Dagur - Tíminn - 19.09.1996, Blaðsíða 6
. 4-
6 - Fimmtudagur 19. september 1996
F R É T T I R
Þegar Akureyrar-
bær tók við málefn-
um fatlaðra á Eyja-
fjarðarsvæðinu af
ríkinu sköpuðust
ýmsir spennandi
möguleikar á nýj-
ungum í opinberri
þjónustu.
Verkefnatilflutningur frá
ríki til sveitarfélaga hef-
ur mjög verið í brenni-
depli upp á síðkastið. Skemmst
er að minnast þess að sveitar-
félögin tóku alfarið við grunn-
skólunum en svipuð þróun er
að eiga sér stað á fleiri sviðum.
Vera kann að þessi mál veki
h'tinn áhuga hjá hinum al-
menna borgara, sem er miður
því markmið þessarar þróunar
er einmitt að færa þjónustuna
og ákvarðanatökuna heim í
hérað og þar með nær fóikinu.
Á Akureyri eru afar merkilegir
hlutir að gerast á þessu sviði,
hlutir sem er vert að líta nánar
á en þeir tengjast því að fyrr á
árinu tók Akureyrarbær við
stórum málaflokki af ríkinu,
þ.e. þjónustu við fatlaða á
Eyjafjarðarsvæðinu, en hún
var áður í höndum Svæðis-
skrifstofu um málefni fatlaðra
á Norðurlandi eystra.
Undanfarið hefur verið í
gangi skipuiagsvinna sem mið-
ar að því að samræma þessa
þjónustu og þá almennu þjón-
ustu sem Akureyarbær hefur
veitt, með það að markmiði að
auka skilvirkni, einfalda að-
gang neytenda og nýta sem
best mannafla og fé sem veitt
er til hennar. Þjónusta sem
fleiri aðilar hafa séð um til
þessa á að sameinast undir
einn hatt og í því sjá menn
ýmsa möguleika. Skipuð var
þriggja manna verkefnisstjórn
til að annast þá vinnu og skil-
aði hún frumtillögum til bæjar-
yfirvalda fyrir skömmu. Nú
styttist í að bæjaryfirvöld taki
afstöðu til endanlegra tillagna
og þá jafnframt að breytingar
á þessu sviði líti dagsins ljós.
En hverjar verða þessar breyt-
ingar? Til að svara því var leit-
að til Þórgnýs Dýrfjörð, en
hann var einn af þeim sem sat
í áðurnefndri verkefnisstjórn.
Þrír flokkar
„Það má segja að við séum að
reyna að innleiða nýja hugsun
á þessu sviði, a.m.k. hér á
landi. Grunnhugmyndin er sú
að veita fólki þjónustu eftir því
hverjar þarfir þess eru en veita
ekki þjónustu eftir einhverjum
skilgreindum hópum fólks, t.d.
fatlaðir, aldraðir o.s.frv. Mis-
munandi hópar fólks geta haft
þörf fyrir sömu þjónustu,“
sagði Þórgnýr.
Skipulagsvinnan hingað til
hefur einkum farið þannig
fram að starfsfólk hefur unnið
í liðum að lausn einstakra
verkefna sem skipt hefur verið
í þrjá megin flokka: Atvinnu-
þjónusta, búsetuþjónusta (eða
heimaþjónusta) og ráðgjafar-
þjónusta.
AKUREYRI
eða varanlega þjónustu vegna
fötlunar, öldrunar, veikinda
eða slysa. Undir þetta mun þá
falla rekstur sambýla fyrir fatl-
aða, skammtímavistun, hð-
veisla og frekari liðveisla við
fatlaða og sameinuð heimilis-
þjónusta Akureyrarbæjar og
heimahjúkrun Heilsugæslu-
stöðvarinnar.
„Einn af mörgum möguleik-
um sem opnast þega öll heima-
þjónustan verður komin á eina
hendi er að starfsfólk geti unn-
ið bæði á sambýlum og við
heimaþjónustu en slíkt hefur
gefist vel víða erlendis. Auk
samræmingar og hagræðingar
mun það að koma verkefnum
undir einn hatt einnig leiða til
þess að hægt verður að draga
smátt og smátt úr stofnana-
þjónustu en auka um leið
heimaþjónustuna. Þannig verði
fólki gert kleift að vera eins
lengi heima og hægt er,“ sagði
Þórgnýr.
Ráðgjafaþjónusta og
atvinnuþjónusta
Tillögur verkefnisstjórnarinnar
í þessum efnum ganga í stuttu
máli út á að sameina ráðgjafa-
deildir Svæðisskrifstofu um
málefni fatlaðra og ráðgjafa-
deild Akureyrarbæjar. Þrátt
fyrir tilvist ráðgjafadeildarinn-
ar er gert ráð fyrir að í búsetu-
deild starfi ráðgjafi og jafnvel
einnig í atvinnudeildinni.
