Dagur - Tíminn - 26.10.1996, Side 2

Dagur - Tíminn - 26.10.1996, Side 2
II - Laugardagur 26. október 1996 Jlagxtr-'ðKminn ÍSLENDINGAPÆTTIR Freyja Jónsdóttir skrifar Bakarfið og kornhúsið. Bankastræti 2 Ofninn í gamla bakaríinu. Bakhliðin á bakaríinu. Eitt af elstu húsum Reykjavíkur er Banka- stræti 2, þar sem núna er veitingastaðurinn Lækjar- brekka. Á þessum slóðum hafa í gegnum tíðina verið stunduð lífleg viðskipti. En lengst af var þarna elsta og þekktasta bakarí landsmanna, „Bernhöftsbakarí". íbúðarhús- ið sjálft og byggingarnar sem tilheyra því hafa í tímans rás orðið að lúta ýmsum breyting- um, en fyrir áræðni og dugnað fólks í Torfusamtökunum voru húsin varðveitt og gerð upp. Ríkissjóður eignaðist húsin árið 1950 ásamt þeim húsum sem standa sunnan í Bern- höftsbrekkunni að Amtmanns- stíg. Þá var sú hugmynd uppi að rífa húsin og byggja ráð- hús. Þann 25. september 1834 fær RC. Knudtzon útmælda lóð, 5040 ferálnir, í brekkunni austan við Lækinn. Lóðin náði austur að Stuðlakotstúni, suð- ur að Konungsgarði og norður að Arnarhólstúni. Meginhluti lóðarinnar var gamalt þrætu- land á milli Reykjavíkur og Arnarhólsbýlisins. En árið 1780 hafði yfírréttur dæmt Reykjavík landið. Sama ár og lóðin er mæld út lætur RC. Knudtzon reisa þar brauðgerðarhús, móhús og íbúðarhús. Hann taldi brauðgerðarhúsið vera hið fyrsta á íslandi, en sagnir eru um að nokkru áður hafi verið lítið bökunarhús á þeim slóð- um sem Hressingarskálinn var (nú McDonald’s). Allt byggingarefni í húsin flutti Knudtzon inn frá Dan- mörku, einnig steinana í bök- unarofninn. Á þessum tíma voru húsin talin til Ingólfs- brekku. Sama ár kom Tönnes Dani- el Bernhöft bakari og Qöl- skylda hingað til lands á veg- um RC. Knudtzon og tók við rekstri brauðgerðarhússins. D. Bernhöft var mikill fram- kvæmdamaður og var rekstur hans á brauðgerðarhúsinu til mikils sóma. Hann fékk leyfi fyrir mótekju austanvert í Vatnsmýrinni og lagði þangað veg frá brauðgerðarhúsinu, svo að hægt væri að flytja mó- inn þangað á vagni. Hann lét grafa tvo vatnsbrunna vestan við húsið. Annar brunnurinn var notaður fyrir heimilið. Hinn brunnurinn, sem nefnd- ur var Bakaríispósturinn, var notaður fyrir brauðgerðarhús- ið; sá brunnur var til margra ára eitt helsta vatnsból í Aust- urbænum. Samkvæmt manntali frá ár- inu 1835 búa í Bakarahúsinu: Tönnes Daniel Bernhöft, 36 ára, bakari og húsbóndi; M. Ehzabeth, 36 ára, kona hans, Vilhelm 6 ára, sonur þeirra, Katrine 4 ára, dóttir þeirra, W. Heilmann 26 ára, bakara- sveinn, Jón Gissurarson 26 ára, „gaardkarl", Guðrún Jónsdóttir 27 ára, þjónustu- stúlka, og Carl Ferdinand „assistent". D. Bernhöft kaupir eignina af RC. Knudtzon í ágúst 1845. Árið 1861 byggir D. Bern- höft geymsluhús, 17 x 14 álnir, á lóðinni sem tengdi saman bökunarhúsið og móhúsa- lengjuna. í nýja húsinu voru korngeymsla og ölgerðarkatl- ar. íbúðarhúsið var grindarhús með múrsteini í grindinni. Klætt með hstasúð á veggjum og með borðaþaki. Inngangur í húsið var á miðri framhlið og inngöngu- skúr við austurhlið. í bruna- virðingu frá árinu 1874 segir að íbúðarhúsið sé byggt af bindingi múruðum úr múr- steinum með helluþaki á plægðum borðum. Þá eru í húsinu ellefu herbergi auk eldhúss. Bökunarhúsið var sunnan við íbúðarhúsið. Það var tvílofta, 20x8 álnir að grunnfleti og hæð veggja 7 álnir, byggt af bindingi og klætt með borðum og þakið með hellum á súð: „f húsinu er sterkur bakaraofn af góð- um múr sem tekur hérumbil 'h af húsinu.