Dagur - Tíminn - 03.10.1996, Qupperneq 10

Dagur - Tíminn - 03.10.1996, Qupperneq 10
22 - Fimmtudagur 3. október 1996 33ítgur-'3Imrám ■ Heimilisfangið er: Dagur-Tíminn, Strandgötu 31, pósthólf 58,602 Akureyri Tak þenn- an kaleik IVá mér Síðasta helgarblað Dags-Tímans birtir á forsíðu frétt af við- brögðum Lögmannafélags íslands vegna lagafrum- varps um lögmenn, sem Þorsteinn Pálsson dóms- málaráðherra kynnti ríkis- stjórn nú nýverið. Frum- varpið gerir ráð fyrir að agavald og eftirbt með störfum lögmanna verði fært frá félaginu til ríkis- ins. í frétt þessari er vitnað í Martein Másson, fram- kvæmdastjóra félagsins, en hann telur mikla vá fyrir dyrum með þessu frum- varpi, með því sé vegið að sjálfstæði lögmannastéttar- innar „sem m.a. gætir og verndar hagsmuni einstak- hnga gagnvart ríkisvald- inu.“ Til að skýra afstöðu mína til þessa máls verð ég að rekja í stuttu máli sögu mína af viðskiptum við lög- mannastéttina. Fyrir tæp- um áratug réð ég lögmann til að annast fyrir mig málarekstur gegn ríkinu, hafði mér verið veitt gjaf- sókn vegna málsins. Þessi lögmaður kom því aldrei í verk að reka umrætt mál. Ekki nóg með það, heldur týndi hann öllum gögnum þess. Þessu næst voru fengnir tveir lögmenn aðrir til að taka það að sér ásamt á milli 15 og 20 öðr- um skyldum málum, en mál þessi snúast um pólit- ísk og félagsleg ofbeldis- verk ríkis og bændasam- taka gagnvart bændastétt- inni í landinu. Þegar tví- menningarnir höfðu legið á þessum málum í tvö ár án þess að aðhafast annað en að taka við greiðslum uppí væntanlega lögfræðivinnu, sem námu hundruðum þúsunda, var ráðinn einn lögspekingurinn enn til að slíta viðskiptunum við þá og kreíja þá um endur- greiðslu þess Qár sem þeim hafði verið greitt. Sá vann það afrek að ná í sínar hendur megninu af gögn- um málanna aftur sem ég gat þó sjálfur gert uppá eigin spýtur hvenær sem var. Lögmaður þessi þrætir síðan fyrir að hafa tekið að sér að kreíja tvímenning- ana um endurgreiðslu, þrátt fyrir að öll mín bréfa- viðskipti við hann staðfesti að það var meginforsenda þess að honum var falin umsjá málsins. Fyrir þetta á ég að greiða hátt í hundrað þúsund kr. Ég læt hér staðar numið þó fleiri lögmenn komi hér við sögu. Nú stend ég frammi fyr- ir því að eini aðilinn sem ég get leitað til með þessi mál er félag lögmannanna sjálfra. Svoleiðis er nú það. Formaður þessa félags rekur lögmannsstofu með einum þeirra lögmanna sem hér kemur við sögu. Ef úrskurðaraðili á að vera trúverðugur í meðferð mála af þessu tagi verður hann að vera alveg óháður aðilum þess. Nýleg stjórn- sýslulög byggja m.a. á þessum sjónarmiðum. Sem sjá má er raunin önnur í þessu tilviki. Ég hef ekki skotið þessu máli til lög- mannafélagsins þar sem ég treysti því ekki til að ann- ast það á hlutlausan og viðunandi hátt. Ríkisvald- inu treysti ég enn síður. Tillaga mín er því sú að komið verð á fót sjálfstæð- um óháðum aðhaldsaðila sem leitast við að halda vi- skiptum mannna í lögleg- um og eðlilegum farvegi þegar þess gerist þörf, líkt og umboðsmaður Alþingis fjallar um kvartanir þegn- anna gagnvart opinberum valdhöfum. Að félög starfs- stéttanna fari með innra agavald þeirra er með öllu fráleitt. Deilur þar um eru óþarfar. Nú er valdi í þjóðfélag- inu í raun fimmskipt. Þ.e. Löggjafarvald, fram- kvæmdavald, vald sveitar- félaga, sem