Dagur - Tíminn - 31.10.1996, Síða 6
6 - Fimmtudagur 31. október 1996
iOtupxr-Βmmrt
F R E T TASKYRING
msvif Jóns Ólafsson-
ar, starfandi stjórn-
arformanns Stöðvar
2 með meiru, í íslensku
viðskiptalííi og vitund-
ariðnaði, eru enn og
aftur komin til um-
ræðu og verið umdeild
sem fyrr. Margrét Frí-
mannsdóttir, formaður
Alþýðubandalagsins,
lýsti áhyggjum sínum
af því að Jón Ólafsson
væri orðinn svo valda-
mikill að stjórnmála-
menn veigruðu sér við
að gagnrýna hann af
ótta við að komast
ekki að í Qölmiðlum
þar sem hann hefði
ítök.
Þetta eru þung orð
frá formanni stjórn-
málaflokks, en í samtali við Dag-Tím-
ann heldur Margrét fast við fyrri full-
yrðingar, þó að hún vilji ekki nefna ein-
stök dæmi þeim til stuðnings. „Ég er
hlynnt ákveðinni samkeppni á fjöl-
miðlamarkaðnum," segir Margrét. „En
hað er hins vegar stórt vandamál
A** þegar lögmál frelsisins snúast upp
í andhverfu sína
með þeim hætti
að óeðlilega mikil
völd safnast á
hendur
eins að-
ila í
krafti
íjármagns.
Þetta vanda-
mál er nú
persónugert í
Jóni Ólafssyni.“
Margrét segist
vilja sjá Alþingi setja
lög sem stemmi stigu við
valdasöfnun fárra, fjár-
sterkra einstaklinga í íjöl-
miðlaheiminum.
„Löggjafarvaldið þarf
fyrst og fremst að huga
að tvennu, samþjöpp-
un valds í fjölmiðla-
heiminum og eignar-
haldi á
ljós-
Hildur Helga
Sigurðardóttir
skrifar
svn
vakamiðlunum,“ segir
Margrét.
Elín Hirst fyrrum
fréttastjóri Stöðvar 2
lýsti því yfir opinber-
lega að Jón Ólafsson
hafi reynt að hafa
bein áhrif á ritstjórn-
arstefnu hennar með-
an hún var fréttastjóri Stöðvar 2.
En hver eru helstu fyrirtæki og við-
skiptatengsl Jóns Ólafssonar í íslensk-
um fjölmiðlaheimi?
Hvort sem menn eru sáttir eða ósátt-
ir við Jón Ólafsson, þá er varla annar
einstaklingur á íslandi í dag með jafn
víðfeðm ítök í fjölmiðlun og vitundar-
iðnaði.
Það er hins vegar ekkert í lögum sem
kemur í veg fyrir að einn maður vinni
sig upp í þá stöðu sem Jón Ólafsson
hefur gert.
Ljósvakamiðlar
íslenska útvarpsfélagið
var í fyrra, samkvæmt
Samkeppnisstofnun, þriðja
tekjuhæsta fjölmiðlafyrir-
tæki landsins, á eftir Ríkis-
útvarpinu og Morgunblað-
inu.
íslenska Útvarpsfélagið
rekur Sjónvarpsstöðina
Stöð 2, útvarpsstöðina
Bylgjuna, Fjölvarp (sem
rekur endurvarp á gervi-
hnattarásum) og Sjónvarpsmarkaðinn.
Þá hefur félagið leyfi til útsendinga á
útvarpsstöðinni Stjörnunni, þó að hún
starfl ekki sem stendur. Sjónvarpsstöðin
Sýn er í eigu sömu aðila og Stöð 2. Þær
eru aðskildar að nafninu til en eru í
beinu samstarfi í keppninni við Stöð 3.
Sýn og Stöð 2 hafa leyfi til að sjónvarpa
á hinum mikilvægu VHF-rásum sem ná
til allra neytenda sem hafa venjuleg
sjónvarpsloftnet. Stöð 3 sem freist-
ar þess að veita Stöð 2 og Sýn sam-
Koma völd og áhrif Jóns
Ólafssonar til kasta Alþingis?
