Dagur - Tíminn - 22.10.1996, Side 5

Dagur - Tíminn - 22.10.1996, Side 5
jDagur-®mmm Þriðjudagur 22. október 1996 - 5 F R É T T I R Djúpivogur ss Einkavæðing Simnutmdi SU-59 breytt Sement, áburður og SKÝRR í f'ullvinnsluskip eru hugsan- lega til sölu H Síldarvinnsla er mjög hagstœð nú þegar botnfiskvinnslan er rekin með tapi auk þess sem opnast hafa markaðir Jyrir síld á Rúss- landsmarkað, segir Jóhann Þór Halldórsson, framkvœmdastjóri Búlandstinds hf. // Togaranum Sunnutindi SU-59 á Djúpavogi verð- ur breytt í flakafrysti- skip, en skipið er með heii- frystibúnað og verður nú breytt í fullvinnsluskip en fullvinnsluleyfi hefur þegar fengist. Undanfarin tvö ár hefur skipið verið gert út á heilfrystingu á karfa og grá- lúðu. Jóhann Pór Halldórsson, framkvæmdastjóri Búlandstinds hf., sem gerir út Sunnutind SU, segir að togarinn hafi ekki nema að htlu leyti komið ná- lægt hráefnisöflun fyrir frysti- hús Búlandstinds hf. á Djúpa- vogi og Breiðdalsvík sl. tvö ár; hráefnið hafi verið keypt af fiskmörkuðum og einnig ýms- um viðskiptaað- ilum og það hafi gengið vel. „Frystihúsið á Djúpavogi er upptekið hálft árið við vinnslu á sfld og loðnu og húsið á Breiðdalsvík eitthvað skemmri tíma og því hefur hráefnisöflun- in ekki verið vandamál. Þetta er mjög hagstætt nú vegna þess að botnfiskvinnslan í landinu er rekin með miklu tapi og því vilja menn draga sem mest úr henni og auka uppsjávarfiska- vinnsluna. Það hafa bæst við markaðir fyrir sfld og loðnu, aðallega til Rússalands og höf- um við verið að frysta svolítið á þann markað, bæði heila ,en hausskorna sfld og eins flakaða, og einnig er þar markaður fyrir saltaða síld. Við höfum tekið á móti rúmum 2 þúsund tonnum af sfld síðan sfldarvertíðin hófst í septembermánuði sem er mun meira en á sama tíma haustið 1995 og þar munar mestu um að vertíðin fer fyrr af stað hjá okkur nú, en í fyrra vorum við að gera okkur klára,“ sagði Jó- hann Þór Halldórsson. Góð sfld fékkst skammt norð- austur af Glettingi aðfaranótt mánudags og í gær kom Arney KE-50 með 350 tonn af sfld til vinnslu á Djúpavogi, sem öll verður nýtt til manneldis. Húmanistahreyfingin Útifundur um heilsu- gæslumál Heilbrigðisþjónusta eru mannréttindi“ er yfir- skrift útifundar sem haldinn verður á Ingólfstorgi í Reykjavík á fimmtudag kl. 17:15. Fundurinn er skipulagð- ur af Húmanistahreyfingunni. Ýmis hagsmunasamtök og verkalýðsfélög hafa lýst yfir stuðningi við þessar aðgerðir. í frétt frá aðstandendum þessara aðgerða segir að til- gangurinn sé að senda ráða- mönnum þar skilaboð um að breyta stefnunni í heilbrigðis- málum. „Til þess þurfa þessar aðgerðir að vera íjölmennar. Þetta getur gerst ef allir leggjast á eitt,“ segir þar. Heilbrigðisþjónusta eru mannréttindi, engir biðlistar, ókeypis heilsugæsla, burt með gjaldtöku, opnið deildir. Það eru helstu stikkorð sem aðstand- endur þessara aðgerða nefna, en þær hefjast með kröfugöngu sem leggur upp frá Hlemmtorgi kl. '6:30 og staðnæmst verður á íngólfstc. gi 45 mínútum síðar og þá hefst útifundurinn. - sbs. Ríkisráðsfundur Fundað með nýjum forseta Fyrsti ríkisráðsfundurinn undir forsæti Ólafs Ragnars Grímssonar, forseta íslands, var haldinn í gær að Bessastöðum. Forsetinn skrifaði meðal annars upp á að frumvörp til laga um íjárreiður ríkisins og um samþykkt á ríkisreikningi 1995, yrðu lögð fyrir Alþingi. Að fundi loknum bauð forsetinn ráð- herrum og mökum þeirra til hádegisverðar. Við flýtum okkur hægt í þessum efnum og vinnum heimavinnuna vandiega," segir ritari einkavæðingarnefnd- ar sem svo er kölluð. Þrjú stór- fyrirtæki í eigu rfldsins eru í skoðun og kunna í náinni fram- tíð að falbjóðast almenningi á hlutabréfamarkaði, Sements- verksmiðjan, Aburðarverksmiðj- an