“ Þá er getið um geymsluhús, sem er áfast við austurhlið bökunarhússins, 17x14 álnir, veggjahæð 4'h al- in, byggt úr ómúruðum bind- ingi, klætt með borðum og með hehuþaki á súð. í húsinu eru tveir múraðir ölgerðar- katlar með skorsteini og korn- geymsla. Geymsluhús áfast við austurenda á húsinu sem hýsti ölgerðarkatlana var 52’A ahn á lengd, 9 álnir á breidd og veggjahæð 33A álnir; það var byggt úr múrhúðuðum bind- ingi, klætt borðum og með borðaþaki. Brauðsölubúðin var í skúr- byggingu sunnan við fbúðar- Útför Daníels Bernhöft. húsið. í apríl 1885 fær Bern- höft leyfi fyrir viðbótarbygg- ingu norðan við íbúðarhúsið, 7Vix7’A álnir, fyrir brauðbúð- ina, sem hann lét byggja sama ár. Skúrinn sem brauðbúðin var í áður var rifinn, en ein- hvern tíma síðar var byggður þar annar skúr. Árið 1871 er íbúðarhúsið lengt um 6 álnir til suðurs og 1885 var byggt við norður- hluta þess. Lítil ræma var tekin af lóð- inni í október 1897, til breikk- unar á gangstéttinni með Bankastræti sem áður hét Bakarastígur. 1912, þegar Lækjargata var breikkuð, var tekin ræma af lóðinni undir götuna og girð- ing sett í staðinn. D. Bernhöft var lengi eini bakarinn í bænum. Árið 1855 voru hjá honum J. Heilmann, 48 ára bakari, og WUhelm Ge- org, 27 ára bakarasveinn. Eft- ir lát hans 1886 tók Vilhelm sonur hans við bakaríinu og síðan ekkja hans, Johanne Louise Bertelsen, sem var dóttir Bertelsens bakara. Son- ur þeirra var Daniel Edmond Gotfred, fæddur 1861. Hann fór ungur að vinna í bakaríinu og fór til Kaupmannahafnar árið 1881 til framhaldsnáms í kökugerð. Hann tók ungur við Bernhöftsbakaríi sem afi hans og nafni hafði stofnað. Árið 1931 flutti hann rekst- urinn á Bergstaðastræti. Þá vantaði aðeins þrjú ár til að Bernhöftsbakarí hefði starfað í Bakarabrekkunni í eitthundr- að ár. Árið 1923 keypti KFUM eignina til að láta reisa þar samkomuhús. En af einhverjum ástæðum varð ekki af því. í brunavirðingu frá 1932 er ríkissjóður skráður eigandi að eigninni. Þá er íbúðarhús óbreytt frá virðingu 1918, en þá var búið að setja bæði vatns- og skólpleiðslur, bæði í íbúðarhúsið og hin húsin á lóðinni. í maí 1933 er búið að byggja nýtt verslunarhús við geymsluhúsið, með dyrum í milli. Þetta hús er byggt úr bindingi, klætt utan með borð- um og vírneti og múrhúðað. í húsinu er sölubúð með fjórum sýningargluggum. Þarna var til margra ára kaupfélag Reykjavíkur og nágrennis „KRON“. Bakað var í brauðgerðar- húsinu til ársins 1944, en hús- ið þótti þá óhentugt og þurfti að fara með deigið upp á efri hæðina til að láta það hefast. f einu af þessum húsum var til margra ára rekið reiðhjóla- verkstæði. Þar sem móhúsið var áður er nú brauðsölubúð og í risi „Kornhlaðan". íbúðarhúsinu hefur verið breytt og er lítið eftir af upphaflegri herbergja- skipan þess. Þar er nú veit- ingarekstur í notalegu um- hverfi. Heimildir frá I’jóðskjalasafni og Borgarskjalasafni.

x

Dagur - Tíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur - Tíminn
https://timarit.is/publication/254

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.