Dagur - Tíminn - 17.10.1996, Blaðsíða 10
10 - Fimmtudagur 17. október 1996
iDcxgm-QlTOmtn
KNATTSPYRNA
Gautaborg
lagðiACMilan
Leikið var í Meistaradeild
Evrópu í knattspyrnu og
urðu úrslit þessi:
A-RIðlLL:
Ajax-Glasg. Rangers 4:1
Auxerre-Grasshoppers 1:0
Stig í riðlinum: Ajax 6,
Grasshoppers 6, Auxerre 6,
Rangers 0.
B-RIðlLL:
Atl. Madrid-Dortmund 0:1
St. Búkarest-W. Lodz 1:0
Stig í riðlinum: B. Dortmund 9,
Atl. Madrid 6, St. Búkarest 3,
W. Lodz 0.
C-RIðlLL:
Fenerbahce-Man. Utd. 0:2
Rapid Vín-Juventus 1:1
Stig í riðlinum: Juventus 7,
Man. Utd. 6, Rapid Vín 2,
Fenerbahce 1.
D-RIðlLL:
Gautaborg-AC Milan 2:1
Rosenborg-Porto 0:1
Stig í riðlinum: Porto 9,
AC Milan 3, Gautaborg 3,
Rosenborg 3.
HANDBOLTI
ÚRSUT
1. deild karla:
Stjarnan-FH 31:22
HK-Grótta 19:17
Fram-Valur 15:15
Haukar-UMFA 26:31
KA-ÍR 27:26
ÍBV-Selfoss 27:20
Öruggthjá
m m mm m
Stjornunni
Stjarnan mjakaði sér upp í
annað sætið í 1. deild karla í
gærkvöldi með níu marka sigri
á FH, 31:22. Á myndinni sést
Einar Einarsson reyna að
smeygja sér framhjá FH-ingun-
um Hálfdáni Þórðarsyni og Sig-
urjóni Sigurðssyni. Mynd: bg
GOLF • Alþjóðlegt mót
Frábærír hríngir
hjá EmiÆvari
Orn Ævar Hjartar-
son, úr Golf-
klúbbi "Suður-
nesja er efstur eftir tvo
hringi á alþjóðlegu
unglingamóti, „Teen’s
golf trophy" sem nú
stendur yfir í Frakk-
landi. Tveimur hringj-
um er lokið á mótinu
og Örn Ævar lék fyrri
hringinn á parinu, 72
höggum og þann síðari í fyrra-
dag á 69 höggum, þremur und-
ir pari vallarins. Örn Ævar er
því með 141 högg og með for-
ystuna, en ekki tókst að afla
upplýsinga um helstu keppi-
nauta hans í mótinu.
Keppendum frá 24 þjóðum
var boðið til mótsins og íslensku
keppendurnir eru ijórir talsins.
Birgir Haraldsson úr GA hefur
leikið á 76 og 77 höggum eða
samtals 153 höggum, Þorkell
Snorri Sigurðsson úr GR lék
fyrri hringinn á 77 höggum og
þann síðari á 79 höggum og Pét-
ur Sigurðsson úr GR lék á 81 og
Orn Ævar Hjartar-
son.
88 höggum, eða sam-
tals 169 höggum. Þessir
fyrstu tveir hringir voru
leiknir á Makila velhn-
um, sem er 6176 metra
langur og erfiðleika-
stuðull hans er 72. Völl-
urinn hefur þó spilast
mxm lengri vegna mik-
illar bleytu og til að
mynda þurfti að fresta
leik um tvær klukku-
stundir fyrsta daginn.
íslensku keppendurnir not-
uðu frídaginn í gær til að leika
æfingahring á Biurritz vellin-
um, en þar fara tveir síðustu
hringirnir fram í dag og á
morgun.
KÖRFUKNATTLEIKUR • Lengjubikarinn
Ný útsláttarkeppni
Eins og körfuboltaunn-
endur hafa tekið eftir
er úrvalsdeildin leikin í
einum riðli nú í stað tveggja
áður. Við þetta fækkar leikj-
um liðanna í deildinni um 10,
úr 32 leikjum í 22. Til þess
að mæta þessari fækkun var
ákveðið að koma á deildar-
bikarkeppni sem styrkt er af
ákveðnu fyrirtæki og hefur
Lengjan rutt brautina fyrir
KKÍ að þessu sinni og heitir
keppnin Lengjubikarinn.
Liðin sem þátt taka í
Lengjubikarnum eru 16
bestu lið landsins og fer
keppnin þannig fram að ís-
landsmeistararnir leika við
liðið í 16. sæti þ.e. liðið sem
stóð verst að vígi eftir undan-
úrslit í 1. deildinni og lið
númer 2 í úrvalsdeildinni
leikur þá við liðið í 15. sæti
og svo koll af kolli.
