Dagur - Tíminn - 25.10.1996, Blaðsíða 10
10 - Föstudagur 25. október 1996
|Dagur-®ítrtmn
KARFA • Urslit
Úrslit leikja úrvalsdeildinni í körfuknattleik í gærkvöld.
UBK-TindastóU 75:85
UMFG-SkaUagrímur 117:97
KR-Haukar 101:77
UMFN-Keflavík 94:87
ÍR-KFÍ 94:63
m.
■ Alan Shearer, miðherji Newc-
astle og dýrasti knattspyrnu-
maður heims, mim líklega ekki
leika með Uði sínu næstu tvo
mánuðina vegna verkja í nára
sem tóku sig upp nýlega. Hann
mtm gangast undir aðgerð á
næstu dögum.
■ Síðustu mót ársins á móta-
röðunum í golfi í Evrópu og í
Bandaríkjunum hófust í gær-
morgun. Stephen Ames frá
Trinidad lék á 67 höggum og er
með forystuna eftir fyrsta
keppnisdaginn á Valderama
vellinum í Sotogrande á Spáni,
þar sem síðasta mótið í Evrópu
fer fram. Endurkoma Robert
AUenby á mótaröðina eftir bfl-
slys vakti þó mesta athygli, en
hann stoppaði stutt við. Allenby
sló upphafshögg sitt þrjátíu
metra og af því búnu tók hann
föggur sínar og hætti keppni.
UM HELGINA
Handbolti Föstudagur 2. deild karla: Þór-KR kl. 20:30
ÍH-Keflavík kl. 20.00
Laugardagur 1. deild karla: HK-UMFA kl. 16:30
1. deild kvenna Fyikir-Valur kl. 16:30
ÍBV-Víkingur kl. 16:30
2. deild karla: Fylkir-IIörður kl. 14:30
Víkingur-Ögri kl. 16:30
Sunnudagur 1. deild karla: Fram-Stjarnan kl. 20.00
Haukar Selfoss kl. 20.00
KA-Valur kl. 20.00
Grótta-ÍR kl. 20.00
ÍBV-FH kl. 20.00
'1. deiid kvenna: Haukar-Stjarnan kl. 18:15
Körfuknattleikur Sunnudagur Úrvalsdeildin: ÍA-Þór kl. 20.00
Hamar
félagsheimili Þórs:
Salir til leigu
Tilvaldir til hvers
konar íþrótta- og tóm-
stundaiðkana.
Gufa - Pottur -
Búningsaðstaða
Hamar
sími 461 2080
KA-maðurínn Sergei Ziza og Páll Þórólfsson úr Aftureldingu eigast víð i gærkvöld.
HANDBOLTI • 1. deild karla
Mynd: BG
Afturelding jók forskotið
Afturelding jók forskot sitt
á toppi 1. deildarinnar
með sigri á KA 29:28 í
æsispennandi leik að Varmá í
gærkvöld, þar sem úrslitin róð-
ust ekki fyrr en á lokasekúnd-
unni, þegar Bergsveinn Berg-
sveinsson, varði skot Sergei Ziza
úr aukakasti.
Leikur liðanna var hnífjafn
framan af. Gestirnir leiddu í
leikhléi 12:13 en Afturelding
náði frumkvæðinu þegar líða tók
á síðari hálfleikinn. Liðið náði
fjögurra marka forskoti 25:21 og
síðar 27:23 þegar átta mínútur
voru til leiksloka. Síðustu mínút-
ur leiksins einkenndust síðan af
fjölmörgum mistökum, en KA-
menn sem beittu framliggjandi
vörn á lokakaflanum, náðu að
jafna 28:28 með langskoti Julian
Róberts Duranona. Heimamenn
geystust í sókn og Einar Gunnar
Sigurðsson skoraði níunda mark
sitt og 29 mark Aftureldingar og
sigurmark leiksins. KA-menn
fengu færi til að jafna, en lánið
lék ekki við þá.
Afturelding er án efa með
sterkasta lið landsins um þessar
mundir og sóknarlínan er án efa
KNATTSPYRNA
sú sterkasta í deildinni. Liðinu
skorti þó allan aga í síðari hállf-
leiknum og þegar upp var staðið
mátti ekki miklu muna að KA-
menn tækju með sér annað stig-
ið. Liðið var jafnt, en Gunnar
Andrésson, Páll Þórólfsson og
Einar Gunnar voru mikilvægir á
lokakaflanum.
