Dagur - Tíminn - 05.09.1996, Síða 10
10- Fimmtudagur 5. september 1996
Jlcxgur-®mTátu
„Gaman að vera í stöðugri framför“
Jón Arnar Magnús-
son, tugþrautarmaður
á Sauðárkróki segist
vera á því róli sem
hann bjóst við.
Staðreyndin er sú að alþjóð-
leg keppni í tugþraut er
alltaf að verða harðari og
keppendur verða sífellt betri og
betri. En það er gaman að taka
þátt í keppni þegar maður er
stöðugt að bæta sig. Einkum hef
ég bætt mig í 400 og 1.500
metra hlaupum," segir Jón
Arnar Magnússon, tugþrautar-
maður í UMSS.
Sumarið er keppnisvertíð
frjálsra íþrótta og Jón Arnar
hefur staðið í ströngu. Fyrir ut-
an Qölda móta á innlendum
vettvangi ber hátt þátttöku
hans - og annara frjálsíþrótta-
manna - á
Ólympíuleikun-
um í Atlanta í
Bandaríkjunum.
Þar lenti hann í
12. sæti í tug-
þrautarkeppn-
inni; „... og sá
árangur var al-
veg á því róli
sem ég bjóst við
- enda eru kepp-
endur í þessari
grein sífellt að verða jafnbetri
og keppnin verður þar af leið-
andi harðari," sagði Jón Arnar,
þegar blaðamaður Dags-Tím-
ans ræddi við hann á íþrótta-
vellinum á Sauðárkróki í gær.
400 og 1.500 metra hlaupum
síðasta árið - einkum þó í síð-
astnefndu greininni. Hefur í
sumar farið úr 4:55 mín. niður í
4:43 mín. Að geta hlaupið
nefnda vegalengd á 12 sekúnd-
um skemmri tíma en var fyrir
ári telst harla gott í frjálsum
íþróttum.
„Það eru ýmis mót framund-
an í frjálsíþróttaheiminum sem
ég mun taka þátt í - og hafa æf-
ingar mínar undir leiðsögn
Gísla Sigurðssonar, hjálfara
míns, miðast við þær. í vetur
verður heimsmeistaramótið í
frjálsum íþróttum innanhúss
haldið í Aþenu í Grikklandi og
þar í landi verður heimsmeist-
aramótið utanhúss haldið
næsta sumar,“ segir Jón Arnar.
Styrkir mikilvægir
Hann segir sér mikilvægt að fá
áframhaldandi styrki til æflnga
í vetur til að taka þátt í þeim
mótum - og öðru því sem bíður
næstu fram-
,Hægt að ná árangri,
án þess að aðstaða
sé í einhverjum
heimsklassa. Slíkt
myndi þó ef til vill
ekkert spilla fyrir
hygg ég.“
Æft fyrir
Frakklandsmót
Þegar rætt var við Jón Arnar
var hann við æfingar fyrir
keppni 16 bestu tugþrautar-
manna heims, sem haldin verð-
ur í Talance í Frakklaridi um
aðra helgi, 14. og 15. septem-
ber. „Mér var boðið, löngu fyrir
Ólympíuleikana, að taka þátt í
þessu móti. Til þess er boðið
hinum sextán efstu á heimslista
tugþrautarmanna, en ég er 17.
á listanum. Einhver afföll urðu
hinsvegar meðal þeirra sem eru
ofar en ég - og því kemst ég inn
á þetta mót, sem hefur fyrir
löngu unnið sér alþjóðlegan
sess í frjálsíþróttaheiminum."
Jón Arnar Magnússon segir
að vissulega sé æfinga- og
keppnisaðstaða sú sem hann
hefur á Sauðárkróki ekki á
neinum heimsmælikvaða, og
altejnt mun lakari en erlendir
frjálsíþróttamenn hafi. „Hins-
vegar hefur verið talsverð aug-
lýsing fyrir Sauðárkrók, þegar
frá því er greint hver æfingaað-
staðan hér er,“ segir Jón Amar
- og hlær við. „Þetta segir okkur
og sýnir að auðvitað er hægt að
ná árangri, án þess að aðstaða
sé í einhverjum heimsklassa.
Slíkt myndi þó ef til vill ekkert
spilla fyrir hygg ég. En þar sem
ég hef aldrei æft við þessar
meintu ágætisaðstöðu veit ég
ekkert hvort ég væri betri
íþróttamaður ef hennar nyti
við,“ segir hann.
Ýmis mót framundan
Einsog áður segir kveðst Jón
Arnar hafa bætt sig talsvert í
I aðstaða og ýmsir fleiri,
iYpfjum svo sem Visa
ísland - slógu í
>Sa. Sllkt púkk á síðasta
ef til vill ári og veittu
... , . honum styrkt-
illa fynr arfé tii æfmga-
ég.“ og þátttöku í
_Ólympíuleikun-
um, en samn-
ingur sá er nú útrunninn. „Ég
FICIAL SPONSOR
PIC SUMMER GAMES
„Staðreyndin er sú að alþjóðleg keppni í tugþraut er alltaf að verða harð-
ari og keppendur verða sífellt betri og betri,“ segir Jón Arnar, meðal ann-
ars hér í viðtalinu. Mvndin-sbs
HANDBOLTI
er vona að menn sjái aumur á
mér og veiti mér styrki eitthvað
áfram. Það er mér mjög mikil-
vægt og reyndar er ég bjartsýnn
á að einhver samningur um
þetta efni líti dagsins ljós innan
skamms," segir Jón Arnar.
Þrjú ár eru síðan Jón Arnar
Magnússon gekk úr röðum Hér-
aðssambandsins Skarphéðins á
Suðurlandi yfir í Ungmenna-
samband Skagaíjarðar - og á
þeim tíma hefur hann komist í
fremstu röð frjálsíþróttamanna
á íslandi. Hann segist hvergi sjá
eftir vistaskiptunum, þau hafi
verið sér holl og góð - og einnig
Jón Arnar Magnússon, ásamt Gísla Sigurðssyni þjálfara sínum. „Ýmis mót
framundan og hafa æfingar mínar undir leiðsögn Gísla miðast við þær.“
hafi lukkudísirnar verið með
honum, því nú sé hann orðinn
ráðsettur íjölskyldufaðir. Þó
hefur hann ekki alveg skorið á
bönd sín við Suðurland, því
hann hefur til að mynda verið
fenginn til að ræsa Brúarhlaup-
ið á Selfossi sem haldið verður
næstkomandi laugardag. -sbs.
Opna Reykjavíkurmótið
18 Hð skráð W leiks
Opna Reykjavíkurmótið í handknattleik hefst í kvöld.
Átján lið taka þátt í mótinu og hefur þeim verið skipt í
eftirfarandi riðla:
A-riðill: Valur, Fram, Selfoss, Víkingur og Fylkir.
B-riðill: KA, ÍR, KR og UMFA.
C-riðiIl: Stjarnan, FH, HK og Breiðablik.
D-riðill: Haukar, Grótta, ÍBV og Ilörður.
Leikir kvöldsins eru þessir:
íþróttahús Seljaskóla:
17:30 Valur-Fylkir
19:00 UMFA-KR
20:30 KA-ÍR
fþróttahúsið við Austurberg:
17:30 HK-FH
19:00 Stjarnan-Breiðablik
20:30 Selfoss-Víkingur
Mótinu lýkur á sunnudagskvöld.