- upphæð 1.50(5 1 11.475.700 2. píí*5^ WT~ 120.130 3.40(5 127 9.790 4. 3af5 4.394 660 Samtals: 16.339.860 Upplýsingar um vinningstölur fást oinnig í simsvara 568-1511 eða Qrœnu númeri 800-6511 og i textavarpi ásfðu 451. Erlent fyrirtæki, sem framleiðir vinsælan, vandað- an herrafatnað undir eigin nafni, á góðu verði, (yfir 250 verslanir í Skandinavíu) óskar eftir að komast í samband við aðila, eða fyrirtæki á Akureyri, sem áhuga hafa á að opna herrafataverslun, eða opna svokallað shop in shop í verslun sem fyrir er. FVr- irtækið útvegar innréttingar og mikið af auglýs- ingaefni ásamt góðri aðstoð frá fyrsta degi. Fyrir- tækið býður eiganda eða verslunarstjóra erlendis á kynningarnámskeið áður en opnað yrði. Um beinan innflutning á fatnaðinum yrði að ræða. Þeir sem áhuga hafa, vinsamlegast hafið samband við Dag-Tímann og leggið inn nafn og símanúmer ásamt ykkar hugmyndum, merkt 1, 2 og 3, fyrir 5. júní 1997, og haft verður samband fljótlega. Alger trúnaður áskilinn. GARÐYRKJUSKÓLI RÍKISINS Matjurtir í heimilisgarðinum Trjágróður í mismunandi umhverfi Garðyrkjuskóli ríkisins, Reykjum í Ölfusi, verður með tvö námskeið á Akureyri laugardaginn 31. maí 1997. Námskeiðin verða þessi: Matjurtir í heimilisgarðinum, sem haldið verður í húsnæði umhverfisdeildar við Drottningarbraut. Leiðbeinandinn á námskeiðinu, Gunnþór Guðfinnsson, kennari við Garðyrkjuskólann mun fjalla um allt það helsta sem viðkemur matjurtum í heimilisgarðinum, lífræna ræktun, safnhaugagerð og fleira. Trjágróður í mismunandi umhverfi, sem haldið verður í skátaheimilinu Hvammi, Hafnarstræti 49. Á námskeiðinu mun Kristinn H. Þorsteinsson, garðyrkjustjóri Rafmagnsveitu Reykjavíkur, fjalla um mismunandi gróður í bæjarkjömum, útivistarsvæðum og í sumarbústaðalöndum. Bæði námskeiðin standa frá kl. 10-16 og er þátttökugjald kr. 3.000,- (innifalið: Námskeiðsgögn, hádegismatur og miðdegiskaffi). Skráning fer fram hjá endurmenntunarstjóra Garðyrkjuskólans í síma 483 4061 og á skrifstofu skólans í síma 483 4340.

x

Dagur - Tíminn Reykjavík

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur - Tíminn Reykjavík
https://timarit.is/publication/253

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.