Dagur - Tíminn - 06.11.1996, Síða 16
- 1
JlagiírXLtntmn
Miðvikudagur 6. nóvember 1996
FAXNÚMER ____
AUGIÝSINGADEILDAR ER 462 2081
Þá er bara eftir að bakka henni síðasta spölinn inn í anddyri safnahússins, þar sem hún verður á meðal margra fgörgripa
í sýningarsal Við stýrið er þúsundþjalasmiðurinn Addi á Sandl
FIMMTUG OG FÍN í „TAUINU"
Fyrir rúmu ári fékk Guð-
mar Ragnarsson, betur
þekktur sem Addi á
Sandi, þá hugmynd að gefa
Minjasafninu á Egilsstöðum
rúmlega fimmtíu ára gamla
dráttarvél, af gerðinni Mc
Cormick, sem hann hafði á
sínum tíma fengið í Loð-
mundarfirði. í framhaldi var
ákveðið að hann tæki að sér
að gera vélina upp, en Addi
er mikill áhugamaður um
varðveislu gamalla bíla og
búvéla og hefur gert margan
illa farinn grip sem nýjan.
Honum brást ekki bogalistin
nú, frekar en endranær og
Addi er ekki alveg viss um árgerðina en telur trúlegt
að framleiðsluárið sé 1944. Það verður ekki annað
sagt en að hún beri árin vel. Hárauð og stássleg, eins
og hún sé nýkomin úr kassanum. Að baki liggja ótal
vinnustundir. Varahluti hefur Addi fengið víða að,
m.a.frá framleiðslulandinu Ameríku, Og vélin slœr
ekki feilpúst, eftir eina eða tvœr tilraunir hjá meist-
aranum hrekkur hún í gang.
fyrir ekki löngu síðan var
dráttarvélinni góðu ekið, fyr-
ir eigin vélarafli, inn í safna-
húsið á Egilsstöðum. Það eru
um þrátíu ár síðan að Addi
sótti vélina til Loðmundar-
Ijarðar og bjargaði henni þar
með frá eyðileggingu. Vélin
var upphaflega í eigu Búnað-
arfélags Loðmundarfjarðar,
keypt árið 1945. Þá var fyrir
nokkru byrjaður fólksflótti úr
sveitinni. Ætla má að þetta
tækniundur hafi verið síðasta
von deyjandi samfélags og
vakið í brjóstum þeirra sem
eftir voru vonir um biómleg-
an nútíma landbúnað í grös-
ugri og faliegri sveit. En ailt
kom fyrir ekki, byggðin lagð-
ist af og móarnir sem gera
átti að grænum túnum héldu
áfram að vera óskaland mó-
fugla.
Myndir og texti:
Arndís Þorvaldsd.
2®® ff
í Sjallanum frá 5.-9.
Opið frá kl. 13-20
Ath! Opið frá kl. 13-18 laugard. 9. nóv.
Miðaverð: Börn kr. 500 - Fullorðnir kr. 600
Lifandi hitabeltisdýr • Risasnákar • Eitursnákar • Eðlur
Skjaldbökur • SporSdrekar • Kóngulær o.s. frv.
Hitabeltisfiðrildi í hundraðatali • Fjölbreytt safn af
óvenjulegum, lifandi dýrum úr öllum heimshornum.
Ver/ð velkomin!
Upplýsingar gefur Gula línan - sími 562 6262
Sauðárkrókur, félagsheimilið Bifröst, 10., 11. og
12. nóvember • Opið frá kl. 13-21