Dagur - Tíminn - 17.10.1996, Page 11
^Dagur-ÍEmrám
Fimmtudagur 17. október 1996 -11
B / L A R
Heimsviðburðiir
í bílaheiminum
Bflasýningin í París stóð yf-
ir nú í október og Dagur-
Tíminn lét sig að sjálf-
sögðu ekki vanta á staðinn.
Alltaf ferskur og flakkandi, til-
búinn að þjóna lesendum sínum
enda lifir Dagur-Tíminn fyrir
þá, ekki öfugt.
Bílasýningin í París eða
„Mondial de L’Automobile“ er
sannarlega stórviðburður í bfla-
heiminum, raunar væri réttara
að kalla sýninguna heimsvið-
burð í bflaheiminum. Sýningin
er haldin annað hvert ár, þegar
ártalið er heil tala. Sýningar-
svæðið nær yfir nokkra ferkfló-
metra og er langt frá því að
einn dagur dugi til að fara yfir
það allt eins og blaðamaður
Dags-Tx'mans komst að raun
um. Um það bil 1.000 fyrirtæki
frá 34 þjóðlöndum sýna þar
framleiðsluvörur sínar og
skipta sýningargripirnir mörg-
um þúsundum. Eðli málsins
samkvæmt eru bflarnir fyrir-
ferðamestir á sýrúngunni, en
annars konar farartæki og sýn-
ingargripir sem á einhvern hátt
tengjast bflum skipta líka þús-
undum.
Segja má að Frakkland sé
fæðingarstaður bflsins og er
saga þessarar bflasýningar rak-
in allt aftur til ársins 1898 en
þá voru sýndir bflar frá 232
framleiðendum og höfðu allir
bflarnir staðist þá prófraun að
aka frá París til Versala og til
baka aftur. Síðan þá hefur mik-
ið vatn runnið til sjávar og þyk-
ir slíkt ferðalag h'til prófraun í
dag. Pað er augljóst af sýning-
unni að rafmagnsbflar eru í
mikilli uppsveiflu og ijölmargar
tegundir komnar á markað.
Virðist vera töluvert líf í þessum
geira bflaiðnaðarins í Frakk-
landi. Aðallega eru þetta litlir
bílar, en mjög fjölbreyttir.
Sömuleiðis voru smábflar alls
konar mjög áberandi, knúnir
hefðbundnu eldsneyti.
Það vakti athygli gestsins að
þrátt fyrir alþjóðlegt yfirbragð
sýningarinnar var oft á tíðum
ekki mögulegt að fá bækhnga
Séð yfir lítið brot af sýningarsvæðinu á bílasýningunni í París, Mondial de
L’Automobile. Mynd: ohr
Framúrstefnubílarnir voru ekki mjög áberandi á sýningunni en hér er einn
frá Chrysler. Mynd: ohr
hjá einstökum framleiðendum á
öðru tungumáli en frönsku. Pað
gat svo sem verið nógu slæmt,
en hitt var öllu verra að ótrú-
lega oft töluðu þeir sem voru að
kynna framleiðsluvörur sínar
ekkert annað tungumál en
frönsku. Enska, þýska eða
skandínavíska - hvað þá ís-
lenska - hafði lítið að segja, en
fleiri tungumál hafði blaðamað-
ur Dags-Tímans hreinlega ekki
á reiðum höndum. Þetta er
e.t.v. dæmigert fyrir þjóðernis-
kennd Frakka og gæti verið að
stórum hluta skýringin á því
hvers vegna Frakkar hafa átt
jafn erfitt uppdráttar í alþjóða-
viðskiptum og raun ber vitni.
Pað er nógu eríitt að selja
framleiðsluvörur í alþjóðasam-
kepprn nútímans, hvað þá ef
seljandinn er ófær um að kynna
mögulegum kaupendum sölu-
vörurnar vegna tungumálavan-
kunnáttu. Sannarlega víti til að
varast fyrir íslendinga.
Hér verður gerð svolítil grein
fyrir broti af því sem gaf að líta
á Bílasýningunni í París. Um-
íjöllunin er eðli málsins sam-
kvæmt hvergi nærri tæmandi,
en lesendur mega búast við að
af og til verði íjallað um sýning-
una í Degi-Tímanum á næst-
unni. Internetáhugamenn geta
nálgast heimasíðu sýningarinn-
ar á veffanginu (urlinu):
[http ://www.mondialdelautomo-
bile.tm.fr]. -ohr
BÍLL VIKUNNAR
Öskubuska risin
úr öskustónni
Vafalítið var nýr bfll frá
Skóda bfll Bflasýningar-
innar í París, Skóda Okt-
avía. Sannarlega mikil breyting
frá gamla góða Skóda ljóta,
eins og sagði í vísukorninu.
Nú er tæpast hægt að yrkja
lengur um Skóda ljóta eftir að
Skódi Oktavía er kominn til sög-
unnar, nema þá helst öfug-
mælavísur, því Skódi Oktavía er
hinn snotrasti bíll sem í útliti á
fátt annað sameiginlegt með
eldri gerðum en merkið og
minnir t.d. miklu frekar á Alfa-
Romeo en Skóda. Þó má rejmd-
ar greina örlítinn ættarsvip á
þessum í Húnavatnssýslunum,
þ.e.a.s. ef Blönduóslögreglan hefði
nokkurn möguleika á því að ná
ökumanninum. Mercedes Benz um
1.000 kíló að þyngd, vél V-6, rúm-
tak 2.499 rúmsentimetrar, skilar
um 450 hestöflum og er hámarks-
hraðinn 300 kílómetrar. Hröðunin
úr 0 í 100 km. hraða er 3,5 sekúnd-
ur en úr 0 í 200 km. hraða 9,5 sek-
úndur sem teldist dágott úr 0 í 100
á mörgum aflmeiri fólksbílum.
