Dagur - Tíminn - 25.10.1996, Blaðsíða 8
8 - Föstudagur 25. október 1996
A
^Dagur- 1 1
Útgáfufélag: Dagsprent hf.
Útgáfustjóri: Eyjólfur Sveinsson
Ritstjóri: Stefán Jón Hafstein
Aðstoðarritstjóri: Birgir Guðmundsson
Framkvæmdastjóri: Hörður Blöndal
Skrifstofur: Strandgötu 31, Akureyri, Garðarsbraut 7, Húsavík og Brautarholti 1, Reykjavík
Símar: 460 6100 og 563 1600
Áskriftargjald m. vsk. 1.600 kr. á mánuði
Lausasöluverð kr. 150 og 200 kr. heigarblað
Prentun: Dagsprent hf./ísafoldarprentsmiðja
Grænt númer: 800 70 80
Fax auglýsingadeildar: 462 2087 - Fax ritstjórnar: 462 7639
Reykjavíkurflugvöllur: Hægan, hægan!
í fyrsta lagi
Pað er ekkert tilefni til að rífast um hvort Reykja-
víkurflugvöllur verði færður. Forseti borgarstjórn-
ar lét frá sér fara að hún gæti hugsað sér völlinn
burt - þegar sá dagur rynni að hægt væri að ferð-
ast á 10 mínútum með einteinungi frá Keflavík til
Reykjavíkur. Hvort sem farið verður með eintein-
ungi eða eintrjáningi þá verður það ekki gert á 10
mínútum á vorum dögum.
Loks þegar samgönguráðherra sér til sólar og ætl-
ar að auka framlög til Reykjavíkurflugvallar á að
drífa í úrbótum. Hann verður bara að gera betur
ef takast á að ljúka þessu verki hratt og vel. Völlur
allra landsmanna hefur verið sveltur svo út yfir
alian þjófabálk tekur. Hvergi fínnst jafn ömurleg
fl'.gstöð í alfaraleið og í höfuðborg íslands. Er það
e .ki glórulaust „landsbyggðardekur" að forsmá
} að samgöngumannvirki sem nær allir íslendingar
iota og landsbyggðarfólk miklu oftar en Reykvík-
'ngar!
í þriðja lagi
Það er sérstakt hagsmunamál landsbyggðarfólks
að Reykjavíkurflugvöllur sé brúklegur - og í
skreppifæri við miðstöð stjórnsýslu og athafna í
borginni. Enginn hefur svo auðugt ímyndunarafl
að láta sér detta í hug að gerður verði nýr flugvöll-
ur fyrir óteljandi mifljarða þegar kokstendur í rík-
isvaldinu að lappa upp á gamla völlinn fyrir einn.
(Og búið að gera í áratug!) Þess vegna á að drífa í
því að koma núverandi velli í nothæft ástand fram
á næstu öld: Öld einteinunga til Keflavíkur og ein-
trjáninga í Vatnsmýrinni (sem þá verður friðuð).
Stefán Jón Hafstein.
v_____________________________________________________)
J)agur-'3Imrátn
PJOÐMAL
Sp
umnm
Utó
Á innflutningur tóbaks að vera frjáls eins og
Qármálaráðherra leggur til?
Halldóra
Bjarnadóttir
framkvœmdastjúri
Tóbaksvarnanefndar
Nei. Af tveimur slæm-
um kostum er skárra
að ríkið haldi utan
um þetta, en mér finnst
jafnframt sjálfsagt að inn-
flytjendur tóbaks borgi allan
þann kostnað sem ríkið tek-
ur á sig við geymslu og
dreifingu. Frjálsum inn-
flutningi fylgir hætta á aug-
lýsingaflóði, samkeppni
myndi aukast og neyslan
yrði meira og aukast með
hjá yngri neytendunum.
Siv
Friðleifsdóttir
varaformaöur
heilbrigöisnefndar
Alþingis
Ef þetta þýðir óheft að-
gengi nýrra sígarettu-
tegunda inn á mark-
aðinn gengur það þvert á
þau forvarnasjónarmið sem
við höfum nýlega staðfest á
Alþingi. Tóbak er ekki eins
og hver önnur verslunar-
vara og þess vegna vil ég
ekki sjá fleiri sígarettuteg-
undir á markaði. Helst ætti
að útrýma reykingum í
áföngum með forvarna-
starfi.
♦
♦
Höskuldur
Jónsson
forstjóri ÁTVR
að er á valdi Alþingis
en ekki mínu að
ákvarða slíkt.
Guðn
Ágústsson
á sœti
í heilbrigðisnefnd
S
Eg er gjörsamlega and-
vígur frelsi í þessum
efnum. Við eigum að
standa á okkar heilbrigðis-
stefnu. Risar í sölu tóbaks
eru í leit að nýjum mark-
hópi. Þeirra bráð er ungt
fólk. Stærsta heilbrigðis-
vandamál samtímans eru
reykingar. Hér er sala á
eitri, söluaðilar eiga að lúta
ströngum lögum og ég frá-
bið mér þess að menn ræði
um þessi mál með fallegasta
orði í heiminum — frelsi —
á tungubroddinum.
1 1
5,
Sártsaknað
„Eftir heiðarlega tilraun til
kortlagningar á ferli fráfarandi
formanns Alþýðuflokksins er
niðurstaðan sú, að enginn veit
hvað átt hefur, fyrr en misst
hefur.“
- Jónas Kristjánsson í leiðara DV í gær.
