Dagur - Tíminn - 19.09.1996, Blaðsíða 10
10- Fimmtudagur 19. september 1996
.JDagur-'ÍEmrám
£
KARFA • Tindastóll SKÍÐI
Ungverskur leik-
maður sendur heim
Alpalandsliðið ælir með
Finnum eða Hollendingum
Körfuknattleiksdeild Tinda-
stóls hefur ákveðið að
gera ekki samning við
ungverskan leikmanninn Istvan
Zsotér sem æft hefur með liðinu
að undanförnu. Zsotér var
fenginn til liðsins að frumkvæði
hins ungverska þjálfara liðsins,
en stóð ekki undir væntingum.
Halldór Halldórsson, formað-
ur körfuknattleiksdeildar Tinda-
stóls sagðist eiga von á því að
hinn erlendi leikmaðurinn, Jos-
eph Ogoms, yrði ekki hjá félag-
vegna beinnar útsendingar. Sól
var og 32 stiga hiti og Gísli segist
hafa verið hræddastur um það
að líða útaf á línunni. Hann
þraukaði og náði að ljúka leikn-
um, eins og þúsxmd öðrum
knattspyrnuleikjum sem hann
hefur dæmt á tuttugu ára farsæl-
um ferli. Gísli dæmir sinn síð-
asta leik um aðra helgi, leik
Stjörnunnar og Breiðabliks í 1.
deiid karla, en blaðamaður
Dags-Tímans ræddi við hann
eftir leik Pórs og Völsungs, þar
sem Gísli blés í ílautuna í næst-
síðasta skipti.
„Ég byrjaði upphaflega á því
að dæma fyrir félagið, ég hef
verið í Val öll þessi ár. Ég var 27
ára þegar ég tók prófið og hafði
þá verið að gutla í fótbolta í tutt-
ugu ár. Áhuginn var geysilegur
og hvatningin ýtti undir það að
ég fór í dómgæsluna. Upphaf-
lega ætlaði ég bara að dæma í
yngri flokkunum, en ég fékk
fljótt að fara á línuna í fyrstu
deildinni," segir Gísli þegar hann
er spurður af því af hverju hann
hafi valið þetta starf.
- En hvað fœr menn til að
standa í þessu, ár eftir ár?
„Eftir því sem maður fer
hærra upp í þessu, hættir maður
að búast við þakklæti. Félagsk-
apurinn er hins vegar mjög góð-
ur. Núna fáum við greitt fyrir
þetta, en það eru ekki mörg ár
síðan að það komst á. Þegar
maður sagði fólki að maður fengi
ekkert fyrir þetta, þá var bara
litið á mann og hugsað: „Sá er
klikkaður."
- Hefurðu fengið eftirminnileg
verkefhi?
„Já, ég hef verið heppinn með
þau. Ég hef dæmt á Norður-
landamóti og ég náði að vera
FIFA-línuvörður í eitt ár. Eitt
eftirminnilegasta atvikið á ferlin-
um var samt þegar ég fór á
Norðfjörð í fyrsta sinn. Ég fór
einn austur og fékk lxnuverði frá
Hornafirði. Þegar komið var á
leikstað, áttaði annar línuvörð-
urinn sig á því að hann hafði
gleymt töskunni með búningn-
um. Hann var stór og mikill að
vexti og ekki reyndist unnt að fá
lánsbúning og hann varð því að
vera eins og hann stóð, í smekk-
gallabuxum, í sandölum á mal-
arvellinum og með alla áhorf-
endurna í bakið. Við byrjuðum
leikinn, en línuvörðurinn var al-
veg búinn á taugum því áhorf-
endur hlógu og gerðu grín að
inu í vetur. Ogoms sleit liðbönd í
fingri og ljóst er að hann þarf að
vera að minnsta kosti sex vikur í
gifsi. Halldór sagði að leitað yrði
að mönnum erlendis til að fylla
skarð þeirra.
Tindastólsliðið hefur átt erfitt
uppdráttar í haustleikjunum og
þessu nýjustu vandræði eru ekki
til að bæta ástandið. Liðið hefur
meðal annars tapað ■ öllum
þremur æfingaleikjum sínum
gegn Þór, sem ekki er með sterkt
lið á pappírnum.
honum. í hálfleiknum bað ég
hann bara um að flagga þegar
boltinn færi útaf, því hann var
hættur að þora að lyfta upp
flagginu af ótta við að fá glósur
frá áhorfendum."