Mynd: ohr
aftari helmingi bflsins.
Framleiðsla á þessum bfl
hófst í síðasta mánuði og er
Oktavían framleidd í nýrri verk-
smiðju Skóda í Mladá Boleslav.
Að sögn forráðamanna Skóda
er hún talin nútímalegasta bfla-
verksmiðja veraldar en þeir
eiga reyndar vart orð til að lýsa
dásemdum verksmiðjunnar á
öllum sviðum, hvort heldur það
snertir tækni- eða umhverfis-
mál.
Skóda Oktavía er að hluta til
hannaður í samstarfi Skóda og
Volkswagen. Bfllinn er boðinn
með tveimur bensínvélum og
díselvél, með eða án túrbínu.
Stærri bensínvélin er 1,8 lítra
vél, 125 hestöfl en með henni á
Oktavían að komast í 100 km
hraða úr kyrrstöðu á 10,9 sek-
úndum og er hámarkshraðinn
sagður 201 km/klst. Meðal-
eyðslan 8,6 lítrar á hundraðið.
Minni vélin er 1,6 lítra, 75 hest-
öfl, sama vél og í Felicia bflnum
og á koma Oktavíunni í 100 km
hraða úr kyrrstöðu á 14,6 sek-
úndum. Hámarkshraðinn er
170 km/klst og eyðslan 7,9 lítr-
ar á hundraðið. Öflugri 1,6 lítra
vél verður boðin með Oktav-
íunni á næsta ári. Sú verður
101 hestafl og skilar Oktavíunni
úr kyrrstöðu í 100 km hraða á
12,4 sekúndum, hámarkshrað-
inn verður 187 km/klst og
eyðslan sú sama og með hinni
1,6 lítra vélinni, eða 7,9 lítrar á
hundraðið.
Díselvélin er 1,9 lítra, annars
Bíll sýningarinnar, Skódi Oktavía. Með Oktavíu er Skódinn risinn úr öskus-
tónni. Bíll sem kemur óneitanlega á óvart.
vegar með túrbínu en þá er vél-
in 90 hestöfl og tekur 13,9 sek-
úndur að komast í 100 km
hraða úr kyrrstöðu en há-
markshraðinn er 178 km/klst.
Eyðslan er 5,2 lítrar á hundrað-
ið. Án túrbínu skilar vélin hins-
vegar 68 hestöflum en ekkert
kemur fram í gögnum frá fram-
leiðanda um hröðun og eyðslu.
Enginn annar bflaframleið-
andi á sýningunni státaði af
annarri eins byltingu í útliti
eins og Skódi með Oktavíunni.
Það er bxiið að hvítþvo austan-
tjaldssvipinn algerlega af bfln-
um og segja má að Öskubuska
hafi nú risið úr öskustónni. Sé
þetta sú þróun sem má búast
við hjá a-evrópskum bflafram-
leiðendum á næstunni mega
hirnr fara að vara sig. Skódi
Oktavía mun ekki verða fáan-
legur hérlendis fyrr en eftir
áramót samkvæmt upplýsing-
um frá Jöfri hf., sem er um-
boðsaðili fyrir Skóda á íslandi.
Ekki lá fyrir hvað bíllinn mun
kosta hingað kominn.
Skódi Oktavía, sér inn í hurðir og hliðar.
Myndir: ohr
Er þetta bíll eða skellinaðra? Far-
artækið er allavega athyglisvert
hvort sem það er. Lítið og nett en
spurning hvort þetta hentar í októ-
berrokunum hér norðan Atlants-
hafsála. Mynd: ohr
Skellinaðra
eða bíll?
Eitt af þeim farartækjum
sem greip augað á sýn-
ingunni var lítill bfll, hálf-
gerð blanda af smábfl og skelli-
nöðru sem kallast Funtech. Vél-
in er 4,5 hestöfl, 50 rúmsenti-
metrar og hámarkshraðinn 45
km. Funtech kostar 19.950
franka í Frakklandi eða um
260.000 krónur íslenskar, en
eitthvað dýrara yrði tækið lík-
lega hingað komið. Á farartæk-
inu eru tvö burðarhjól að fram-
an og eitt drifhjól að aftan, en
auk þess eru nokkurs konar
hjálpardekk sitt hvoru megin að
aftan sem eiga að tryggja mjög
mikinn stöðugleika ef marka
má það sem framleiðandinn
sagði, en hann fullyrti reyndar
að það væri ómögulegt (im-
possible) að velta farartækinu.
Það er nú ekki selt dýrara en
það er keypt.
Nóg um það, sæti eru fyrir
tvo og er apparatið framleitt í
fjórum litun: rauðum, gulum,
bláum og ijólubláum. Framleið-
andinn hefur heilmikinn hug á
að flytja Funtech til íslands og
er að leita að innflytjanda á ís-
landi ef einhver er áhugasamur
um innflutning. -ohr