Formaður Alþýðubandalagsins
boðar þingmál um samþjöppun
valds ífjölmiðlaheiminum
keppni, hefur ekki aðgang að þessum
mikilvægu rásum.
Hlutur Jóns í fjölmiðlasamsteypunni
er stór. Útherji er fyrirtæki þeirra sem
fara nú með meirihlutavald í íslenska
Útvarpsfélaginu. Jón Ólafsson er stærsti
hluthaftnn í Útherja, þar sem hann á
30.6%, en þar á eftir kemur Sigm-jón
Sighvatsson með 27% hlutafjáreign,
síðan Haraldur Haraldsson í Andra hf,
með 14,8%, Jóhann J. Ólafsson, 12,3%
og nokkrir smærri hluthafar, þ.á.m. Sig-
urður G. Guðjónsson, fyrrum stjórnar-
formaður fyrirtækisins.
Útherji fékk til liðs við sig bandaríska
Margrét Frímannsdóttir
formaður Alþýðubandaiagsins
„En það er hins vegar stórt
vandamál þegar lögmál
frelsisins snúast upp í
andhverfu sína. Þetta
vandamál er nú persónu-
gert í Jóni ÓlafssynL “
fj árfestingafyrirtækið Chase Investment
Ltd., dótturfyrirtæki hins heimsþekkta
Chase Manhattan banka, til að stofna
eignarhaldsfélagið Fjölmiðlun.
En það fyrirtæki er nú móðurfélag
íslenska Útvarpsfélagsins. Eignarhlutur
Útherja í Fjölmiðlun er 80%, Chase In-
vestment eiga 20%.
Prentmiðlar
íslenska útvarpsfélagið á 35% hlut í
Frjálsri fjölmiðlun og þar situr Jón Ól-
Dagur í ríki Jóns
Þó að margt sé misjafnt um Jón Ólafs-
son skrafað, þá verður honum varla
kennt um að hafa fundið upp fjölmiðlana. Á
hinn bóginn kemur hann svo víða við í þeim
heimi, að það er næsta ógjörningur fyrir eitt
einasta mannsbarn á íslandi að lifa heilan dag
án þess að komast í snertingu við fjöl- eða marg-
miðlun Jóns Ólafssonar í einhverju formi.
Til þess að svo megi verða þurfa menn annað
hvort að heita Gísh á Uppsölum, eða vera neðar
moldu, nema hvort tveggja sé. Talsverðar líkur
eru á því að dagblöðin, sem detta inn um bréfa-
Iúguna um morgun og miðjan dag tengist Jóni,
alveg eins og tímaritin á tannlæknastofunni. Út-
varpsstöðin, sem hlustað er á í bílnum á leið í
vinnuna - og hljómar kannski þar allan daginn -
gæti vel gert það hka, að ekki sé talað um þrjá af
hverjum ljórum geisladiskum, sem ná eyrum
fólks við öll hugsanleg tækifæri. Eftir vinnu er
síðan hægt að skreppa í bíóið hans Jóns, eða
leigja sér spólu frá Jóni, meðan krakkarnir leika
sér að því nýjasta úr tölvuleiktækjabúðinni hans
Jóns. Kannski eru krakkarnir orðnir unglingar,
komnir í hljómsveit og farnir að taka upp efni á
geisladisk - sem Jón gefur út, dreifir og selur í
búðunum sínum - í upptökuverinu hans Jóns. Ef
heppnin er með þá verður diskurinn mikið spil-
aður á útvarpsrásunum hans Jóns. Ef fjölskyldan
er kvöldsvæf fer hún kannski í rúmið fljótlega eft-
ir fréttir á sjónvarpsstöðinni hans Jóns. En ef um
nátthrafna er að ræða geta þeir hangið uppi fram
undir næsta morgun yfir öllum fjölvarpsrásunum
hans Jóns.
- Það er því varla ofsögum sagt að sólin gangi
seint til viðar í stórveldi fjölmiðlakóngsins Jóns
Ólafssonar.