Skipulag atvinnuþjónust-
unnar eða atvinnudeildarinnar
er sá hluti þessarar samræm-
ingar sem á einna lengst í
land, að sögn Þórgnýs. í gangi
er vinna við endurskipulagn-
ingu vinnumiðlunarskrifstof-
unnar á Akureyri, sem í dag
sér um skráningu atvinnu-
lausra og ýmislegt því tengt.
Tillögur verkefnisstjórnarinnar
gera ráð fyrir að starfsmaður
sem séð hefur um atvinnuleit
fatlaðra gangi til liðs við hina
nýju deild. Þá verði starfsemi
Iðjulundar og Plstiðjunnar
Bjargs sameinuð. Iðjulundur er
verndaður vinnustaður en á
Plastiðjunni Bjargi hefur fólk
verið í tímabundinni starfs-
þjálfun áður en það reynir fyr-
ir sér á vinnumarkaði. Hug-
myndin er að þessir tveir stað-
ir falli undir stjórn atvinnu-
deildarinnar og einnig starf-
semi Hæfingarstöðvarinnar. í
Hæfingarstöðinni er veitt sér-
hæfð og einstaklingsmiðuð
þjónusta og er markmiðið að
einstaklingarnir geti hafið störf
á vernduðum vinnustað. „Verði
af stofnun deildarinnar hefði
hún yfir „breiðum" flokki úr-
ræða að ráða, allt frá því að
veita atvinnuleitanda upplýs-
ingar um hvar vinnu er að fá,
til þess að veita mikinn stuðn-
ing á vinnumarkaði, verndaða
vinnu eða tímabundna í endur-
hæfingarskyni," sagði Þórgnýr.
Gera gott betra
Að sögn Þórgnýs hafa menn
fulla trú á að þetta verkefni
takist vel. „Auðvitað byggir það
á því að við erum að taka við
góðu búi. Fjölmargt í þessum
efnum hefur verið vel gert og
nægir að nefna það sem gerst
hefur í búsetumálum fatlaðra á
svæðinu á síðustu árum. Þetta
nýja skipulag er m.ö.o. ekki
lausn á einhverju neyðar-
ástandi heldur tilraun til þess
að gera enn betur,“ sagði Þór-
gnýr. HA
Starfsmaður Plastiðjunnar Bjargs að störfum.
Mynd GS
„Einn af mörgum möguleikum sem opnast
þega öll heimaþjónustan verður komin á
eina hendi er að starfsfólk geti unnið bæði
á sambýlum og við heimaþjónustu en slíkt
hefur gefist vel víða erlendis.
Búsetuþjónusta
Hugmyndirnar um búsetuþjón-
ustuna eru elstar og hafa feng-
ið mesta umfjöllun til þessa.
Að sögn Þórgnýs byggja þessar
hugmyndir að verulegu leyti á
því að hægt verði að sameina
heimahjúkrun Heilsugæslu-
stöðvarinnar á Akureyri og
heimilisþjónustu Akureyrar-
bæjar og að rammafjárveiting-
ar fáist til öldrunarþjónustu.
Þórgnýr Dýrfjörð.
Það byggir aftur á því að
samningar takist milli bæjarins
og ríkisins um að Akureyrar-
bær yfirtaki starfsemi heilsu-
gæslustöðvarinnar. Samningar
um það hafa staðið yfir um
nokkurt skeið og ættu línur að
skýrast innan skamms. Þar
með myndi enn einn stór mála-
flokkur flytjast til bæjarins.
Samkvæmt hugmyndum um
búsetuþjónustu er lagt til að
sett verði á fót deild sem hafi
að meginmarkmiði að þjónusta
alla þá sem þurfa á félagslegi
aðstoð að halda við að búa á
heimilum sínum. Rétt á þjón-
ustu deildarinnar ættu allir
þeir sem þurfa tímabundna
Pj/snuHíít, svaídíKskrií’stofu sum.o
Akuruvrarha'íuf líiesm:
j Atvinnudeild Búsetudeild Báðgjaiardoild
í - atvinnuleysisskráning I i • atvinnuleit j • verndaður vinnustaður* 1 ! • ráðgjöf i• átaksverkefni • sambýli fatlaðra • frekari liðveisla • liðveisla • skammtímavistun • heimilisþjónusta* heimahjúkrun* • fjárhagsaðstoö i • barnavernd i • félagsleg ráðgjöf • stuoningsúrræði í • greining og ráðgjöf fyri j fatlaða i •félagslegar leiguíbúðir
^ *(Plastiöja Bjarg, Iðjulundur i i og Haefingarstöo) “(sameinað, þjónusta I veitt í heilsugæsluumdæmí með samningi við nágranna-
Verkefni sem áður tilheyrðu svæðisskrifstofu eru skáletruð á myndinni.
A:T:H:: ENN ER AÐEINS UM TILLÖGUR AÐ RÆÐA