Dagur - Tíminn - 19.09.1996, Blaðsíða 3
^Dagur-íiImrám
Fimmtudagur 19. september 1996 - 3
F R É T T I R
Akureyri
Hörður Blöndal fær
boð um yerkefni við
H val í) arðargön g
s
ágústmánuði fékk ég
boð um áhugavert
verkefni á sviði vega-
gerðar við Ilvalíjarðargöng-
in“ segir Hörður Blöndal
framkvæmdastjóri Dags-
prents. „Þar sem ég er
vegaverkfræðingur að
mennt og verkefnið spenn-
andi fyrir mig tók ég þessu
boði með fyrirvara. Ég leit-
aði til stjórnar Dagsprents
um það hvort ég gæti fengið
að sinna þessu verki.
Stjórnin kom saman í gær,
miðvikudag, og þar var
samþykkt að ég fengi að
taka að mér tæknilega ráð-
gjöf við verkið. Það skilyrði
var þó sett að ég sinnti
áfram hluta af starfl mínu
sem framkvæmdastjóri
Dagsprents enda mikið um
að vera þessa dagana við
nýja blaðið. Augljóslega
mun hluti af mínu starfi
flytjast á aðra starfsmenn í
fjarveru minni. Ég er ekki á
förum úr bænum og fregnir
um að ég sé að kveðja fyrir-
tækið eru úr lausu lofti
gripnar." Hörður hefur áður
tekið að sér ráðgjöf við
vegagerð fyrir Ræktunar-
samband Flóa- og Skeiða,
en hann vann fyrir það fyr-
irtæki áður en hann kom til
starfa hjá Dagsprenti hf.
Akureyri
Pólitíska stefnu-
mótun
Er eðlilegt að starfs-
fólk Tónlistarskólans
sé sjálft að fram-
kvæma útttekt á
rekstri skólans, spyr
Guðmundur Stefáns-
son, bæjarfulltrúi
Framsóknarflokksins.
Skólanefnd Tónlistarskólans
hefur samþykkt að gera
úttekt á rekstri Tónlistar-
skólans á Akureyri, en skólinn
hefur fengið aukið húsnæði í
Hafnarstræti eftir að Akureyr-
arsetur Náttúrufræðistofnunar
fór þaðan. M.a. hefur verið rætt
um þátttöku skólanefndar í út-
tektinni og þörf á að samtímis
verði unnið að fleiri þáttum.
Á fundi Bæjarstjórnar Akur-
eyrar sl. þriðjudag taldi Val-
gerður Hrólfsdóttir (D) það orð-
ið fyllilega tímabært að ráðast í
stefnumótun fyrir Tónlistar-
skólann á Akureyri. Guðmund-
ur Stefánsson (B) taldi þörf
orðna á því að framkvæma útt-
vantar
tekt á tónlistarkennslu á Akur-
eyri en varpaði fram þeirri
spurningu, sem og fleiri bæjar-
fulltrúar, hvort það væri eðlilegt
að starfsfólk Tónlistarskólans
væri sjálft að gera útttekt á
rekstri skólans. Full ástæða
væri hins vegar til þess að lýsa
yfir fullu trausti á hendur
starfsfólkinu.
Jakob Björnsson, bæjarstjóri,
sagði að engin pólitísk stefnu-
mótun væri til staðar um rekst-
ur Tónlistarskólans og hún yrði
ekki framkvæmd fyrr en úttekt
á rekstri skólans hefði verið
lokið og hún borist bæjarstjórn.
Rekstur Skíðastaða kom
einnig til umræðu og m.a. hefur
íþrótta- og tómstundaráð
ákveðið að skoða kosti og galla
þess að bjóða út irekstur
Skíðahótelsins í Hlíöarfjalli.
Einnig var rætt um að bjóða all-
an reksturinn út eða tengja
hann með einhverjum hætti
öðrum rekstri íþróttamann-
virkja Akureyrarbæjar. Heimir
Ingimarsson (G) sagði m.a. að
of mikið væri ilagt að Skíða-
staðir væru starfsvettvangur
fjölda fólks frá hausti til vors,
burtséð hvort nokkur snjór væri
á svæðinu. GG
Evrópusamkeppni
íslendingar fá gull-
og silfurverðlaun
ngibjörg Haraldsdóttir,
kennari við Lundarskóla á
Akureyri, fékk gullverðiaur
og Ágústa Unnur Gunnars-
dóttir, kennslustjóri við
Menntaskólann i Hamrahlíð,
fékk siifurverðlaun í Evrópu-
samkeppni um bestu verkefni
til aðstoðar fötluðum. Þessi
samkeppni var á vegum HELI-
OS 2, sem er heiti á víðtækri
samstarfsáætlun á sviði mál-
efna fatlaðra innan ESB og
EFTA- ríkjanna.
„Við getum í hvorugan fót-
inn stigið af stolti," sagði Páll
Pétursson, félagsmálaráðherra,
á blaðamannafundi í gær þegar
þessi árangur Ingibjargar og
Ágústu var kynntur. Hann sagði
jafnframt að þessi úrslit væru
vitnisburður um að menn væru
á réttri leið hérlendis í málefn-
um fatlaðra. Þá er viðbúið að
hróður þeirra Ingibjargar og
Ágústu fari víða því verðlauna-
verkefni þeirra eru talin geta
orðið fyrirmyndir annarra Evr-
ópuþjóða í málefnum fatlaðra.
