Dagur - Tíminn - 30.08.1996, Page 5
jOagur-<Etmmn
Fimmtudagur 30. ágúst 1996 -17
IH 1 ___ _________ I I B Bl
VIÐTAL DAGSINS
Ábyrgð konunnar á eigin
meðgöngu og fæðingu
Það hefur veríð hugsað of
mikið um fæðinguna sem
verki og sárindi
breyttar áherslur í verkjalyíja-
gjöf, að gefa minna af sterkjum
verkjalyfjum og láta konuna
vera meiri þátttakanda í fæð-
ingunni. Viðhorf kvenna til
meðgöngunnar eru líka að
breytast, þær eru tilbúnari en
áður
að
leggja á
sig vinnu í
sambandi við
verkina án
þess að fá
verkjalyf og
oft eru þær
ánægðari á eftir.
Það hefur
verið hugsað of
mikið um fæðing-
una sem verki og
sárindi en konan
þarf að gera sér
grein fyrir að þetta
eru eðlilegir sam-
drættir og þeir þurfa
að vera til staðar á
meðan að barnið fæðist. hað
þarf að koma til jákvæðari
hugsun gagnvart verkjunum en
þetta er líka allt að breytast í
þá áttina. Færri inngrip auka
líkurnar á að fæðingin verði
eðlileg. Einnig er nú talið að
betra sé að spöngin rifni heldur
en að hún sé klippt, bæði
grær hún betur og verk-
ir verða minni. Eins
má lina verki með
öðru en lyijum t.d.
með nuddi og hreyf-
ingu.“
Eru fæðingar hér
eitthvað öðruvísi? „Mér
sýndist Evrópa og Ástralía
vera á svipuðu róli en þó
kom fram að þungaðar kon-
ur í öðrum Norðurlöndum
eru komnar lengra en við í því
að taka ábyrgð á sinni
meðgöngu. Þær virðast líka
hafa ákveðnari skoðanir á því
hvernig þær vilja hafa
meðgönguna og hvernig þær
ætla að fæða. Á meðgöngutím-
anum eru konur mjög móttæki-
legar fyrir allri fræðslu og ef
þær segja okkur frá væntingum
sínum, kvíða eða slíku getum
við útskýrt fyrir þeim hvort það
sem þær fara fram á er raun-
hæft eða ekki.“
Hvaða fæðingastellingar eru
bestar? „Það er ekki hægt að
fullyrða neitt um það en mikil-
vægt er að konan fái að fæða
eins og hún kýs, hún á að ráða
því hvort hún fæðir standandi,
krjúpandi eða sitjandi." En
hvað með vatnsfæðingar? „Það
er mjög gott að nota sturtuna
og baðið á útvíkkunartímanum,
það getur verið ágætis verkja-
stilling. Sums staðar á landinu
eru pottar eða baðker notuð en
börnin fæðast þó ekki í þeim
Ingibjörg Jónsdóttir, deildar-
stjóri á fæðingardeild Fjórð-
ungssjúkrahússins á Ákur-
eyri sótti í sumar alþjóðlega
ráðstefnu ljósmæðra í Oslo í
Noregi. Tvö þúsund og fimm-
hundruð ljósmæður frá yfir níu-
tíu löndum voru samankomnar
á ráðstefnunni
og þrátt fyr-
ir ólíkar aðstæður er meginstef-
ið „náttúruleg fæðing" og eins
lítil inngrip frá hjúkrunarfólki
og möguleg eru.
Hvað er nýtt að gerast í fæð-
ingafræðinni? „Það er alltaf
eitthvað nýtt að gerast en í Osló
var lögð áhersla á að fæðingin
væri sem náttúrulegust og
gangsetningum og þar
með sogklukkum yrði
fækkað, sömuleiðis
tangafæðingum og
keisaraskurðum.
Einnig komu fram
heldur eru konurnar í heitu
vatninu á meðan útvíkkunin á
sér stað.“
Var eitthvað sem kom veru-
lega á óvart? „Það sem stakk
mig mest er hve margar konur
deyja enn vegna barnsburðar.
Þetta á aðallega við um þriðja
heims löndin þar sem blæðing-
ar eftir fæðingar og sýkingar
eru mikið vandamál enda
hreinlætisaðstaða oft bágborin.
Samt eru fæðingar þarna oft
þær náttúrulegustu og oft
margar konur að fæða samtím-
is í einu herbergi. Pabbarnir
aftur á móti eru víða alls ekki
hafðir með.
