Dagur - Tíminn - 19.09.1996, Side 4
4 - Fimmtudagur 19. september 1996
iDítgur-'QImmtn
F R É T T I R
Stykkishólmur
Bjartsýni ríkir um
nýtanlegt heitt vatn
Akureyri
Bæjarmála-
punktar
• Framkvæmdanefnd Ak-
ureyrar hefur samþykkt að
bílafloti Ferliþjónustu fatl-
aðra verði endurnýjaður
með því að keyptar verði
tvær bifreiðar, sú fyrri í
janúar 1997 og hin síðari í
janúar 1998. Verð bifreiðar
er 3,7 milljónir króna að
frátöldum virðisaukaskatti.
Jafnframt verða seldar á
sama tíma 2 eldri bifreiðar
og er áætlað söluverðmæti
hvorar bifreiðar 500 þús-
und krónur.
• Menningarmálanefnd
hefur samþykkt að úthluta
400 þúsund krónum til
tengingar hitaleiðslna og
lagfæringar á tröppum;
Zontaklúbbi Akureyrar 200
þúsund krónur; Listasumri
1996 vegna götuleikhúss
120 þúsund krónur, Menor,
Menningarsamtökum
Norðlendinga, 50 þúsund
krónur og Gilfélaginu,
vegna reynslusveitarfélags-
samnings, 300 þúsund
króna viðbótarframlag.
• íþrótta- og tómstunda-
ráð átti fund með aðal-
stjórn Knattspyrnufélags
Akureyrar (KA), en for-
ráðamenn KA lýstu yfir
áhyggjum vegna hugsan-
legs ójafnræðis við úthlut-
un tíma í knattspyrnuhúsi,
rísi það á félagssvæði Þórs.
KA vill að Akureyrarbær
byggi og reki húsið en
staðsetning hússins er ekki
ágreiningsefni.
• Umhverfisdeild hefur í
endurskoðun þriggja ára
áætlun „Átak í umhverfis-
málum“ en áætlunin gerir
ráð fyrir að árið 1997verði
varið 54 milljónum króna
til nýrra framkvæmda, árið
1998 verði varið 49 millj-
ónum króna og 52 milljón-
um króna árið 1999.
afist verður handa við
tilraunaborun eftir
heitu vatni í nágrenni
Stykkishólmsbæjar, í landi
Hofsstaða, þegar samningar
hafa tekist við landeigendur
sem allar líkur eru taldar á að
skrifað verði undir á næst-
unni. Fyrir um áratug síðan
var borað eftir heitu vatni
sunnan bæjarins en sú hola
gaf ekkert, en nú hafa rann-
sóknarboranir, um 50 metra
djúpar holur, bent til þess að
finna megi nægjanlegt heitt
vatn. Einnig hafa verið notað-
ar segulómmælingar. „Köld-
um“ byggðarlögum á íslandi
fækkar því væntanlega um
eitt innan tíðar.
Gert er ráð fyrir að hægt
verði að fá 30-40 lítra á sek-
úndu af 85-90 gráðu heitu vatni
en borað verður niður á a.m.k.
1000 metra dýpi. Áætlanir gera
ráð fyrir að hitaveita með tvö-
Jarðfræðingar telja
að ekkert nema vinn-
anlegt vatn geti
myndað svo háan
hitastuðul í landi
Hofsstaða, segir Rún-
ar Gíslason, forseti
bæjarstjórnar
földu kerfi og varmaskiptistöð
muni kosta 350 milljónir króna.
Rúnar Gíslason, forseti bæj-
arstjórnar Stykkishólmsbæjar,
segir að Jarðboranir hf. munu
annast borunina með bornum
Narfa, en áður en hægt sé að
segja til um framhald málsins
og gleðjast yfir heitu vatni þurfi
að rannsaka vandlega gæði
vatnsins, fyrr sé ekki hægt að
fullyrða hvort borunin verði
arðbær.
„Líkurnar á árangri nú eru
mikiu meiri en fyrir áratug,
tækninni til að fínna sprungur
eða æðar hefur fleygt verulega
fram. Jarðfræðingur hefur tjáð
okkur að ekkert nema vinnan-
legt vatn geti myndað svona há-
an hitastuðul í landi Hofsstaða.
Það er því vissulega ástæða til
hæfilegrar bjartsýni,“ sagði
Rúnar Gíslason. GG
Við Helluvað
Sesselja Stefánsdóttir, ráðskona hjá Vegagerð ríkisins, var að gefa aliöndunum á Helluvaði í Mývatnssveit brauð-
bita þegar Dag-Tímann bar að garði fyrir skömmu. Vinnuhópur Vegagerðarinnar var að leggja síðustu hönd á
nýja tvíbreiða brú á þjóðvegi númer eitt við Helluvað og verður þá einni slysagildrunni færra. MyndBiömÞ.