Illt í efni
„Þessi stærsti stjórnmálaflokkur
landsins mun, sem og hinir
flokkarnir, byrja að molna nið-
ur eins og Berlínarmúrinn
gerði undan réttlætiskennd ijöl-
mennisins."
- Ástþór Magnússon í DV í gær.
Pervertar!
„Þjófarnir rótuðu í kvenveskj-
um og snyrtiveskjum, en stálu
engu slíku. Sömuleiðis vildu
þeir ekki gleraugu eða úr, að
því er virtist, og sýndu öðrum
munum lítinn áhuga, svo sem
blindrastaf.“
- Morgunblaðið í gær.
Óviðeigandi rukkun
„Það mun hafa farið út inn-
heimtubréf til þeirra sem ekki
voru búnir að greiða árgjaldið
sitt, ... með orðalagi sem ég
kann ekki við og tel ekki við
hæfí þegar félagasamtök eiga í
hlut.“
- Árni Sigfússon, formaður FÍB, í Al-
þýðublaðinu í gær.
Hraðaóðir þingmenn
Nokkrir hraðaóðir þingmenn sem
búa í landi sem passar þeim mjög
illa vilja nú auka ökuhraðann um
20 km á klukkustund. Fyrir nokkrum
árum var hámarkshraðinn 70 km. Það
þótti þingmönnum, sem þurfa að gusast
með látum og látalátum um kjördæmin,
of seinfært og hækkuðu í 90 km og nú
dugir ekki minna en 110 km löglegur
hraði á klukkustund. Hvenær hann
verður svo færður í 140 km er aðeins
tímaspursmál.
Þingmennirnir sem bera fram tillög-
una um aukningu ökuhraða bera við að
núverandi ökuhraði slævi löghlýðni bíl-
stjóra. Þeir aka nefnilega allir á 110 og
þar yfir, segja þingmennirnir. Það er
betra að slasa sjálfa sig og aðra á lög-
legum hraða en ólöglegum og það styrk-
ir virðingu ökumanna fyrir lögunum.
Svo eru vegirnir orðnir svo dæma-
laust góðir og brýrnar margbreiðar og
bflarnir svo æðislega fullkomnir, að
þeim er ekki bjóðandi upp á ökuhraða
undir 110 km.
Svo hafa þingmennirnir svo æðislega
mikið að gera, að þeir hafa engin tíma
til að vera að drolla á vegunum, marg-
breiðum, beinum og tæknilega full-
komnum, eins og bflarnir þeirra þeirra,
sem þeir fá ríflegan
ökutækjastyrk út á,
eru orðnir.
Úti að aka
Akstursskilyrði
þingmönnunum
hraðabrjáluðu enginn
íjötur um fót að leggja til enn háskalegri
akstur en nú tíðkast. Skammdegi, ísing
og fannalög eru ekki til annars en að
bjóða birginn. Stærð íslands er mjög
óheppileg fyrir alla þá sem engan tíma
hafa til að ferðast. Svo er landið ijöllótt
og holótt og vogskorið og einhvern veg-
inn allt öðru vísi í laginu en passar þeim
sem aldrei geta stytt nægilega þann
tíma sem tekur þá að komast á milli
staða.
Þingmennirnir sem vilja auka öku-
hraðann og háskann sem af honum
stafa hafa aldrei heyrt um öll þau hrylli-
legu slys sem hraðaksturinn veldur. Þeir
hafa heldur enga hugmynd um að ekki
eru öll ökutæki eins vel löguð fyrir
glannaskapinn og að mikill hluti bfl-
stjóra á meira en fullt
í fangi með að stjórna
sjálfum sér og bflxun
sínum á þeim hraða
sem nú telst löglegur,
hvað þá ef auka á
hann enn meir.
Gefist upp fyrir lögbrotum
Það er líka sjónarmið að ofgera ekki
löghlýðni bílstjóra sem eru með geðklof-
inn bensínfót. Þau rök að hækka öku-
hraðann til að koma í veg fyrir lögbrot
eru í ætt við þau, að gefa fíkniefni frjáls
til þess að sölumenn og fíklar brjóti ekki
lög þegar þeim er smyglað eða þeirra
neytt.
Svona uppgjöf fyrir lögbrotum á að
vera í nafni frelsisins. Það á ekki að
banna eiturlyfjaneyslu af því að allir
eiga rétt á að vera frjálsir að því hvað
þeir setja í skrokkinn á sér. Dreifinguna
má heldur ekki banna þar sem verslun-
arfrelsi á að ríkja. Svo er bara að efla
meðferðarstofnanir og sjúkralið til að
bjarga eiturffldunum þegar allt er kom-
ið í megnasta óefni.
Ökumðingana verður líka að gera
löglega svo að þeir þurfi ekki að svara
til saka þegar þeir myrða og limlesta
fólk x stórum stil og fara sjálfum sér að
voða með glannaskap og fífldirfsku.
Sú andfélagslega afstaða og ábyrgð-
arleysi sem lýsir sér í þeim vilja að auka
ökuhraða og lögleiða h'fsháskaxm, er í
hrópandi mótsögn við þá afstöðu að
krefjast þess að menn sýni ábyrgð og
sjálfsaga og hlýði þeim lögum sem þjóð-
félagið setur.
Só þingmönnum alvara með því að
leggja til að heiðra skuli skálkana til að
þeir skaði ekki sjálfa sig og breyta lög-
um þeim í vil, ættu þeir að stytta sér leið
og leggja til að hraðinn á vegum verði
lögleiddur í 140 km á klukkustund nú
þegar, svo að ekki þurfí að leggja fram
nýtt frumvarp eftir nokkur ár um hrað-
ann. OÓ
Oddur