Dagur - Tíminn - 25.10.1996, Blaðsíða 4

Dagur - Tíminn - 25.10.1996, Blaðsíða 4
4 - Föstudagur 25. október 1996 Hagitr-Œúmrm F R E T T I R Vestmannaeyjar - Þorlákshöfn „Okkur dreymir um skattgreiðslur41 Sighvatur Bjarnason framkvæmdastjóri Vinnslustöðvarinnar hf. Við viljum styrkja stöðu okkar heilt yflr, meðal annars með þessum áherslum í landvinnslunnt Forstjóri Vinnslu- stöðvarinnar býst við góðum hagnaði af rekstri sameinaðs fyrirtækis og dreymir um að borga tekju- skatta s g býst við að samruna- áætlun fyrirtækjanna verði komin að fullu til framkvæmda um áramót, en hún er afturvirk og miðast við 1. september sl. Sameiningin ræðst þó af samþykki hluthafa- og aðal- funda fyrirtækjanna tveggja, sem haldnir verða í desember," segir Sighvatur Bjarnason, fram- kvæmdastjóri Vinnslu- stöðvarinnar hf. í Vestmannaeyjum, í samtali við Dag-Tím- ann. Stjórnir Vinnslustöðvarinnar og Meitilsins hf. í Þorlákshöfn samþykktu í vikunni áætlun um sameiningu fyrirtækjanna tveggja, undir nafni þess fyrr- nefnda. Eigið fé fyrirtækisins verður um 1.800 millj. kr. og hlutfall þess um 30%. Nettó- velta verður um fjórir milljarð- ar kr. og veltan brúttó um 500 millj. kr meiri. Sighvatur Bjarnason segir að eðlUegt sé að reka sjávarútvegsfyrirtæki með þessa veltu með 4% hagn- aði, það er 160 millj. kr. „Okkur dreymir um að fara að greiða tekjuskatta til samfélagsins,“ segir hann. Hið sameinaða fyrirtæki mun ráða yfir um 13.500 t. þorsk- ígilda. Hjá fyrirtækjunum tveimur starfa í dag 400 til 450 manns og er ekki búist við fækkun starfsmanna, þó sam- eining sé í vændum. Sighvatur segir landvinnslu sameinaðs fyrirtækis verða stokkaða upp. í Þorlákshöfn muni menn beina kröftum að brauðlagningu karfa-, þorsk- og ýsuflaka. í Vestamannaeyj- um verði lausfrysting, vinnsla í neytendapakkningar sem og saltfiskvinnsla. Stefna fyrirtæk- isins sé að vinna hráefnið sem mest í landi, enda muni það tryggja hærra afurðaverð þegar til lengri tíma sé litið. Þá hafi fyrirtækin að undanförnu ijár- fest töluvert til að styrkja land- vinnslu sína. „Að undanförnu hefur geng- ið ágætlega í loðnu og sfld. Það eru hins vegar fisktegundir sem alltaf hefur gengið misjafnlega með, meðan önnur vinnsla er stöðugri í sessi. Því viljum við styrkja stöðu okkar heilt yfir, meðal annars með þessum áherslum í landvinnslunni," Menntamálaráðuneytið Kennsludagar sknlu vera 170 Menntamálaráðu- neytið mun í vor afla sér upplýsinga um grunnskólahald vetr- arins s.s. hvort kennsludagar hafi fyllt lágmarkið enntamálaráðuneytið mun í vor afla sér upp- lýsinga um framkvæmd grunnskólahalds í landinu í vetur og það verk mun mats- og eftir- litsdeild þess annast. Verður meðal annars kannað hvort nemendur hafi fengið þá kennslu sem lög kveða á um, en kennslu- dagar hvers grunnskólaárs skulu vera ekki færri en 170. Þetta kemur fram í tilkynn- ingu sem menntamálaráðuneytið hefur sent frá sér, en áður hafði því borist fyrirspurn frá Samtök- um foreldrafélaga við grunnskóla Reykjavíkur um fjölda skóladaga nemenda í grunnskólum. Kennslustundir í viku hjá nem- endum í 1. til 4. bekk skulu vera 27 talsins, en síðan fjölgar þeim frá ári til árs. Nemendur í 8. til 10. bekk skulu fá 35 kennslu- stundir í viku hverri. Fram kemur hjá ráðuneyti menntamála að ekki sé lengur til staðar í lögum heimild til útgáfu sérstakrar reglugerðar um starfstíma grunnskóla, enda er rekstur hans og ábyrgð þar að lútandi komin til sveitarfélaga. Eftirlitsskyldan er þó hjá menntamálaráðuneytinu og hana annast mats- og eftirlitsdeild þess. -sbs. Tölvur Tæknival stækkar Tæknival hf. hefur tekið að sér umboð og dreifingu á tölvum og tölvubúnaði frá bandaríska fyrirtækinu Compaq Computer Corporation. Samn- ingur þar að lútandi var undir- ritaður í vikunni. Þetta mun vera bæði mikil- vægasti og víðtækasti samning- ur sem Tæknival hf. hefur gert við erlent fyrirtæki. Veltan hjá Tæknivali í fyrra var um 1,5 miljarður kr. og óx fyrirtækið um 52% á milli