Dagur - Tíminn - 22.10.1996, Blaðsíða 8
8 - Þriðjudagur 22. október 1996
PJÓÐMÁL
JDagurJ®mrátn
JDamtr-ÍEmttmt
Útgáfufélag: Dagsprent hf.
Útgáfustjóri: Eyjólfur SveinsSoci
Ritstjóri: Stefán Jón Hafstein
Aðstoðarritstjóri: Birgir Guðmundsson
Framkvæmdastjóri: Hörður Blöndal
Skrifstofur: Strandgötu 31, Akureyri, Garðarsbraut 7, Húsavík og Brautarholti 1, Reykjavík
Símar: 460 6100 og 5631600
Áskriftargjald m. vsk. 1.600 kr. á mánuði
Lausasöluverð kr. 150 og 200 kr. helgarblað
Prentun: Dagsprent hf./ísafoldarprentsmiðja
Grænt númer: 800 70 80
Fax auglýsingadeildar: 462 2087 - Fax ritstjórnar: 462 7639
Sjómannafrádráttur
í fyrsta lagi
Samkvæmt riti Frjálsrar verslunar, 100 stærstu,
eru sjómenn tekjuhæstu launamenn á íslandi. Af
þeim fyrirtækjum sem borga hæst laun á íslandi
eru útgerðarfyrirtæki í 25 efstu sætum listans. Það
er gott að hluti sjómannastéttarinnar (að öllu
jöfnu áhafnir frystitogara) skuli vera vel launaður.
Og rétt er að taka fram að fráleitt eru allir sjó-
menn hátekjumenn. íslendingar vilja verðlauna
hafsins hetjur, en er ekki gengið of langt að niður-
greiða laun hátekjumanna með sérstökum skattaf-
slætti sem kenndur er við sjómenn?
Sjómannaafslátturinn nemur 1500 milljónum
króna. Þetta er hærri upphæð en fer samtals í
barnabætur og barnabótaauka! Og til frekari sam-
anburðar má benda á að sérstakur hátekjuskattur
skilar ríkinu um 350 milljónum. Það er barist um
hvert pláss á togurum sem veiða og vinna aíla. í
landi veldur mannekla í láglaunastörfum fisk-
vinnslunnar því að flytja verður inn útlendinga.
Það yrði láglaunafólki mikill búhnykkur ef per-
sónuafsláttur hækkaði.
í þriðja lagi
Hver eru rökin fyrir því að styrkja sérstaklega
menn sem eru með 300-500 þúsund á mánuði (töl-
um ekki um skipstjórana!)?
Nú þegar fjárlagafrumvarpið fær á sig mynd í
meðförum Alþingis verður fróðlegt að sjá hver
þorir að bjóða hálaunamönnum byrginn. En þar til
þá auglýsir blaðið eftir rökum fyrir opinberum
styrkjum til hátekjufólks á sjónum. Við birtum
þau!
Stefán Jón Hafstein.
V_______________________________________________________)
Ertu sammála borgarstjóranum í Reykjavík um að
þéttbýliskjarnar sem reka almenningssamgöngur -
strætisvagna - fái hlut af bensíngjaldi?
Árni Þór
Sigurðsson
borgarfulltrúi
í Reykjavík
Já, í meginatriðum. Mér
hefur lengi fundist að
tekjustofnar sveitarfé-
laga séu almennt allt of ein-
hæfir, sveitarfélögin hafa
f.o.fr. útsvarið á meðan ríkis-
valdið hefur margvísleg gjöld
og skatta sem það getur
hækkað og lækkað eftir því
sem þurfa þykir. Með vaxandi
yfirtöku verkefna hjá sv.fél.
þarf að auka fjölbreytni í
tekjuöflun. Þessi leið er ein
þeirra sem kemur mjög vel til
greina.
Miðað við reynsluna af
skattastefnu R-list-
ans þá gætu þessi
orð borgarstjöra þýtt ákall
eftir auknum sköttum og því
er ég algjörlega ósammála.
