Dagur - Tíminn - 05.09.1996, Qupperneq 6
6 - Fimmtudagur 5. september 1996
lObtgur-ÍIftittrrat
FRÉTTASKÝRING
ómaka sig til að greiða atkvæði
skriflega.
Bitastæðar konur
Engin kona, nákvæmlega engin,
hefur í hyggju að róa í Friðrik
sem varaformaður, alla vega er
staðan þessi 5 vikum fyrir
landsfund flokksins.
Birna Friðriksdóttir, formað-
ur Landssambands sjálfstæðis-
kvenna, styður þessa skoðun.
Hún vildi sem minnst um málið
ræða en sagði þó: „Ég veit ekki,
alla vega hefur engin okkar
kvenna sagt mér, að hún ætli að
gefa kost á sér í embætti vara-
formanns flokksins. Við vitum
bara að Friðrik fer fram að
nýju,“ sagði Birna. „Þær konur
sem hafa burði til þess, vilja
ekki fara fram gegn Friðriki. En
það er nóg af hæfum konum
innan flokksins sem gætu unnið
störf bæði formanns eða vara-
formanns, en eins og málin
standa virðist engin þeirra hafa
áhuga á þeim störfum."
Öðruvísi ball
Fulltrúaráð Landssambands
sjálfstæðiskvenna fundaði um
síðustu helgi á Akureyri. Birna
segir að lítið hafi verið íjallað
um kröfur sjálfstæðiskvenna á
j þeim mikla fundi, en mörg
merkileg mál hafi þar verið til
umræðu.
Landsfundurinn 10. til 13.
október verður haldinn undir
vænu mottói: Einstaklingsfrelsi
- jafnrétti í raun. Einhver slag-
síða er á því kjörorði lands-
fundar flokks sem vill helst ekki
konur.
Elsa B. Valsdóttir, ein ungu
Sjálfstæðu kvennanna, hitti
naglann á höfuðið í grein í
Degi-Tímanum í gær, þegar hún
bendir á að á komandi lands-
fundi verði „ballið öðru vísi en
vanalega. Á þessum landsfundi
er nefnilega dömufrí," skrifar
Elsa. -JBP
Könnun á fylgi Sjálfstæðis-
flokksins var gerð fyrir
nokkrum árum. Hún er
vel geymd í Valhöll. Samkvæmt
upplýsingum blaðsins kemur
þar fram að einungis 30% ís-
Ienskra kvenna leggi flokknum
lið í kosningum. Sjálfstæðis-
flokkurinn hefur ekki lagt við
hlustir, hann heyrir ekki ákall
kvenna, sem heimta aukinn
hlut í æðstu stjórn flokksins,
aukinn hlut á Alþingi og í ríkis-
stjórn. Heyrnarleysi þetta þýðir
að konum finnst flokkurinn
ekki hafa það sexappíl sem þær
eru að skyggnast eftir.
Herskáar sjálf-
stæðiskonur
Konur innan Sjálfstæðisflokks-
ins tóku að ybba sig eftir síð-
ustu alþingiskosningar og bentu
á alvarlegt kynjamisvægi, þegar
úthlutað var ráðherrastólum og
ýmsum bitlingum. Þær voru
heldur ekki sáttar við sinn hlut
á Alþingi, þar sitja aðeins íjórar
konur fyrir hönd flokksins, af
25 þingmönnum. Konurnar
þóttu nokkuð hvassar og her-
skáar og um tíma gustaði um
silkislæður þeirra.
Konur gerður kröfur sem
vöktu mikla athygli. Kröfur
komu fram um þríeina forystu
flokksins, annar varaformanna
hans skyldi vera kona. Rætt
var hka um framboð gegn
sitjandi varaformanni. Tillög-
urnar hafa verið sendar mið-
stjórn flokksins, en ekkert
meira aðhafst í þeirri kröfugerð
sem liggur fyrir.
Konur innan Sjálfstæðisflokksins tóku á sig rögg og klöguðu yfir
skorti á vegtyllum innan flokksins. Raddir kvenna eru þagnaðar.
anna á VestQörðum, var býsna
heit. í dag eru raddir kvenn-
anna hljóðnaðar. Kannski
vegna þess að harðasti kjarn-
inn, Sjálfstæðar konur, eru
margar komnar í hugguleg
embætti, sem tengjast hollustu
við flokkinn. Sjálfstæðiskonur
mega sín lítils í flokki sínum.
Margir, einkum þó konur, líta á
Sjálfstæðisflokkinn sem flokk
karlrembunnar.
í Valhöll liggja fyrir tillögur
kvenna innan flokksins um
aukna hlutdeild í málefnum
flokksins. Þær hafa rykfallið
síðan og ekki verið viðraðar á
fundum miðstjórnar flokksins
nema í byrjun, en alls ekki á
þessu ári. Boltinn er í höndum
miðstjórnar. Sagt er að Davíð
Oddsson hafi hreint ekki í
hyggju að dusta rykið af bæna-
bréfi kvenna sinna.
*| ý Þegar fram-
kvæmdastjóri
flokksins er spurð-
ur um málefni
kvenna laumast
/ dularfullt bros
yfir andlit
hans. Málið
verður
varla til
Jón Birgir
Pétursson
skrifar
umræðu á landsfundinum hvað
þá meir. Og kannski ekki að
undra því konurnar hafa ekki
fylgt erindi sínu eftir.
Karlar eiga leikinn
Það er mál karlmanna í innstu
röðum í Valhöll að flokkurinn
sé hreint ekki karlrembuflokk-
ur. Karlar eigi leikinn einfald-
lega vegna þess að engar bita-
stæðar konur séu sýnilegar í fé-
lagsstarfinu. Auðvitað munu
margir telja slíkar fullyrð-
ingar í meira lagi vafa-
samar.
Landsfundur Sjálf-
stæðis-
flokksins
er framundan og hefst eftir
rúman mánuð. Talið er vita
vonlaust að þar verði eitt eða
neitt gert í því skyni að auka
hlut kvenna innan flokksins.
Karlar munu eiga leikinn eins
og verið hefur allar götur frá
árinu 1929, þegar flokkurinn
var stofnaður.
Davíð Oddsson er óumdeild-
ur formaður flokksins og verð-
ur vafalaust kjörinn með gífur-
lega kröftugu lófataki lands-
fundarfulltrúa, karla sem
kvenna, sem borga fimm þús-
und kall fyrir setuna í
Laugardalshöll, óski
hann eftir endurkjöri.
Friðrik Sophusson fær
kannski örfáum
desibelum linara
lófatak þegar kjör-
inn verður
varaformað-
ur, en ólík-
legt að
landsfund-
arfulltrúar,
mest karlar,
þurfi að
Hugguleg embætti til
kvenna
Nánast ekkert heyrist lengur
minnst á aukinn frama sjálf-
stæðiskvenna í flokki sínum.
Umræðan fyrir landsfundinn,
sem halda átti fyrir ári en var
frestað vegna náttúruhamfar-
Myndir. ÞÖK