Sergei Ziza var besti maður
KA-liðsins, sem enn er ekki farið
að sýna sínar bestu hliðar í vet-
ur. Baráttan í vörninni var fyrir
hendi í lokin, en það er enn mik-
ið verk óunnið hjá Alfreð Gísla-
syni, þjálfara liðsins.
Ólafur reynir fyrir
sér hjá St Mirren
Olafur Stígsson, einn af
lykilmönnum Fylkis,
heldur utan til Skotlands
í dag þar sem hann mun reyna
fyrir sér hjá fyrstudeildarfélag-
inu St. Mirren næstu daga. Ól-
afur er aldeilis ekki fyrsti ís-
lendingurinn sem freistar gæf-
unnar hjá þessu fornfræga fé-
lagi. Áður hafa Þórólfur Beck
og Guðmundur Torfason gert
garðinn frægan í herbúðum
þess. St. Mirren er með elstu
knattspyrnufélögum á Bret-
landseyjum, var stofnað árið
1877 og verður því 120 ára á
næsta ári. Að sögn Guðmundar
Torfasonar er þetta mjög öflugt
félag og innan þess ríkja mjög
sterkar hefðir. Nú sem stendur
er liðið um miðja 1. deildinna
og stefnan er sett á úrvalsdeild-
ina innan tveggja ára. gþö
Ólafur Stígsson.
FRETTIR
Baldur fer
tílLyngby
Knattspyrnumaðurinn Bald-
ur Bragason úr Leiftri hefur
gert leigusamning við
danska 1. deildarliðið Lyng-
by. Baldur mun æfa og leika
með danska liðinu út næsta
mánuð, en eftir það kemur í
ljós hvort hann kemst á fast-
an samning.
Óvistmeðþá
Arnór og Hlyn
Ekki er útséð með það hvort
Arnór Guðjohnsen og Hlynur
Birgisson leika með sænska
liðinu Örebro á næsta
keppnistímabili, en félagið
mun ræða við þá leikmenn
sem eru með útrunna samn-
inga í næstu viku.
KA Seikur heima
ogaðheiman
KA og belgíska liðið Herstel
Liege munu að öllum líkind-
um ekki eiga í neinum kaup-
um og sölum með heimaleiki
sína í Evrópukeppninni. For-
ráðamenn belgíska liðsins
óskuðu eftir því að síðari
leikur liðanna, í Liege færi
fram á föstudagskvöldinu 15.
næsta mánaðar og KA-menn
munu líklega óska eftir því
að heimaleikur liðsins fari
fram á Akureyri viku fyrr.
íþróttafélögin i Eyjum sameinuð
Fyrir dyrum stendur mikil
uppstokkun á íþrótta-
hreyfingunni í Vest-
mannaeyjum. íþróttafélagið Þór
og Knattspymufélagið Týr
verða sameinuð í Knattspyrnu-
og handknattleiksfélag ÍBV.
Samkomulag um þetta var gert
í vikunni eftir viðræður við
Vestmannaeyjabæ og undirritað
með fyrirvara um samþykki
bæjarstjórnar og aðalfunda í
Þór og Tý og ársþings ÍBV.
í yfirlýsingu frá viðræðu-
nefndunum segir að sameining-
in hafi verið vilJi bæjarbúa.
Með sameiningu sé ætluxún að
halda uppi öflugu íþróttastarfi í
Eyjum.
Samkomulagið byggir á sam-
þykkt bæjarstjórnar um að
bærinn kaupi eignir Þórs og Týs
á 52 millj. kr. og að núverandi
rammasamningur um byggingu
íþróttamannvirkja falli úr gildi.
Nær það til rekstrar og afnota-
réttar íþróttamannvirkjanna,
reksturs allra íþróttavallanna,
samstarfssamnings milli bæjar-
ins og íþróttabandalags Vest-
mannaeyja og aðildarfélaga
þess. Nýtt félag, ÍBV, byrjar því
frá grunni. Samkvæmt skipuriti
verður Knattspyrnu- og hand-
knattleiksfélag ÍBV sér félag
með sjálfstæðan Qárhag.
Það er fyrst og fremst fjár-
hagsleg vandræði íþróttahreyf-
ingarinnar sem veldur samein-
ingu Týs og Þórs en segja má
að bærinn sé að skera hreyfing-
una úr hengingarólinni með
samkomulaginu.