Bandaríkin eru líka frá-
brugðin vegna tækninnar og
þar eru það yfirleitt læknar sem
taka á móti börnunum, ekki
Ijósmæður. Keisaraskurðir eru
þar miklu fleiri en annars stað-
ar í heiminum og eins mænu-
deyfingar."
Hvað með brjóstagjöf? „Jú,
það var rætt um mikilvægi
brjóstagjafar og í tengslum við
hana sólarhringssamveruna, að
barnið sé hjá móðurinni allan
sólarhringinn og að hún sinni
því jafnt nótt sem dag inni hjá
sér á stofunni ef heilsa beggja
leyfir. Börnin eru yfirleitt vær-
ari og brjóstamjólkin kemur
fyrr og eins eru minni erfiðleik-
ar með brjóstagjöfina. Þetta
skilar engum neikvæðum
punktum, mæðurnar virðast
ekki sofa verr þótt þær séu með
börnin inni hjá sér eins og
margir hafa haldið. Þetta á
auðvitað við þegar allt er eðli-
legt en þarf ekki að gilda ef
konan hefur gengið í gegnum
erfiða fæðingu, keisaraskurð
eða þegar barnið fæðist fyrir
tímann. Okkar stefna er að
auka samveru móður og barns
svo og að samhæfa fræðslu heil-
brigðisstarfsfólks í tengslum við
brjóstagjöf því afar erfitt er oft
fyrir nýbakaða móður að fá
misvísandi ráðleggingar varð-
andi brjóstagjöfina. mgh
Ingibjörg Jónsdóttir Ijósmóðir
með þriggja daga gamlan
dreng sem fæddist á fæðing-
ardeild Fjórðungssjúkrahúss-
ins á Akureyri. Mynd -gs
Borgarleikhúsið
Tnnasetnmgin er afleit
Eg ber fyrst og fremst hag
Leikfélagsins fyrir brjósti
en tímasetningin er afleit
út frá faglegum sjónarmiðum. Á
haustin er mesta álagið í miða-
sölu og markaðsstarfi, það þarf
að ná samningum við auglýs-
endur, kortasalan fer í gang og
línurnar lagðar í kynningarmál-
um fyrir veturinn. Framundan
er því gríðarlega mikið undir-
búnings- og skipulagsstarf og
það er satt að segja undarlegt
að treysta markaðsdeildinni til
að inna það af hendi en ekki til
að halda starfinu áfram í vetur.
Auk þess verður aðkoman ank-
annaleg fyrir þann sem tekur
við starfi kynningastjóra því
hann verður í vetur að vinna á
forsendum fráfarandi starfs-
manns,“ sagði Álfrún Guðrún-
ardóttir, núverandi markaðs-
og kynningarstjóri LR, en henni
og öðrum starfsmönnum mark-
aðsdeildarinnar, alls 5, hefur
verið sagt upp störfum frá og
með síðustu mánaðamótum. í
máli Þórhildar Þorleifsdóttur,
leikhússtjóra Borgarleikhúss-
ins, í íjölmiðlum hefur komið
fram að markaðsdeildin hefur
ekki verið nógu skilvirk.
Uppsagnirnar bárust starfs-
mönnum bréfleiðis og þurftu
þeir allir, samkvæmt heimildum
Dags-Tímans, að leita sjálfir
eftir fundi við Þórhildi til skýr-
ingar. „Þetta skýtur nokkuð
skökku við því nýi leikhússtjór-
inn talaði í vor um að bæta boð-
leiðir innanhúss. Það er aftur
kominn upp þessi ótti sem var
alls ráðandi hér í fyrra. Það er
uggur í fólki. LÓA
i ■ u m
YaWw m >i *w i*
IíaI II 1 T • 1
>5s8
ty
Tónmenntaskólinn
-- A K U R E Y R 1 -
Langar þig að lœra
á hljóðfœri?
Tónmenntaskólinn býður þér upp á
skemmtilegt nám í vetur.
Nám fyrir alla aldurshópa, byrjendur og lengra komna.
Ódýrt samspilsnám fyrir byrjendur á blokkflautu, önn-
ur blásturshljóðfæri og bjölluhljómsveit.
Kennt er á flest önnur hljóðfæri.
Byrjendur á fiðlu og blásturshljóðfæri fá lánuð hljóð-
færi endurgjaldslaust.
1 vetur munum við bjóða upp á kennslu i tónsmíðum
og nótnaskrijt á tölvu.
Innritun hefst mánudaginn 2. september frá kl.
13.00-18.00 á skrifstofu skólans, Hrísalundi 1, sími
462 3181.
Skólastjóri.