Dagur - Tíminn - 23.10.1996, Blaðsíða 10
10- Miðvikudagur 23. október 1996
ENGLAND
Gazza
rekinnúr
landsliðinu
Paul Gascoigne hefur verið
rekinn úr enska landsliðs-
hópnum. Graham Kelly,
framkvæmdastjóri enska knatt-
spyrnusambandsins, hefur nú
farið fram á það við Glenn
Hoddle að hann velji Gascoigne
ekki oftar í enska landsliðið
vegna sífelldra agabrota innan
og utanvallar. Lííur nú út sem
dagar víns og rósa séu taldir
hjá Gazza.
Vinur hans, knattspyrnu-
maðurinn Paul Merson hjá Ar-
senal, sem fór í áfengismeðferð
á síðasta ári, hefur nú ráðlagt
Gazza að leita sér aðstoðar og
fara að dæmi sínu og Tony Ad-
ams, fyrirliða Arsenal, sem nú
er í afvötnun og gengur vel.
gþö
GOLF
Tveir
sigrar
hjá Tiger
Ui
Sjö sveitír / maraþonboðhlaupi
Fríður var flokkurinn er lagði upp frá Hafnarfirði og hljóp sem leið Iá til Grindavíkur, 42,2 km
leið, síðastliðinn laugardag. Hlaupið var Maraþonboðhlaup og tóku þátt í því 7 sveitir skip-
aðar 5 hlaupurum hver. Tilgangur hlaupsins nú var að vekja athygli á ferð íslenskra hlaup-
ara sem taka þátt í Amsterdam-Maraþoninu 3. nóv. næstkomandi, en fjölmargir þáttakendur frá
íslandi munu taka þátt í því hlaupi.
Hörð keppni var á milli sveitanna og sigurvegarinn, sveit Skandia, hljóp á tímanum 2:59:48 en
Bláalónssveitin sem varð í 7. sæti hljóp á 3:04:12. Talið var að sú sveit hafi ekki lagt sig fram sem
skildi á endasprettinum og jafnvel tekið sér sundsprett í Bláa Lóninu er hún átti leið þar hjá.
Að hlaupinu loknu sýndu Grindvíkingar gestrisni sína í verki og buðu hlaupurunum upp á dýr-
indis máltíð. gþö
m
• Björgvin Björgvinsson, mark-
vörðurinn snjalli í knattspyrnu
íhugar að leggja knattspyrnuskóna
á hilluna og einbeita sér að hand-
knattleiknum á næstunni. Björgvin
stóð í marki Völsungs í sumar. l>á
er óvíst hvað varnarmaðurinn
sterki, Róbert Skarphéðinsson ger-
ir en hann hyggst flytja til Akur-
eyrar í vetur.
• Forseti þýska fólagsins Wallau
Massenheim, sagði í viðtali við
þýska sjónvarpsstöð í síðustu viku
að hann vissi að pressan væri mikil
á leikmönnum og þjálfara liðsins,
Kristjáni Arasyni, að standa sig
vel, en að skilningur væri sýndur á
því að það tæki tíma að púsla lið-
inu saman og að Kristján hefði 100
prósent stuðning á bak við sig.
Wallau vann sinn þriðja leik í vetur
gegn Bayer Dormagen um síðustu
helgi.
• Hilmar Bjarnason, fyrrum leik-
maður með Fram og Víkingi, leik-
ur nú með 3. deildarliðinu Ein-
tracht Hildesheim í Þýska-
landiskoraði sigurmark liðs síns í
deildarleik um síðustu hefgi. Með
Hildesheim-liðinu leikur einnig
Júlíus Gunnarsson og þeir tróna á
toppi deildarinnar ásamt þremur
öðrum liðum með tíu stig eftir
fyrstu sex umferðirnar.
KNATTSPYRNA • Akureyrarmót
' mtalaðasti kylfingur
heims, Bandaríkjamað-
urinn Tiger Woods, hefur
mikið látið til sín taka á banda-
rísku mótaröðinni eftir að hann
gerðist atvinnumaður og um
síðustu helgi sigraði hann á
öðru móti sínu í röð, Walt-Dis-
ney mótinu.
Woods og Tayior Smith voru
jafnir eftir lokadaginn með 267
högg, en ekkert varð af bráða-
bana á milli þeirra, þar sem
Smith var vísað úr keppninni
vegna ólöglegs grips sem var á
pútternum hjá honum.
Dómur ekki enn fallinn / kærumáli
Knattspymudeildar Þórs gegn KA
Enn á eftir að fá úr þvi
skorið hvort KA eða Þór
verður Akureyrarmeistari
meistaraflokks í knattspyrnu.
Liðin hafa leikið sín á milli um
þennan fornfræga titil í mörg ár
og það hefur gengið á ýmsu.
Aldrei hefur þó gengið jafn illa
KARFA • Urvalsdeild
„Leikir kattanna
aðmúsunum“
Þannig er ein fyrirsögn í
nýjasta tölublaði fþrótta-
blaðsins.
Nokkrir körfuknattleiks-
menn, bæði leikmenn og þjálf-
arar, hafa komið að máli við
Hamar
félagsheimili Þórs:
Salir til leigu
Tilvaldir til hvers
konar íþrótta- og tóm-
stundaiðkana.
