Dagur - Tíminn - 22.10.1996, Síða 1
^Dagur-OItmmtt
LÍFIÐ í LANDINU
Þriðjudagur 22. október 1996 - 79. og 80. árgangur - 201. tölublað
GF.MSI
VAR
ÞAÐ
HEILLIN
egi-Tímanum bár-
Dust á þriðja hundr-
að nafnatillögur á
GSM símann og
var þátttaka þó
mun meiri þar sem
margir mæltu með
sama nafninu.
Langflestir voru á því að „gemsi“
hæfði fyrirbærinu best og var
ákveðið að taka undir með þeim.
Einnig voru handsími, greipsími,
vasasími og geimsími vinsæl nöfn.
Dregið var úr þeim 57 sem
stungu upp á að kalla GSM símann
gemsa og var sigurvegarinn Dóra
Haraldsdóttir, Grundargötu 50,
Grundarfirði. í vinning fær Dóra
auðvitað gemsa, SAGEM tæki af
fullkomnustu gerð.
Á síðum 18 og 19 birtast allar
uppástungurnar sem bárust blað-
inu fyrir klukkan tólf á hádegi í
gær. Margar eru bráðsnjallar og þá
eru útskýringarnar, sumar í vísna-
formi, ekki síðri. En fyrst eru það
meðmælin með „gemsa“-heitinu.
mgh
Orðið gemsi er mér tamt frá
æsku að nota um gemlings-
hrútskudda, með svolitlu gæluívafi,
ekki neikvætt. Aðra merkingu gefur
Orðabók Menningarsjóðs, ómerki-
legur strákur eða maður. Sögnin að
„gemsa“
merkir
að spotta,
láta mikið
yfir sér
sem mér
finnst vel
hæfa þar eð
á fyrrgreind
símtól er
oftsinnis litið
sem stöðu-
tákn. Þá
mætti segja
þann vera að
„gemsa“ sem
talaði í slíkan
síma, t.a.m. á
gatnamótum á
meðan beðið er
eftir grænu ljósi“.
Pórir Jónsson,
Ólafsfirði
Gemsi þætti okk-
ur gott nafn á
GSM símann sem er
skondinn og
skemmtilegur félagi.
Gems þýðir kátína og
svo getur hann líka
verið „óttalegur
gemsi“ þegar hann
truflar mann og mætti
því allt eins „gemling-
ur“ heita.
Jóhanna Valdimarsdóttir,
Akureyri
Islensk málstöð
leggur til orðið
„geimsími“ en það
eru sterkar líkur til
að það yrði fljótlega
að „gemsi“. Gemsi
er til í íslensku
máli sem stytting
og léttleika orð yf-
ir gemling, eins
árs kind“.
Gunnar Grímsson,
Kópavogi
Gemsi er gott
búdýr okk-
ar bænda“.
Valgarður L. Jóns-
son, Akranesi
Rétt eins
og gemsi
þroskast í
fullvaxna
kind á þessi
ljúflingur
eftir að
verða enn
fullkomn-
ari.
Brandur
Gíslason,
Reykjavík
Vinningshafinn Dóra
Haraldsdóttir, Grundar-
götu 50, Grundarfirði
fœr auðvitað gemsa,
SAGEM tœki af
fullkomnustu gerð.
Hefur alla eiginleika fullorðinnar
kindar og horfir til framtíðar.
Þórunn Jónsdóttir, Akureyri
Gemsi er gamalt og fallegt ís-
lenskt orð, sbr. gemsar og gam-
alær eins og segir í kvæðinu. Gemsi
er einnig góð útfærsla á skamm-
stöfuninni GSM“.
Pórlaug Ágústsdóttir, Reykjavík
^etta er gemsinn í símtækjaflóð-
inu“.
Kristín Hlíf Andrésdóttir, Kópavogi