Ingibjörg fékk sín gullverð-
Páll Pétursson félagsmálaráð-
herra: Við getum í hvorugan fótinn
stigið af stolti. Úrslitin vitnisburður
um að við séu á rétti leið í málefn-
um fatlaða.
laun fyrir verkefni sem fjallar
um nýjar leiðir og aðferðir til
kennslu og aðlögunar fatlaðs
nemenda í almennum grunn-
skóla. í umsögn dómnefndar
segir m.a. að verkefnið sé fram-
úrskarandi dæmi um góð
vinnubrögð og öll aðstaða inn-
an skólans og kennslugögn séu
til fyrirmyndar. Þar er einnig
lögð mikil áhersla á hversu
samvinna kennara sé mikil svo
og samstarf við foreldra. Síðast
en ekki síst er verkefnið vitnis-
burður um góðan árangur um
blöndun fatlaðra barna í al-
mennum skólum.
í umsögn dómnefndar um
verkefni Ágústu Unnar segir
m.a. að verkefnið sýni framúr-
skarandi vinnubrögð í menntun
og aðlögun heyrnarlausra og
heyrnarskertra í almennum
framhaldsskóla með heyrandi
nemendum. Þá vekur dómnefnd
sérstaka athygli á þeirri ein-
stakhngsbundnu stuðningsþjón-
ustu sem veitt er í MH.
Alls tóku 17 Evrópuþjóðir
þátt í samkeppninni og hafði
hvert ríki heimild til að senda
sex verkefni. Hinsvegar komu
aðeins fjögur verkefni frá ís-
landi og hlutu tvö þeirra verð-
laun. Af einstökum þjóðum var
Finnland í efsta sæti en ísland
og Svíþjóð í öðru sæti. -grh
Fyrsti fundur þingflokks jafnaðarmanna var haldinn í gær. í ályktun áréttar þingflokkurinn þann vilja sinn að laða
til samstarfs alla þá sem aðhyllast jafnaðarstefnuna og vilja vinna að nýsköpun íslenskra stjórnmála. Jafnframt
óskar þingflokkurinn eftir góðu samstarfi við aðra þingflokka stjórnarandstöðunnar um málflutning á Aiþingi og
minnir á að fleira sameinar en sundrar. Mynd:pöK
Herra Island
Ég er með hreint sakavottorð
Herra ísland fær að
heyra Ijófar sögur
um sjálfan sig eftir
kjörið.
Herra ísland, Þór Jóseps-
son, segist þreyttur á
ljótum kjaftasögum sem
gangi um sig staflaust í Reykja-
vík. Sögurnar ganga út á ýmis-
legt misjafnt sem Þór á að hafa
aðhafst.
„Ég er með hreint sakavott-
orð, það má útvega það, ég hef
ekki brotið lögin. Þið ættuð að
kanna lögregluskýrslur og þá
kemur í ljós að ég átti engan
hlut í árásarmáli sem var í blöð-
unum fyrir tveimur árum,“
sagði Þór.
Meðal þess sem Þór er borið
á brýn er landabrugg og sala,
hrottaleg árás á ungan stúdent
vorið 1994 og jafnvel kókaín-
sala. Þór hafnar þessu og segir
ekkert hæft í þessum sögum.
Ungi maðurinn sem varð fyr-
ir árásinni er metinn 75% ör-
yrki eftir árásina en beðið er
eftir endanlegu örkumati frá
Tryggingastofnun. Þór segist
viðurkenna að hafa verið á
staðnum, en ekki átt þátt í mis-
þyrmingunni á unga mannin-
um. ..Ég var að vísu í bílnum
þegar þetta skeði, en ég barði
ekki einn eða neinn, og keyrði
ekki yfir neinn,“ sagði Þór í gær.
Ungi maðurinn sem ráðist
var á, Viðar Þór Guðmundsson,
háskólanemi, sagði í gær að
hann hefði að kvöldi stúdents-
dagsins vorið 1994 brugðið sér
út í garðinn við heimili sitt þar
sem fjölskylduboð var í gangi.
Veitti hann þá eftirtekt manni
sem var að sniglast við hús ná-
grannans. Fyrr en varði leit sá
við, gekk í átt að unga mannin-
um. Viðar segist hafa þekkt
mann þennan í sjón en ekki
raun, og hann hafi beðið hann
að fara burtu, sem fór illa í
manninn. Maðurinn gekk þó
burtu. í sama mund kom hvítur
Subaru akandi, ökumaðurinn
vippaði sér út og sló Viðar í
jörðina. Frændi Viðars sem var
með lionum kallaði á hjálp.
Árásarmennirnir flýttu sér í
bflinn, hann var ræstur og gefið
í. Fjölskyldan kom áður að bflif-
um en Viðar lá þar skammt frá.
Viðar segist hafa lent uppi á
húddinu og rúðunni og var fast-
ur framan á bflnum alllangan
spöl upp húsagötuna. Þar féll
hann af bflnum, lenti á höfðinu
af miklu afli og slasaðist mikið.
„Það er rétt hjá Þór. Hann
kom ekki nálægt þessu sjálfur.
En samkvæmt lögum tel ég að
hann sé samsekur, auðvitað átti
hann að skerast í leikinn," sagði
Viðar í gær. -JBP