Hf við getum hins vegar litið
á þessa umræðu sem hug-
mynd um réttlátari skiptingu
tekna af umferð þá finnst
mér hún orðin áhugaverð.
Reykjavík hefur þar farið
halloka gagnvart landsbyggð-
inni, hlutfallslega hefur lang-
minnst farið til Reykjavíkur.
♦
♦
Sigurður J.
Sigurðsson
bœjarfulltrúi
á Akureyri
S
Eg hef ekki heyrt hana
viðra þessa hugmynd
en menn hafa talað um
að sveitarfélög sem rækju al-
menningsamgöngur ættu að
fá aukna hlutdeild úr jöfnun-
arsjóði sveitarfélaga. Sigfús
Jónsson sagði einhvern tím-
ann að bílar ættu að vera
skatttekjur sveitarfélaganna
en ekki ríkisins þar sem þeir
slitu götunum og þeim væri
þjónað á veturna. Heilt yfir er
eg ekki meðmæltur því að
rfkið sé að innheimta skatta
sem sfðan er deilt til sv.félag-
anna.
Sigríður
Stefánsdóttir
bœjarfulltrúi
á Akureyri
Þetta er ný hugmynd, við
höfum aftur bent á það
hér á Akureyri að það
sé á margan hátt óréttmætt
hve stóru sv.félögin hafa orð-
ið útundan í jöfnunaraðgerð-
um í sambandi við þjónustu
sv.fél. Við höfum m.a. gert at-
hugasemdir um jöfnunarsjóð,
að þar væru ekki teknar inn
almenningssamgöngur. Ég er
því fylgjandi hugmyndinni
um að komið verði á ein-
hvern hátt á móts við stóru
sv.félögin á hvaða hátt sem
það verður gert.
5 m liiCVÍ^
Hver er hrœddur?
„Hann boðaði ekki forföll, en
hann lét ekki sjá sig. Mál
manna var að hann hefði ekki
þorað að vera innan um svona
marga leikhússtjóra, leikara og
leikhúsáhugamenn. Hvað ætli
hann hafi haldið að yrði gert
við hann?“
DV í gær um Jón Viðar Jóns-
son, leikhúsrýni Dagsljóss, sem
ekki kom á málþing um ís-
lenska leikritun.
Tóm leiðindi
„Verkið var ekki það tilkomu-
mikið að ég byði fólki að horfa
á það. Maður býður ekki fólki
að sjá eitthvað leiðinlegt. Mín
verk eru almennt leiðinleg og
þú býður engum upp á slíkt.“
Mexíkóskur myndlistarmaður,
sem sýnir hér á landi, í Morg-
unblaðinu í gær.
Hvergi friður
„Skotið á svefnstað brúargerð-
armanna"
Fyrirsögn í DV í gær
Of mörg hjól
„Rjúpnaskyttur á sexhjóli
kærðar“
DV í gær
Fræðsla um það sem allir vita
Allir vegfarendur vita að það er
stöðvunarskylda á rauðu Ijósi.
Allir ökumenn eiga að vita hver
er löglegur hámarkshraði og eru ótal
skilti við götur og vegi sem eiga að
minna á það. Ilver einasta manneskja
sem á við óhóflegt holdafar að stríða
veit að ríflegt fitu- og sykurát er orsök-
in, ásamt værukæru hreyfmgarleysi.
Mikið óskaplega má sú manneskja vera
langt úti á þekju sem ekki veit hve
heilsuspillandi reykingar eru og hvaða
sjúkdómum þær valda.
Svona má lengi telja upp almenn
þekkingaratriði, sem eru endurtekin í
síbylju án þess að þau beri sýnilegan ár-
angur til að fyrirbyggja síysfarir eða
heilsutjón. Fylliraftur, ungur sem gam-
all, veit öðrum betur hvernig áfengið
leikur líkama og sál, svo ekki sé talað
um fjárhaginn. Samt drekkur hann frá
sér glóruna og vaknar með óþolandi
timburmenn enn og aftur og hefur engu
gleymt og ekkert lært.
