Dagur - Tíminn - 22.10.1996, Blaðsíða 9

Dagur - Tíminn - 22.10.1996, Blaðsíða 9
Hluti af „gamla Sjallagengi" Ingimars Eydal mætt á sviðið að nýju, þau Helena Eyjólfsdóttir og Þorvaldur „á sjó“ Halldórsson. Ýmsir komnir um miðjan aldur rifjuðu upp undir þessum tónlistarflutningi Ijúfsárar endur- minningar úr Sjallanum. Mynd: HG Mynd: JHF Þeir Óskar PétuT^o ---------■ ___ _ °9 verslunarstiórí *n’ tenór^9varT^rZ-------~—■ Ásta Sigurðardóttir, ekkja Ingimars Eydal. Við hlið hennar situr tengdasonurinn Einar Er- lingsson og dóttirin Ásdís Eydal. Mynd: JHF Minnisstæðir tónleikar Sunnudaginn 20. október var efnt til tónleika til minningar um hinn ást- sæla tónlistarmann Ingimar Eydal, sem hefði orðið sextugur þennan dag, hefði honum enst aldur til. Tónleikarnir voru haldnir í íþróttahöllinni á Akureyri og var húsið fullskipað. Af því, og ekki sfður undirtektum áheyrenda, má ráða hvílikan sess Ingi- mar Eydal á í hugum og hjörtum þeirra sem á Akureyri búa, sem og iika margra annarra, því að ýmsir höfðu greinilega gert sér ferð um langan veg til þess að sækja þennan atburð og heiðra með þeim hætti minningu þessa góða drengs, sem varð kær hverjum þeim sem átti því láni að fagna að kynnast honum og eiga við hann samskipti. Tónlistin sem ílutt var, spannaði vítt svið; frá Goldberg tilbrigðum, sem Daní- el Þorsteinsson lék á píanó, og klassísk- um kórsöng, sem fluttur var af Kór Ak- ureyrarkirkju undir stjórn Björns Stein- ars Sólbergssonar og Karlakór Akureyr- ar-Geysis undir stjórn Roars Kvams; til dægurtónlistar þeirrar sem hljómsveit Ingimars Eydals var þekktust fyrir og dró aðdáendur hans hundruðum og þúsundum saman í Sjallann og á aðra staði hér á landi sem erlendis. Fram komu ýmsir þeir sem léku og sungu með Ingi- mari, svo sem Finnur Eydal, Helena Eyjólfs- dóttir og Þorvaldur Halidórsson. Jazzinn kom einnig við sögu í leik tríósins Skip- að þeim og Tríós Björns Thoroddsens, sem naut atbeina Egils Ólafssonar í flutningi sínum. Pfanóleikararnir Karl Olgeirsson, Níels Ragnarsson, Óskar Einarsson og Kristján Guðmundsson, léku Boogie Woogie átthent á tvö píanó og Gunnar Gunnarsson lék skálm, sem var helsti píanóstíll Ingimars Eydals. Einnig komu fram Tjarnarkvartett- inn, Tríóið PKK, Ómar Ragnarsson, Bubbi Morthens, Júlíus Guðmundsson og Óskar Pétursson, auk Qölda annarra listamanna sem of langt yrði upp að telja. Til upphitunar fyrir tónleikana kom fram fjörleg og for- vitnileg Bossa Nova hljómsveit úr Tónlist- arskóla Seltjarnar- ness en í kaffihléi lék hljómsveitin Fjórir ijörugir. Allir tónlistarmenn sem fram komu, gáfu vinnu sína, en allur ágóði af tón- leikunum rennur í Minningarsjóð Ingimars Eydals, en hann er ætlaður til kaupa á konsertflygli. Innkoman ætti að ná langt til þessa góða verkefnis, ekki síst þegar við bætist sá ríflegi stuðning- ur Akureyrarbæjar, sem Jakob Björns- son, bæjarstjóri, greindi frá á tónleikun- um í ávarpi sínu til tónleikagesta. Á því leikur lítill vafi að Ingimar Ey- dal var og er langþekktasti Akureyring- urinn í okkar samtíð. Nafn hans er sem næst engum manni hér á landi ókunn- ugt, enda hæflleikar hans á tónlistar- sviðinu óviðjafnanlegir og víðfeðmir. Ekki síður er hann minnisstæður öllum þeim sem honum kynntust, fyrir sívak- andi áhuga hans á hverju því sem mannlífi tengist. Minningin um þennan lífsglaða, greiðvikna og sístarfandi mann er hugstæð. Hið sama verða áreiðanlega tónleikarnir sem haldnir voru til minningar um hann í íþrótta- höllinni á Akureyri 20. október, 1996. Haukur Ágústsson skrifar um tónlist

x

Dagur - Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur - Tíminn
https://timarit.is/publication/254

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.