áranna 1994 og 1995. Starfsmenn þess eru um 160. • -grh Fiskverð Sjómenn í kaffistofunni um borð í Stálvík en þeir voru meðal þeirra sem felldu tilboð útgerðanna. F.v. Ing- ólfur Vilhjálmsson, vélastjóri, Pétur Karlsson, stýrimaður, Kristján Bjarnason, skipstjóri og Gunnar Gunn- arsson, 2. stýrimaður. Myna: as Úrskurðarnefnd í hættu Fjarar undan úrskurðarnefnd sjómanna og út- vegsmanna um fiskverð. Eykur þrýsting á að allur afli fari á markað Helgi Laxdal, formaður Vélstjórafélags ís- lands, telur einsýnt að það ijari undan úrskurðar- nefnd sjómanna og útvegs- manna um fiskverð þegar ágreiningsmálum er ekki vís- að til hennar. Hann gagnrýn- ir útgerð Þormóðs ramma hf. á Siglufirði fyrir að leggja tveimur raékjutogurum vegna deilna við áhafnir þeirra um rækjuverð í stað þess að vísa málinu til nefndarinnar. Formaður Vélstjórafé- lagsins segir að þessi þróun ýti mjög undir þá kröfu sjó- manna að allur afli fari á markað. Hann vekur jafn- framt athygli á því að nefnd- in var sett á laggirnar til að taka á ágreiningsmálum sjó- manna og útvegsmanna um fiskverð eftir síðasta verkfall sjómanna á fiskiskipaflotan- um. Forsaga þessa máls er að fyrir tveimur árum sömdu áhafnir þessara skipa við Þormóð ramma hf. um rækjuverð. Þegar verðið á rækjunni hækkaði voru sjó- mennirnir með óbreytt verð vegna þess að þeir ætluðu að safna í verðjöfnunarsjóð til að eiga eitthvað inni þegar og ef verðið mundi lækka. Þegar svo verðið lækkaði krafðist útgerðin að áhafn- irnar tækju hluta þess á sig. „Af því að mennirnir eru ekki tilbúnir að semja um þetta, þá leggur útgerðin bara skipunum," segir Helgi. Hann minnir hinsvegar á að útgerðin er með samning við stéttarfélög sjómanna þess efnis að ef kemur upp ágreiningur imi fiskverð, þá ber að vísa honum til úr- skurðar í áðurnefndri úr- skurðarnefnd sjómanna og útvegsmanna. -grh L@TT# VINNINGSTOLUR __ MIÐVIKUDAGINN I 23.10. 1990 AÐALTÖLUR Vinningar Fjöldi vinninga Vinnings- upphæð 1 . 6 af 6 0 46.070.000 0 5 af 6 C.. + bónus 0 1.591.173 3, 5af6 1 228.410 4. 4 af 6 198 1.830 r- 3 af 6 O. + bónu8 717 210 Samtals: Heifdarvinningsupphæö: 48.402.493 Á ísiandi: 2.332.493 Upplýsingar um vinningstölur tást elnnig í símsvara 568-1511 eða Grænu númeri 800-6511 og ítextavarpi á síöu 453. ísafjörður Matvörubúð í húsi K.Í. ísfirðingar bíða nú spenntir eftir að sjá hvaða rekstur kem- ur til með að verða í húsnæði Kaupfé- lags ísfirðinga eftir að það var lýst gjaldþrota nú á dögunum Kaupfélagið hafði gert til- raun til að halda hús- næðinu og var með tvo aðila í takinu sem höfðu áhuga á að yfirtaka rekstur þess og leigja húsnæðið. Þetta voru annars vegar Björnsbúð og Sandfell á ísafirði og hins vegar Kaupfélag Suðurnesja. Þessi áform urðu að engu með gjald- þroti KÍ því nú hafa Landsbank- inn og Samvinnulifeyrissjóður- inn leyst til sín húsnæðið sem verður auglýst til sölu á næstu dögum. Að sögn Brynjólfs Þórs Brynjólfssonar, útibússtjóra Landsbankans á ísafirði, er brunabótamat hússins á bilinu 30-40 milljónir króna. Eignar- hlutfall Samvinnuh'feyrissjóðs- ins er 2/3 á móti 1/3 hlut Landsbankans. Mörgum ísfirð- ingum er mjög í mun að mat- vöruverslun verði rekin áfram í húsinu til að tryggja eðlilega samkeppni á svæðinu. Aðrir vonast eftir að ýmis verslun og þjónusta tryggi sér þar sess því það muni bæta miðbæjarflóru ísafjarðar en bæjaryfirvöld hófu nú nýverið framkvæmdir við fyrsta áfanga á nýjum miðbæ með tilheyrandi gatnagerð og útlitsbreytingum. Ef þeir aðilar sem lýst höfðu áhuga á að yfirtaka rekstur KÍ ákveða að gera tilboð í húseign- ina, þá er almennt álit sér- fróðra vestra að Kaupfélag Suð- urnesja muni hafa sigur því það sé sterkara og öflugra og ekki spilli nú fyrir ef rétt er; að Sam- bandið sé gengið aftur á norð- anverðum Vestijörðum. M.H.- Vestíjörðum

x

Dagur - Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur - Tíminn
https://timarit.is/publication/254

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.