Dagur - Tíminn - 25.10.1996, Qupperneq 11
jOagur-©ittmrt
Föstudagur 25. október 1996 -11
Golfsagan
- lengi lillr í gömlum glæðum
*
slendingunum, sem léku
suðurvöllinn (Sur) á La
Manga í SL-ferðinni á dög-
unum og sagt var frá hér í Golf-
tímanum, varð starsýnt á minn-
ingarskjöld sem var við 12.
brautina á vellinum. Tólfta
brautin er par þrír, 140 metra
löng. Skjöldurinn er til minn-
ingar um einstætt afrek sem
unnið var á brautinni fyrir
nokkrum árum. Þýskur öldung-
ur för þá holu í höggi á braut-
inni. Þáð er út af fyrir sig ekk-
ert fréttnæmt við það að ein-
hver fari holu í höggi á braut-
inni þó gamall sé, svo margir
sem leika á vellinum. Það sem
var merkilegt við atburðinn er
það, að öldungurinn var 99 ára
þegar hann vann afrekið.
't- U(. f'
Gaddabann
✓
Afjölrnörgum golfvöllum í
Evrópu, einkum á Spáni,
hafa verið settar reglur
sem banna notkun á golfskóm
með stálgöddum undir. Flestir
kylfingar kannast við þennan
útbúnað, enda eru svona skór
algengasti skófatnaður þeirra
sem golfið stunda.
Nú stefnir í það að dagar
þessa skófatnaðar séu taldir,
þar sem þeim golfvöllum fjölgar
stöðugt sem leggja bann við
notkun stálgadda.
Á Valderama-golfvellinum,
þar sem Ryder Cup keppnin fer
fram á næsta ári, er nú bannað
að fara um á stálgaddaskóm.
Einnig hefur bannið náð til La
Manga-vallarins, sem margir
íslenskir kylfingar þekkja. Is-
lendingar jiekkja einnig vel til
Maspalomas-golfvallarins á
Kanaríeyjum, en þar tók bannið
gildi 1. október sl. Það er eins
gott fyrir þá kylfinga, sem
leggja leið sína til þessara
staða, að athuga skófatnað sinn
í tíma.
Búist er við að þeim völlum
íjölgi í Evrópu og Ameríku sem
taka upp bann við notkún stál-
gadda.
Stálgaddar skemma flatir
valla, eins og kylfingar vita. Oft
hefur verið um það rætt að
leyfa kylfingum að laga gadda-
förin á flötunum, en það hefur
dregist af ótta við að slíkt
mundi teíja golfleikinn mjög.
Kylfingum til huggunar skal
það tekið fram, að þeir geta
notað golfskóna sína áfram. Þar
sem bannið er í gildi eru stál-
gaddarnir skrúfaðir undan og
plasttappar settir í staðinn.
Segja þeir sem reynt hafa að
þeir séu ekki síður stöðugir á
þeim útbúnaði en stálgöddun-
um.
Lee Trevino
Lee Trevino er einn vinsæl-
asti kylfingur allra tíma.
Trevino fæddist í Dallas í
Texas 1. desember 1939 af fá-
tæku mexíkósku foreldri. Hann
naut sáralítillar skólagöngu, en
snemma lét hann golfkylfurnar
tala fyrir sig. Þegar hann var
þrítugur hafði hann meðal ann-
ars unnið US Open og þénað
hálfa milljón dollara. Vegna lé-
legra samninga varð lítið úr
þessum peningum fyrir Trevino
og runnu þeir að mestu leyti í
annarra vasa.
Þrátt fyrir frækna sigra á
næstu árum hélst Trevino illa á
peningunum. Hann meiddist illa
þegar hann varð fyrir eldingu á
golfvellinum og var frá keppni
um tíma. Þegar hann kvæntist í
þriðja sinn, 44 ára gamall, sagði
hann eiginkonu sinni að sér
fyndist hann of gamall til að
reyna að „komast á toppinn" á
ný. „Golfkylfurnar þínar hafa
ekki hugmynd um hvað þú ert
gamall," svaraði hún. Hann hélt
því ótrauður áfram og vann
meðal annars US-PGA mótið og
mörg önnur.
Lee Trevino er þekktur fyrir
hnyttin tilsvör og skondnar at-
hugasemdir, hrókur alls fagnað-
ar innan vallar og utan. Frægt er
tilsvar hans þegar einhver gerði
athugasemd við golfsveifluna
hans, sem þykir mjög sérstök. Þá
svaraði Trevino: „Bankastjóran-
um mínum þykir hún ágæt.“
Lee Trevino tekur nú þátt í
golfmótum eldri kylíinga, en þau
verða æ vinsælli meðal áhuga-
fólks um golf.
Hins og segir í greininni um Lee
Trevino, þykir hann hafa sérstaka
golfsveiflu. Þegar einhver setti út á
golfsveifluna hans svaraði Trevino:
„Bankastjóranum mínum finnst
hún ágæt.“ Teikning: R.Lár.
Golfari Dagsins
Golfari dagsins er eiginkonan sem leikur ekki golf að
staðaldri. S'undum er hún kölluð golfekkja. Það kemur
fyrir að húti fer út á golfvöll með manninum sínum, oft-
ast í góða göngjferð sér til heilsubótar. Það kemur fyrir að
hún tekur þátt hjóna- eða parakeppni með manninum og þá
púttar hún. Þ; ð eru óskráð lög að maðurinn má ekki gera
nokkra athugasemd þó púttin rati ekki í holuna fyrr en eftir
nokkur pútt. Það reynist mörgum manninum erfitt að hemja
skap sitt þegar hann hefur komið boltanum á flötina í tveim
eða þrem höggum, en frúin notar svo þrjú til fimm högg til að
pota boltanum í holu.
Sem betur fer gerist það æ algengara að konur leiki golf
og er það vel. Golfíþróttin er nefnilega einhver besta Qöl-
skylduíþrótt sem völ er á.
Teikning: R.Lár.
Golfreglan
Ef þú álítur, eftir að hafa
slegið boltann, að hann
sé týndur eða útaf, máttu
slá annan bolta til vara til
að spara tíma. Þú verður
að slá varaboltann áður en
þú leitar að fyrri boltanum.
Þú verður að segja mót-
herja þínum fyrirfram hvað
þú ætlar að gera. Hér álítur
Boggi að boltinn hans sé
útaf. Til þess að spara tíma
tíar hann annan bolta,
varabolta.
En þegar Boggi kemur að
boltanum kemur í ljós
að fyrri boltinn er ekki út-
af. Hann verður því að taka
seinni boltann upp og leika
áfram fyrri boltanum.
Boggi fær ekki víti í þessu
tilviki. En hann má ekki slá
varaboltann, þó svo að fyrri
boltinn sé ósláanlegur eða
sé í torfæru.