Dagur - Tíminn - 17.10.1996, Qupperneq 5
|Dagur-®íxtróm
Fimmtudagur 17. október 1996 - 5'
Orkumál - Verslun
Hækkar eldavélataxtinn
ef álrafmagnið lækkar?
Búðum í þétt-
býli mun
fækka um
helming
yy Getur þurft sérstakar ráð
stafanir til að vernda smá-
notendur gegn því að byrð-
ar sem stómotendur létta
af sér með samkeppni
verði lagðar á þá. ((
Orkunefnd iðnaðar-
ráðherra leggur til
aðskilnað á vinnslu,
flutningi, dreifingu
og sölu á rafmagni.
Til að skapa forsendur til
samkeppni í viðskiptum
með raforku er heppileg-
ast að endurskipuleggja raf-
orkubúskapinn á núverandi
grunni með markaðssjónarmið
að leiðarljósi í vinnslu og sölu
raforku, að mati nefndar
þeirrar sem iðnaðarráðherra
skipaði í apríl s.l. til að undir-
búa endurskoðun orkulaganna.
í því sambandi er m.a. gert ráð
fyrir eftirfarandi breytingum:
Vinnsla raf-
magns, flutning-
ur þess, dreifing
og sala verði að-
skilin.
Sjálfstætt fyr-
irtæki, Landsnet,
sjái um megin-
flutningskerfi
raforku. Fyrir-
tækinu verði fal-
in ábyrgð á
rekstri kerfisins, áætlunargerð,
álagsstýringu og gæðum rafork-
unnar. Vinnsla raforku verði
gefin frjáls í áföngum og til að
stuðla að virkri samkeppni telur
nefndin mikilvægt að raforkan
verði flutt um Landsnetið.
Kaup og sala raforku verði
sömuleiðis frjáis á grundvelb al-
mennra skilyrða og að einka-
leyil rafveitna til raforkusölu á
tilteknum svæðum verði afnum-
in. f frjálsri raforkusölu felst að
dreifiveitum verður gert skylt að
flytja orku fyrir sjálfstæða orku-
kaupmenn samkvæmt gjaldskrá
sem hyglir ekki samkeppnissviði
dreifiveitna. Að smám saman
muni myndast markaður fyrir
raforku telur nefndin næsta víst,
þótt slíkt gerist ekki á einni
nóttu. Samkeppnin mundi
væntanlega koma fyrst og
fremst stærri fyrirtækjum til
góða til að byrja með. Sam-
keppni í sölu til smárra notenda
Kaupmannasamtökin
Öryrkjar
Tékkamisferli ennþá
alvarlegt vandamál
252 íbúðir fyrir
lottópeninga
Frá því byrjað var að spila í
lottóinu árið 1987 hefur
Hússjóður Öryrkjabanda-
lagsins keypt eða byggt alls 252
íbúðir og greitt upp eldri skuld-
ur sjóðsins.
í síðasta tbl. fréttablaðs Ör-
yrkjabandalagsins kemur
einnig fram að þessar íbúðir
eru í öllum landshlutum en þó
flestar á höfuðborgarsvæðinu.
Alls búa í þessum íbúðum um
800 manns með hinar ýmsu
fatlanir, en þroskaheftir eru þar
íjölmennastir og því næst geð-
fatlaðir. -grh
Kaupmenn vilja
ekki lengur sitja
uppi með tékka-
áhættuna.
Framvísun debetkorts með
mynd verður innan
skamms skilyrði fyrir inn-
lausn allra tékka í verslunum,
þ.e.a.s. ef Kaupmannasamtökin
fá banka og sparisjóði til að
fallast á kröfur sínar í þessu
efni. „Tékkamisferli er enn al-
varlegt vandamál enda þótt
tékkaviðskipti hafi minnkað eft-
ir upptöku debetkorta," segir í
Fréttapósti Kaupmannasamtak-
anna. „Versluninn vill ekki
lengur taka á sig áhættu vegna
mót öku tékka og telur að sú
ábyrgð hljóii að hvfla á herðum
banka og sparisjóða, sem af-
henda viðskiptavinum sínum
tékka.“
Það valdi hins vegar erfið-
leikum að tékkareikningseig-
endur hafi ekki afiir debetkort
með mynd undir höndum. Að
frumkvæði Félags sérvörukaup-
manna hafa Kaupmannasam-
tök íslands þess vegna beint því
til sambanda sparisjóða og við-
skiptabankanna að sem fyrst,
og ekki síðar en 1. mars 1997,
verði framvísun debetkorta
með mynd skilyrði fyrir inn-
lausn allra tékka.
fyrirtæki til sölu
Til sölu er bifreiðaumboð og þjónustufyrirtæki í
fullum rekstri, ásamt vel staðsettu og góðu hús-
næði.
Stærð húsnæðisins er samtals um 320 fm.