fer stöðugt vaxandi og dómsvald, fimmta og æðsta valdið er svo lögmannavaldið. Það hefur í hendi sér hvaða mál komast til dóms og hver ekki, eins og dæmin sanna. Lautum, Reykjadal, S- Þing., 23. sept. 1996, Ámundi Loftsson. Örfá orð um kúlissur að hefur löngum verið haft á orði að Akur- eyri hafi á sér dansk- an blæ, yfirbragð bæjarins sé hálfdanskt og í málfari Akureyringa gæti danskra áhrifa í ríkari mæli en ann- ars staðar á landinu. Mér er sagt að sumir hér í bænum óski sér þess að á Eyrinni og í Innbænum verði töluð danska á sunnudögum. Ég er hræddur um að sú ósk verði ekki uppfyllt. Til þess að svo mætti verða held ég að kunnáttu Akureyringa í danskri tungu hafi hrakað um of. Dagskráin sem Rósa í Ás- prenti gefur út færði mér heim sanninn um að þessi grunur minn er á rökum reistur. Málið er þannig vaxið að á 90 ára vígsluaf- mæli Samkomuhússins, sem ber upp á 23. janúar 1997, ætla Leikfélag Akureyrar og Kór Leikfélagsins að frum- sýna verk sem hlotið hefur nafnið Kossar og kúlissur. í umræddri Dagskrá, sem féll inn um bréfalúguna heima hjá mér um kvöldmatarleyt- ið á miðvikudaginn, auglýsir kórinn eftir nýjum félögum og birtir verkefnaskrá vetr- arins. Svo slysalega tókst til að í staðinn fyrir Kossa og kúlissur er væntanlegum kórfélögum boðið að spreyta sig á Kossum og túl- issum. Mér varð hverft við. Vissulega er mér það ljóst að ritvillur hafa ótrú- lega tilhneigingu til þess að slæðast inn í prentaðan texta. Hins vegar er ég sannfærður um að hefði setjarinn skilið orðið kúliss- ur, hefði hann aldrei farið að blanda þeim saman við túlissur, orð sem mér er reyndar ekki kunnugt um að hafi nokkra merkingu. Um kúlissur er það hins vegar að segja að orðið er tekið beint úr danskri tungu. Dönum og frænd- þjóðum þeirra í Noregi og Svíþjóð er orðið tamt og í tungutaki þeirra hafa kúl- issur tekið sér bólfestu í ýmsum orðtökum. Þegar við íslendingar fórum að iðka leiklist að einhverju marki um og upp úr aldamótunum síðustu, tókum við orðið beint frá dönskum leikhús- mönnum. Kuhsser á dönsku var notað um það sem um árabil var kallað leiktjöld á íslensku. Ég hef engan áhuga á því að halda við dönskuskotnu málfari hér á Akureyri. Hins vegar er það svolítið dapur- legt ef fólk er alveg hætt að vita hvað átt er við með kúl- issum. Mér finnst þetta danska orð hafa yfir sér nokkurn þokka, sem minnir á gamla og rómantíska daga. Sú var líka hugsunin þegar Hallgrímur Helgi Ilelgason, en hann skrifar handritið að sýningunni á Kossum og kúlissum, gauk- aði þessum meitlaða titli að mér. í fyrstunni var mein- ingin að leiksýningin bæri yfirskriftina Ástin á sviði Samkomuhússins. Ég held að hvert mannsbarn hljóti að vera mér sammála um að Kossar og kúlissur er ólíkt skáldlegra, frumlegra og rómantískara heiti. Trausti Ólafsson. Höfundur er leikhússtjóri. Eyjaíjörður fyrir Eyfirðinga segja margir „originalar" og vilja ekki sjá neitt sem kemur handan Vaðlaheiðar eða Öxnadals, allra síst erlent fjármagn þó það skapi ný Jr störf; íjárstreymi eykst, nýjar gjaldeyristekjur skapist, aðgangur opnast að nýjum mörkuðum, möguleikar skapast á útflutningi á tækni og þekkingu og fullnýtingu framleiðslu- getu. Kannski verður farið að tala dönsku aftur á sunnudögum og... Steinrunnin verkalýðshreyfingin lætur ekki að sér hæða þegar um hagræðingu í sjávarútvegi