- En er einhver munur á því
að dœma knattspyrnuleik í dag
og þegar þú varst að byrja fyrir
tuttugu árum.
„Það er mun stífar tekið á
grófum leik í dag. Sem dæmi
þessi leikur hér á Akureyri,
hann var ekki harður en samt
eru sjö gul spjöld í leiknum.
Fyrir tuttugu árum síðan hefði
þetta átt að vera spjaldalaus
leikur.
- Hvað er það versta sem
dómari lendir í?
„Það versta er þegar leik-
menn tuða í dómaranum, hann
getur ekki gert annað til að fá
vinnufrið heldur en að gefa
áminningu. Það eru 22 leikmenn
inn á vellinum og fyrir utan það
að| mennirnir á varamanna-
bekkjunum geta verið snaróðir.
Ég hef oft sagt við kollega mina
að við erum ekki neinar barnap-
íur á leikvellinum, en margir
leikmenn haga sér þannig að
Skíðasambandið hefur á
undanförnum vikum átt í
viðræðum við alpalandshð
Finna og Hollendinga, um að ís-
lenska alpalandsliðið muni æfa
með annarri hvorri þjóðinni í
vetur. Samningar eru nú á loka-
stigi og er jafnvel reiknað með
því að málin verði komin á
hreint í vikulok. Fimm lands-
liðsmenn eru í íslenska alpalið-
inu sem valið var fyrir nokkru
og landsliðshópar Finna og Hol-
það er verra við þá að eiga held-
ur en börn á leikskóla. Maður
reynir að veifa þeim í burtu, en
ef þeir elta mann uppi, þá eru
þeir bara að biðja um spjald."
- En er mikill munur á áhorf-
endafjölda, nú og þegar þú byrj-
aðir?
„Það hefur orðið fækkun, en
það er náttúrulega mikið meira
um að vera og mun meiri af-
þreying í boði. Fólk er vill oft
ekki horfa á níutíu mínútna leik,
þegar það getur svo séð bestu
kaflana í sjónvarpinu. Þá virðist
bara vera stemmning í kringum
þau lið sem eru á toppnum
hverju sinni. Svo finnst mér
vanta leikgleði og mér hefur
fundist hana vanta í nokkur ár.
Þetta á að vera skemmtun og ef
leikmennirnir hafa ekki gaman
af þessu, þá verða þeira að átta
sig á því og forráðamennirnir
líka, að áhorfendur hafa ekkert
gaman af því að horfa á leikinn.
Því þetta smitar útfrá sér eins og
sjúkdómur."
- Dómarar mega dœma til
fimmtugs. Langar þig ekki til að
vera með í eitt ár enn?
„Ég held ég sé búinn að lofa
lendinga eru litlu stærri.
„Þetta eru landslið sem eru
smá í sniðum og sjá hagnað í
því, rétt eins og við að reka
landsliðin í sameiningu og
spara í leiðinni. Stærri hópur á
betra með að ná hagstæðum
samningum, til að mynda þegar
x Alpana er komið og getur
skipt með sér ýmsum fasta-
kostnaði," sagði Kristinn Svan-
bergsson, framkvæmdastjóri
Skíðasambandsins.
fjölskyldunni sl. tvö þrjú ár að
hætta og ég ætla að standa við
það núna. Fg er sáttur við feril-
inn og vil ekki standa fyrir ungu
mönnunum. Ég man eftir því
sjálfur þegar ég beið eftir því að
komast upp, að mér fannst eldri
dómarnir vera farnir að dala.
Merm eiga að þekkja sinn vitjun-
artíma. Þegar menn eru orðnir
rúmlega fertugir þá þurfa þeir
að æfa allan ársins hring, því það
fer enginn í gegn um þetta þrek-
próf eða heldur heilan leik út,
nema að vera í góðu forrni."
- En hefur þú einhvern tímann
lent í að dœma leik, þar sem
allt hefur gengið upp?
