Dagur - Tíminn - 25.10.1996, Blaðsíða 9

Dagur - Tíminn - 25.10.1996, Blaðsíða 9
íOcigur-XEmTmvt Föstudagur 25. október 1996 - 9 PJÓÐMÁL Heiðra skaltu skálkinn... Benedikt Jóhannesson skrifar Stjórn menningarsjóðs, sem kenndur er við Björn Jónssori ritstjóra, hefur orðið sjálfri sér til minnkunar með því að heiðra Jónas Kristjánsson, rit- stjóra Dagblaðsins, sem sérstakan stíl- snilling meðal blaðamanna. Svo virðist sem stjórn þessa lítt þekkta sjóðs telji að flaumur fúkyrða sem streymt hafa úr penna Jónasar á liðnum áratugum hafi skapað honum þá sérstöðu meðal blaða- manna að honum beri heiður. Um það væri í sjálfu sér ekki mikið að segja ef um væri að ræða verðlaunasjóð Sveins Skorra Höskuldssonar, formanns sjóðs- stjórnar, prívat og persónulega. Svo er aÚs ekki, heldur er Sveini og öðrum stjórnarmönnum fahn sú ábyrgð að veita ritfærum blaðamanni verðlaun sem tengjast minningu ritstjóra eins þekkt- asta blaðs í sögu íslands á seinni hluta 19. aldar og byrjun þeirrar 20. Ritstörf Jónasar markast af nokkrum hátindum. Indriði G. Þorsteinsson nefndi blað Jónasar jafnan rauðvínspressuna á þeim árum sem Jónas skrifaði um veit- ingastaði og vínmenningu í blaðið. Síðan þá hefur áhugi Jónasar á rauðvíni horf- ið, eins og meðal annars hefur komið fram í skrifum hans um áfengisneyslu ráðamanna, sem hann telur hneykslan- lega, eins og reyndar flest allt það athæfi sem ritstjórinn skrifar um í leiðurum sínum. Þingmönnum valdi ritstjórinn yfirskriftina „Þjófar á þingi" og aðrir leiðarar hans hafa verið í svipuðum stíl. Honum er ekkert heilagt, síst af öllu staðreyndir. Réttilega hefur verið bent á það að með ofnotkun gífuryrða hafi Jónas fellt gengi orðanna. Fáir taka mark á manni sem virðist umhverfast við ritvélina en hefur svo ekki verið maður til að standa bak við stóru orðin í viðtölum í öðrum fjölmiðlum. Það er í sjálfu sér athyglis- vert að hafa verið í fýlu í 30 ár en það er önnur saga hvort það er verðlaunavert. Stjórn sjóðsins sem verðlaunaði rit- stjórann er á annarri skoðun. Hún virð- ist telja ritstjórnarstefnu hans, sem sæk- ir fyrirmyndir til slúðurblaða í Dan- mörku og Bretlandi, verðlaunaverða. Auk þess hefur Jónas getið sér frægðar fyrir að setja saman íslenska útgáfu um gistihús og aðra ferðamannastaði í borg- um Evrópu. Ifápunktur á þeirri útgáfu var þegar Jónas lét þess getið að í búð nokkurri í París mætti fá alls kyns mjöl. Glöggur ferðalangur lagði hins vegar leið sína í búðina sem seldi þá ekkert mjöl heldur hunang. Hins vegar hét Búðin Maison du miel, sem á íslensku útleggst sem Hunangshúsið. Menn hafa tekið þetta sem dæmi um vönduð vinnubrögð Jónas- ar, sem löngu síðar hefur verið tahnn hafa ólireint mél í pokahorninu. En kannski hafði sjóðsstjórnin allt annað í huga við úthlutun verðlaunanna. í tilkynningu um að Jónas hefði hlotið þau í ár var þess getið að sjóðurinn hefði verið kominn í íjárhagslegt þrot og Morgunblaðið hefði orðið að rétta hann við með ijárframlagi. Ef til vill var það táknrænt að þrotið væri ekki bara fjár- hagslegt heldur líka andlegt. Loks kann að vera að sjóðsstjórnin hafi haft gamal- kunna íslenska aðferð í huga: Oflof er háð. Landlæknir og vímuefna- vandinn Guðrún María Óskarsdóttir og Ásdís Frímannsdóttir skrifa Til ritstjóra Dags-Tímans vegna innleggs landlæknis varðandi vímuefnavandann, frá Samtökun- um Lífsvog. Landlæknir segir unglinga ekki skorta þekkingu um hættur vímuefna. Það skortir lækna heldur ekki. Samt sem áð- ur er ofnotkun lyfja alþjóðlegt vandamál, samkvæmt skýrslu Alþjóða heilbrigðis- málastofnunarinnar. Það segir sig sjálft að hér vantar lilekk í þá keðju er heitir að fylgja eftir eftirliti, með lyfjaávísunum af hálfu lækna. Þess eru dæmi að verið sé að gefa lyf við allt öðru vandamáli en hrjáir viðkomandi, umjangan tíma, svo ekki sé minnst á riotkun alls konar tæknilegra gleðigjafa í ætt við Prozac, er virðist nú þegar ná yfir flest er viðkemur vandamálmn manns- líkamans. „Það læra börnin sem fyrir þeim er haft.