Dagur - Tíminn - 05.09.1996, Page 4
4 - Fimmtudagur 5. september 1996
|Dagur-'3Imttmt
FRETTIR
Reykjavik
Völd flutt frá borgarstjóm
til íbúanna í Grafarvogi
Hugmyndin er að
Grafarvogur, þar sem
um 12 þúsund manns
munu búa, verði fyrsta
íbúðahverfi landsins
þar sem sérstök
hverfisnefnd fer með
völd, sem ella væru hjá
borgarstjórn og ýmsum
borgarstofnunum.
Tillögu um að Grafarvogshverf-
in í Reykjavík verði gerð að
reynsluhverfi var frestað í gær í
borgarráði og tillagan send
borgarstjóra og framkvæmda-
stjórum menningar-, uppeldis-
og félagsmála borgarinnar til
nánari athugunar.
Hverfisnefnd á að fara með
stjórn hverfismiðstöðvar í Graf-
arvogi. Nefndin á að vera skip-
uð fimm mönnum, þrem kosn-
um hlutfallskosningu af borgar-
stjórn og jafnmörgum til vara.
Borgarstjórn kýs formann úr
hópi kjörinna nefndarmanna og
skal hann vera borgarfulltrúi
eða varaborgarfulltrúi í það
minnsta. íbúasamtökin í Graf-
arvogi eiga að tilnefna tvo
menn í nefndina.
Hverfisnefndin fær talsverð
völd sem hún fer með í umboði
borgarstjórnar. Hún fer með
verkefni félagsmálaráðs, stjórn
og framkvæmd ýmissar félags-
legrar þjónustu, verkefni
fræðsluráðs, menningarmála-
nefndar, íþrótta- og tómstunda-
ráðs og Dagvistar bama.
Starfsemi reynsluhverfisins
er hugsuð á sama grundvelb og
lög um reynslusveitarfélög frá
1994 kveða á um.
í borgarstjórn Reykjavíkur er
nokkur eining um þetta mál.
„Sjálfstæðisflokkurinn hefur
falbst á að vert sé að skoða
hugmyndir um reynsluhverfi í
Grafarvogi. Samþætting þjón-
ustu borgarinnar undir einni
stjórn er áhugavert viðfangs-
efni,“ segja Gimnar Jóhann
Birgisson og Inga Jóna Þórðar-
dóttir borgarfulltrúar Sjálfstæð-
isflokksins í bókun um málið.
En þau láta líka í ljós efasemd-
ir:
„Áætlaður kostnaður vegna
hverfismiðstöðvar í Grafarvogi
verður á fyrsta ári um það bil
56 miiljónir króna. Allt er í
óvissu um að hve miklu leyti
samsvarandi kostnaður lækkar
hjá þeim stofnunum, ^m í dag
sinna verkefnum sem hin nýja
hverfismiðstöð mun taka við.“
- JBP
Skagafjörður
Minnisvarði
um skógarvörð
afhjúpaður
Minnisvarði um Sigurð
heitinn Jónasson, skóg-
arvörð á Norðurlandi
vestra, var afhjúpaður í Reykj-
arhólsskógi við Varmahlíð í
Skagafirði við hátíðlega athöfm
gær. Varðinn er stuðlabergs-
steinn með áfestri gylltri plötu
sem texti er greiptur í. Skóg-
rækt ríkisins, Skógræktarfélag
Skagfirðinga og Héraðsnefnd
Skagfirðinga stóðu að uppsetn-
ingu varðans en Sigurður Örn
Hilmarsson og Sigurður Sigurð-
arson, barnabörn Sigurðar
heitins, afhjúpuðu hann. Við at-
höfn í Reykjarhólsskógi rakti sr.
Gunnar Gíslason, fv. prófastur í
Glaumbæ, sögu skógræktar í
Skagafirði og söngfélagar úr
karlakórnum Heimi sungu
nokkurlög. -sbs
Eyþing
Húsavík
Starfshópur vill beint flug til
Kaupmannahafnar og Hamborgar
Flugleiðamenn
svartsýnir á beint
flug frá Akureyri;
Pétur J. Eiríksson,
framkvæmdastjóri
markaðssviðs
Flugleiða
Eyþing, samband sveitarfé-
laga í Eyjafírði og Þing-
eyjarsýslum, stofnaði á sl.
ári, ásamt Sambandi sveitarfé-
laga á Austurlandi, starfshóp til
að koma á beinu flugi frá út-
löndum til Norður- og Austur-
lands. Á fundi starfshópsins
snemma vors með formanni Ey-
þings, bæjarstjóranum á Akur-
eyri, nokkrum forsvarsmönnum
ferðamála á svæðinu og for-
svarsmönnum Flugleiða kom
fram að Flugleiðamenn eru til-
búnir til að skoða alvarlega að
taka upp beint flug á leiðinni
Hamborg- Kaupmannahöfn-Ak-
ureyri og Akureyri-Kaup-
mannahöfn-Hamborg einu sinni
í viku yfir sumarmánuðina. Til
að undirbúa markaðinn var
ákveðið að undirbúa heildar-
skrá yfir ferðaþjónustuaðila á
svæðinu og kynna áformin fyrir
stærstu ferðaskrifstofum í
Þýskalandi sem selja ferðir til
íslands.