„Ég held að við dómararnir
getum aldrei lent í því að full-
kominn leik, - einhvern drauma-
leik á sama hátt og leikmennirn-
ir geta skorað draumamörk einu
sinni á ferlinum. Það er hins
vegar ágæt regla að þegar fólk
man ekki eftir því hver dæmdi
ieikinn þá er það til marks um
að hann hafi staðið sig vel og
það eru bestu meðmæli sem
dómari getur fengið.“
„Þetta er ein af þeim leiðum
sem við sjáum til sparnaðar, en
skíðaíþróttin fékk á sig kalda
sturtu frá veðurguðunum síð-
asta vetur. Lítill snjór var í íjöll-
um og það varð til að stór-
minnka tekjur, bæði hjá félög-
unum og sambandinu sjálfu,"
sagði Kristinn.
Pólverjinn Kaminski, sem
þjálfað hefur íslenska alpa-
landsliðið undanfarin tvö ár,
var ekki endurráðinn, en alpa-
greinanefnd hefur þegar valið
A-landslið fyrir veturinn. Það er
skipað þeim Kristni Björnssyni
frá Ólafsfirði, Arnóri Gunnars-
syni frá ísafirði, Theódóru Mat-
hiesen úr Reykjavík, Brynju
Þorsteinsdóttur frá Akureyri og
Sigríði Þorláksdóttur frá ísa-
firði. Þau hafa öll hafið æfingar
fyrir veturinn, en mörg þeirra
eru í skólum erlendis. Heims-
meistaramótið í alpagreinum
fer að þessu sinni fram í Sestri-
ere á Ítalíu í febrúar.
Daníel Jakobsson frá Ólafs-
firði er eini A-landsliðsmaður-
inn í norrænum greinum, en
hann mun vera við æfingar í
vetur á Norðurlöndunum. Gera
má ráð fyrir því að hann spreyti
sig á móti bestu göngumönnum
heims á heimsbikarmótum og
heimsmeistaramótinu, sem
fram fer í Þrándheimi í Noregi í
febrúar.
• Tony Adams, fyrirliði Arsenal
og fyrrum fyrirliði enska lands-
liðsins, tilkynnti sl. laugardag
að hann væri áfengissjúklingur.
„Ég er byrjaður að sækja fundi
hjá AA og hef stigið fyrstu
skrefin í átt að bata. Ég á enn
langt í land og margt sem ég
þarf að vinna mig út úr,“ sagði
Adams, sem er 29 ára. Barátt-
an við Bakkus hefur staðið yfir
lengi og hann hefur þurft að
sitja í fangelsi fyrir að aka
ítrekað undir áhrifum áfengis.
Hann hafði ekki smakkað
áfengi í Qóra mánuði áður en
England féll úr keppni í undan-
úrslitum í EM í sumar en strax
eftir leikinn datt hann ærlega í
það. Eiginkona hans hefur
einnig áttt við vandamál að
stríða en hún leitaði hjálpar á
heilsuhæli í sumar til að yfir-
vinna kókaínfíkn sína.
• Guðni Bergsson spilaði sinn
fyrsta leik á tímabilinu með
Bolton þegar hann kom inn á
sem varamaður á 76. mínútu
gegn Portsmouth á laugardag.
Bolton vann 2:0 og komst á
toppinn.
• Fréttir herma að Jamie Red-
knapp sé ekki sáttur við að
vera á bekknum hjá Liverpool
og vilji fara til annars félags.
„Ég er vanur að leika í aðalliði
og sætti mig ekki við neitt ann-
að,“ segir Redknapp.
• Kenny Dalglish segist tilbúinn
að heQa aftur störf sem fram-
kvæmdastjóri og bíður eftir til-
boðum. „Ég mun taka því til-
boði sem ég tel áhugaverðast
og það gæti vel verið eitthvað í
annarri eða þriðju deild,“ segir
Dalglish.
KNATTSPYRNA • Gísli hættir aö dæma eftir tuttugu ára feril
Eigum ekki að vera neinar
bamapíur inn á leikvellinum
Gísli Guðmundsson dómari leggur flautuna á hilluna eftir- þetta keppnistímabil. Hér er Gísli í miðjunni, ásamt
þeim Helga Indriðasyni t.v. og Marinó Þorsteinssyni, eftir leik á Akureyrarvellinum. Mynd: fe