“ Nákvæmlega það sama á við um pilluát, sem og notkun áfengis. Við hjá Sam- tökunum Lífsvog höf- um spurt hvað það kosti okkur skattborg- ara að ausa rándýrum lyijum ef til vill á stundum að nauð- synjalausu, einnig hvað það getur kostað að hafa fljótfæra og kærulausa lækna að störfum. Við telj- um togstreitu um fjármagn ekki lengur „faglega“ innan heilbrigðisgeirans. Nýlegt dæmi er að finna um niður- skurð á geðdeildum á Arnarholti. Ólafur Ölafsson, landlæknir, fær ádrepu í þessari grein. Er líklegt að Sjúkrahús Reykjavíkur fái meira Qármagn vegna þess að hér er um geðsjúkdóma að ræða? Ef fjármagn fæst ekki, þá lokast mögu- leikar þessa fólks til þess að eiga áfram kost á sömu aðhlynn- ingu. Hvers vegna er sú áhætta tekin að skera einmitt niður hér? Fróðlegt væri til dæmis að vita hvort land- læknir teldi ráðstöfun sem þessa á faglegum rökum reista. Hér leggjum við að- eins nokkur orð í belg til yðar, hr. rit- stjóri. Skoðun f málum þessum skortir okkur ekki, en enn bíðum við svars land- læknis við fyrirspurn um nýjar tölur yfir aðgerðir embættis hans gagnvart heil- brigðisstarfsfólki, frá árinu 1993. Við hjá Samtökunum Lífsvog höfum spurt hvað það kosti okkur skattborgara að ausa rándýrum lyfjum, ef til vill á stundum að nauð- synjalausu, einnig hvað það getur kostað að hafa fljótfæra og kæru- lausa lækna að störfum. Möðruvellir Erum við ekki komin lengra? Stefanía Traustadóttir félagsfrœðingur á Skrifstofu jafn- réttismála skrifar gestalciðara í dag Undanfarna daga hafa fjölmiðlar beint athygli þjóðarinnar að niður- stöðum könnunar á viðhorfum íslendinga til jafnréttismála. Könnunin tekur á ýmsum þáttum, svo sem mati á at- vinnutækifærum kvenna og karla og hvort menn eru sáttir við þær væntingar seni gerðar eru til þeirra sem konu eða karls. Þá var leitað álits á hvort staða kvenna hefði batnað síðustu fimm árin og spurt um viðhorf til verka- skiptingar innan íjölskyldunn- ar. Einnig var vikið að nokkr- um einkennum, sem sögð eru dæmigerð fyrir annað hvort kynið, og fólk beðið um að meta hvort hæfði betur konum eða körlum. íslendingar reyndust - að meðaltali - jafnréttissinnað- astir þjóða, þegar þeir voru beðnir að kyngreina umrædd einkenni. Réttur helmingur (48%) telur að þau eigi jafnt við um kynin. Þegar betur er að gáð reynist dæmisagan um karlinn, sem stóð með annan fótinn í sjóðheitu vatni og hinn í ísköldu og leið mátulega, eiga vel við. Hvers vegna telja 61% svarenda að þolinmæði einkenni frekar konur og að- eins 1% þeirra álíta að um- hyggjusemi eigi frekar við karla? Af hverju segja 49% svarenda að málgefni ein- kenni frekar konur en karla, en aðeins 11% tengja hana frekar körlum? Hugrekki og metnaðargirni eru tahn til karllegra eiginleika. Hvernig móta viðhorf sem þessi af- stöðu fólks til verkaskiptingar innan fjölskyldunnar, umönn- unar barna eða náms- og starfsval ungra kvenna og karla? Hvað um mat atvinnu- rekenda þegar þeir eru að ráða í stöður? Er sjáanlegur munur á yngri og eldri kyn- slóðinni? Er munur á viðhorf- um kvenna og karla? Sú staðreynd að meirihluti landsmanna telur heppilegast að annað foreldrið sé heima og þá fleslum tilvikum konan hefur vakið mikla athygli. Er- imi við ekki komin lengra? spyrja karlar og konur í for- undran. Jú, við erum komin töluvert á leið, þrátt fyrir hefðbundin viðhorf til verka- skiptingar kvenna og karla og til þess hvað er talið kvenlegt og karllegt. Stór hópur þjóðar- innar neitar að leggja mæh- stiku kynferðis á alla hluti og segir að það skipti ekki máli hvort foreldrið sé heima. Könnunin segir okkur að 99% íslendinga telja að konur og karlar eigi að hafa sömu at- vinnutækifæri, en jafnframt að aðeins 23% telja að konur hafi það í raun. Þá er ríkjandi við- horf að þjóðfélagið hygh frek- ar körlum en konum. Þetta segir okkur m.a. að stórum hópi fólks er ekki gert kleift að Ufa í samræmi við viðhorf sín, að það geldur kynferðis síns. Aðeins hluti könnunarinnar hefur verið birtur, en á jafn- réttisþingi, sem haldið er í boði Jafnréttisráðs í dag, föstudag, að Grand Hótel í Reykjavík, verða þær kynntar og nánar krufið hvað þær segja um viðhorf og stöðu kynjanna á íslandi í dag. Það er mikilvægt að ræða hvaða leiðir eru færar Jafnréttisráði, stjórnvöldimi og öðrum þeim sem hafa hug á að breyta að- stæðum sem standa í vegi jafnrar stöðu og möguleika kvenna og karla. Við vitum nægjanlega mikið um stöðu kvenna og karla og afleiðingar hennar. Ríkjandi viðhorf er að hún sé óásættanleg! Við erum stödd á mikilvægum tímamót- um og verðum að hafa dug til að stíga raunveruleg skref úr orðum í aðgerðir.

x

Dagur - Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur - Tíminn
https://timarit.is/publication/254

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.