Prentsmiðir!
Dagsprent hf. óskar eftir að ráða prentsmið í um-
brot.
Viðkomandi þarf að hafa góða þekkingu í Quark-
XPress.
Vaktavinna.
Upplýsingar veita framkvæmdastjóri og prentsmiðju-
stjóri í síma 460 6100.
\
Starfskraftur óskast
Reglusamur og iðinn starfsmaður óskast í texta-
vinnslu og til afgreiðslu- og sendistarfa.
Umsóknir leggist inn á afgreiðslu blaðsins, Strandgötu
31, Akureyri, .merkt: „Textavinnsla" og þar eru veittar
allar nauðsynlegar upplýsingar.
Sauðárkrókur
Fjölbraut þarf
stærri heimavist
Töluverður hópur
væntanlegra nemenda
varð að hverfa frá námi
við Fjölbrautaskóla
Norðurlands vestra á
Sauðárkróki í haust,
þar sem ekki tókst að
útvega heimavistar-
pláss fyrir þá sem um
slíkt sóttu.
Alls bárust 230 umsóknir
um heimavist og varð
hægt að verða við 185
þeirra.
„Það er augljóst að talsverð-
ur hópur hefur leitað annað um
skólavist," sagði Ársæll Guð-
mundsson, aðstoðarskólameist-
ari, í samtali við Dag-Tímann.
Heimavist skólans tekur alls
185 nemendur, þar af tekur nú-
verandi heimavistarhús 150
nemendur og herbergi fyrir 25
nemendur eru leigð úti í bæ.
Að sögn Hjálmars Jónssonar,
þingmanns Norðurlands vestra,
hafa þingmenn kjördæmisins
lagt kapp á að fá fjárveitingar
til þessa verkefnis, enda er
heimavist brýnt atriði í upp-
byggingu skólans. „Það hefur
sýnt sig að þetta er góður skóli,
bæði þegar litið er til einkunna
nemenda og þess árangurs sem
þeir hafa sýnt í háskóla," segir
Hjálmar. Um þetta efni tekur
Ársæll Guðmundsson í sama
streng og segir að í raun sé
heimavistin fjöregg skólans
Um 460 nemendur stunda
nám við Fjölbrautaskóla Norð-
urlands vestra í vetur, þar af
milli 30 og 40 á verknáms-
brautum. Þá eru nokkrir nem-
endur í sjúkraliðanámi, sem
haldið er úti á Siglufirði. -sbs.
Steingrímur
J. rær á
nýmið
Ný bók eftir Steingrím J.
Sigfússon, þingmann Al-
þýðubandalagsins og for-
mann sjávarútvegsnefndar al-
þingis, kom út í gær. Hún heitir
„Róið á ný mið“ og íjallar um
þróirn fiskvinnslu, áhrif sjávar-
útvegs á byggðaþróun og
mannlíf, úthafsveiðar, markaðs-
aðstæður og framtíðarhorfur í
íslenskum sjávarútvegi, allt á
ljósu og leikandi máli, að því er
segir í tilkynningu frá Skerplu,
sem gefur bókina út. Kvótabók-
in 1996/97 kemur einnig út í
dag, en þar er greint frá kvóta
allra skipa með veiðileyfi í ís-
lenskri landhelgi. Auk þess er
ítarleg umfjöllun um sögu
veiðistjórnunar á íslandi, bor-
inn saman kvóti einstakra ver-
stöðva og fyrirtækja og fjallað
um áhrif hans á fiskafla og
fiskiskipaflotann.
Athugasemd
Fyrirgefðu mér,
Framsókn!
Mér varð illa á í mess-
unni í laugardagsblaði,
þegar ég tók þing-
mannafrumvarp Iljörleifs Gutt-
ormssonar um breytingar á
sveitarstjórnarlögum sem
stjórnarfrumvarp á vegum Páls
Péturssonar félagsmálaráð-
herra. Ráðherrann og flokkur
hans komu þar hvergi nærri,
sem betur fer, og pistillinn
ómaklegur í þeirra garð.
Ég er því feginn að biðja
framsóknarfólk og flokkinn um
að fyrirgefa mér skrifin og vona
að Framsókn eigi bjarta framtíð
í Reykjavík og um landið.
Hjörleifur Guttormsson
bregst hins vegar ekki vonum
manna og heldur áfram að vera
helsta vandamál Alþýðubanda-
lagsins og Austijarða.
Ásgeir Hannes.