Dagur - Tíminn Reykjavík - 09.07.1997, Síða 12

Dagur - Tíminn Reykjavík - 09.07.1997, Síða 12
Jlagur-ÍÍItmtmt ■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■ Miðvikudagur 9. júlí 1997 ‘fbbSbQO Ý6/.3ð00 'e/f. ,0 -/j» rpHSfiH birt án I 1» g&^gSL m WWm ABYRGOAR Stoltur afbrotamaður David Kisson var sakfelldur fyrir að þykjast vera lögfræðingur og dæmdur í fjögurra ára fangelsisvist. Kisson var einnig gert að endurgreiða fórn- arlömbum sínum nærri sex milljónir króna. „Ég sá hann nokkrum sinnum í dómsalnum og hann virtist ákaflega montinn af verkum sínum,“ sagði eitt fórnarlambanna. Varið ykkur á tilboðunum! Maður nokkur í Bandaríkjunum, Da- ve Feuerstein að nafni, fór í mál við stórverslun eina fyrir þær sakir að svo gífurlegt magn af vörum hefði verið á tilboðsverði að hann hefði fengið í bakið við að bera allt góssið heim. Hann gerði sér nokkrar ferðir í verslunina á dag í þrjá daga sam- fleytt. „Svona tilboð eru of góð til þess að hægt sé að neita sér um þau,“ sagði Feuerstein. „Stórmarkað- urinn hefði átt að sýna meiri tillits- semi og gera viðskiptavinum sínum ókleift að gera það sem ég gerði. Ef öll þessi tilboð hefðu ekki verið í gangi hefði ég ekki fengið í bakið.“ Bangsi bjargar barni Logan Newcom er ekki nema tveggja ára. Hann var í feluleik heima hjá sér þegar óhappið varð: Hann datt út um glugga á annarri hæð. Til allrar ham- ingju lenti hann á bangsanum sínum og meiddist ekki alvarlega. Dómarar bíta líka Það eru íleiri en hnefaleikarar sem geta misst stjórn á kjaftinum á sér. Dómari nokkur í Bandaríkjunum, Joseph Troisi, gat engan veginn sætt sig við það þegar Bill Witten, sem var staddur í dómsalnum sem áheyrandi, lét falla niðrandi ummæli um dómar- ann meðan á róttarhöldum stóð. „Hr. Trosi steig niður úr sæti sínu, fór úr embættisskikkju sinni, og síðan kom til átaka milli þeirra," sagði lögreglu- maðurinn Terry Snodgrass. Átökun- um lauk með því að dómarinn beit stykki úr nefi hins ósvífna áheyranda. (c) „Ovi’s World of the Bizarre" http y/www. ovis. com Net-slúður (sel það ekki dýrara en...) Kirkjubjöllurnar eru farnar að klingja í eyrum aðdáenda leik- konunnar Umu Thurman en hún sást ásamt kærastanum Ethan Hawke á röltinu í New York með vinsælum brúðkaupsskipuleggjanda. Þetta yrði hjónaband nr. 2 hjá Umu, það fyrra (við Gary Oldman) endaði með skiln- aði fyrir fimm árum. Michael Jackson styður konu sína, Debbie Rowe, af heilum hug í þessum harða heimi. Það nýjasta er að hann hefur undanfarið hvatt hana dyggilega til að gangast undir viða- mikla fegrunaraðgerð svona til að meiri symmetría verði á milli þeirra hjónakorna. Rowe er hógvær, jarð- bundin kona og var í fyrstu mótfallin tilhugsuninni. En hún er víst öll að koma til enda áfram um að gleðja bónda sinn. Jackson vill að læknar krukki eitthvað í andlit hennar og fitusjúgi likamann... . Fullnægði henni ekki Það hefur komið á daginn að Madonna (38 ára) er óseðjandi og mun hún hafa fleygt ástmanni sínum Carlos Leon (29 ára) - því hann gat ekki fullnœgt henni í bólinu. Madonna mœlti svo fyrir um að Carl- os, faðir níu mánaða gam- alar dóttur hennar, skyldi ganga um með símboða svo hún gœti látið hann vita hvenœr sem hún var ástar- þurfi. En unglambið Leon hreinlega stóð ekki undir hömlulausri ástarlyst hennar. „Þegar hún villfá það þá á ég bara að kasta öllu frá mér, hlaupa heim og þjónusta hana. Þetta varð mjög þreytandi. Ég vissi aldrei hvenœr símboð- inn gatfarið að pípa. Ég lét sem ég heyrði ekki í honum nokkrum sinnum enfékk þá bara öskur og lœti þeg- ar ég kom heim. “ Paltrow ver Pitt Gwyneth Paltrow er ekki sama um fyrrver- andi kœrastann og hefur nú skrifað banda- rísku blaði bréf þar sem hún reynir að vernda orðstír Brad Pitt. Ljóskan hýreyga segir þar Pitt vera góðhjartaðan og heil- steyptan mann og einnig segist hún orðin dauðleið á að lesa um meint ástarsamband hans við leikkonuna Claire Fulliano. En hún þegir sem gröfin yfir sambandsslitun- um þótt það eitt hefði getað fengið slúðr- ara í blaðamennskustétt til að setjast niður og lesa bréf. Pitt virðist þó ekki alveg sá heiðursmaður sem Paltrow vill vera láta því hann segir vinum sínum að hann hafi yfirgefið Paltrow því hann þoli ekki jjöl- skyldu hennar! Sjálfur er Bradfrá lítt efn- uðu heimili í Mið-vesturríkjunum. Pabbi Gwyneth er framleiðandinn Bruce Paltrow og mamma hennar leikkonan Blythe Dann- er og lifði Gwyneth vernduðu lífi á þeytingi milli New York og Kaliforníu. „Þegar við Gwyneth rifumst þá fór hún beint með það íforeldra sína og sagði þeim allt. Ég vissi svo ekki fyrr en þau voru komin á línuna til að ráðleggja mér hvernig ég œtti að höndla sambandið. “

x

Dagur - Tíminn Reykjavík

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur - Tíminn Reykjavík
https://timarit.is/publication/253

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.