Með þessari keppni fá
fyrstu deildarliðin kærkomið
tækifæri til að Ieika við bestu
lið landsins sem veitir þeim
dýrmæta reynslu þegar upp
verður staðið og þau verða
mun betur hæf til þess að
takast á við úrvalsdeildina
þegar þau vinna sér sæti þar.
Þetta er mjög gott framtak
hjá KKÍ-mönnum og sýnir að
framtíðarsýnin er í góðu lagi
á þeim bænum.
Fyrsta umferðin, 16-liða-
úrslitin heíjast nú í vikunni
og lýkur um helgina. Leikin
er tvöföld umferð heima og
heiman. Þessi lið leiða saman
hesta sína nú.
17. og 19. okt.
ÍS - Grindavík kl. 20
ÍA - KR kl. 20
Þór Þorl. - Haukar kl. 20
Valur - Njarðvík ld. 19
Laugardagsleikirnir hefj-
ast allir kl. 16:00 nema leik-
ur Hauka og Þórs Þorláks-
höfn sem hefst kl. 13:30
18. og 20. okt.
Þór Ak. - ÍR kl. 20
KFÍ - Skallagrímur kl. 20
Breiðablik - Tindastóll kl. 20
Snæfell - Keflavík kl. 20.
Sunnudagsieikirnir heíjast
allir kl. 20 nema leikur ÍR og
Þórs Ak. sem hefst kl. 16:00.
gþö-
KNATTSPYRNA • Svíþjóö
Gengi ðrebro er
ævintýri líkast
Hamar
félagsheimili Þórs:
Salir til leigu
Tilvaldir til hvers
konar íþrótta- og tóm-
stundaiðkana.
Gufa - Pottur -
Búningsaðstaða
Hamar
sími 461 2080
/
Sænska liðið Örebro, sem
íslendingarnir Arnór Guð-
johnsen, Hlynur Birgisson
og Sigurður Jónsson Ieika með
hefur gengið allt í haginn að
undanförnu og nú bendir flest
til þess að liðið, sem virtist
dæmt til að falla eftir fyrri um-
ferðina, kræki sér líklega í Evr-
ópusæti. Liðið hefur fengið 25
stig út úr síðustu 10 leikjum
sínum, en uppskeran var mjög
rýr framan af, aðeins 11 stig út
úr fyrstu 14 leikjum sínum.
„Seinni umferðin er búin að
vera ævintýri líkust og það hef-
ur allt gengið okkur í haginn,
eins og það var nú leiðinlegt til
að byrja með. Það hefur lengi
loðað við liðið að vinna ekki úti-
leiki, en núna erum við búnir
að vinna þrjá síðustu útileiki og
stefnum að fjórða sætinu í
deildinni. Það voru margir leik-
menn seinir í gang, en leik-
menn náðu sér vel á strik þegar
leið á mótið,“ segir Hlynur
Birgisson.
Hlynur sagði að Sigurður
Jónsson, hefði staðið fyrir sínu í
vörn Örebro-liðsins í undan-
förnum leikjum og sjálfur gæti
hann ekki kvartað. „Ég náði
takmarkinu, að komast í liðið
og hef haldið stöðunni í byrjun-
arliðinu."
Örebro er nú í 5. sæti með
36 stig, stigi á eftir AIK Gauta-
borg, mótherjum KR frá því í
haust. Fjórða sætið gefur sæti í
Evrópukeppni félagsliða, en 5.
og 6. sætið í Toto-keppninni.
Hlynur Birgisson.
Aðeins tvær umferðir eru eftir
og á Örebro eftir að leika við
Trelleborg, eitt af botnliðunum
á útivelli og Halmstad sem er
um miðja töfluna..
IFK Gautaborg tryggði sér
meistaratitilinn um síðustu
helgi, íjórða árið í röð.
ENGLAND
Robson og
Souness sektaðir
Breska knattspyrnusam-
bandið hefur enn á ný
sektað framkvæmdastjór-
ana Bryan Robson hjá Middles-
brough um 150 þúsund krónur
og Graeme Souness hjá South-
hamton um 75 þúsund krónur.
Sami dómarinn, Michael Riley,
kærir þá báða,
Robson fyrir ummæli er
hann lét falla í garð Rileys eftir
leik Middlesbrough við Notting-
ham Forest 24. ágúst sl. og
Souness fyrir ummæli sín við
dómarann eftir leik Southam-
ton við Leicester 21. ágúst sl.
Þetta er nú aldeilis ekki í
fyrsta skipti sem þessir snilling-
ar fá orð í eyra frá Knatt-
spyrnusambandinu og að þessu
sinni fékk Bryan Robson einnig
alvarlega áminningu vegna sí-
endurtekinna ærumeiðandi um-
mæla um dómara og aðstoðar-
dómara. gþö