Pétur J. Eiríksson, fram-
kvæmdastjóri markaðssviðs
Flugleiða, segir að þetta mál sé
alls ekki frágengið, en forsvars-
menn Flugleiða hafi átt fund
með þessum aðilum þar sem
ákveðið hafi verið að kanna
möguleikana á áðurefndu flugi
til hlítar.
„Þetta þarf að byggjast á
einni eða tveimur ferðaskrif-
stofum sem eru með stóra hópa
og móttöku á Norðurlandi og
það eru aðeins þýskar ferða-
skrifstofur sem eru nógu stórar
til að sinna verkefninu. Fyrstu
kannanir benda ekki til þess að
það sé áhugi á beinu flugi til og
frá Akureyri. Tilgangur farþega
með ferð tU íslands er mjög
mismunandi, sumir taka bíla-
leigubíl, aðrir fara sér hægar.
Við vitum að sumt af því fólki
sem kemur með Saga-Reisen til
Akureyrar llýgur beint þaðan til
Reykjavíkur. Við ætlum hins
vegar ekki að gefa lokasvar fyrr
en eftir lok Vest-Norden ráð-
stefnunnar næsta föstudag en
það er ljóst að beint flug til Ak-
ureyrar frá Kaupmannahöfn og
Hamborg mun ekki íjölga far-
þegum hingað að neinu marki.
Þetta er spurning um það hvort
einhver ferðaskrifstofa vildi
gera út frá Akureyri, en Saga-
Reisen gerir út frá Húsavík. Ég
er því fremur svartsýnn á að
vilji starfshóps Eyþings nái
fram að ganga,“ sagði Pétur J.
Eiríksson, framkvæmdastjóri
markaðssviðs Flugleiða. GG
Samiðn Póstur og sími hf.
Nýr formaður
✓
miðstjórnar-
fundi í Sam-
iðn þann 2.
september sl. tók
Örn Friðriksson
varaformaður Sam-
iðnar við for-
mennsku í samband-
inu af Grétari Þor-
steinssyni forseta
ASÍ. Grétar lætur af
formannsku vegna starfa á
vettvangi ASÍ en hann mun sitja
áfram í miðstjórn Samiðnar. En
sambandið er eins og kunnugt
er landssamband iðnfélaga í
byggingar- og málmiðnaði og
garðyrkju með 5500 félags-
menn í 31 félagi og deildum.
Á næstu vikum munu fulltrú-
ar Samiðnar taka þátt
í fundarhöldum aðild-
arfélaga vítt og breitt
um landið vegna und-
irbúnings næstu
kjarasamninga.
Á þessum fundum
verður m.a. rætt með
hvaða hætti félögin og
eða sambandið koma
til með að standa að
samningum, gerð viðræðuáætl-
ana, kröfur og skipan samn-
inganefndar. I byrjun næsta
mánaðar verður svo haldinn
sambandsstjórnarfundur með
fulltrúum allra aðildarfélaga
Samiðnar þar sem aðallínur
fyrir komandi samningagerð
verða mótaðar. -grh
Örn Friðriksson.
Guðmundur
forstjóri
Guðmundur Björnsson að-
stoðarpóst- og símamála-
stjóri verður forstjóri
hlutafélags um rekstur Pósts-
og síma, sem tekur til starfa um
áramót. Lög um stofnun hluta-
félags um rekstur póst og síma-
málastofnunar tóku gildi um sl.
mánamót og undirbúnings-
nefnd sem annast þessa form-
breytingu á rekstrinum er tekin
til starfa.
Ólafur Tómasson, póst og
símamálastjóri, hefur óskað eft-
ir því að láta af störfum hjá
Pósti og síma um áramót, eða á
þeim tímapunkti þegar form-
breytingin á rekstrinum tekur
gildi. Ólafur hefur starfað hjá
Pósti og síma sl. íjörutui ár.
Skólameistari Framhaldsskólans á Húsavík Guðmundur Birkir Þorkelsson
og listamaðurinn Grímur Marínó Stefánsson við „Vorkomu" listaverkið
sem afhjúpað var í tengslum við setningu Framhaldsskólans. MynóGKj
Glæsilegt listaverk af-
hjúpað við Framhalds-
skólann á Húsavík
„Vorkoma" listaverk
eftir Grím Marínó
Sigurðsson var
afhjúpað síðastliðinn
föstudag að lokinni
setningu Framhalds-
skólans á Húsavík.
Listaverkið er staðsett á lóð
Framhaldsskólans og keypti
skólinn listaverkið fyrir gjafafé
frá foreldrum fjögurra drengja
sem látist höfðu fyrir aldur
fram auk þess sem Húsavíkur-
bær styrkti skólann að verulegu
leyti til kaupanna. Við afhjúpun
listaverksins flutti Sigurður
Hallmarsson formaður Menn-
ingarmálanefndar Húsavíkur-
bæjar ávarp og ljóð og kvartett
úr Stúlknakór Húsavíkur undir
stjórn Hólmfríðar Benedikts-
dóttur söng. GKJ