Dagur - Tíminn - 03.10.1996, Blaðsíða 5
iDíTgur-®œrám
Fimmtudagur 3. október 1996 - 5
FRETTIR,
Þórshafnarhreppur
Hafa aukið greiðslu-
markið um 40%
Bændur í Þórshafnarhreppi
hafa fest kaup á nær
1.000 ærgilda greiðslu-
marki og þar með aukið
greiðslumark í hreppnum um
nær 40% en fyrir var um 2.500
ærgilda réttur í hreppnum. Á
nýafstöðnum aðalfundi Spari-
sjóðs Þórshafnar & nágrennis
reifaði Ágúst Guðröðarson,
bóndi á Sauðanesi, þá hugmynd
að bændur þyrftu að snúa vörn
í sókn og fylgdi úr hlaði hug-
mynd um kaup á greiðslumarki
til að vega upp þá skerðingu
sem orðið hefur undanfarin ár
og auka þar með atvinnurétt og
atvinnuöryggi í sveitarfélaginu í
nánustu framtíð.
Með góðri samvinnu bænda í
Þórshafnarhreppi, Sparisjóðs
Þórshafnar & nágrennis og
Þórshafnarhrepps hefur nú tek-
ist að kaupa til baka þá skerð-
ingu sem orðið hefur á fullvirð-
isrétti eða greiðslumarki í
hreppnum. Hver bóndi tók til
sín hlutfallslega aukningu mið-
að við hans fullvirðisrétt, sveit-
arfélagið veitti bændum ein-
falda ábyrgð og síðan fjármagn-
aði sparisjóðurinn kaupin.
Þannig tókst mikilsverð og
ánægjuleg samvinna milli aðila
sem nauðsynleg var til að kaup-
in gætu átt sér stað. Kaupin eru
gerð á félagslegum grunni og
sýna hversu miklu samstillt
átak getur skilað.
Ágúst Guðröðarson segir að
það hafi verið mjög ánægjuleg
stund þegar bændum hafl tekist
með þessum hætti að kaupa til
baka allan þann fullvirðisrétt
sem tapast hafi með niður-
skurði á undanförnum árum.
Verð á fullvirðisréttinum er
14.079 krónur ærgildið en bein-
greiðsla til aldamóta samkvæmt
núgildandi landbúnaðarsamn-
ingi er tæpar 15 þúsund krónur.
í framhaldi af þessu sam-
komulagi var stofnuð landbún-
Göngur og réttir hafa gengið
vei og rétt eins og sá almátt-
ugi hafi lagt á vogarskálina
það besta veður og hestfæri
sem hann átti, segir Ágúst
Guðröðarson, bóndi á
Sauðanesi.
aðarnefnd í Þórshafnarhreppi,
sem Ágúst segir að fari með
landbúnaðarmál, fjallskil, um-
hverfismál, vegamál og mein-
dýraeyðingu auk
þess sem hugað verði
að frekari sóknar-
færum. Auk þess
skapist möguleikar á
samtengingu við
ferðamennsku og ný
atvinnutæki, sem sé
gott innlegg í fá-
breytt atvinnutæki-
— færi í hreppnum.
„Með kaupunum á greiðslu-
markinu og stofnun landbúnað-
arnefndarinnar er notuð
óvenjuleg aðferð til að setja
Kjördæmamálið
Ungliðar vilja
breytingar
Núverandi misvægi at-
kvæða er óþolandi brot á
grundvallarmannréttind-
um. Krafa okkar er að kosn-
ingalög tryggi mannróttindi og
lýðræði en ekki hagsmuni
stjórnmálaflokka eða stjórn-
málamanna eins og nú er,“
segir meðal annars í áskorun
ungliðahreyfinga allra stjórn-
málaflokkanna til flokka sinna.
Á myndinni má sjá Guðlaug
Þór Þórðarson, formann SUS
afhenta Davíð Oddsyni, for-
manni Sjálfstæðisflokksins
áskorunina, en forystumenn
ungliða úr öðrum flokkum af-
hentu hana formönnum sinna
flokka, og afhenti Árni Ásgrímssyni
Gunnarsson form. SUF, sem Mynd: bg.
einnig er á myndinni, Halldóri
samskonar bréf.
Svalbarðsströnd
Nýr íþróttasalur
ASvalbarðsströnd er verið
að taka í notkun íþrótta-
sal í nýju skólabygging-
unni. Sjálfur salurinn er þegar
farinn að þjóna hlutverki sínu
og búningsaðstaða er á loka-
sprettinum. Gunnar Gíslason,
skólastjóri Valsárskóla, segir
nýja salinn nýtast skólanum af-
ar vel og ekki aðeins tU leik-
flmikennslu. Er krökkunum t.d.
skipt upp í hópa og þeim leyft
að vera í salnum í frímínútum.