Gufa - Pottur -
Búningsaðstaða
Hamar
sími 461 2080
Dag - Tímann og látið í ljós
óánægju með að starfandi dóm-
ari í DHL - deildinni skuli setja
fram skoðanir sínar á liðum
deildarinnar og leikmönnum
með þeim hætti sem þar er
gert. Telja þeir að viðkomandi
dómari geti varla talist hlutlaus
gagnvart leikmönnum sem
henn hefur lýst sem svo:
„Framlínan jafn eyðileg og
tunglið", „nokkrir leikmenn eig-
ingjarnir" eða „láta skapið
hlaupa með sig í gönur“ svo
einhver dæmi séu nefnd.
Samkvæmt lauslegri athugun
mun þetta vera einsdæmi í sögu
körfuboltans hér á landi að
dómari láti skrif sem þessi fara
frá sér. Hinu má svo reikna
með að þetta hafi frekar verið
skrifað til gamans, en að höf-
undurinn hafi sett þessa spá
sína og umsagnir fram sem ein-
hvern stóradóm sem hann muni
framfylgja út í æsar á leikvellin-
um í vetur. gþö
að fá lyktir í mótinu eins og
núna þar sem dómur hefur ekki
fallið í kærumáli sem Knatt-
spyrnudeild Þórs höfðaði vegna
tveggja meintra ólöglegra leik-
manna í KA- liðinu.
Óhætt er að segja að það hafi
ekki verið neinn myndarskapur
á framkvæmd mótsins í ár. Liðin
hafa mæst tvisvar á hverju ári
undanfarin ár, en illa gekk að
finna tíma fyrir leikina í ár og
svo fór að liðin léku einungis
einn leik, sem fram fór sl. haust
við heldur bágbornar aðstæður.
Liðin stóðu jöfn eftir 90 mínútna
leik, 2:2, en KA-menn höfðu bet-
ur eftir vítaspyrnukeppni sem
dróst á langinn og hætt er við
því að flestir áhorfendur á leikn-
um, hafi h'tið séð af henni, vegna
lítillar birtu þegar hún fór fram.
Forráðamenn Knattspyrnu-
deildar Þórs, undu því ekki að
KA-menn tefldu fram þeim Jó-
hanni Arnarsyni og Helga Níels-
syni sem komu iimá sem vara-
menn, en voru báðir skráðir
leikmenn með liðum í 4. deild-
HANDBOLTI
inni. Jóhann var búinn að til-
kynna félagaskipti yfir til Magna
og Helgi Níelsson lék með SM í
sumar.
Kærumál á flakki
Knattspyrnudeild Þórs fór með
kæru sína til Knattspyrnusam-
bandsins, sem vísaði henni til
Knattspyrnuráðs Akureyrar,
sem taldi sig ekki hafa lögsögu í
máhnu. Þaðan var málið sent til
Knattspyrnudómstóls Norður-
lands eystra.
Dómurinn tók málið fyrir í
síðustu viku, en komst að þeirri
niðurstöðu að með hliðsjón af
almennum traustssjónarmiðum
um óhlutdrægni dómara þá teld-
ist það rétt að forseti dómsins og
eini löglærði maður hans, Ólafur
Ólafsson, viki sæti í málinu
vegna tengsla sinna við KA, en
hann hefur setið í stjórnum hjá
félaginu og er í laganefnd þess.
Varamaður hans, Arnar Sigfús-
son, var vanhæfur af sömu
ástæðu, en Arnar er trúnaðar-
maður hjá KA. f framhaldi af því
sendi dómurinn gögn málsins til
KSÍ, sem væntanlega mun skipa
nýjan löglærðan dómforseta í
stað Ólafs á næstunni. Þegar
það gerist verður væntanlega
hægt að slá botn í kærumálið, en
þrátt fyrir að erfiðlega hafi
gengið að uppfylla ýmis formleg
skilyrði virðist sem málið liggi
nokkuð ljóst fyrir og ekki er bú-
ist við því að KA-menn hafi uppi
neinar varnir. -fe
KA-HEIMILIÐ
Stjarnan-ÍBV kl. 20
FH-Grótta kl. 20
Selfoss-Fram kl. 20
ÍR-HK kl. 20
Valur-Haukar kl. 20
Harmar trufíun á
leik KAogÍR
Leikur UMFA og KA hefur
verið frestað um einn dag,
vegna þess að Ríkissjónvarpið
hyggst sýna síðari hálfleik lið-
anna í beinni útsendingu.
Pétur Ólafsson, fram-
kvæmdastjóri KA, segir að
þá truflun sem ÍR-ingar
hafi orðið fyrir er þeir léku gegn
KA í 1. deild íslandsmótsins í
handknattleik sl. miðvikudag,
megi m.a. rekja til þess að sturt-
ur hafi bilað í öðrum klefum,
vatnið orðið kalt, og þar sem
mjög mikil starfsemi sé í húsinu
alla daga, hafi fámennum hópi
marma verið hleypt inn í sameig-
inlegar sturtur beggja félaganna,
en því miður haíi þeic verið þar
enn í leikhléi. „Þetta olli hins
vegar meiri truflun en við gerð-
um ráð fyrir, og það hjá báðum
liðum, og við hörmum það. Það
verður reynt að koma í veg fyrir
að þessi atburður endurtaki sig,
bæði þegar ÍR-ingar eru í heim-
sókn sem og önnur lið. Gegnum
tíðina hafa liðin mætt góðum að-
búnaði og hafa verið ánægð með
móttökurnar og aðbúnað í KA-
heimilinu og éég vona að fram-
hald verði á því“, sagði Pétur Ól-
afsson. GG