Upplýsingar gefur Fasteignasalan Eignakjör,
Skipagötu 16, Akureyri, sími 462 6441.
rASTít 'íNASALAN ..
EIGilA KJOR
sé t.d. vart byrjuð í þeim lönd-
um sem lengst eru komin í end-
urskipulagi raforkukerfisins.
„Meðan svo er getur þurft sér-
stakar ráðstafanir til að vernda
smánotendur gegn því að byrð-
ar sem stórnotendur létta af sér
með samkeppninni verði lagðar
á þá“, segir í skýrslunni.
Samfara þessum breytingum
telur nefndin óhjákvæmilegt að
starfsumhverfl orkufyrirtækj-
anna breytist verulega:
Jafna yrði starfsskilyrði fyrir-
tækjanna. Virk samkeppni í raf-
orkuvinnslu leiði m.a. til þess að
fjáríéstar geri aidcnar kröfur
um arð. Enda hnígi sterk rök að
því að einkafjármagn komi inn í
raforkugeirann og eignarhald
orkuveranna því breytast.
í framtíðinni kunni að vera
skynsamlegt að afla einkaíjár-
magns til að fjármagns ný stór-
verkefni. í bréfi sínu til ráð-
herra lýsa nefndarmenn sig
sammála um meginlínur í fram-
tíðarskipan orkumála þótt
áherslumunur sé á milli þeirra
um útfærsluatriði.
Pétur Sveinbjarnarson
hjá Þróunarfélagi
Reykjavíkur talar um
byltingu í verslun á interneti
og í sjónvarpi.
„Þótt mikil breyting hafi orð-
ið á verslunar- og viðskiptahátt-
um síðustu einn til tvo áratugi
er framundan ekki aðeins
breyting, heldur bylting í versl-
un,“ segir Pétur Sveinbjarnar-
son framkvæmdastjóri Þróun-
arfélags Reykjavíkur.
Hann segir að með upplýs-
ingahraðbrautinni muni versl-
un færast í vaxandi mæli á
internetið, í sjónvarpið og vöru-
lista. Færa megi rök að því að
innan 5 til 10 ára verði allt að
helmingur núverandi verslana í
þéttbýli hættar störfum.
f Kvosinni í Reykjavík hefur
verslunum fækkað að meðaltali
um 5 til 6 á ári um nokkurt
árabil og eru nú 67 talsins. í
miðborginni allri eru 372 versl-
anir, þar af 173 við Laugaveg
og Bankastræti, eða réttur
helmingur verslana í borginni.
-JBP
Viðtalstími
samgönguráðherra á Akureyri
Samgönguráðherra, Halldór Blön-
dal, verður með viðtalstíma í Kaup-
angi miðvikudaginn 23. október
frá kl. 10.00-12.00 og 13.30-
16.30.
Skráning í síma 462 3557 fyrir há-
degi og 462 1 500, 462 1504 eftir
hádegi.
Samgönguráðuneytið.
HEILSUGÆSLAN í REYKJAVÍK
STJÓRNSÝSLA
Innflúensubólusetning
á vegum heilsugæslustöðvanna í Reykja-
vík, Heilsugæslustöðvar Seltjarnarness og
sjálfstætt starfandi heimilislækna.
Um þessar mundir er að hefjast bólusetning gegn inflúensu á
vegum heilsugæslustöðvanna í Reykjavík, Heilsugæslu-
stöðvarinnar á Seltjarnarnesi og sjálfstætt starfandi heimilis-
lækna. Samkvæmt upplýsingum landlæknis er öldruðum,
hjarta- og lungnasjúklingum og fólki með skert ónæmiskerfi
sérstaklega ráðlagt að láta bólusetja sig gegn inflúensu.
Bólusetningar eru framkvæmdar á heilsugæslustöðvun-
um í Reykjavík og Heilsugæslustöðinni á Seltjarnarnesi.
Stöðvarnar eru:
Heilsugæslustöð Árbæjar, Hraunbæ 102, sími 567 1500,
Heilsugæslustöð Grafan/ogs, Hverafold 1-3, sími 587 1060,
Heilsugæslustöðin Efra-Breiðholti, Hraunbergi 6, sími 567 0200,
Heilsugæslustöðin í Mjódd, Þönglabakka 6, sími 567 0440,
Heilsugæslustöðin í Fossvogi, Sjúkrahúsi Reykjav., sími 525 1770,
Heilsugæslan Lágmúla 4, sími 568 8550,
Heilsugæslustöð Hlíðarsvæðis, Drápuhlíð 14, sími 562 2320,
Heilsugæslustöð Miðbæjar, Vesturgötu 7, sími 562 5070,
Heilsugæslustöðin Seltjarnarnesi, Suðurströnd, sími 561 2070.
Ennfremur annast sjálfstætt starfandi heimilislæknar í
Reykjavík þessar bólusetningar.
15. október 1996.
Heilsugæslan í Reykjavík.
Heilsugæslustöðin á Seltjarnarnesi.