En salurinn nýtist fleirum og
í raun segir Gunnar að hann
nýtist öllum íbúum hreppsins,
frá ungabörnum og uppúr.
Leikskólinn mun hafa afnot af
salnum og einnig er gert ráð
fyrir að hann nýtist félagsstarfi
aldraðra, sem verður í skóla-
húsinu. Þá er salurinn leigður
út til almennings til íþróttaiðk-
ana og er einnig hugsaður sem
samkomuaðstaða fyrir sveitina.
Nú er rúmt ár síðan fyrsti
hluti skólahúsnæðisins var tek-
inn í notkun, þ.e. kennsluað-
staða Valsárskóla og fleira
henni tengt og á næsta ári verð-
ur húsið fullbúið. Eftir er að
ganga frá rými fyrir bókasafn
og félagsstarf aldrara en það
mun væntanlega verða tilbúið
fljótlega eftir áramótin. Næsta
sumar er stefnt á að ganga frá
lóðinni og þá má segja að húsið
sé fullbúið. „Þetta er á loka-
sprettinum og við getum þá
snúið okkur að öðru,“ sagði
Gunnar.
Megnið af framkvæmdafé
sveitarinnar hefur farið í þessa
byggingu á síðustu árum, enda
segir Gunnar þá stefnu hafa
verið markaða á sínum tíma að
klára þau verkefni sem fyrir
lágu frekar en að dreifa kröft-
unum víða og koma þá kannski
litlu í verk. HA
niður deilur sem uppi hafa ver-
ið innan gömlu íjallskilanefndar
hreppsins. Göngur og réttir eru
nú vel á veg komnar í Þórshafn-
arhreppi og hafa þær ekki
gengið eins vel í áraraðir, bæði
hvað varðar skipulag og fram-
kvæmd. Það er eins og sá al-
máttugi hafi lagt á vogarskálina
það besta veður og hestfæri
sem að hann átti,“ sagði Ágúst
Guðröðarson. GG
Reykjavík
Öldusels-
skóli loks
fuUbyggður
■ ■
Olduselsskóli og Hamra-
skóli eru loks full-
byggðir eftir 22ja ára
og 5 ára starfsemi. Fimmtán
af 30 grunnsólum Reykjavík-
ur verða einsetnir í vetur.
Ölduselsskóli í Breiðholti
sem hefur starfað frá 1974 og
Hamraskóli í Grafarvogi eru nú
loks fullbyggðir með nýbygging-
um við þá sem nú hafa verið
opnaðar. Þessir skólar eru nú í
hópi þess helmings af 30
grunnskólum í Reykjavík sem
einsetinn er, en auk Hamars-
skóla náði Langholtsskóli þeim
áfanga á þessu hausti. Samtals
um 910 nemendur eru í þessum
skólum undir handleiðslu rúm-
lega 100 starfsmanna, þar af
72ja kennara. í Hamraskóla er
auk þess starfrækt sérdeild fyr-
ir einhverf börn.
í Ölduselsskóla er að flnna
eldsmiðju, þá einu sinnar teg-
undar í borginni, sem ætlað er
að gefa nemendum innsýn í
gömul vinnubrögð og viðhalda
verkmenningu sem er að
hverfa, eins og segir m.a. í til-
kynningu frá Fræðsluráði
Reykjavíkur.
._____
verður á
Akureyri
4.-10. október
- Sjáífstyríq.ngar- o£ /luyrct/ftarnáms/feið
/tefgina 5. - 6. oftóSer.
/Rei/q., fieiiunar- og sjátfstyrfingarnám-
sfeið 7. - 9. oRtóBer. I. stig, Rvöfcfnám-
s/feið.
■ <Pdr sem voru búnir að sfqá sig, vinsam-
feyast úafið sambancf.
Upptýsingar og sfráning í síma 462 1312 eftir
ft. 16.00 áföstucfag 4. oftóöer.
Cjuðrún Ófadóttir
reifimeistari
Bifvélavirki óskast
Óska eftir að ráða vanan bifvélavirkja til starfa á
verkstæði á Akureyri.
Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst.
Umsóknir leggist inn á afgreiðslu Dags - Tímanns að
Strandgötu 31, Akureyri, fyrir mánudaginn 7. október
96, merkt „Bifvéiavirki".