Dagur - Tíminn - 22.10.1996, Qupperneq 6

Dagur - Tíminn - 22.10.1996, Qupperneq 6
6 - Þriðjudagur 22. október 1996 ÍDagur-®mttnn STRANDIÐ VIÐ GRIMSEY r Rfísnes SH-44 á strandstað á Grenivikurfjöru, sunnan til á Grímsey. Þrjú skip toguðu Rifsnesið fram Skammt austan Grenivikurfjöru eru Flesjar, stórgrýtt fjara, sem örugg- lega hefði reynst Rifsnesinu skeinu- hætt í öldurótinu og straumnum sem var við Grímsey Rækjubáturinn Rifsnes SH- 44, eign Hraðfrystihúss Hellisands hf., strandaði við sunnanverða Grúnsey, í Grenivfkuríjöru, um klukkan 4.30 á mánudagsmorgun, en báturinn hafði verið í vari við eyjuna um nóttina vegna veð- urs. Hann hefur verið á rækju- veiðum fyrir Norðurlandi og landað aflanum á Siglufirði. Pað var lán í óláni að báturinn fór upp í Grenivíkurfjöru því skammt austan við eru Flesjar, stórgrýtt fjara með hamrabelti ofan við. Þar eru aðstæður til björgunar allar mun erfiðari auk þess sem stórgrýtið kynni að hafa eyðilagt skipið. Mann- björg varð. Veður var mjög slæmt þegar báturinn strandaði, austan 8 til 10 vindstig og lemjandi rigning og mikill sjór og í verstu rokun- um rauk vindhæðin upp í 12 vindstig. Heldur lægði með morgninum, 4 til 5 vindstig, en enn mikill straumur og brim við Björgunarsveitarmenn í Grímsey standa í skjóli við hákarlahjall upp af Grenivíkurfjöru og bíða aðgerða. Þyrlan TF-LÍF sveimar yfir. Myndir: Guð- rún Gísladóttir. Á strandstað. Mikill straumur og brím var við Grímsey, m.a. vegna veður- ofsans nóttina áður. Grímsey. Rifsnes SH er 226 brúttonn að stærð, smíðaður í Noregi 1968. Björgimarsveitin í Grímsey var þegar kölluð út ásamt þyrlu Landhelgisgæslunnar, TF-LÍF, sem var farin úr Reykjavík 20 mínútum eftir útkall, eða klukkan 05.20 og var hún kom- in til Grímseyjar klukkan 6.30. Par sveimaði hún fyrst yfir bátnum en settist síðan á flug- völlinn og tók þar Grímseying, Sigurð Bjarnason, ásamt dælu og tækjum til að hlaða raf- geyma og ferjaði út í Rifsnesið. Strax og björgunarsveitin kom niður í Grenivikurfjöru var skotið líftaug um borð í Rifsnes til þess að gera allt tilbúið til að ná áhöfninni, fimm manns, frá borði í björgunarstól ef á þyrfti að halda. Skömmu eftir strandið í gær- morgun og eftir að björgunar- sveitarmenn voru komnir á vettvang var settur út belgur frá Rifsnesi með taug í sem Þorleifur EA-88 frá Grímsey náði svo og fór með að togaran- um Margréti EA sem þar var einnig kominn. Til þess að ná belgnum þurfti Þorleifur EA að fara mjög grimnt. Dregnar voru svo taugar út í tvö nærstödd skip, Dagfara GK-70 og Mar- gréti EA-110, sem síðar reyndu að toga Rifsnesið af strandstað á íjórða tímanum síðdegis, en án árangurs. Þá var Rifsnesið farið að lemjast við Qörugrjótið og einhver leki komin í vélar- rúm. Árdegisflóð var klukkan 6.43 og því verulega farið að falla að þegar báturinn strand- aði og það olli verulegum áhyggjum björgunarmanna, því þá myndi næsta flóð, klukkan um 17.30 síðdegis í gær, ekki hjálpa eins mikið þegar kippt yrði í bátinn. Um klukkan 17.30 var aftur kippt í Rifsnesið og þá Björgunarmönnum var séð fyrir næringu á strandstað. náðist hann á flot. Þá hafði Sæ- ljón SU-104 bæst í hóp þeirra skipa sem toguðu í Rifsnesið. Margrét EA hélt sxðan tU Ak- ureyrar með Rifsnes SH í togi og var gert ráð fyrir að sigUngin til Akureyrar tæki 10 tíma. Öfl- ugar dælur voru um borð sem auðvelt væri að grípa tU kæmi leki að bátnum. Skipið verður tekið í slipp hjá Slippstöðinni hf. á Akureyri. GG

x

Dagur - Tíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur - Tíminn
https://timarit.is/publication/254

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.