Allt ráðleysistalið um forvarnir og
fræðslu er af svipuðum toga spunnið og
sú skrýtna náttúra að skeyta hvergi um
viðvaranir, skömm né heiður þegar ver-
ið er að brjóta umferðarlög, eyðileggja
heilsu sína og útlit með feitmetisgræðgi
og tóbaksnautn.
Óregla og fíkniefnanotkun barna
og ungmenna eykst í öfugu hlutfalli við
allan kjaftavaðalinn
um fræðslu og for-
varnir. Það er búið að
fræða og forvarna ár-
um saman um skað-
semi eiturfflcnar og
það veit hver einasti
unglingur hvert fíkn-
in getur leitt þá. Áfengisfíkn og tóbak-
snautn minnkar samt ekkert, nema síð-
ur sé. Vöruúrval annarra og enn áhrifa-
meiri fíkniefna eykst með stækkandi
markaði og markaðurinn stækkar með
auknu framboði.
Ólafur landlæknir sagði í Degi-
Tímanum í síðustu viku, að unglinga
skorti ekki fræðsluna um hættur vímu-
efnanna, heldur að tileinka sér þekking-
una. Fleiri steinsteypt hús utan um
stofnanir taidi hann litlu bjarga, nema
samvisku vaidhafa.
Þetta þýðir að eigi árangur að
nást í þá veru að bjarga unglingunum
frá sjálfum sér, verður að leita annarra
leiða en að bulla sömu endurtekning-
arnar um einskis nýtar forvarnir og um-
búðir utan um stofnanir.
Lögleysur
Og því ættu
krakkarnir að fara
eftir einhverjum regl-
um og lífsmáta, sem
verið er að setja þeim
fyrir, þegar fullorðna
fólkið lætur allar viðvaranir sem vind
um eyru þjóta.
Bflstjórar vita ofurvel hver er há-
markshraði, en fæstum þeirra dettur í
hug að fara eftir því. Þeir drepa og lim-
lesta sjálfa sig og aðra, fullir sem ófullir,
og kæra sig yfirleitt kollótta um öll um-
ferðarlög, sem í raun og veru eru ekki
annað en forvarnir til að forðast slys.
Glannalegt líferni og skortur á
sjálfsaga og hófsemi í umgengni við
nautnir, er það lífsmynstur sem mjög
margir unglingar alast upp við. Þegar
þeir fara svo að hegða sér eins og full-
orðna fólkið, sem keyrir á ólöglegum
hraða gegnum lífið og á móti rauðu ljósi
þegar svo ber við að horfa, er heimtað
að einhverjir fari að gera eitthvað í mál-
unum.
Vegna þess að enginn veit hvað á
að gera, er gripið til úr sér genginna
ráðlegginga, eins og að efla forvarnir úti
í bæ og timbra upp stofnanir úti í bæ og
efna til fræðslu úti í bæ. Og fræðslan á
ekki að vera um annað en það sem allir
vita, en alltof fáir kunna að hagnýta sér.
Kannski eru það ekki börnin held-
ur fullorðna fólkið sem þarf á hagnýtri
fræðslu um lífsgildin að halda. Þarf ekki
að kenna foreldrum hvernig á að
umgangast börn, vinna traust þeirra og
tiltrú, vera þeim betri fyrirmynd?
Og þótt agi sé ljótt orð og fjarri
þeirri miklu fríhyggju sem núverandi
valdakynslóð hefur alið sjálfa sig upp í,
gæti verið að krafa um einhvern vott af
sjálfsaga eldri sem yngri væri gagnlegri
en aðrar forvarnir og meiningarlaus
fræðsla.
OÓ
Oddur