og Skýrsluvélar ríkisins og Reykj avíkurborgar. Skýrsla Handsals hf. um einkavæðingaráform á Áburðar- verksmiðjunni hafa nú borist til einkavæðingarnefndar. Unnin er samskonar vinna á vegum Kaup- þings á sölu á hlutabréfum í SKYRR. Áður skilaði Scandia skýrslu á svipuðum nótum um Sements- verksmiðjuna og er sú skýrsla ennfremur til skoðunar hjá nefndinni um þessar mundir. „Allt tekur þetta sinn tíma, við viljum vinna heimavinnuna vel áður en farið er út í sölu ríkisfyr- irtækja,“ sagði Skarphéðinn Berg Steinarsson í fjármálaráðu- neytinu í gær, en hann er ritari einkavæðingarnefndar. Formað- ur nefndarinnar er Hreinn Lofts- son. -JBP Sýslumaðurinn á Akureyri Hainarstræti 107, 600 Akureyri, sími 462 6900 UPPB0Ð Uppboð mun byrja á skrifstofu emb- ættisins að Hafnarstræti 107, 3.h., Akureyri, föstudaginn 25. október 1996 kl. 10.00, á eftirfarandi eignum: Ásholt 4b, Árskógshreppi, þingl. eign. Árskógshreppur, gerðarbeið- andi Sýslumaðurinn áAkureyri. Byggðavegur 97, Akureyri, þingl. eig. Brekkusel ehf., gerðarbeiðandi Byggingarsjóður ríkisins. Dvergagil 8, Akureyri taldir eigend- ur, Halldór Árnason, og Gunnhildur Sveinsdóttir, gerðarbeiðendur Byggingarsjóður ríkisins, húsbréf- ad. og Búnaðarbanki íslands. Hafnarstræti 97, hl. 1A, Akureyri, þingl. eig. Byggingarfélagið Lind h.f., gerðarbeiðandi Iðnlánasjóður. Hrafnabjörg 1, Akureyri, þingl. eig. Þorsteinn H. Vignisson, gerðar- beiðandi, Byggingarsjóður ríkisins, húsbréfad. Samkeppnisráð Sterkustu hótelin styrkt Samkeppnisráð álítur styrki samgönguráðu- neytisins til 11 heils- árshótela á landsbyggð- inni vafasama og mælist til að ráðherra hafi fram- vegis hliðsjón af ákvæð- um samkeppnislaga. Samkeppnisráð hefur vakið athygli samgönguráðherra á því áliti sínu að styrkur sá sem 11 heilsárshótelum á landsbyggðinni var veittur á síðasta ári, samtals 20 milljónir, geti haft skaðleg áhrif á sam- keppni innan viðkomandi markaðar. Ráðið tók málið fyrir eftir samþykkt'Alþingis um að veita 20 milljónum til heils- árshótela á landsbyggðinni með það að markmiði að auka nýt- ingu þeirra yfir vetrarmánuð- ina. Við val á styrkþegum 'hafi, samkvæmt upplýsingum frá samgöngur.íðuneytinu, verið litið til þess að æskilegt væri að styrkja hin stærri og styrkari heilsárshótel á landsbyggðinni. Þessa forsendu telur ráðið hins vegar fara gegn markmiði og tilgangi samkeppnislaga. Enda hafi þeim hótelum sefn hlutu styrki verið veitt visst for- skot gagnvart öðrum hótelum á landsbyggðinni og þá ekki síst gagnvart þeim sem eru á sama markaðssvæði og styrkþegarnir, eins og t.d. á Akureyri og í Vest- mannaeyjum. Vinningar Fjöldi vinninga Vinnings- upphæð 1 b 5 af 5 1 3.704.560 O 4 af 5 ® Z, plús ^ g~T~ 385.620 3.40,5 56 11.870 4. 3af 5 2.311 670 Samtals: 6.303.270 Upplýsingar um vinningstölur fást einnig I símsvara 568-1511 eöa Graonu númeri 800-6511 og í textavarpi á síöu 451. Mímisvegur 3, Dalvík, þingl. eig. Stefán Friðgeirsson, gerðarbeið- andi Iðnlánasjóður. Norðurgata 17A, e.h. eignarhl. Ak- ureyri, þingl. eig. Þuríður Hauks- dóttir, gerðarbeiðandi Ríkisútvarp- ið. Tónatröð 11, Akureyri, þingl. eig. Gísli Sigurgeirsson, gerðarbeið- endur Akureyrarbær og Byggingar- sjóður ríkisins, húsbréfad. Vanabyggð 6d, Akureyri, þingl. eig. Jón Carlsson og Björk Dúadóttir, gerðarbeiðendur Byggingarsjóður ríkisins og Búnaðarbanki íslands. Þverholt 4, Akureyri, þingl. eig. Gunnar M. Sveinbjörnsson og Lilja Finnbogadóttir, gerðarbeiðandi Byggingasrsjóður ríkisins. Sýslumaðurinn á Akureyri 21. október 1996.

x

Dagur - Tíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur - Tíminn
https://timarit.is/publication/254

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.