er að ræða með sameiningu. Pegar rætt er um nýjan „rækjurisa" í fsa- ' fjarðarba; hefur verkalýðshreyfingin allt á hornum sér og vill nú að frystiskipin fari aftur að afla hráefnis til frystihúsa þó frystingin sé rekin með 12% halla. Svo fer allt í strand, ný Vestfjarðar- áætlun fer í gang, þingmenn skamma ráðherra, en engum dettur í hug að auka fjölbreytnina t.d. með loðnuskipum, fullvinnslu sjávarafurða í neytendapakkningar eða... Það eru engin takmörk fyrir því hvað hagfræðingum dettur í hug að rannsaka. Nú eru konur sem hægja á sór á gulu ljósi orðnar sérstakur markhópur; þessar konur r eru líklegri til þess að eiga börn og tilheyra hefðbundn- um kjarna kvennafylgis íhaldsaflanna. Þessar konur munu svo vera óánægðar með stefnu stjórnvalda í mennta-, heilbrigðis- og félagsmál- um, ja hérna! Hvað með karlmenn sem æða yfir á gulu Ijósi, eru þeir einhleypir og barnlausir, og ef svo væri, hvað með það? Væri ekki meiri arður af þessum hagfræðingum í fiski fyrir vestan, bætandi hag þjóðarbúsins í stað tilgangslausrar atvinnubótavinnu? Ruglaður bolti Það fór hrollur um marga fótboltabulluna úti á landi þegar það spurðist út að íslenska útvarpsfélagið hefði keypt sýningarrétt- inn á enska boltanum á næstu leiktíð fyrir allt að 70 miljónir króna. Menn rifu hár sitt og skegg og töluðu um það hvellum rómi að nú þýddi ekkert annað að en að pakka saman föggur sínar og flytja í bæinn til að geta séð „sína menn“ leika list- ir sínar á sparkvöllum þeirra ensku. Það helgast af þeirri sannfæringu að boltinn verði ruglaður á næstu leiktíð eða þá að hann verði sendur út á Sýn sem flestir lands- byggðarmenn sjá ekki. Þá bætti það ekki geð guma að á sama tíma og þetta spurðist út voru starfs- menn Sjónvarpsins í óða önn að gera allt klárt áður en því yrði fagnað að 30 ár eru liðin frá því fyrsta útsendingin fór fram í Sjónvarpinu. Niðurlæging- in gat varla verið meiri fyrir þessa ríkisreknu sjónvarpsstöð vegna þess að enski boltinn hefur ver- ið ein helsta skrautíjöður hennar eftir því sem næst elstu menn hafa fullyrt. Rauða ljónið á Stöð 2 Eftir að menn höfðu jafn- að sig og náð áttum í þess- um sviptingum um efni á milli sjónvarpsstöðvanna, fóru menn að reyna að sjá björtu hliðarnar á þessum tíðindum. Eitt það fyrsta sem mönnum datt í hug var að nú þýddi ekkert annað fyrir stjórnendur ÍS en að toppa eigin verk með því að ráða Bjarna Fel. á stöðina. En Bjarni hefur séð um enska bolt- ann í Sjónvarpinu allar götur frá vetrardag- skránni 1968-1969, ef rétt er munað. Eftir allan þennan tíma er Bjarni, sem gárungarnir kalla Rauða ljónið, holdgerving- ur enska boltans og því vandfundinn sá maður sem getur lýst boltanum af sömu mælskunni og til- finningunni og Bjarni Fel. Landsbyggðin stendur vel Eftir að úrslit hafa fengist í íslandsmótinu í fótbolta kemur í ljós að lands- byggðin á sex af tíu liðum sem spila í 1. deildinni að ári. Það eru Suðurnesja- liðin frá Keflavík og Grindavík, Leiftur í Ólafs- firði, Eyjamenn og Skalla- grímur og ÍA frá Vestur- landi. Höfuðborgarsvæðið státar af liði „vonbrigð- anna“ KR, Fram, Val og Stjörnunni úr Garðabæ. Umsjón: Guðmundur R. Heiðarsson.

x

Dagur - Tíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur - Tíminn
https://timarit.is/publication/254

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.